Skessuhorn - 11.10.2006, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTOBER 2006
uausunuu:
Grænt ljós á vegaframkvæmdir
hefur engin áhnf á Vesturlandi
Hvorki frestun framkvæmda í
vor vegna þenslu, né grænt ljós á
framkvæmdir nú hafa haft áhrif á
vegaframkvæmdir á Vesturlandi.
Þetta kom fram í samtali Skessu-
horns við Magnús V Jóhannssonar,
umdæmisstjóra Vegargerðarinnar á
Vesturlandi. I vor gaf ríkisstjóm Is-
lands það út að vegaffamkvæmd-
um, og fleiri framkvæmdum, yrði
frestað til að slá á þenslu í samfélag-
inu. Líkt og Skessuhorn hefur
greint ffá mótmæltu ýmis sveitarfé-
lög þessu og m.a. ályktaði aðal-
fundur Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi gegn ffestun vegaffam-
kvæmda.
Við semingu Alþingis á dögun-
um tilkynnti Geir H. Haarde for-
sætisráðherra í stefnuræðu sinni að
aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn
þenslu hefðu borið þann árangur að
nú þyrfti ekki lengur að fresta
framkvæmdum. Magnús sagði í
samtali við Skessuhorn að þetta
hefði ekki nein áhrif á framkvæmd-
ir Vegagerðarinnar á Vesmrlandi,
nema að tekin verði ákvörðun um
auknar fjárveitingar til vegagerðar.
„Svokölluð fresmn ffamkvæmda í
vor hafði lítdl áhrif, við hefðum ekki
verið neitt fyrr á ferðinni en ella.
Fresmnin tafði okkur því ekki neitt
að ráði og þessi tilkynning núna
hefur því lítil áhrif.“
Ekki eru miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar í fjórðungnum á næst-
unni. Uxahryggjavegur upp á
Tröllaháls er kominn í útboð og ný-
framkvæmdir við Utnesveg um
Þjóðgarðinn á Snæfellsnesi verða
boðnar út innan skamms. KOP
Hópurinn kátur við hlíðar Hafnarfjalls.
Grunnskólanemar ganga á Hafnarfjall
Nemendur í 10. bekk Grunn- kulda stöðva för sína, þó ekki hafi verið ákjósanlegt til fjallgöngu
skólans í Borgarnesi tóku sig til allir farið alla leið á toppinn. voru allir hæstánægðir með ffam-
síðastliðinn fösmdag og örkuðu á Nokkrir starfsmenn voru með í för takið. Myndin er af vef Grunn-
Hafnarfjall. Lém þeir ekki þoku og og þrátt fyrir að veðrið hafi ekki skólans. -KOP
Knattspymufélagið minnir á stúkuna
Bæjarráð Akraness hefur ákveðið
að boða stjórn rekstrarfélags meist-
araflokks og 2. flokks IA í knatt-
spyrnu til viðræðna um uppbygg-
ingu á knattspyrnuvellinum á Jað-
arsbökkum. I bréfi sem stjórnin
sendi bæjarráði á dögunum er
þakkað fyrir „myndarlega upp-
byggingu fjölnota íþróttahússins á
Jaðarsbökkum sem án vafa á eftir að
verða íþróttalífi á Akranesi mikil
lyftistöng," segir orðrétt í bréfinu.
Þá er minnt á það í bréfinu að
árið 2003 hafi Knattspyrnusam-
band Islands kynnt nýtt leyfiskerfi
fyrir þau félög sem eiga sæti í efstu
deild Islandsmótsins. Þar hafi kröf-
ur um aðbúnað verið auknar og úr
því flestu hafi verið leyst varðandi
Knattspymufélag IA að því undan-
skyldu að auka þurfi sætarými fyrir
áhorfendur um tæplega 300 manns.
Segir í bréfinu að þegar leyfiskerfið
var kynnt hafi verið ákveðið að
sækja um undanþágu frá þessari
kröfu til ársins 2007. Oskar félagið
því eftir viðræðum við bæjaryfir-
völd um málið.
Eins og fram kom í fréttum
Skessuhorns á sínum tíma voru
uppi hugmyndir að ráðast í stækk-
un stúkunnar við knattspyrnuvöll-
inn á Jaðarsbökkum en fram-
kvæmdinni var frestað.
HJ
Myndir úr safini
Olafs Amasonar
Enn heldur Skessuhorn áfram að
birta myndir úr safni Olafs Arna-
sonar, enda sýna viðbrögð við síð-
ustu birtingu, svo ekki er um að
villast, að mikil þörf er á því að nýta
þekkingu Vestlendinga til að koma
skráningunni á hreint. Skessuhorn
tekur það ffam að allar upplýsingar
um myndirnar koma frá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og þangað
ber að beina öllum upplýsingum
sem fólk telur sig hafa um þær.
