Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019
Það er hálfótrúlegt að
fylgjast með einvígi Manchester
City og Liverpool um enska
meistaratitilinn. Reyndar minnir
þetta frekar mikið á lokaseríuna
af Game of Thrones. Það er mikil
spenna undirliggjandi en hins
vegar gerist ekkert óvænt.
Liðin bara vinna alla sína
leiki. Markalausa jafnteflið sem
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar
náðu gegn Liverpool fyrir rúmum
tveimur mánuðum markar síð-
asta hikst þessara frábæru fót-
boltaliða í deildinni – þá komst
City fram úr Liverpool og hefur
ekki litið um öxl.
Það er full ástæða til þess að
óska Selfyssingum til hamingju
með að vera komnir í úrslit Ís-
landsmótsins í handbolta. Þessi
mikli handboltabær hefur þurft
að bíða frá árinu 1992 með það
að sjá sitt lið í úrslitarimmu. Það
eru ekki nema þrjú ár síðan liðið
vann sig upp úr 1. deild eftir um-
spil, þar sem Elvar Örn Jónsson
var þegar orðinn algjör lykil-
maður.
Það væri eiginlega hálfgerð
synd ef Selfyssingar næðu ekki
að landa sínum fyrsta titli frá
upphafi, núna áður en Elvar held-
ur út í atvinnumennsku. Eyja-
menn og Haukar eru auðvitað
ekki sammála, en þetta tækifæri
þyrftu Selfyssingar að nýta. Þeir
standa á tímamótum þegar leik-
tíðinni lýkur, með brotthvarfi Elv-
ars og Patreks þjálfara í kjölfarið
á brotthvarfi Teits Arnar Einars-
sonar í fyrra, og eflaust verður
þess svo ekki langt að bíða að
þriðji landsliðsmaðurinn, Haukur
Þrastarson, haldi utan.
Stór hindrun bíður hins veg-
ar Selfyssinga í úrslitum, nema
þá að andstæðingar þeirra verði
meira og minna í leikbanni eins
og þróunin hefur verið í rimmu
Hauka og ÍBV.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
ÞÝSKALAND
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það var gott að geta innsiglað titil-
inn fyrir lokaumferðina og létt þann-
ig á pressunni,“ sagði knattspyrnu-
konan Sara Björk Gunnarsdóttir við
Morgunblaðið í gær degi eftir að hún
fagnaði meistaratitli í þýsku knatt-
spyrnunni með samherjum sínum í
Wolfsburg. Skammt er stórra högga
á milli hjá Söru Björk og félögum því
í síðustu viku vann Wolfsburg þýska
bikarinn. Liðið hafði svo mikla yfir-
burði í bikarkeppninni að það fékk
ekki á sig mark í leikjum keppn-
innar.
Um var að ræða fimmta árið í röð
sem Wolfsburg vinnur bikarkeppn-
ina og Sara er nú tvöfaldur meistari
með liðinu þriðja árið í röð.
„Við þurftum tvö stig í tveimur
síðustu leikjunum til þess að vinna
deildina. Það átti að vera öruggt en
enn betra var að ljúka þessu með
þremur stigum en eiga samt leik eft-
ir,“ sagði Sara en Wolfsburg vann
Hoffenheim á útivelli á sunnudaginn,
1:0, og hefur sjö stiga forskot á Bay-
ern München sem situr í öðru sæti.
Bayern á leik til góða á Wolfsburg.
Tvískipt tímabil
Sara segir keppnistímabilið hafi
skipst í tvennt. Wolfsburg-liðið hafi
leikið afar vel fyrri hluta tímabilsins
og skorað mörg mörk. „Meðal ann-
ars unnum við Bayern München 6:0.
Á seinni helmingi tímbilsins fórum
við aðeins að ströggla, tapa stigum
sem varð þess valdandi að saman
dró með okkur og Bayern en við náð-
um að halda okkar stöðu í efsta
sæti,“ sagði Sara og bætti við:
„Yfirhöfuð var tímabilið gott hjá
okkur og sigurinn í deildinni afar
verðskuldaður. Og það að verða tvö-
faldur meistari þriðja árið í röð er
heldur ekki slæmt,“ sagði Sara
Björk sem hefur átt einstaklega
góðu gengi að fagna með Wolfsburg
síðan hún kom til félagsins eftir
nokkurra ára veru í sænsku úrvals-
deildinni.
„Mér finnst ég hafa átt mjög stöð-
ugt og gott tímabil. Ég skoraði ekki
mörg mörk en stend bæði líkamlega
og andlega betur að vígi en til dæmis
eftir síðasta keppnistímabil. Ég er
ánægð með stöðuna á mér og vil
meðal annars þakka það breyttum
æfingum að einhverjum hluta,“
sagði Sara Björk.
Deildin aðeins veikari
Sara segir leikmannahóp Wolfs-
burg hafa að uppistöðu til verið lítt
breyttur síðustu tvö tímabil. Þar af
leiðandi þekki leikmenn vel hver inn
á annan. Liðsheildin sé öflug og full-
komlega í takti í við þann mikla
metnað sem ríki innan félagsins, ut-
an vallar sem innan.
Að mati Söru Bjarkar var þýska
1. deildin aðeins veikari á þessu
keppnistímabili en hún var fyrir
tveimur til þremur árum. Kemur
það mest til af því að sterkir leik-
menn hafa söðlað um og reynt fyrir
sér á Englandi, í Frakklandi og á
Spáni.
