Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
urinn og þunginn í okkar starfi. Mót-
orhjól nýtast vel í öllum umferð-
arverkefnum, til dæmis þegar þarf
að komast hratt yfir og inn á svæði
sem eru lokuð vegna álags. Við leit-
araðgerðir reynast hjólin líka vel, til
dæmis þegar þarf að fara inn á opin
svæði,“ segir Árni Friðleifsson og
heldur áfram:
Fara á undan bílalestum
og skrúðgöngum
„Einnig kemur til svokölluð við-
burðalöggæsla og þar eru hjólin mik-
ið notuð. Við opinberar heimsóknir
og stóra viðburði á höfuðborgar-
svæðinu eins og oft er efnt til á sumr-
in nýtast hjólin líka vel. Þar fer lög-
reglan á undan bílalestum og skrúð-
göngum á mótorhjólum – auk þess
sem við sinnum með hjólunum verk-
efnum sem tengjast ýmsum þunga-
flutningum.“
lögreglustjóra en
eins og önnur
ökutæki leigð
áfram til lög-
regluembætt-
anna. „Það er gott
að hafa hjól af
tveimur tegund-
um í flotanum,
það er BMW og
Yamaha, enda má
með því gera
samanburð á því sem hentar best.
Alls verðum við núna með 13 hjól í
útgerð,“ segir Árni Friðleifsson,
varðstjóri í umferðardeild. Hann hef-
ur verið í bifhjólasveitinni í áraraðir
og er mörgum vegfarendum að góðu
kunnur.
Umferðardeild Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu vinnur þvert á
varðsvæðin og því er yfirferðin mikil.
„Allt umferðareftirlit er rauði þráð-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Umferðardeild Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu fékk í síðustu
viku til notkunar þrjú mótorhjól af
gerðinni BMW 1200 RT Police
Special. Þetta er hluti af hefðbund-
inni endurnýjun í flotanum. Lög-
reglan verður einnig og áfram með í
notkun hjól af gerðinni Yamaha FJR
1300.
Þrettán hjól í útgerð
Hjólin nýju koma frá framleiðanda
með ýmsum aukabúnaði til löggæslu-
starfa, svo sem forgangsljósum og
sírenu. Þá voru settar í þau hér á
landi talstöð og hraðamælingaratsjá.
Vélin er með þverliggjandi strokka
og 1,2 lítra rúmtak samanborið við
1,3 lítra í Yamaha-hjólunum. Mót-
orhjólin eru í eigu embættis Ríkis-
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Glæsihjól Lögregluþjónar á BMW-hjólunum við umferðarstjórn á Laugaveginum fyrir nokkrum dögum.
Lögreglan með 13
mótorhjól í notkun
Þrjú ný BMW hjól komin í gagnið Nýtast vel í löggæslu
Árni
Friðleifsson
„Þetta er ítarleg
og á margan hátt
gagnleg um-
sögn,“ sagði Will-
um Þór Þórsson,
formaður fjár-
laganefndar Al-
þingis, um um-
sögn Sambands
íslenskra sveitar-
félaga um fjár-
málaáætlun sem
greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
„Ég skil gagnrýni Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem snýr að
greiðslum í Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga,“ sagði Willum Þór. Í umsögn
sinni gagnrýna sveitarfélögin harð-
lega þá ákvörðun fjármálaráðuneyt-
isins að framlög ríkisins í jöfnunar-
sjóðinn verði óbreytt að krónutölu
árin 2019, 2020 og 2021. Þau segja að
þetta valdi þeim tekjutapi upp á 3,3
milljarða á tveggja ára tímabili og
krefjast þess að Alþingi dragi þessi
áform til baka.
Willum Þór kvaðst telja að fulltrú-
ar Sambands íslenskra sveitarfélaga
og stjórnvalda þyrftu að ræðast við
um framlag ríkisins í jöfnunarsjóð-
inn. „Rökstuðningurinn með þessari
breytingu á greiðslum ríkisins í jöfn-
unarsjóðinn var að þetta yrði fram-
lag sveitarfélaganna til lífskjara-
samningsins. Fjármálaráðherra,
fjármálaráðuneytið og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga verða að fara
yfir þetta mál og vega það og meta,“
sagði Willum Þór.
Sveitarfélögin kveðast vera orðin
langeyg eftir því að gistináttagjaldið
fari að renna til þeirra, eins og kveð-
ið er á um í stjórnarsáttmálanum.
Willum Þór sagði að eftir væri að
fara í gegnum það hvernig tilfærsla á
gistináttagjaldinu frá ríkinu til sveit-
arfélaganna yrði útfærð.
gudni@mbl.is
Góð og gagn-
leg umsögn
Ríki og sveitarfélög þurfa að semja
Willum Þór
Þórsson
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Í fyrsta lagi er sorglegt að Sjúkra-
tryggingar Íslands séu komnar í op-
inbert deiluferli við sjálfstætt starf-
andi lækna um biðlista og verð á
aðgerðum sem er algjör óþarfi eftir
10 ára samstarf á þessu sviði, sam-
starf sem hefur gengið mjög vel og
verið til fyrirmyndar,“ segir Eiríkur
Þorgeirsson, augnlæknir hjá Laser-
sjón, í athugasemdum sem hann sendi
Morgunblaðinu vegna yfirlýsingar
sem Sjúkratryggingar Íslands, SÍ,
sendu frá sér á mbl.is í kjölfar um-
fjöllunar blaðsins um augasteina-
aðgerðir á laugardag.