Að þessu sinni birtast tvær
myndir teknar á sjómannadaginn á
Akranesi. Fyrri myndin er tekin
árið 1953 á sjómannadagsskemmt-
----------T--------------------
un við Barnaskólann, nú Brekku-
bæjarskóla, hús við Vesturgötu í
baksýn. Seinni myndin er tekin á
sjómannadaginn árið 1966.
Þeir sem telja sig þekkja ein-
hverja á myndunum, eða hafa um
þær aðrar upplýsingar, eru vinsam-
legast beðnir um að hafa samband
við Maríu Karen Sigurðardóttur á
Ljósmyndasafhi Reykjavíkur í síma
563-1790, eða í netfangið
ljosmyndasafn@reykjavik.is Þá er
minnt á að fleiri myndir Olafs má
skoða á myndavef Ljósmyndasafns
Reykjavíkur á netinu.
Utsýnispalliir ofan
Varmalands
Undanfarnar
fjórar vikur hafa
nemendur 5. til 7.
bekkjar Varma-
landsskóla í Borg-
arfirði verið að
vinna að því að búa
til útsýnispall uppi
á hamrinum fyrir
ofan Varmaland.
Þar er gott útsýni
yfir fallegan fjalla-
hringinn. Fyrstu
vikuna var tínt
grjót af hamrinum til þess að hann
yrði aðgengilegri og síðan þá hafa
nemendur og kennarar unnið að
göngustígagerð og snyrtingu á
Ljósm. Mats Wibe Lund.
svæðinu, svo sem að tína burtu
dauðar trjágreinar.
Rebekka Auður Katrín, Anita,
Lilja og Marta.
Varmaland í Borgarfirði.
T^raminn^,
Komið þið sœl
Mig langar aðeins að fjalla um
tvö ný úrræði fyrir öryrkja á Akra-
nesi.
I sumar hefur hópur öryrkja ver-
ið að hittast á þriðjudögum klukkan
13 til 16 að Kirkjubraut 40, efstu
hæð undir stjóm Júlíu Baldursdótt-
ur. Þetta er úrræði á vegum fjöl-
skyldusviðs Akraneskaupstaðar. Þar
hittumst við til að föndra og spjalla
saman. Það er ómetanlegt fyrir sál-
artetrið að vita af stað þar sem ör-
yrkjar og aðrir sem ekki hafa heils-
una í lagi geta komið saman. Mörg
okkar halda að við séum ein og líð-
ur illa yfir því að geta ekki hitt aðra
sem eru í svipuðum sporam. Nú er
hins vegar komin ástæða til þess að
breyta til og líta við á Kirkjubraut-
inni og líta á það sem við föndrum
þar.
Sumir mæta með prjónana sína
og aðrir með perlurnar. A staðnum
er svo glerið og margs konar form
til að gera skálar, bakka og margt
fleira úr því, nú eða bara láta hug-
ann reika og gera eitthvað út í loft-
ið sem getur verið mjög spennandi.
Svo er það leirinn, hann bíður líka
upp á marga möguleika í formum,
skálar og margt fleira í þeirri deild-
inni, mjög spennandi.
I sumar fórum við í menningar-
ferð til Reykjavíkur og heimsóttum
nokkur gallerí. Þessi ferð var mjög
skemmtileg og hressandi fyrir okk-
ur. Seinni part sumars fórum við
svo upp í Furuhlíð sem er í skógi
skógræktarfélags Skilmannahrepps.
Þar var tekinn smá göngutúr og svo
setið inni í Furuhlíð og skrafað,
mjög skemmtileg stund þar í góðra
manna hópi.
A Fimmtudagsmorgnum klukkan
11:00 til 13:00 hittist hópur í
Rauðakrosshúsinu við Þjóðbraut
11. Þetta er blandaður hópur ör-
yrkja, atvinnulausra og innflytj-
enda. Markmiðið er að hittast og
reyna að koma í veg fyrir einangrun
einstaklinga og veikindi sem geta
fylgt því. Fleira er þar í deiglunni
sem síðar verður auglýst.
Félagsstarf öryrkja verður áfram
á þriðjudögum á Kirkjubrautinni í
allan vetur og hópurinn í Rauða-
krosshúsinu ætlar að hittast áff am á
fimmtudögum. Við bjóðum alla
velkomna og vonumst svo sannar-
lega að til að sjá fleiri andlit á báð-
um stöðum.
Kveðja,
Kolbrún Ingvarsdóttir