Skessuhorn - 11.10.2006, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTOBER 2006
9
Sérstakt átak á umferðaræðum
út frá Reykjavík
Ríkisstjórn íslands mun leggja
það til við Alþingi að þegar í stað
verði ráðist í sérstakt átak til úrbóta
á umferðaræðum út ffá Reykjavík.
Þetta kom fram í stefnuræðu Geirs
H Haarde forsætisráðherra á Al-
þingi sl. þriðjudag. I máli hans kom
ffarn að ýmis merki væru nú um að
þensla væri á undanhaldi og nú væri
óhætt að fella úr gildi fyrri ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar um að setja
ekki af stað um ótiltekinn tíma ný
útboð á ffamkvæmdum.
„Þar með verður haldið áfram
með þær samgöngubætur, sem hafa
verið undirbúnar að undanförnu
sem og aðrar ffamkvæmdir. Ríkis-
stjórnin mun einnig leggja til við
Alþingi að þegar í stað verði ráðist í
sérstakt átak til úrbóta á umferðar-
æðum út ffá Reykjavík, þar sem
orðið hafa mörg alvarleg slys á und-
anförnum árum. Er talið að ná
megi miklum árangri í slysavörnum
með slíku átaki,“ sagði forsætisráð-
herra orðrétt í ræðu sinni.
HJ
Byggðasamlagi um Safiiahús
Borgarfiarðar sfitið
Borgarbyggð hefúr samþykkt að
slíta samstarfi við önnur sveitarfé-
lög um málefni Safhahúss Borgar-
fjarðar. Fyrir er byggðasamlag um
Safnahúsið sem Borgarbyggð,
Hvalfjarðarsveit og Skorradals-
hreppur eru aðilar að. Akveðið hef-
ur verið að stofna starfshóp til að
rifta því byggðasamlagi. Sigríður
Björk Jónsdóttir, formaður menn-
ingarnefndar Borgarbyggðar, sagði
í samtali við Skessuhorn að þetta
væri hluti af stefnumótunarvinnu
nefndarinnar. Akveðið hefði verið
að hefja vinnuna á rekstrarlegum
þáttum og fyrirhugað væri að leggja
byggðasamlagið niður fyrir áramót.
I framhaldi af því yrði skoðað hvað
gera þyrfti í framhaldinu. Verið
væri að fara úr flóknu fyrirkomulagi
í einfaldara.
I Safnahúsinu eru nú fimm söfh
og er eignarhald á þeim mjög mis-
jafht. Borgarbyggð er eini eigand-
inn af Héraðsbókasafni Borgarness,
en fyrir liggur þjónustusamningur
við Skorradalshrepp. Þá er lista-
safnið einnig algjörlega í eigu
Borgarbyggðar. Byggðasafriið er í
eigu Borgarbyggðar og Skorradals-
hrepps og þau tvö sveitarfélög,
ásamt Hvalfjarðarsveit eiga saman
Náttúrugripasafnið og Skjalasafnið.
Eignarhald er því ýmist á hendi
eins sveitarfélags, tveggja eða
þriggja.
Asa S. Harðardóttir, forstöðu-
maður Safnahússins, sagði í samtali
við Skessuhorn að þetta flókna
eignarhald gerði allan rekstur og
bókhald mun erfiðari. Því væri von
manna að með breytingum á eign-
arhaldi mætti auðvelda allt utan-
umhald og rekstur.
Nýr sldpulags- og
byggingafiilltrúi í Grundarfirði
Bæjarráð Grundarfjarðar hefur vor sem aðstoðarmaður bygginga- við Skessuhorn að Hjörtur hefði
falið Guðmundi Inga Gunnlaugs- fulltrúa. Tveir sóttu um stöðuna, verið valinn á grundvelli meiri
syni bæjarstjóra, að ganga til samn- Hjörtur og Sverrir Pálmarsson. reynslu í faginu og í deildinni.
inga við Hjört Hans Kolsöe um Sverrir er innfæddur Grundfirð- Erfitt hefði verið að hafha Sverri,
ráðningu í stöðu skipulags- og ingur og hefur starfað þar sem en ekki væri loku fyrir það skotið að
byggingafulltrúa. Hjörtur er bygg- verktaki og sjómaður. Hann lýkur hann kæmi til starfa hjá bæjarfélag-
ingaffæðingur og hefur verið starf- námi í byggingafræði í janúar. inu í einhverju formi.