Í yfirlýsingu SÍ kemur fram að þær
greiði Landspítala, LSH, 97.000 kr.
fyrir hverja aðgerð en einkastofur fái
146.000 kr. Eiríkur bendir á að ein-
hvers staðar í þessum samningum
hafi myndast ósamræmi af einhverj-
um ástæðum. Það myndi koma í ljós í
réttu ferli og ósanngjarnt sé að reka
umræðuna í fjölmiðlum. Eiríkur
bendir einnig á að Lasersjón hafi tek-
ið virkan þátt í að leysa biðlistavanda
stjórnvalda á síðasta ári, gert 400
aukaaðgerðir og gefið stjórnvöldum
u.þ.b. 25% afslátt af umsömdu verði. Í
athugasemdum Eiríks kemur fram að
biðlistar hafi þegar verið langir þegar
fyrst var samið um augasteina-
aðgerðir við sjálfstætt starfandi sér-
fræðinga og LSH hafi ekki haft bol-
magn nema til 800 til 900 aðgerða á
ári. Á þeim tíma hafi fjöldi aðgerða
næstum tvöfaldast með samningi sem
gjörbreytti stöðunni. Að mati Eiríks
tók LSH smám saman til sín alla
aukningu augasteinaaðgerða.
Í Morgunblaðinu í gær kallaði Jón-
mundur Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónlags, eftir því að
LSH sýndi fram á það hvernig spít-
alinn fengi það út að augasteinaskipti
kostuðu 97.000 kr. Jónmundur taldi
líklegt að ekki væri tekið tillit til hús-
næðiskostnaðar, yfirstjórnar o.fl.
Einnig benti Jónmundur á að einka-
reknar stofur greiddu virðisauka-
skatt af lækningatækjum en LSH
greiddi ekki af tækjum sem spítalinn
fengi að gjöf.
Biðlistaátak ákveðið
„Tæki og tól sem notuð eru til þess
að framkvæma augasteinaaðgerðir
eru ekki hluti af tækjabúnaði sem
okkur hefur verið gefinn,“ segir Anna
Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður
forstjóra Landspítala. Hún segir að í
föstum fjárveitingum hafi verið gert
ráð fyrir 1.200 aðgerðum.
Stjórnvöld ákváðu að fara í biðlista-
átak og tóku ákvörðun um 97.000 kr.
greiðslu fyrir umframaugasteina-
aðgerðir hjá LSH. Anna Sigrún segir
að LSH verðmeti í DRG-reiknilíkani
sem innifeli allan kostnað, stjórnunar-
kostnað, húsnæði, tæki o.þ.h.
„Það segir sig sjálft að hag-
kvæmni stærðarinnar nýtist LSH
vel þegar við bætast fleiri aðgerðir
eins og t.d. augasteinaskipti,“ segir
Anna Sigrún, sem ekki getur út-
skýrt hvaða rök stjórnvöld hafi fyrir
því að greiða einkareknum stofum
hærra verð fyrir hverja aðgerð en
LSH fær greitt.
Segir framgöngu SÍ sorglega
Augnlæknir gagnrýnir deilur Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi lækna
1.200 augasteinaaðgerðir í fjárveitingum Einkastofur fá meira frá ríkinu
Morgunblaðið/Þorkell
Lækning Augasteinaskipti eru algeng og margir á biðlista eftir þeim.
„Við fengum örfárra vikna fyr-
irvara árið 2017 til þess að taka
við greiningu á brjósta-
krabbameini. Það var allt of
stuttur fyrirvari og ástæða þess
að biðlisti eftir greiningu lengd-
ist meira en góðu hófi gegndi,“
segir Anna Sigrún Baldurs-
dóttir, aðstoðarmaður forstjóra
Landspítala. Hún segir upp-
byggingu brjóstamiðstöðvar
LSH, sem fylgi konum eftir frá
því að krabbamein greinist, í
gegnum meðferð og eftirmeð-
ferð, umfangsmikið og spenn-
andi verkefni sem eigi vel heima
á stóru sjúkrahúsi.
„Þegar við sáum að verkefnið
gekk ekki upp fengum við
röntgenlækna frá Svíþjóð til að-
stoðar. Við fáum oft innlenda og
erlenda aðstoð við tíma-
bundin verkefni sem
við þurfum styrkingu
í,“ segir Anna Sigrún,
sem segir verkefnið
ganga vel og vel hafi
náðst utan um grein-
ingu á brjósta-
krabbameini.
Aðstoð frá
Svíþjóð
BRJÓSTAKRABBAMEIN
Anna Sigrún
Baldursdóttir