Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 26
Það eina sem við
biðjum um er að
fólk sé ekki í óviðeigandi
búningum því þetta er
náttúrulega fjölskyldu-
hátíð.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
leikjavörur frá þekktustu
vörumerkjunum í bransanum
144hz
22.99531.995 Benq Zowie 24’’ skjárBQXL2411PSennheiser GSP600SEPCGSP600 39.995 Logitech G502 Lightspeed31579
14.990Razer Ornata ChromaRAZORNATACHOM
Regína R. Friðriksdóttir skipuleggur búingakeppnina í ár.
Ljósmyndari fer með vinningshafanum í ferðina og tekur myndir af búningnum sem
vinningshafinn fær svo að eiga,
en svo verða ýmis fleiri verðlaun
líka,“ segir Regína R. Friðriksdóttir
einn skipuleggjenda keppninnar.
„Þetta er stærsta búningakeppni
af þessari tegund sem er haldin á
Íslandi,“ segir Regína. „Við héldum
svona keppni í fyrra og þá voru
miklu fleiri sem tóku þátt en við
bjuggumst við. Maður veit ekkert
hvað margir eru í búningagerð á
Íslandi. Það vantar vettvang fyrir
fólk í búningagerð til að sýna hvað
það getur.“
Regína segir að í keppninni í
fyrra hafi verið mikið af hæfi
leikaríku fólki. „Það eru greinilega
margir hér sem hafa áhuga á bún
ingagerð. Að sjálfsögðu var líka
fólk sem var í keyptum búningum
en mjög margir gerðu sína eigin.“
Erlendar nördahátíðir snúast
að miklu leyti um búningana, að
sögn Regínu. „Auðvitað er mikið
um aðra dagskrá eins og pallborðs
umræður. En það er stór partur af
svona hátíðum að sjá búningana.“
Eins og áður segir verður
keppnin á sunnudaginn. „Hún
hefst klukkan 19.40 á sunnudags
kvöldið. Þetta er svona lokapartur
hátíðarinnar. Keppninni er skipt
upp í fjóra hópa í ár. Yngri en 14
ára, 1417 ára, 18 ára og eldri og
hópakeppni.
„Í dómnefnd er fólk sem þekkir
vel til búninga. Það er annaðhvort
að vinna við búningagerð eða
nota búninga í vinnu. Þetta er fólk
sem veit hvað það er að tala um
þegar það dæmir búningana.“
Búningarnir í keppninni þurfa
ekki að fylgja neinu sérstöku
þema. „Það má vera í hvernig
búningi sem er. Þetta er nörda
hátíð þannig að allt er í raun leyft.
Það eina sem við biðjum um
er að fólk sé ekki í óviðeigandi
búningum því þetta er náttúrulega
fjölskylduhátíð,“ segir Regína.
Hún bætir við að þau séu einnig
með svokallað cosplay walkon á
hátíðinni fyrir þá sem vilja ekki
taka þátt í keppninni en vilja samt
sýna búninginn sinn. „Fólk kemur
þá bara upp á svið í búningnum og
getur gert nokkurn veginn hvað
sem er, sagt eitthvað, sýnt dans
eða bara snúið sér í hringi,“ segir
Regína.
Það er hægt að skrá sig í keppn
ina fram að miðnætti á föstudag
inni á midgardreykjavik.is.
Búningar eru
stór partur af
nördahátíðum
Stærsta búningakeppni Íslandssögunnar verður haldin á
Gladsheim-sviðinu á sunnudaginn. Glæsileg verðlaun eru
í boði en í fyrstu verðlaun fyrir besta búninginn er ljós-
myndaferð með Pink Iceland um Reykjanesskagann.
Þátttakendur í fyrra lögðu mikinn metnað í búningana.
Það mátti sjá ýmsar verur í búningakeppninni í fyrra.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R NÖRDABLAÐIÐ
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
F
-6
0
6
8
2
3
B
F
-5
F
2
C
2
3
B
F
-5
D
F
0
2
3
B
F
-5
C
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K