Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 18
Elsku hjartans
afi. Það er enn erfitt
að trúa því að þú
sért farinn. Klettur-
inn í fjölskyldunni. Þú og amma
höfuð stórrar fjölskyldu og ykk-
ar fjölskyldugildi gerðu það að
verkum að fjölskyldan er eins
náin og raun ber vitni. Við héld-
um öll að þú yrðir manna elstur.
Við upplifum djúpa sorg en á
sama tíma mikið stolt og þakk-
Björgvin
Guðmundsson
✝ Björgvin Guð-mundsson
fæddist 13. sept-
ember 1932. Hann
lést 9. apríl 2019.
Útför Björgvins
fór fram 24. apríl
2019.
læti. Þú varst hug-
sjónamaður af lífi
og sál og smitaðir
þessum eiginleika
út í allan ættlegg-
inn. Þú sást jafn-
rétti sem eina góða
valkostinn og barð-
ist fyrir því sem rétt
var og varst rödd
þeirra sem minna
mega sín. Þessar
hugsjónir og gildi
sem við erfðum frá þér eiga eftir
að lifa með okkur út lífið. Þessi
gildi að fjölskyldan sé raunveru-
lega ríkidæmið og allir eigi jafn-
an rétt óháð öllu.
Við erum svo þakklátar þér og
ömmu hvað þið lögðuð mikið upp
úr nánum og góðum fjölskyldu-
tengslum. Minningarnar sem við
eigum úr jólaboðum, sumargrill-
um fjölskyldunnar og öðrum fjöl-
skylduviðburðum eru ómetanleg-
ar. Að fá að sitja í fanginu á þér í
svarta stólnum þegar þú komst
úr vinnunni og amma bakaði
pönnukökur. Þegar amma veikt-
ist fékk Sandra pönnukökur í
hverri viku þegar hún kom og
þreif hjá ykkur nema nú varst
það þú sem bakaðir. Stundin eft-
ir þrifin var alltaf yndisleg. Góð-
ur kaffitími og gæðastund með
ykkur. Þú upplýstir okkur um
málefni líðandi stundar. Þú
fylgdist líka vel með og varst
alltaf stoltur af því sem við tók-
um okkur fyrir hendur og lést
okkur vita af því. Að fylgjast með
þér og ömmu í gegnum öll veik-
indin hennar sýnir hversu gegn-
heill maður þú varst. Þú hugs-
aðir um hana fram á síðasta dag
og þegar hún gat ekki lengur
gert það sem þurfti lærðir þú
það og tókst við. Ykkar hjóna-
band var fyrirmynd. Þér þótti
ótrúlega gaman að fagna með
veisluhöldum og varst mættur
fyrstur í hverja gleði og varst
stoltur af fólkinu þínu. Í haust
fyrir brúðkaupið hjá Lenu
Björgu áttuð þið góða stund
saman þegar við völdum í sam-
einingu hálsmen frá ömmu Dag-
rúnu sem hún gæti borið í brúð-
kaupinu.
Síðasta heimsóknin þín á
Njálsgötuna var í kveðjuveisluna
hjá Júlíu. Þú mættir hress og
kipptir þér ekkert upp við fjörið
sem fylgdi börnunum. Við erum
enn að hlæja að því þegar öll
Njálsgötukrílin voru að prakk-
arast og ætluðu að „binda reim-
arnar hjá langafa“ eins og eitt
krílið komst að orði. Þú lést eins
og ekkert væri og hélst áfram að
ræða líðandi stund við pabba. Við
erum þó fegnar að ekkert þeirra
kunni að binda hnút þarna.
Þú varst áberandi í þjóðmál-
um og baráttumaður eldri borg-
ara. Þegar nafn þitt bar á góma
sögðum við stoltar að þetta væri
afi okkar. Kominn á ellilífeyri þá
lærðir þú á samfélagsmiðla og
notaðir tæknina óspart í barátt-
unni.
Síðustu samskipti þín og Júlíu
voru þegar amma átti afmæli. Þú
baðst Júlíu um að senda þér
minningargreinina hennar til að
endurbirta á afmælinu hennar.
Þó að hún væri farin hélst þú
minningu hennar á lofti. Nú er
það okkar að taka við.
Amma tekur á móti þér með
faðminn opinn og þið eruð sam-
einuð á ný.
