Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 11.10.2006, Blaðsíða 13
jnC.93linu^.] MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 13 Theodór yfirlögregluþjónn tekur við myndavélinni frá Svavari Sigurðssyni baráttu- manni gegn fikniefnavandanum. A milliþeirra er lögreglukonan Laufey 0. Gísladóttir meífíkniefnaleitarhundinn Ttru sem hefiir reynst mjög vel við að upplýsa fíkniefnamál hjá lögreglunni í Borgamesi að undanfómu. Höfðingleg gjöf til lög- reglunnar í Borgamesi Sjálfskipaður baráttumaður gegn fíkniefnavandanum, Svavar Sig- urðsson gaf lögreglunni í Borgar- nesi í síðustu viku stafræna mynda- vél til notkunar við fíkniefnarann- sóknir. Sagði Svavar við afbending- una að þetta væri hans framlag til lögreglunnar í Borgarnesi fyrir öfl- ugt starf að fíkniefnarannsóknum. Hann kvaðst fylgjast vel með því hvar vel væri unnið í þessari mikil- vægu baráttu gegn fíkniefhabölinu. Að sögn Theodórs Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns kemur þessi gjöf sér mjög vel fyrir lögregluna. Öll haldlögð fíkniefni þarf að Ijós- mynda og sá búnaður sem lögregl- an átti fyrir stóðst illa kröfur nú- tímans og þurftí endurnýjunar við. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Borgarnesi hefur aldrei verið lagt hald á meira magn fíkni- efna en það sem af er þessu ári. Samtals hefur verið lagt hald á rúmlega 11 kg af kannabisefnum, 222 stk. kannabisplöntur og 25 gr. af amfetamíni. KÓP Ymiss kostnaður og óþægindi við bankaskipti Bæjarritarinn á Akranesi telur ýmis óþægindi og kosmað fylgja því að bæjarfélagið skipti hugsan- lega um viðskiptabanka. Hann seg- ir samskipti við núverandi við- skiptabanka hafa verið góð og þar hafi þróast ýmsar nýjungar í rekstri sveitarfélaga. Hann telur Lífcyris- sjóð Akraneskaupstaðar ekki bund- inn af samþykkt bæjarráðs. Ekki liggur fyrir hver kosmaður við gerð útboðsgagna verður. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni ákvað bæjarstjórn Akraness á dögunum að segja upp viðskiptum bæjarfélagins við Landsbanka Islands á Akranesi. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar óskaði eftir minnisblaði um viðskipti þessara aðila og á bæjarráðsfundi í gær var umrætt minnisblað, unnið af Jóni Pálma Pálssyni bæjarritara, lagt ffam. I því kemur ffam að banka- viðskipti kaupstaðarins hafa að meginstofni frá stofnun hans verið hjá Landsbankanum á Akranesi eða forvera hans, Sparisjóði Akraness. Sömu sögu er að segja af tmdir- stofnunum kaupstaðarins. Við- skiptin hafa því staðið í um 65 ár. I gildi er samningur um ráðgjöf um skulda- og áhættustýringu frá 19.12 2003 sem er uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Þá er samningur um innheimtu fast- eignagjalda sem rennur út í lok þessa árs og samningur um inn- heimtuþjónustu sem gildir fyrir árið 2006 án uppsagnarákvæða. Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar er einnig með samning við bank- ann um fjárvörslu ffá árinu 2002 og er hann ótímabundinn en uppsegj- anlegur með sex mánaða fyrirvara. Bæjarritari telur að samþykkt bæjarstjórnar eigi einungis við um samninginn um skuldastýringu og bendir á að sé það meiningin að segja upp samningi um fjárvörslu lífeyrissjóðsins þá sé það verk stjórnar sjóðsins að fjalla um það mál „enda stjórnin ekki háð sam- þykktum bæjarráðs eða -stjórnar," eins og segir orðrétt í minnisblað- inu. Þá er rakið hvað skiptí á við- skiptabanka hafi í för með sér. Gera þurfi breytingar á tölvukerfi bæjar- ins og nauðsynlegt sé að halda úti tveimur kerfum á meðan kröfur bæjarins ganga út. „Slíkt kallar á ó- hagræði, meiri vinnu bæjarstarfs- manna, aukinn kostnað við tölvu- þjónustu á meðan á slíkum breyt- ingum stendur." Þá þarf að endur- nýja öll eyðublöð bæjarins svo og að breyta heimasíðu bæjarins. „Við skipti á viðskiptabanka þurfa starfs- menn að „fóta“ sig á samskipmm við nýja samstarfsaðila,“ eins og einnig segir í minnisblaðinu. Þá segir „að sé það vilji bæjaryfirvalda að bjóða út bankaviðskipti bæjarins kallar það á nokkurn kostnað við gerð útboðsgagna. Slíkur kostnað- ur liggur ekki fyrir skv. vitneskju undirritaðs,“ þ.e. bæjarritarans. Jón Pálmi segir að viðskipti við Landsbankann hafi í heild sinni gengið mjög vel. Nýjar leiðir hafi verið þróaðar sem séu nýjtmgar í rekstri sveitarfélaga til dæmis inn- heimta fasteignagjalda sem hafa verið bænum mjög farsæl að hans mati. Þá hafi samstarf við útbú bankans á Akranesi verið gott „og í flestum málum hafa aðilar náð saman um úrlausn mála varðandi viðskiptakjör á milli aðila í þeim til- fellum sem slíkt hefur þurft að fjalla um,“ segir í niðurlagi minnis- blaðsins. HJ Fulltrúi framkvæmdastjórnar Norðuráls Norðurál óskar eftir að ráða fulltrúa framkvæmdastjórnar fyrirtækisins Um framtíðarstarf er að ræða. í hverju felst starfið? • Margvíslegri aðstoð og vinnu með framkvæmdastjórn • Undirbúningi skýrsina og fyrirlestra • Skipulagningu og umsjón funda • Skipulagningu ferða og umsjón með móttöku gesta • Samantekt og úrvinnslu upplýsinga ásamt skjalastjórnun • Samskiptum við aðila innan sem utan fyrirtækisins • Þátttöku í verkefnahópum og ýmsum tilfallandi verkefnum Hvaða kröfur gerum við? • Háskólapróf eða gott stúdentspróf ásamt reynslu • Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund • Mjög góð færni í íslensku og ensku • Góð þekking á helstu töivuforritum (t.d. word, excel, powerpoint) • Frumkvæði, áreiðanleiki og skipulagshæfileikar • Metnaður til að takast á við krefjandi verkefni og vaxa í starfi • Nokkurra ára reynsla úr sambærilegu starfi er æskileg Hvað er í boði? • Góður aðbúnaður og góð aðstaða hjá fyrirtæki í mikilli sókn • Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til stafa hjá Norðuráli. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 18. október n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsókn@nordural.is eða póstlagt umsóknina, merkta: Fulltrúi framkvæmdastjórnar Trúnaður Við förum með umsókn þína og allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 430 1000. Norðurál Hjá okkur starfa nú um 360 manns að margvíslegum verkefnum og gert er ráð fyrir að starfsfólki fjölgi enn frekar næsta ári. Framleiðslugeta álversins er 220.000 tonnn á ári og unnið er að stækkun sem felur í sér að framleiðslugeta verður aukin í 260.000 tonn á næsta ári. NORÐURÁL CenturyAiuMiNUM Grundartanga* 301 Akranesi* Sími 430 1000» Fax430 1001* nordural@nordural.is* www.nordural.is orn.is Lifandi tónlist meðan á borðhaldi stendur Hljómsveitin Gammel dansk leikur fyrir dansi Forréttir: Gæsapaté m. villisveppum • Laxa- og kavíarmousse • Salat m. reyktum lunda og furuhnetum • Ferskt sjávarréttasalat m. koníakskokteifsósu • Innbakað hreindýrapaté m. rauðlaukssultu • Anisgrafinn Paradísarlax m. estragonsósu • Fylltegg m. túnfiskfrauði • Reyktur og grafinn hreindýravöðvi m. bláberjasósu • Hreindýrabollur í volgri villibráðarsósu Síldarþrenna að hætti Paradísar • Heimabakað rúgbrauð • Heimabakað heilsubrauð m. kúmeni og pecanhnetum Aðalréttir: Kalkúnabringa m. púrtvínssósu • Villibráðakryddað lamb m. villisveppasósu • Reykt svmaskinka m. rauðvínssósu • Hangikjöt m. öllu tilheyrandi Eftirréttir: Páradísarsúkkulaðikaka m. rjóma • Volgeplakaka m. rjóma • Kaffi ogTe 1 Meðlæti: • Sæt kartöflumús m. rósmarín og engifer • Brúnaðar kartöflur • Kalkúnastuffing m. brauði I og salvíu • Hangikjötsjafningur m. nýjum kartöflum • Heimalagað rauðkál m. eplum s Estragon-rauðlauks kartöflusalat • Epla-kanil chutney • Strengjabaunir meo furuhnetum, maís og rauðlauk • Grænar baunir • Laufabrauð • Sósur - sultur - ferskt salat 24v 25. nóvv 1. og 2. desember Einnig er hægt að sérpanta hlaðborðið fyrir stærri hópa á öðrum dagsetningum Verb: 5.500 kr.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.