Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
Útför Harðar Sigurgestssonar, fyrrverandi for-
stjóra, fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
gær. Séra Hjálmar Jónsson jarðsöng, organisti
var Kári Þormar. Örnólfur Kristjánsson lék ein-
leik á selló, Viðar Gunnarsson söng einsöng og
Kammerkór Dómkirkjunnar söng. Jarðsett var í
Gufuneskirkjugarði.
Líkmenn voru Björn Bjarnason, Þórður Sverr-
isson, Garðar Halldórsson, Grétar Br. Krist-
jánsson, Vigdís Þórarinsdóttir, Sigurgestur Guð-
laugsson, Brynjólfur Bjarnason og Þórður
Magnússon.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útför Harðar Sigurgestssonar
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nærri 6.500 farþegar og tæplega
1.500 bílar fóru með Herjólfi milli
Landeyjahafnar og Vestmannaeyja
á fjórum dögum, þ.e. 2.-5. maí, að
sögn Guðbjarts Ellerts Jónssonar,
framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Til
samanburðar má nefna að íbúar
Vestmannaeyjakaupstaðar eru um
4.300 talsins.
„Þetta er allt önnur veröld þegar
hægt er að sigla í Landeyjahöfn,“
sagði Guðbjartur. „Hér iðar allt af
ferðamönnum og mikið líf.“ Hann
sagði að biðlistar hefðu myndast í
fjórar síðustu ferðir Herjólfs í fyrra-
dag, en skipið siglir sjö ferðir á dag.
Mikið er pantað og orðið þétt bókað í
margar ferðir í sumar.
„Það er mjög mikilvægt að Land-
eyjahöfn haldist opin. Fólk er farið
að bóka ferðir og það verða mikil
vandræði ef ekki verður hægt að
sigla í höfnina,“ sagði Guðbjartur.
Grynningar á rifinu
Hádegisferð Herjólfs var felld nið-
ur í gær vegna grynninga á rifinu
sem er utan við Landeyjahöfn. Fjara
var og dýpi of lítið á rifinu fyrir Vest-
mannaeyjaferjuna við þær aðstæð-
ur.
Dýpkunarskipið Sóley var þá sent
á vettvang frá Reykjavík og var
reiknað með að það gæti byrjað
dýpkun upp úr miðnætti í nótt, að því
er fram kom á vefnum Eyjar.net.
Dýpkunarskipið Dísa hefur unnið að
dýpkun í höfninni og í hafnarmynn-
inu. Guðbjartur sagði mikilvægt að
Herjólfur gæti haldið áætlun vegna
mikillar ásóknar í ferðirnar.
Vilja fá óháða úttekt
Þingmenn Suðurkjördæmis, að
undanskildum Sigurði Inga Jó-
hannssyni samgönguráðherra, eru
flutningsmenn þingsályktunar-
tillögu um óháða úttekt á Landeyja-
höfn. Þar segir: „Alþingi ályktar að
fela samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra að láta hefja nú þegar
óháða úttekt á Landeyjahöfn í sam-
ræmi við samgönguáætlun fyrir árin
2019-2033 og fimm ára samgöngu-
áætlun fyrir árin 2019-2023 og að
henni verði lokið eigi síðar en 31.
desember 2019.“
Í greinargerð segir að ástandið í
Landeyjahöfn sé „hvorki boðlegt
íbúum Vestmannaeyja né öðrum
sem treysta þurfa á greiðar sam-
göngur milli lands og Eyja“.
Óskað er m.a. eftir að því verði
svarað hvort hægt sé að gera þær úr-
bætur á höfninni að dýpkunarþörf
minnki verulega eða hverfi. Einnig í
hverju slíkar úrbætur felist og hver
sé áætlaður kostnaður við þær. Ann-
ars hvað þurfi til að halda höfninni
opinni allan ársins hring.
Biðlistar mynduðust í ferðir
Fella þurfti niður eina ferð Herjólfs í gær vegna grynninga á rifi utan við höfnina Dýpkunarskip
hóf dýpkun í nótt Þingmenn Suðurkjördæmis hafa óskað eftir óháðri úttekt á Landeyjahöfn
Landeyjahöfn Herjólfur siglir nú
sjö ferðir á dag í Landeyjahöfn.