Við kveðjum þig með djúpum
söknuði. Takk fyrir allt, elsku afi.
Þínar
Lena Björg, Sandra Rún
og Júlía.
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
✝ Sigríður Hann-esdóttir fædd-
ist í Reykjavík 24.
ágúst 1928. Hún
lést 23. apríl 2019 á
hjúkrunarheim-
ilinu Eir.
Foreldrar henn-
ar voru Helga Geir-
þrúður Þorvalds-
dóttir, f. 11. ágúst
1891 í Birtugerði í
Glæsibæjarhreppi,
d. 2. febrúar 1982, og Hannes
Kristinsson, f. 8. apríl 1894 á
Brjánsstöðum á Skeiðum, d. 25.
október 1987. Sigríður var
næstelst fjögurra systkina:
Kristinn, f. 14. janúar 1927, d.
26. maí 2000, Þorvaldur, f. 27.
september 1929, og Sigurlaug, f.
15. júlí 1934. Sigríður eignaðist
fimm börn. 1) Sigrún Lind, f. 20.
september 1950, búsett í Eng-
landi. Faðir hennar er Jón Sig-
valdason. Fyrri maður Sigrúnar
var Heimir Alfred Salt, f. 26.
mars 1948, d. 14. mars 2019.
Þeirra sonur er Daníel. Seinni
maður Sigrúnar er James Stans-
field. Þeirra sonur er Harry.
Fyrri eiginmaður Sigríðar var
Sveinn Jónsson, f. 26. ágúst
1929, d. 12. júní 1988. Þeirra
börn eru: 2) Helgi Ómar, f. 7.
apríl 1955, kona hans er Maria
Amabella Lazaga. Þau eiga
fjögur börn: María Viktoría,
son. Þeirra börn eru: María El-
ísabet, Baltasar Bragi og Hauk-
ur Arnar. Sigríður og Ólafur
skildu 1990.
Sigríður fæddist á Laugavegi
20 en bjó fyrstu árin á Lauga-
vegi 153 þangað til fjölskyldan
flutti upp á Háaleitisveg. Um 10
ára aldur fór hún í fóstur til
Malínar Eiríksdóttur og Sig-
urgeirs Friðrikssonar í Hafra-
felli við Múlaveg. Svo fór Sigríð-
ur á heimavistina í Laugarnes-
skóla þar sem hún lauk barna-
skólaprófi en gagnfræðaprófi
frá Ingimarsskóla.
Hún vann mest við barna-
gæslu, fyrst á Silungapolli og
svo sem gæslukona á róluvöll-
um. Hún vann við skúringar,
stofnaði og rak kvenfataversl-
unina Melkorku árin 1971-1974,
þá fór heilsan að gefa sig og
varð hún húsmóðir auk þess að
bera út Morgunblaðið í fjölda
ára. Sigríður hóf búskap með
Sveini á Laugavegi 53 og síðan
byggðu þau hús á Tunguvegi 5
með bróður hennar. Eftir að þau
skildu flutti hún í Sigtún 23 í
þriggja herbergja risíbúð með
þrjú börn og drýgði tekjurnar
með því að leigja út eitt her-
bergjanna. Tók hún saman við
leigjandann og fluttu þau í
Leirubakka 8. Bjó hún þar
næstu 27 árin. Eftir skilnaðinn
við Ólaf færði hún sig yfir í
Leirubakka 4 þar til hún fór í
Seljabraut 28 með yngstu dóttur
sinni. Síðasta árið dvaldi Sigríð-
ur á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför Sigríðar fer fram frá
Garðakirkju á Álftanesi í dag, 7.
maí 2019, klukkan 13.
maki Stian Giert-
sen og börn þeirra
eru Johan Mauritz
og Soley Georgine.
Svein, maki Mav-
irocel Buenaflor
Avena (Rose).
Marta Sofia, maki
Mark Villegas,
yngst er Anna Isa-
bella. 3) Jóna Val-
dís Sveinsdóttir, f.
22.12. 1959. Fyrr-
verandi sambýlismaður hennar
er Guðjón Stefán Kristinsson.
