Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Opnaður hefur verið nýr vefur, finnumlausnir.is, þar sem fólk getur
kynnt sér málið og skrifað undir
áskorun til stjórnvalda um að
banna urðun sorps.
„Hér á landi eru á hverju ári
urðuð um 220 þúsund tonn af
sorpi,“ upplýsir Halldóra Geir-
harðsdóttir, leikkona og tals-
maður átaksins Hættum að urða.
„Um er að ræða gríðarlegt
vandamál sem Íslendingum ber
skylda til að finna lausn á og
stöðva. Sorp getur verið margar
aldir að brotna niður og því hefur
urðun í slíku magni slæm áhrif á
jarðgæði og loftgæði og er í eðli
sínu slæm nýting á takmörkuðum
auðlindum jarðarinnar,“ segir
Halldóra.
Skýr skilaboð til stjórnvalda
Á vefnum finnumlausnir.is er að
finna margvíslegar upplýsingar
um neikvæð áhrif urðunar sorps
og mögulegar lausnir á vanda-
málinu.
„Við finnum ekki lausnir fyrr en
við byrjum að leita að þeim,“ segir
Halldóra.
Fyrsta skrefið sé að ákveða að
núverandi ástand geti ekki varað
lengur.
„Staðreyndin er sú að nú þegar
eru lausnir til staðar sem duga til
að stöðva urðun alfarið á skömm-
um tíma. Við viljum gefa fólki
færi á að senda stjórnvöldum skýr
skilaboð um að líta beri á sorp
sem auðlind, ekki vandamál. Með
réttu hugarfari finnum við lausnir
sem henta hverju sinni og með
samstilltu átaki getum við hvatt
stjórnvöld til að stöðva urðun,“
segir Halldóra.
Sorp til upphitunar húsa
Íslenska gámafélagið leiðir
átakið Hættum að urða – Finnum
lausnir. Með því vill fyrirtækið
stuðla að skilvirkari og umhverf-
isvænni leiðum við förgun og
endurvinnslu þar sem hætt verði
að líta á rusl sem úrgang heldur
fremur sem hráefni til að nýta.
„Hér væri strax hægt að láta af
nær allri urðun með því að f lytja
ruslið til brennslu í Evrópu þar
sem það nýtist til húshitunar.
Með því nýtist líka f lutningsgeta
frá landinu sem verið hefur ónýtt
vegna misræmis í magni á inn-
og útf lutningi. Sótspor landsins
eykst ekki því skipin eru hvort
eð er á ferðinni,“ útskýrir Jón
Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska
gámafélagsins. Frá stofnun
Íslenska gámafélagsins fyrir tutt-
ugu árum hefur fyrirtækið verið
leiðandi í innleiðingu á f lokkun
og endurnýtingu úrgangs.
Við viljum gefa
fólki færi á að
senda stjórnvöldum
skýr skilaboð um að líta
beri á sorp sem auðlind,
ekki vandamál. Með
samstilltu átaki getum
við hvatt stjórnvöld til
að stöðva urðun.
Framhald af forsíðu ➛
„Á hverju ári falla til frá heim-
ilum og fyrirtækjum landsins um
530 þúsund tonn af almennu rusli
og af því hefur um helmingurinn
verið urðaður,“ upplýsir Jón Þórir.
Með aukinni endurvinnslu
sé raunhæft að draga úr urðun
um sem nemur 20 til 50 þúsund
tonnum.
„Eftir standa þá samt 150 til 180
þúsund tonn sem þarf að urða
á hverju ári en með því að f lytja
sorpið til Evrópu þar sem það er
nýtt til húshitunar náum við hins
vegar strax nærri 100 prósenta
endurvinnslu á öllu rusli,“ segir
Jón Þórir.
Átakið Hættum að urða verður
í gangi út september og í lok
átaksins verður áskorun og listi
með undirskriftum sem safnast
hafa af hentur stjórnvöldum.
Undirskriftum er safnað á slóð-
inni www.finnumlausnir.is.
Leikkonan Hall-
dóra Geirharðs-
dóttir er tals-
maður átaksins
Hættum að
urða.
Í átakinu
Hættum að
urða hefur
íslensk náttúra
fengið nýjan og
ljótari svip eins
og sjá má hér
þar sem hverinn
Geysir gýs rusli.
Sorp getur verið margar aldir að brotna niður. Urðun er gríðarlegt vandmál sem Íslendingum ber skylda að finna lausn á og stöðva enda er urðun slæm nýting á takmörkuðum auðlindum jarðar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
F
-8
2
F
8
2
3
B
F
-8
1
B
C
2
3
B
F
-8
0
8
0
2
3
B
F
-7
F
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K