Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Þessi meinta
góðmennska
fer hins vegar
á hilluna við
hliðina á
öðru fárán-
legu sam-
komulagi
sem kvað á
um „Fíkni-
efnalaust
Ísland árið
2000“.
Framsækinn
skóli sem
fléttar saman
það besta úr
menningu
leikskóla,
grunnskóla
og frístundar
er spennandi
hugmynd.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
ALLT
fyrir listamanninn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Í gær var málamyndasamkomulag um of beldis-lausa skemmtistaði undirritað. Samhliða var þýðingarlaust samkomulag gert um vændis-laus hótel. Reykjavíkurborg, Samtök ferða-þjónustu fyrir hönd skemmtistaða, lögreglan og slökkviliðið taka höndum saman um þessi
háleitu markmið. Hin svokallaða of beldisvarnar-
nefnd borgarinnar ber ábyrgð á utanumhaldi.
„Stefnt er að því að fyrirbyggja allt mögulegt of beldi
á skemmtistöðum, þar með talda kynferðislega og
kynbundið áreitni, vændi og mansal.“
Til að ná fram göfugum markmiðunum treysta
aðilar samkomulags á stefnugerð, samvinnu og
ársfjórðungslega fundi. Þá er því beint að þeim sem
reka skemmtistaði og hafa lifibrauð sitt af vínsölu
að „afgreiða ekki áfengi til þeirra sem sýnilega eru
ölvaðir“.
Tilefnið er ærið. En ef hægt væri að semja sig frá
mannlegum harmleik í Ráðhúsinu væri Ísland vímu-
efnalaust, ungmenni myndu öll stunda hópíþróttir
og stjórnmálamenn gætu samið um að hér fyndu
allir hamingjuna.
Sannað er að gríðarlegt framboð af vændi sé í
Reykjavík. Samt er áratugur frá því að lög tóku gildi
um málaflokkinn sem áttu að ná til fólks í vændi og
auðvelda því leið út. Hvorki virðist hafa gengið né
rekið í þeirri baráttu, þótt margir mætir hafi reynt.
Nú ætla embættismenn sér að hittast fjórum sinnum
á ári til þess að uppræta þau þjóðfélagslegu mein sem
engu ríki hefur lánast að uppræta. Kannski hefur
samt best tekist til í Hollandi, þar sem vændi er lög-
legt og ekki úthýst þangað sem enginn sér.
Ekki skal gert lítið úr því að viðfangsefnið er f lókið
og stórt. Fullkomið skilningsleysi á aðstæðum fólks
sem stundar vændi eða beitir of beldi er hins vegar
nánast áþreifanlegt með málamyndaaðgerðum sem
þessum. Rót vandans, í f lestum tilfellum, er fíkn.
Fíklar heyja baráttu fyrir lífi sínu á hverjum degi. Oft
þurfa þeir að verða sér úti um efni eftir ógeðfelldum
leiðum, vændi og af brotum. Efnin eru dýr og oft
keypt á svörtum markaði í undirheimum þar sem
fáir sjá til og of beldi þrífst. Fíklarnir fá enga inni-
haldslýsingu á efnunum.
Heillavænlegra skref þeirra sem vettlingi geta
valdið væri að útvega þeim lengst leiddu fíkniefnin
eftir löglegum leiðum og uppi á borðum, opna
neyslurými og fjölga skaðaminnkandi úrræðum.
Sjálf boðaliðaverkefni á borð við Frú Ragnheiði,
þar sem áhersla er lögð á að minnka skaðann sem
hlýst af fíkniefnaneyslu, með því að útvega hreinar
nálar, aðhlynningu og spjall, eru ómetanleg. Með
aðgerðum í þá átt mætti bjarga mannslífum og koma
í veg fyrir óhamingju.
Þessi meinta góðmennska fer hins vegar á hilluna
við hliðina á öðru fáránlegu samkomulagi sem kvað
á um „Fíkniefnalaust Ísland árið 2000“.
Góða fólkið
fundar
Borgarstjórn hefur samþykkt að efna til hug-myndasamkeppni um byggingu nýrra skóla í Vogabyggð og Skerjafirði. Byggðar verða
1.100-1.200 íbúðir og skólar fyrir um 600 börn í hvoru
hverfi. Þar verður byggt á kostum nýrrar menntastefnu
Reykjavíkur, sem fléttar saman formlegt og óform-
legt nám, með sterkri áherslu á hæfniþættina fimm í
forgangi stefnunnar: félagsfærni, sjálfseflingu, sköpun,
læsi og heilbrigði.