Þeirra börn eru: Gunnar Óli
Guðjónsson, maki Guðrún Björk
Magnúsdóttir og synir þeirra
eru Eyvindur Áki og Brimir
Dagur. Anna Jakobína, maki
Ægir Birgisson. Fyrir átti Guð-
jón Kristjón Kormák. Seinni
maður Sigríðar var Ólafur
Magnússon, f. 6. desember 1939.
Þeirra börn eru: 4) Magnús, f. 2.
júní 1966, kona hans er Birgitte
Pedersen. Dóttir hans er Katrín
Marey. Móðir hennar var Krist-
ín Marti Kasparsdóttir, f. 2.
febrúar 1970, d. 21. september
2013. Fósturbörn Magnúsar eru
Kristinn og Nanna. Þeirra móð-
ir er Ágústa Pranom Thimto. 4)
María Ólafsdóttir, f. 12. desem-
ber 1971. Hún á fjögur börn:
elstur er Ómar. Faðir hans er
Farooq Ahmed. Seinni sambýlis-
maður Maríu er Snorri Braga-
Nú er elsku Sigga amma far-
in frá okkur.
Ég var svo heppin að fá að
búa hjá Siggu ömmu þegar ég
var í menntaskóla. Hún hugsaði
vel um mig, enda var ég sveita-
vargur og var ekki treystandi
einni í strætó. En fimm ára
gömul var ég reglulega send út
í sjoppu að kaupa „ljótar“, einn-
ig þekktar sem filterslausar Ca-
mel-sígarettur. Það vissi auðvit-
að afgreiðslufólkið í sjoppunni,
enda fékk hún alltaf sérstaklega
góða þjónustu hvar sem hún
fór.
Heillandi persónuleiki hennar
fékk meira að segja strætóbíl-
stjórann til að fara af leið sinni
til að skutla henni heim. Hvar
sem hún kom var hún fólki
minnisstæð.
Hún var glettin og heilmikil
brandarakona með mikla út-
geislun.
Þegar ég var ennþá ung og
einhleyp spurði amma reglulega
hvort ég væri nú ekki komin
með vin. Þegar ég svaraði neit-
andi sagði hún alltaf að ég ætti
sko ekkert að vera að flýta mér.
En þegar vinurinn kom loksins
þá var mikil gleði.
Svo mikil að ég fékk titilinn
„Ægiskona“ í stað nafns, enda
er hann líka svo ægilega sætur
eins og hann fékk oft að heyra.
Þegar Sigga amma var 72 ára
gömul vildi hún prófa netið, þá
var besta lausnin að senda hana
á yrkið. Hún lærði fljótt það
sem flestir kunna nú til dags; að
ljúga á netinu.
Hún ruglaðist á röðinni og
sagðist vera 27 ára og föst í
leiðinlegu jólaboði. Drengurinn
sem hún talaði við heillaðist að
sjálfsögðu af Siggu ömmu, eins
og allir sem fengu að kynnast
henni, hvort sem var á yrkinu
eða utan.
Síðasta árið bjó hún á hjúkr-
unarheimilinu Eir og árin þar á
undan var hún fastagestur á
dagdeild Eirar. Ég vil þakka
starfsfólki dagdeildarinnar og
deildar þriðju hæðar norður
fyrir alla þá umönnun og um-
hyggju sem þau veittu Siggu
hóhó, eins og hún kallaði sig
þar.
Sigga amma hélt alltaf með
þeim sem minna máttu sín. Hún
gaf krummunum í hverfinu
kjötsag úr matvöruverslunum af
því henni fannst ósanngjarnt að
bara smáfuglunum væri gefið á
veturna. Svo hélt hún líka með
Tottenham þegar þeir voru í
neðsta sæti í deildinni.
Ég mun alltaf vera þakklát
fyrir þær stundir sem við áttum
saman, að horfa á Glæstar vonir
og Nágranna eða sitjandi við
gluggann með kaffi og súkku-
laðirúsínur að vinka nágrönn-
unum.
Takk fyrir allt elsku amma
mín.
Anna Jakobína
Guðjónsdóttir.
Sigga amma tók mig að sér
þegar ég flutti til Reykjavíkur
til að fara í menntaskóla og á
þeim tíma kynntist ég henni vel
og fljótlega komst ég í tæri við
hennar einstaka og skemmti-
lega húmor. Hún hafði nefnilega
dálæti á því að stríða mér og
hrekkja og það tók mig svolít-
inn tíma að læra á skopskyn
hennar. Þegar ég loksins náði
því stríddum við hvort öðru til
skiptis og skemmtum okkur oft
vel saman.