„Af þessum ástæðum hafa nokkur
af sterkari liðum þýsku deildarinnar
séð á bak lykilmönnum. Samt sem
áður er deildarkeppnin öflug þótt
kannski sé hún ekki eins sterk og
hún var. Þetta hefur hinsvegar ekki
breytt því að keppnin er jöfn og það
þarf að taka hvern leik alvarlega því
lítill munur er á styrkleika þeirra
flestra,“ sagði Sara Björk en 12 lið
leika í deildinni.
Alltaf horft til næsta árs
Wolfsburg lék til úrslita í Meist-
aradeild Evrópu fyrir ári síðan en
beið lægri hlut í úrslitaleik við Lyon.
Á þessu keppnistímabili féll Wolfs-
burg út í átta liða úrslitum keppn-
innar, gegn Lyon. Sara Björk segir
það að sjálfsögðu vera markmið liðs-
ins að komast í úrslitaleikinn á nýjan
leik og vinna Meistaradeildina. Þá
rós vanti í hnappagat hennar en
Wolfsburg varð tvisvar Evr-
ópumeistari áður en hún kom til fé-
lagsins, árin 2013 og 2014.
„Það er alltaf næsta ár sem horft
er til.“
Metnaður og væntingar eru mikl-
ar innan Wolfsburg. Kröfur eru
gerðar um titil eða titla á hverju ein-
asta keppnistímabili. „Það er ástæð-
an fyrir að ég vildi ganga til liðs við
þetta lið. Leika undir pressu og
vinna stóra titla. Vonandi getum við
gert það. Krafan er sú að liðið sé eitt
það besta í heiminum. Eitt mark-
miðið er að vinna Meistaradeild
Evrópu, Með þann leikmannahóp
sem liðið hefur úr að spila í dag þá
eigum við að geta unnið Meist-
aradeildina,“ sagði Sara Björk sem
verður áfram í herbúðum Wolfs-
burg enda samningsbundinn fram á
mitt næsta ár.
Landsleikur í sumarfríinu
Eftir rúma viku hefst sumarfrí hjá
Söru Björk eftir lokaumferð þýsku 1.
deildarinnar. Formlegar æfingar hjá
Wolfsburg hefjast síðan á ný 6. júlí.
Ekki er þó alveg víst að hún fái frí frá
leikjum í sumarleyfinu því kvenna-
landsliðið leikur vináttuleik við
Finna í júní. „Leikurinn við Finna
kemur reyndar inn í mitt sumarfríið
mitt. Ég verð að vinna það í samráði
við Jón Þór Hauksson, landsliðs-
þjálfara. Leikurinn verður tvímæla-
laust kærkominn fyrir okkur sem
framhald í undirbúningi fyrir und-
ankeppni EM sem hefst í haust.
Okkur gekk vel í vináttuleikjunum
við Suður-Kóreu í apríl. Þeir juku
sjálfstraustið hjá okkur,“ sagði Sara
Björk Gunnarsdóttir, þýskur meist-
ari og bikarmeistari í Þýskalandi.
Stöðugt og gott tímabil
Sara Björk tvöfaldur meistari með Wolfsburg þriðja árið í röð Sterkari bæði
líkamlega og andlega Sigur í Meistaradeildinni áfram aðalmarkmiðið
Ljósmynd/Wolfsburg
Meistarar Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar Piu Wolter eftir sigurmarkið gegn Hoffenheim á útivelli á sunnudag-
inn, 1:0, þar sem Wolfsburg tryggði sér þýska meistaratitilinn í knattspyrnu 2019.
„Ég vildi bara aðstoða uppeldis-
félagið rétt á meðan þess þarf
vegna meiðslavandræða,“ segir
markvörðurinn Agnes Þóra Árna-
dóttir, sem tekið hefur fram skóna
og hanskana og er komin aftur í
raðir uppeldisfélags síns KR.
Eins og Agnes segir sjálf gera
meiðslavandræði hjá KR það að
verkum að hún hóf aftur æfingar
með KR fyrir viku eftir að hafa síð-
ast spilað með liðinu í efstu deild
2015. Eftir það lék hún tvö ár með
Þrótti R. í 1. deild en tók sér svo hlé
þegar hún eignaðist tvíbura í fyrra.
„Ég ætlaði ekkert að fara í fót-
bolta aftur. Það var búið að ráð-
leggja mér að gefa hnjánum frí. En
þegar uppeldisfélagið hringir og
grasið er orðið grænt þá er erfitt að
segja nei,“ segir Agnes sem segir
þó ekki víst að hún verji mark KR
gegn Val annað kvöld. Birna Krist-
jánsdóttir sé að snúa til baka úr
meiðslum.
Þjálfarinn stóð í markinu
Birna kom til liðs við KR frá
Stjörnunni í vetur en KR hefur
einnig verið án Ingibjargar Val-
geirsdóttur, sem var aðalmark-
vörður liðsins í fyrra, vegna
meiðsla. Því kom Hrafnhildur Agn-
arsdóttir, sem búsett er í Dan-
mörku, til þess að verja mark liðs-
ins í 1. umferð. Í síðasta leik KR í
deildabikarnum nú í vor, 2:0-sigri á
FH hinn 26. apríl, stóð sjálf Bojana
Besic, þjálfari KR-inga, í markinu.
sindris@mbl.is
Erfitt að segja nei
við uppeldisfélagið