Morgunblaðið - 02.05.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Fylgist með á facebook • Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
Sumarfrakkar í úrvali
Verð frá kr.
29.900
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott sumarföt, fyrir flottar konur
Str.
38-58
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Bolir
Kr. 4.900
Str. 40/42 - 56/58
Margir litir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Flutningaskipið HC Eva-Marie
kom til Sundahafnar í Reykjavík
um hádegisbilið í gær. Skipið var
með dýrmætan farm, hinn nýja
gámakrana Eimskips.
Nýi krainn kemur í stað eldri
krana, Jakans, sem verið hefur
lykiltæki í losun og lestun gáma-
skipa Eimskips í Sundahöfn allt
frá árinu 1984, eða í nærri 35 ár.
Með tilkomu hans varð bylting í
lestun og losun kaupskipa. Slíkur
krani hafði ekki verið í landinu frá
því Hegri, þ.e. kolakraninn svo-
kallaði, var rifinn árið 1968.
Í hugum margra er það tákn-
rænt að nýr Jaki komi til landsins
á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí.
Kraninn hefur frá upphafi verið
tengdur nafni Guðmundar J. Guð-
mundssonar, formanns Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, en
hann var jafnan kallaður Guð-
mundur Jaki, þó joðið stæði fyrir
Jóhann. Hafnarverkamenn Eim-
skips voru félagsmenn Dags-
brúnar og Guðmundur var þeirra
foringi.
Nýi kraninn var framleiddur í
verksmiðju Liebherr í Killarney á
Írlandi. Hann kemur hingað
ósamsettur og næstu vikurnar
verður hann settur saman á nýj-
um kranasporum á hafnarbakka
utan Klepps. Vonir standa til að
hann verði tilbúinn til notkunar í
júlí. Hann mun ganga á spor-
teinum sem verða alls 370 metra
langir.
Kraninn verður umhverfisvænn
þar sem hann er rafknúinn eins
og forveri hans. Hann verður með
getu til að vinna út í 15. gámaröð
í skipi, en gamli kraninn nær að-
eins út í 10. gámaröð. Kraninn er
einnig mun hraðvirkari og getur
lyft allt að 40 gámum á klukku-
stund. Jaki gat lyft 20-30 gámein-
ingum á klukkustund.
Hinum nýja krana verður gefið
nafn þegar hann verður tilbúinn
til notkunar. Jaki hefur verið talið
nafn við hæfi enda um afar af-
kastamikil tæki að ræða.
Eimskip fær ný skip
Verið er að smíða tvö gámaskip
í Kína fyrir Eimskip og verða þau
tekin í notkun seinni hluta þessa
árs. Nýju skipin eru talsvert
stærri en stærstu skip sem Eim-
skip er með í rekstri í dag og þess
vegna þarf félagið nú m.a. að fjár-
festa í nýjum gámakrana sem
ræður við stærri skip. Skipin hafa
hlotið nöfnin Brúarfoss og Detti-
foss og verða 26.500 brúttótonn.
Þau geta borið 2.150 gámaein-
ingar, en stærstu skipin í dag
taka 1.457 gámaeiningar. Þetta
verða stærstu skip íslenska flot-
ans.
Hinn nýi hafnarbakki utan
Klepps verður í framtíðinni aðal-
hafnarsvæði Eimskips og mun
hann taka við hlutverki Klepps-
bakka.
Morgunblaðið/sisi
Nýi kraninn Flutningaskipið HC Eva-Marie siglir inn Viðeyjarsund í hádeginu í gær. Jötunn fylgir fast á eftir.
Nýi „Jakinn“
kom til landsins á
verkalýðsdaginn
Verður settur upp á hinu nýja at-
hafnasvæði Eimskips í Sundahöfn
Guðmundur J. Guðmundsson
verkalýðsleiðtogi fæddist í
Reykjavík 22. janúar 1927. Hann
lést 12. júní 1997. Guðmundur
var stjórnarmaður og starfs-
maður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar 1953-96, varafor-
maður félagsins 1961-82 og for-
maður þess 1982-96, formaður
Verkamannasambands Íslands
1975-92 og sat í miðstjórn ASÍ.
Hann var borgarfulltrúi fyrir Al-
þýðubandalagið (forvera VG) ár-
in 1958-62 og þingmaður Reyk-
víkinga fyrir Alþýðubandalagið
1979-87.
Honum var þannig lýst í þætt-
inum Merkir Íslendingar í Morg-
unblaðinu:
„Guðmundur var þéttur á velli,
breiðleitur, laglegur og svip-
sterkur, hafði
sterka bassa-
rödd, talaði
hægt og gat
kveðið fast að,
hleypt brúnum
og haft í hót-
unum ef mikið
lá við. Hann
brúkaði mikið
neftóbak.“
Þegar Guðmundar var minnst
á Alþingi sagði Ragnar Arnalds
þingforseti m.a.: „Við andlát
hans hverfur af sjónarsviðinu
einn áhrifamesti verkalýðsforingi
seinustu áratuga.“
Guðmundur J. gekkst fúslega
við viðurnefninu Jakinn enda hét
önnur tveggja æviminningabóka
hans Jakinn í blíðu og stríðu.
Jakinn í blíðu og stríðu
ÁHRIFAMIKILL VERKALÝÐSFORINGI
Guðmundur J.
Guðmundsson