Það var gaman að koma heim
úr skólanum og vita ekki hvað
tæki á móti manni, eins og eitt
skiptið þegar ég kom að henni
þar sem hún sat ásamt systur
sinni um miðjan dag í eldhúsinu
að gera símaat.
Hún var líka hafsjór af fróð-
leik og sagði mér margar
skemmtilegar sögur frá gömlu
Reykjavík, en hún fæddist á efri
hæðinni á Laugavegi 20, þar
sem nú er Lebowski bar, og var
því innfæddur Reykvíkingur.
Sigga amma var einstaklega
góðhjörtuð og vildi alltaf allt
fyrir mann gera og ég verð
henni ævinlega þakklátur fyrir
allt sem hún hefur gert fyrir
mig. Takk amma mín.
Gunnar Óli Guðjónsson.
Sigríður
Hannesdóttir
Nú kveðjum við
okkar góða og
gamla vin, Gunna,
sem fengið hefur
hvíldina.
Það er huggun harmi gegn
að Gunni hefur fengið hvíldina
eftir þessi erfiðu veikindi. Við
æskuvinirnir höfum verið sam-
ferða svo lengi. Það er því ekki
ofsögum sagt að nú sé skarð
komið í vinahópinn það er víst
óumflýjanlegt.
En minningarnar lifa, þær
ylja og við eigum þær, minn-
ingar um góðan dreng sem setti
svip sinn á vináttu okkar.
Það var ýmislegt brallað á
okkar yngri árum. Oft fór vina-
hópurinn, sem var nokkuð stór
hópur á þessum árum, saman í
ferðalag á sumrin.
Þá var grillað og leikið sér.
Þessi hópur gat skemmt sér vel
saman og var oft mikið fjör
fram eftir allri nóttu.
Ferðirnar upp í Þórsmörk
eru mjög minnisstæðar. Þórs-
mörk var eiginlega okkar stað-
ur, þar gátum við gleymt okkur
og verið í okkar heimi. Gunni
var að sjálfsögðu með mynda-
vélina með sér. Gunni hafði hið
listræna auga ljósmyndarans
og gat nýtt sér tæknina til að
töfra fram heillandi myndir og
form. Gunni var tæknigaurinn í
hópnum.
Öll tækni lá mjög vel fyrir
honum og hin ýmsu forrit virt-
ust leika í höndunum á honum.
Gunni hafði skoðanir á flestu og
hann hafði gaman af því að
tala. Hann var mikill sögumað-
ur og var gaman að sjá hve
hann naut sín þegar hann sagði
frá.
Sögurnar voru alltaf betri
þegar hann sagði frá og ekki
spillti fyrir skemmtilegt og á
stundum framandi orðfæri
hans.
Í okkar vinahópi voru tvær
reglur sem Gunni mat mikils,
það var ein sumarútilega á
hverju sumri og svo jólaboð
vinanna, sem var örugglega að
frumkvæði Gunna og Ingu.
Annars var þessi hópur lítið
gefinn fyrir reglur endar
reyndum við eins og við gátum
að synda á móti straumnum,
vera öðruvísi, vera uppreisnar-
gjarnir og vera pönkarar.
En inn við beinið vorum við
bara mömmustrákar. Við vor-
um bara ungir drengir leitandi
að tilgangi lífsins.
Við sem þetta skrifum tókum
upp á því fyrir um átta eða níu
árum að hittast reglulega
heima hjá hver öðrum og spila
brids.
Þetta hafa verið okkar bestu
stundir alla tíð síðan. Maður
velti því stundum fyrir sér
hvort bridsið hefði ekki verið
yfirskin því það var svo gaman
að hittast og koma saman. Við
höfðum ekkert breyst. Þarna
endurnýjuðum við vinskapinn
með sérstökum hætti því við
vorum eins og litlir strákar sem
hlakka til að fara saman út að
leika.
En framfarir í spilamennsk-
unni urðu litlar sem engar.
Þetta hefur gefið okkur svo
mikið. Eftir að Gunni veiktist
gerðum við okkar besta til að
hvetja hann áfram og við fórum
til hans að spila.
