Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 27
Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019  Knattspyrnumaðurinn Árni Vil- hjálmsson var valinn besti leikmaður 27. umferðar í úkraínsku úrvalsdeild- inni af valnefnd deildarinnar. Árni skoraði tvö mörk fyrir Chornomorets í 4:2-útisigri á Desna. Chornomorets er sem fyrr í neðsta sæti, nú með 21 stig, þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið er þremur stigum á eftir Arsenal Kiev en þessi lið mætast næsta sunnudag. Liðin sem enda í næstneðsta og þriðja neðsta sæti fara í umspil við tvö lið úr 1. deild um tvö laus sæti í úrvalsdeild.  Óskar Bjarni Óskarsson verður Ax- el Stefánssyni tímabundið til hjálpar sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðs- ins í handbolta eftir að Elías Már Hall- dórsson lét af störfum. Næsta verk- efni liðsins felst í leikjunum mikilvægu við Spán í kringum næstu mánaða- mót, umspili um laust sæti á HM í des- ember, og hefur Axel valið 22 leik- menn í æfingahóp. Hópinn má sjá á mbl.is.  Framherjinn Viktor Jónsson verður væntanlega ekki lengi frá keppni með ÍA þrátt fyrir að hafa kinnbeinsbrotnað í jafnteflinu við Fylki í úrvalsdeildinni í fótbolta í fyrra- kvöld. Jóhannes Karl Guð- jónsson, þjálfari ÍA, sagði við mbl.is í gær að Viktor myndi líklega missa af næsta leik en spila svo með sér- útbúna andlitsgrímu. Á SELFOSSI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Það er sumar á Selfossi,“ sungu stuðningsmenn handknattleiksliðs Selfoss við raust í leikslok í gærkvöldi í Hleðsluhöllinni á Selfossi eftir að lið þeira sópaði Valsmönnum úr keppni í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla með sigri í þriðja undanúrslitaleiknum, 29:26. Sigur Selfoss kom ekki á óvart í þessari rimmu, hins vegar er óvíst að nema þeir allra bjartsýnustu hafi reiknað með að Valur næði ekki að svara fyrir sig með sigri í að minnsta kosti einum leik. Valsmenn verða hins vegar að sætta sig við að tapa fyrir betra liði eins og sakir standa. Selfoss er þar með komið í úrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn síðan 1992. Fæstir leikmenn liðsins voru þá komnir í heiminn. Eins og hinir tveir leikir þessara liða í undanúrslitunum var viður- eignin í gær fjörug og skemmtileg og báðum liðum til sóma. Fyrri hálfleikur var jafn allt þar til á síðustu mínútunni að heimamenn náðu þriggja marka forskoti á skömmum tíma. Forskotið var þrjú mörk í hálfleik, 17:13. Heimamenn héldu sínu striki í síð- ari hálfleik. Þeir náðu mest fimm marka forystu í tvígang þegar sex og sjö mínútur voru til leiksloka. Vals- menn reyndu hvað þeir gátu en höfðu ekki erindi sem erfiði. Þeim lánaðist að minnka muninn í tvö mörk í nokk- ur skipti. Varnarleikur Selfossliðsins var af- ar góður í gær, sennilega sá besti sem liðið sýndi í leikjunum þremur. Sókn- arleikurinn var magnaður. Mér er til efs að skemmtilegra sóknarlið hafi verið í íslenskum handknattleik um talsvert skeið. Elvar Örn Jónsson var og er hreinlega óstöðvandi. Um Hauk Þrastarson á ég vart nógu sterk lýs- ingarorð. Hann var hreinlega magn- aður, algjörlega óstöðvandi. Ótrúlegt hreint að hann sé aðeins 18 ára gam- all. Varnarmenn Vals, Alexander Örn Júlíusson, Orri Freyr Gíslason og Ýmir Örn Gíslason, eru engin lömb að leika við. Haukur kúskaði þá hvað eft- ir annað í þessu einvígi. Ekki má gleyma öðrum leik- mönnum Selfoss sem leika einnig af- ar vel. Línumennirnir Atli Ævar Ing- ólfsson og Guðni Ingvarsson. Hornamaðurinn Grímur Hergeirsson með hraða sinn og snerpu. Árni Steinn Steinþórsson sem er að nálg- ast sitt gamla form. Nökkvi Dan Ell- iðason var síðan liðinu góð búbót í byrjun árs. Hann hefur vaxið með hverri raun. Handknattleiksáhugamenn mega bíða spenntir eftir fleiri leikjum með Selfossliðinu hans Patreks Jóhann- essonar. Það er til alls líklegt. „Það er sumar á Selfossi“  Sópurinn var á lofti  Valsmönnum sópað úr keppni  Lið Selfoss komið í úrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn í 27 ár  Eru með óviðráðanlega sóknarmenn Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Langþráð Selfyssingar fögnuðu því vel og innilega í gærkvöld að slá út Val og komast í úrslitin í fyrsta sinn í 27 ár. Hleðsluhöllin, undanúrslit karla, þriðji leikur, mánudag 6. maí 2019. Gangur leiksins: 2:3, 4:5, 7:8, 10:10, 13:13, 17:14, 20:17, 22:19, 24:21, 25:22, 28:24, 29:26. Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 6/2, Hergeir Grímsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 4, Haukur Þrastarson 4, Nökkvi Dan Elliðason 3, Guðni Ingvarsson 3, Atli Ævar Ingólfsson 2, Alexander Már Egan 1, Pawel Kiep- ulski 1. Varin skot: Pawel Kiepulski 10, Sölvi Ólafsson 1. Selfoss – Valur 29:26 Utan vallar: 8 mínútur Mörk Vals: Anton Rúnarsson 8/2, Ýmir Örn Gíslason 7, Róbert Aron Hostert 4, Ásgeir Snær Vignisson 2, Sveinn Aron Sveinsson 2, Orri Freyr Gíslason 1, Vignir Stefánsson 1, Arn- ór Snær Óskarsson 1. Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 14/1. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Jónas Elíason og Svavar Ólafur Pétursson. Áhorfendur: 753.  Selfoss vann, 3:0. Manchester City hefur aldrei tekist að verja Englandsmeistaratitil í knattspyrnu, en Vincent Kompany hafði heldur aldrei skorað utan teigs á ferli sínum í ensku úrvals- deildinni þar til í gær. Stórbrotið sigurmark fyrirliðans í 1:0-sigri á Leicester í gær gerði að verkum að City er „hænuskrefi“ frá því að verja titil sinn og vinna ótrúlegt tit- ilstríð sitt við Liverpool. City dugar nú að vinna Brighton í lokaumferðinni á sunnudag, eitt neðsta lið deildarinnar sem þó er sloppið við fall og hefur ekki að neinu að keppa. Brighton gerði reyndar jafntefli við Arsenal á úti- velli um síðustu helgi en ætti ekki að vera fyrirstaða fyrir City miðað við spilamennsku meistaranna. „Við vorum rétt stilltir frá upp- hafi leiks. Kasper [Schmeichel] varði nokkrum sinnum vel og það var bara ég sem gat unnið hann á svona degi! Ég reyni bara að leggja mitt af mörkum og við erum komn- ir skrefi nær,“ sagði Kompany létt- ur í bragði. sindris@mbl.is AFP Fyrirliðinn Vincent Kompany á flugi eftir algjört draumamark sitt í gær. Sjaldséður gullmoli og City í dauðafæri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.