Morgunblaðið/Hallur Már Hallsson
„Við vorum ekki sáttir við niðurstöðu
Mannréttindadómstólsins á sínum
tíma og sendum því erindi til yfir-
deildar og nú liggur fyrir að hún mun
taka málið til efnislegrar skoðunar,“
segir Gestur Jónsson lögmaður í
samtali við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að
yfirdeild Mannréttindadómstóls
Evrópu í Strassborg í Frakklandi
hefur nú ákveðið að taka fyrir mál
lögmannanna Gests Jónssonar og
Ragnars Hall í tengslum við Al
Thani-málið svonefnda. Hafði mann-
réttindadómstóllinn áður hafnað því
að íslenska ríkið hefði brotið á þeim
Gesti og Ragnari þegar þeim var
gert að greiða eina milljón króna
hvorum í sekt fyrir að segja sig frá
málsvörn í Al Thani-málinu 2013.
Þeir Gestur og Ragnar voru skip-
aðir verjendur Sigurðar Einars-
sonar og Ólafs Ólafssonar í málinu
en áður en aðalmeðferð málsins átti
að fara fram rituðu þeir héraðsdóm-
ara bréf þar sem þeir lýstu því yfir
að þeir myndu ekki sinna frekari
verjendastörfum í málinu þar sem
þeir teldu að brotið hefði verið gegn
rétti skjólstæðinga þeirra til rétt-
látrar málsmeðferðar. Óskuðu þeir
eftir því að vera leystir undan starf-
anum, en þeirri beiðni synjaði hér-
aðsdómari.
Er aðalmeðferð átti að fara fram
mættu Gestur og Ragnar ekki til
þinghalds og voru þeir því leystir frá
störfum í málinu og skjólstæðingum
þeirra skipaðir nýir verjendur.
Aðspurður segist Gestur ekki vita
til þess að yfirdeild hafi áður tekið
fyrir mál frá Íslandi. „Ég veit ekki
betur en að þetta sé afar fáheyrt.“
Mál Gests og Ragnars verður
tekið fyrir í yfirdeildinni
Dómstóllinn áður
úrskurðað íslenska
ríkinu í hag
Morgunblaðið/Ómar
Lögmenn Gestur Jónsson (t.v.) og
Ragnar Hall sögðu sig frá Al Thani.
Bandaríska flug-
vélaleigan ALC
greiddi í gær
Isavia skuld upp
á 87 milljónir
króna vegna far-
þegaþotunnar
sem kyrrsett hef-
ur verið á Kefla-
víkurflugvelli frá
gjaldþroti WOW air 28. mars.
Samkvæmt kvittunum sem mbl.is
hefur undir höndum voru annars
vegar greiddar rúmar 55 milljónir í
íslenskum krónum og hins vegar
tæplega 230 þúsund evrur, sem
jafngilda rúmlega 31 milljón króna.
Heildargreiðslan nam um 87 millj-
ónum króna en samkvæmt útreikn-
ingum lögmanna ALC var það upp-
hæð skuldar við Isavia vegna
þessarar tilteknu flugvélar.
Isavia var gefinn frestur til
klukkan 14 í gær til þess að láta vél-
ina af hendi. „Nú er næsti leikur
þeirra. Annars leitum við atbeina
dómstóla á ný,“ sagði Oddur Ást-
ráðsson, lögmaður ALC.
Héraðsdómur Reykjaness úr-
skurðaði á fimmtudag að Isavia
mætti aftra brottför vélarinnar
vegna gjalda sem henni tengdust.
Isavia tilkynnti á föstudag að það
hefði kært úrskurð héraðsdóms til
Landsréttar og hefur ekki orðið við
kröfu ALC um að afhenda vélina.
ALC borgaði 87
milljónir vegna kyrr-
settu þotunnar
WOW Þota var kyrr-
sett vegna skulda.
Vegagerðin kveðst hafa freistað
þess að ná samkomulagi við
pólsku skipasmíðastöðina Crist
S.A. um lokagreiðslu vegna
smíði nýs Herjólfs og afhend-
ingar skipsins. Á síðustu metr-
um smíðinnar hafi skipasmíða-
stöðin skyndilega krafist
viðbótargreiðslu sem nemur um
þriðjungi af smíðaverðinu. Að
mati Vegagerðarinnar er engin
stoð í samningi aðila varðandi
þessa kröfu.
Krafan á sér
enga stoð
NÝI HERJÓLFUR
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.