Hreyft hefur verið hugmyndum um að nýju skólarnir
í Vogabyggð og jafnvel Skerjafirði verði samþættir leik-
og grunnskólar með frístundastarfi fyrir annars vegar
1-9 ára börn og hins vegar nemendur á aldrinum 10-15
ára með fjölbreyttu vali, félagsstarfi og viðfangsefnum
sem hæfa styrkleikum og áhuga hvers og eins.
Framtíðarskólinn getur orðið öflug eining sem
nýtir styrkleika leikskóla, grunnskóla og frístundar.
Styrkur leikskólans hefur m.a. legið í frjálsa leiknum og
sveigjanleika. Leikskólastarf í borginni er á heimsmæli-
kvarða og 95% foreldra eru ánægð með starfið sem þar
fer fram samkvæmt nýjustu mælingum. Styrkur frí-
stundaheimila hefur verið að bjóða yngstu grunnskóla-
börnunum upp á óformlegt nám í hvetjandi umhverfi
þar sem frumkvæði og sköpunargleði ráða för. Félags-
miðstöðvarnar hafa byggt á sams konar styrkleikum
fyrir eldri börn og ungmenni ekki síst með áherslu á að
byggja upp félagsfærni og sjálfstraust. Styrkur grunn-
skólans liggurekki síst í fjölda fagmenntaðs starfsfólks
og markvissri vinnu á ólíkum námssviðum. Til dæmis
er mikil fagþekking í grunnskólum á máli og læsi sem
mikilvægt er að nýta sem best m.a. í þágu barna með
annað móðurmál en íslensku. Ný samþykkt lög um eitt
leyfisbréf kennara óháð skólastigi skapa tækifæri fyrir
aukið samstarf leik- og grunnskólakennara sem við
hljótum að skoða vandlega í góðu samstarfi við samtök
kennara.
Framsækinn skóli sem fléttar saman það besta
úr menningu leikskóla, grunnskóla og frístundar er
spennandi hugmynd sem við viljum þróa áfram í sam-
tali við menntasamfélagið nú þegar við leggjum grunn
að framtíðinni í nýjum og eldri hverfum borgarinnar.
Framtíðarskólar í mótun
Skúli Helgason
borgarfulltrúi
Samfylkingarinn
og formaður
skóla- og frí-
stundaráðs
Vistarband eilífðarinnar
Öllum fjárlagafrumvörpum
fylgir viðauki þar sem einfaldir
hlutir eru gerðir flóknir. Til
dæmis furðuverkið í kringum
kirkjujarðasamkomulag ríkisins
og þjóðkirkjunnar. Keisarinn
gæti svo auðveldlega leyst þann
rembihnút með því að bjóða
jarðirnar upp og skilað Guði
andvirðinu í eitt skipti fyrir
öll og frelsað fjárlögin frá illu.
Skilnað ríkis og kirkju mætti
síðan fullkomna með afnámi
laga um sóknargjöld og láta
trúfélögin um að sækja tíundina
með kröfum í heimabanka.
Nema Guðs og ríkisins vilji sé að
flækja hlutina.
Flokkurinn eilífi
Áhyggjur af framtíð Framsókn
arflokksins, sem mælist með
6,2 prósenta fylgi í könnunum,
eru fullkomlega óþarfar þar sem
ófeigum flokki verður ekki í
hel komið. Þegar boðað verður
til kosninga mun Framsóknar
traktorinn hrökkva í gírinn og
keyra á eitthvert hjartans mál
einhvers minnihlutahópsins.
Einfalt slagorð samið út frá
landakorti eða reiknistokki
mun svo reisa kjörfylgið. Þetta
virkaði með háum húsnæðis
lánum, leiðréttingum, fótbolta
leiðinni og svissnesku leiðinni.
Verði kosið eftir viku eru allir
peppaðir fyrir maltnesku 17 pró
sentleiðinni í fíkniefnalausum
húsnæðiskaupum.
arib@frettabladid.is
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
F
-7
9
1
8
2
3
B
F
-7
7
D
C
2
3
B
F
-7
6
A
0
2
3
B
F
-7
5
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K