andi í tæknideild bæjarins frá því í Guðmundir Ingi sagði í samtali KOP
Frumvarp um staðbundna
íjölmiðla komið fram á ný
Þingmenn úr öllum flokkum und-
ir forystu Dagnýjar Jónsdóttur hafa
að nýju lagt ffarn á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um staðbtmdna fjöl-
miðla. I tillögunni segir að Alþingi
ályktd „að fela menntamálaráðherra
að skipa nefnd er athugi stöðu stað-
bundinna fjölmiðla og rekstrarum-
hverfi þeirra og skili skýrslu. I
skýrslunni verði gerð grein fyrir
þróun markaðarins tmdanfarin ár
og, ef þurfa þykir, komið með tillög-
ur um beinar eða óbeinar aðgerðir
sem ríkisstjórn og Alþingi gætu
gripið til í því skyni að efla rekstrar-
grundvöll staðbundinna fjölmiðla".
Tillaga þessi var áður flutt á
tveimur síðustu þingum en fékk ekki
afgreiðslu. I greinargerð segir að
markmið hennar sé að gerð verði út-
tekt á þeirri stöðu sem nú er á mark-
aði svæðisbundinna fjölmiðla en slík
úttekt geti lagt grundvöll að umræð-
um um aðgerðir til að efla þessa
gerð fjölmiðlunar. „Svæðisbundnir
fjölmiðlar gegna nú þegar og munu
í ffamtíðinni gegna vaxandi hlut-
verki fyrir lýðræðislega umræðu,"
segir orðrétt í greinargerðinni.
m
Akraneskaupstaður í samvinnu við Orkuveitu Reykjavfkur
óskar eftir tilboðum í verkið:
Hólmaflöt - Bresaflöt - Malbikun og frágangur
Helstu magntölur eru:
Malbik............................ 3.150 m2
Jöfnunarlag....................... 3.520 m2
Steyptur kantsteinn................. 180 m
Steyptar gangstéttar................ 560 m2
Þökulagnir.......................... 800 m2
Sáning............................ 2.900 m2
Verklok eru sem hér segir:
Malbikun götu.................... 15. des. 2006
Gangstéttar, stígar og annar frág. 1. júní 2007
Útboðsgögn eru til sölu frá og með 9. okt. nk. hjá tækni- og umhverfissviði
Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 3.000,-.
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 20. okt. 2006, kl. 11:00.
L.
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs
J
Blaðamaður
á Vesturlandi
Skessuhorn auglýsir eftir blaðamanni til starfa á
samnefndum vefmiðli og vikublaði á Vesturlandi.
í boði er krefjandi en skemmtilegt starf í síkviku
umhverfi. Skilyrði er að viðkomandi hafi gott vald
á íslensku og rituðu máli og hafi haldgóða reynslu
sem nýtist í starfi. Háskólamenntun er æskileg.
Viðkomandi þarf að hafa gott fréttamat og mikinn
áhuga á mannlífi líðandi stundar.
Ráðið verður í starfið sem fyrst. Allar nánari
upplýsingar veitir Magnús Magnússon, ritstjóri í
síma 894-8998. Umsóknir sendist á netfangið
i skessuhorn@skessuhorn.is fyrir 15. október 2006.
Skessuhorn ehf. - www.skessuhorn.is
Akraneskaupstaður
Fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar
og stofnana 2007
Undirbúningurljárhagsáætlunar Akraneskaupstaðar og
stofnana hans fyrir árið 2007 stendur nú yfir.
Einstaklingar og félagasamtök sem vilja koma
ábendingum og óskum um fjárveitingar á árinu 2007
á framfæri við bæjarstjórn, eru vinsamlega beðin að
i senda skrifleg erindi þar um fyrir 15. nóvember 2006.
\ Félagasamtökum er sérstaklega bent á að beiðnum um
I fjárveitingu þarf að fylgja ársreikningur viðkomandi
i félags síðastliðins árs.
Akranesi, 9. október 2006
Bæjarritari