Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 R eykingar hjá börnum og unglingum hafa á und- anförnum áratugum minnkað stöðugt og heyrir til undantekn- inga að börn í grunnskóla noti reyk- tóbak. Árið 1997 reykti fimmta hvert barn í 10. bekk grunnskóla en ein- ungis 1,7% árið 2018 . Þessa þróun má líklega þakka mjög markvissu tóbaksvarnarstarfi hérlendis und- anfarna áratugi. Noktun íslenskra barna og unglinga á rafrettum Notkun rafrettna hefur hins vegar aukist verulega hjá börnum og ung- lingum á Íslandi síðastliðin ár. Sam- kvæmt skýrslu Rannsókna og grein- ingar frá árinu 2015 höfðu rúmlega 17 prósent 10. bekkinga notað raf- rettur en árið 2018 var hlutfallið orð- ið rúmlega 40 prósent. Þá notaði tí- undi hver 10. bekkingur rafrettur daglega. Tæplega fjórðungur fram- haldsskólanema notar rafrettur dag- lega samkvæmt sömu rannsókn en tíundi hver gerði það árið 2016. Nikótín, virka efnið í rafrettum er mjög ávanabindandi. Það er talið álíka ávanabindandi og heróín. Því er umtalsverð hætta fyrir þann sem verður háður nikótíni að verða not- andi þess í einhverju formi til langs tíma. Þróun rafrettunotkunar barna og unglinga er mikið áhyggjuefni og ef hún heldur áfram munu myndast hópar barna og unglinga sem verða háðir nikótíni til langs tíma og not- endur þess í einhverju formi, reyk- tóbaks, munn- eða nef- tóbaks, og/ eða rafrettna. Hættulegt bragð Framleiðendur rafrettna hafa glætt vöruna bragðefnum sem geta höfðað til notenda ekki síst ungra notenda, barna og unglinga og hafa sölumenn bragðgóðra rafrettna náð miklum árangri í markaðssetningu vörunnar til barna og unglinga á undanförnum árum. Samkvæmt tóbakskönnun Gallup 2018 sögðust 18 prósent í aldurs- hópnum 10-24 ára hafa notað raf- rettur. Samkvæmt könnuninni nota langflestir rafrettunotendur bragð- bættan vökva í tækin, eða 91 af hundraði og í aldurshópnum 18-24 ára, nánast allir eða 98 af hundraði. Langflestir sem nota rafrettur nota vökva með nikótíni eða 89 af hundr- aði. Áðurnefnd könnun sýnir að 71 prósent þeirra, sem hafa notað raf- rettur, byrjaði að reykja og fjórð- ungur byrjaði að nota tóbak í vör eft- ir að hafa hætt rafrettunotkun. Nýlega voru birtar áhugaverðar niðurstöður rannsóknar um raf- rettur í hinu virta tímariti The New England Journal of Medicin (NEJM). En í leiðara blaðsins sem bar yfirskriftina: The Dangerous Flavors of E-Cigarettes, hvöttu höf- undar bandarísku matvæla- og lyfja- stofnunina (Food and Drug Admin- istration) til að banna sölu á bragðbættum rafrettum. Krókur á móti bragði Sala rafrettna og notkun þeirra er lögleg á Íslandi frá og með 1. mars síðastliðnum. Skiptar skoðanir eru um hvort rafrettur séu virk meðferð við reykingum og ekki er tekin af- staða til þess hér, en hins vegar er mikilvægt að horfast í augu við að markaðssetning rafrettna gagnvart börnum er hættulegt bragð. Það blasir því við öllum sem vilja standa vörð um heilsu og velferð barna og unglinga að tilkoma raf- rettna á markaðinn á Íslandi kallar á markviss viðbrögð margra aðila þar á meðal löggjafans og ráðuneyta heilbrigðismála og barnamála. Reynsla okkar Íslendinga af mark- vissu tóbaksvarnarstarfi áratugum saman ætti að vera leiðarljós í þeim viðbrögðum. Þar þarf m.a. að koma til fræðsla til barna, unglinga og for- eldra þeirra ásamt breytingum á hinni nýju löggjöf um rafrettur þannig að hún verndi börn og ung- linga t.d. með banni á vörutegundum sem höfða til barna, þar með bragð- bættum rafrettum. Einnig þarf að tryggja að eftirlit með sölu rafrettna sé