Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 32
144
milljónir króna eru árlegar
leigugreiðslur H&M
á Íslandi.
Sumir leigusalar
standa uppi í
hárinu á þeim en fulltrúar
H&M benda þá bara á
sænska móðurfélagið.
Heimildarmaður The Sunday Times
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Sænsku verslanakeðjunni H& M og leig u sölu m hennar hefur lent saman vegna krafna keðjunnar um ákvæði í leigusamn-ingum um að leigusalarnir
beri kostnaðinn af auknum vöru-
skilum. Slík ákvæði tíðkast þó ekki
enn hér á landi.
Breska dagblaðið The Sunday
Times g reinir f rá og byg g ir
umfjöllun sína á frásögnum heim-
ildarmanna. Samkvæmt heimildum
blaðsins fer H&M ekki einungis
fram á við leigusala að leigugreiðsl-
ur séu tengdar veltu heldur einnig
að skil á vörum til verslana keðj-
unnar komi til lækkunar á veltunni
og þar með leigugreiðslum. Þannig
lækki virði atvinnuhúsnæðisins.
Heimildir The Sunday Times
herma jafnframt að H&M bjóði
leigusölum eins konar heildar-
samninga þar sem verslanakeðjan
leggur til veltutengdar leigugreiðsl-
ur og felur leigusölunum að skipta
þeim milli leigu, fasteignagjalda og
þjónustugjalda. Leigusalarnir þurfi
því að sætta sig við lágar leigutekjur
til þess að standa straum af kostnaði
vegna fasteignaskatta og þjónustu.
Tilraunir H&M til að fá leigusala
til að bera kostnaðinn af vöruskil-
um hafa fengið slæmar viðtökur hjá
leigusölunum sem sumir hafa hafn-
að tillögum verslanakeðjunnar.
„Sumir leigusalar standa uppi í hár-
inu á þeim en fulltrúar H&M benda
þá bara á sænska móðurfélagið,“
sagði einn heimildarmanna breska
blaðsins.
Í umfjölluninni segir að veltu-
tengdir leigusamningar séu nokkuð
nýlegt fyrirbæri í Bretlandi og að
þeir séu merki um að völdin séu
að færast frá leigusölunum til smá-
sölurisanna. Stórar verslanakeðjur
á borð við Top Shop hafa nýtt tæki-
færið í greiðsluþrotameðferð til að
endursemja um leigukjör. Stöndugri
keðjur á borð við Next heimta síðan
sambærileg kjör.
H&M rekur þrjár verslanir hér
á landi; eina í Kringlunni, aðra í
Smáralind og þá þriðju á Hafnar-
torgi. Þá var nýlega greint frá því að
H&M myndi opna verslun á Glerár-
torgi á Akureyri haustið 2020. Fast-
eignafélagið Reginn á Smáratorg og
verslunarhúsnæðið á Hafnartorgi
en Reitir eiga Kringluna. Heimildir
Markaðarins innan fasteignafélag-
anna herma að engin ákvæði um
vöruskil séu í leigusamningunum á
H&M setur þrýsting á leigusalana
H&M opnaði verslun á Hafnartorgi í október 2018. Það var þriðja verslun keðjunnar hér á landi og sú fjórða er í pípunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Leiga á Hafnartorgi töluvert undir markaðsleigu
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, sagði í ýtarlegu viðtali í
Markaðinum í vor að leiguverð á
Hafnartorgi, þar sem H&M er til
húsa, væri um þær mundir tölu-
vert undir markaðsleigu.
„Samningarnir eru settir þann-
ig saman að það er grunnverð
og stefnt er á að eftir nokkur ár
verði leigan komin í ákveðna
fjárhæð. Leigutakarnir þurfa
að fá tíma til að byggja upp
verslanirnar enda er svæðið ekki
fullmótað. Þess vegna er leigu-
verði stillt í hóf og yfirleitt tengt
veltu en þó mismikið. Til að byrja
með er fermetraverðið örugg-
lega helmingur á við góð bil á
Laugaveginum,“ sagði Helgi sem
tók fram að erlendis tíðkaðist
það að stórar verslanakeðjur
semdu um að leiguverð tengdist
veltu.
„Þar með sameinast leigusali
og verslunarrekandi um áhætt-
una sem tekin er. Ef það gengur
illa lækkar leigan, ef það gengur
vel þá hækkar hún,“ sagði Helgi.
H&M hefur farið fram
á við leigusala erlendis
að sett verði ákvæði í
leigusamninga um að
vöruskil til verslana
lækki veltutengdar
leigugreiðslur. Verslana-
keðjan hefur ekki
krafist þess af íslensku
fasteignafélögunum.
Íslandi. Þá hafi H&M ekki þrýst sér-
staklega á breytingar á leigusamn-
ingum á síðustu mánuðum.
H&M á Íslandi hagnaðist um 105
milljónir króna á síðasta ári sem var
fyrsta heila rekstrarár fyrirtækisins
frá því að það hóf starfsemi hér á
landi árið 2017. Verslanakeðjan seldi
fyrir tæplega 2,4 milljarða króna
á árinu en rekstrarkostnaður nam
2.258 milljónum króna. Í ársreikn-
ingi H&M á Íslandi kemur fram að
árlegar leigugreiðslur félagsins nemi
um 144 milljónum króna.
Kostnaðurinn við vöruskil hefur
hækkað. Árið 2016 var metið að
vöruskil kostuðu smásölufyrirtæki
60 milljarða punda, jafnvirði 9.300
milljarða króna, á hverju ári en síðan
þá hefur verið verulegur vöxtur í
netverslun. Sérfræðingar á smá-
sölumarkaði telja að hver flík sem
er skilað kosti verslanir að jafnaði
12 pund, jafnvirði 1.900 króna. Oft
þurfi að hreinsa flíkurnar, endur-
pakka þeim og flytja aftur í verslanir.
Sterkt og gott
samband
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Ekkert mál hjá
Vodafone
Það skiptir okkur máli að vera í góðu
sambandi 24 tíma sólarhringsins.
Ég þarf bara að biðja um það sem
þarf og Vodafone sér um restina.
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
F
-8
2
F
8
2
3
B
F
-8
1
B
C
2
3
B
F
-8
0
8
0
2
3
B
F
-7
F
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K