Við héldum áfram að hittast
hjá Gunna á hjúkrunarheim-
ilinu og spjalla.
Við töluðum oft um að fara
út með hjólastólinn, út að
Gunnar Kristinn
Hilmarsson
✝ Gunnar Krist-inn Hilmarsson
fæddist 16. maí
1963. Hann lést 16.
apríl 2019. Útför
Gunnars fór fram
2. maí 2019.
keyra, fara í ísbílt-
úr, fara upp í sveit
að sumarlagi, fara
og gera allt vit-
laust en af því gat
ekki orðið en
svakalega var gam-
an að eiga þennan
sameiginlega
draum með Gunna
okkar.
Elsku Inga,
Hilmar, Hrannar,
Hrafnkell og Hildur, innilegar
samúðarkveðjur til ykkar sem
og allrar fjölskyldu Gunna.
Við eigum svo margar góðar
minningar sem við getum hugg-
að okkur við um ókomna tíð.
Böðvar, Eyjólfur, Helgi.
Góður vinur okkar er dáinn
eftir erfið veikindi sem hann er
búinn að eiga í síðustu ár. Við
hjónin eigum margar skemmti-
legar minningar um Gunna og
Ingu.
Má þar nefna fjölmargar
sumarbústaðaferðir sem við
höfum farið saman í þar sem
við grilluðum, fórum í göngu-
ferðir um íslenska náttúru og
áttum langt spjall á björtum
sumarkvöldum þar sem Gunni
naut sín við að segja okkur
langar og skemmtilegar sögur
með sinni frábæru frásagnar-
gáfu og skemmtilega orðfæri.
Gunni lærði ljósmyndun og
eigum við hjónin dýrmæta
minningu um það þegar hann
tók brúðarmyndirnar af okkur
á brúðkaupsdaginn okkar.
Þá er okkur minnisstætt
þegar við fjölskyldurnar vorum
í sumarfríi og mæltum okkur
mót í sögulega Márabænum
Mojacar á Suðaustur-Spáni og
áttum við nokkra skemmtilega
daga þar saman í fallegu um-
hverfi, hita og sól.
Við fjögur fórum einnig sam-
an í leikhús og á tónleika bæði
hér heima og erlendis.
Sérstaklega minnisstæðir
eru okkur tónleikarnir með U2
sem við fórum á á Wembley
fyrir nokkrum árum, þar sem
við áttum enn og aftur
skemmtilega daga með þeim
Gunna og Ingu og nú í London,
en það hafði verið á dagskrá
lengi að sjá U2 á stórum tón-
leikum.
Við fjögur áttum þeirri gæfu
að fagna að vera hluti af
stórum, góðum og skemmtileg-
um vinahópi sem samanstendur
af nokkrum æskuvinum og fjöl-
skyldum þeirra.
Hópurinn hittist oft og vel og
má þar nefna matarklúbbinn
okkar sem Gunni og Inga áttu
frumkvæðið að og jólamatinn
þar sem við, allur vinahópurinn,
hittumst einn dag um hver jól
þar sem allir koma með eitt-
hvað jólagómsætt og við borð-
um saman jólaveislumat og höf-
um gaman saman.
Einnig má sem dæmi telja
brúðkaupin, afmælin, ferming-
arnar, stúdentsveislurnar, ferð
á tónleika með David Bowie,
ekki má gleyma skemmtilegu
ferðunum í Þórsmörk sem allur
vinahópurinn fór í og síðast en
ekki síst öll óteljandi skemmti-
legu partíin þar sem Gunni
naut sín sem sögumaður og var
hrókur alls fagnaðar. Ekki má
nú gleyma bridsklúbbnum sem
æskuvinirnir voru í og héldu
bridskvöld í klúbbnum í hverri
viku sér til mikillar skemmt-
unar.
Takk fyrir skemmtilegu og
góðu samleiðina elsku vinur
okkar.
Minningarnar lifa vel.
Elsku Inga, Hilmar, Hrann-
ar, Hrafnkell og Hildur, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Victor og Ingibjörg.
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR,
lést 16. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
10. maí klukkan 13.
Ágúst Óskar Sigurðsson Anna María Úlfarsdóttir
Anna Þórdís Sigurðardóttir Rainer Lischetzki
Edda Björk Sigurðardóttir Jón Ármann Guðjónsson
og barnabörn