öflugt og tryggi – eins og hægt er – að börn geti ekki keypt slíkar vörur og að viðurlög við brotum á þeim lög- um séu ekki léttvæg. Við tökum því undir með leið- arahöfundum NEJM og hvetjum stjórnvöld til að horfast strax í augu við viðfangsefnið, skipuleggja og hrinda í framkvæmd viðeigandi að- gerðum. Það þarf krók á móti bragði. Rafrettur – Bragð hættu- legt börnum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veipað Notkun rafrettna hefur aukist verulega hjá börnum og unglingum á Íslandi síðastliðin ár sem er áhyggjuefni lækna og fólks í heilbrigðisþjónustu. Læknaráð Ása Sjöfn Lórensdóttir fagstjóri heilsuverndar skólabarna á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Jón Steinar Jónsson yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Ása Sjöfn Lórensdóttir Jón Steinar Jónsson Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Grænkar foldin frjó er yfirskrift vor- tónleika Vox fem- inae þetta árið, en þeir verða næst- komandi laug- ardag, 11. maí kl. 16, í Háteigskirkju í Reykjavík. Á tón- leikunum verður ís- lenskum tón- skáldum og þjóðlögum gert hátt undir höfði og sum lögin sungin í nýjum útsetningum. Í bland eru svo tekin þjóðlög frá öðrum löndum með íslenskum textum. „Lögin eiga það sammerkt að vera afar melódísk og ljóðræn, text- arnir fjalla um flest sem skiptir máli, það er sumar og sólskin og ástin blómstrar, það haustar, vindurinn gnauðar og útburðir væla, það eru vögguvísur og vorvísur og vísur fyr- ir guð og menn,“ segir í tilkynningu. Vox feminae syngur nú með nýj- um kórstjóra, Hrafnhildi Árnadótt- ur Hafstað, sem stýrir nú sínum fyrstu tónleikum með okkur. Fram- undan er svo að kórinn syngur á Reykholtshátíð, þar sem Hrafnhild- ur kórstjóri er einn af söngvurum ársins. Hún hefur verið virk í kóra- starfi frá unga aldri og í janúar síð- astliðnum tók hún við sem kórstýra Vox Feminae. Vox feminae syngur íslensk þjóðlög Vox feminae Tónleikar í Háteigskirkju á laugardag. Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) ætlar að bjóða upp á rafíþróttir inn- an félagsins og undir hatti knatt- spyrnudeildar, að minnsta kosti til að byrja með. FH sendi sitt fyrsta rafíþróttalið til leiks í undankeppni Lenovo Deildarinnar í tölvu- leiknum Counter-Strike: Global Of- fensive, sem fór fram um helgina 12.-14. apríl. Þar náði lið félagsins 5.-6. sæti af 23 liðum sem tóku þátt. Haldinn verður kynningarfundur um rafíþróttir í Kaplakrika á morg- un, miðvikudaginn 8. maí kl. 17, og eru tölvuleikjaspilarar og foreldrar þeirra hvattir til að mæta á fund- inn. „Þarna ætlum við að fara yfir hvernig börn og unglingar geta æft og keppt í spilun tölvuleikja hjá fé- laginu í hópi og á ábyrgan, heilsu- samlegan, markvissan og skipu- lagðan hátt – m.a. undir eftirliti og leiðsögn þjálfara,“ segir Hallsteinn Arnarson. Í byrjun ætlar félagið að einbeita sér að rafíþróttastarfi fyrir börn og unglinga á aldursbilinu 11-16 ára, en einnig halda úti góðu keppnisliði eða keppnisliðum eldri tölvu- leikjaspilara Rafíþróttir ný grein í starfi FH-inga Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Gallabuxur Kr. 13.900 Str. 36-48/50 • Háar í mittið Gott stretch • 2 litir Kæru landsmenn, við úthlutum yfir 900 matargjöfum í hverjum mánuði. Reykjavíkurborg styrkir starfið um eina milljón króna árið 2019 Félagsmálaráðuneytið styrkir starfið um eina milljón árið 2019 Hjálpið okkur að hjálpa fátæku fólki á Íslandi. Margt smátt gerir eitt stórt. 0546-26-6609 kt. 660903-2590 Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.