Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 07.05.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2019 Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar hæfileikaríkra söngvara sem til boða standi. Léttleikinn í fyrirrúmi Innt nánar eftir dagskrá tónleika dagsins segir Antonía um skvísu- prógramm að ræða þar sem létt- leikinn verði í fyrirrúmi. „Allar fjór- ar persónurnar sem Björk syngur eiga það sameiginlegt að vera skvís- ur og skvettur. Þetta eru allt hress- ar týpur sem eru sér meðvitandi um eigin fegurð og fönguleika Það fer því ekki mikið fyrir dramatík- inni hjá okkur að þessu sinni. Flutt verður síðasta aría Súsönnu úr Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart sem nefnist „Deh vieni“ og er frem- ur erótísk. Björk bregður sér síðan í hlutverk Despínu, sem er 15 ára þjónustustúlka úr Così fan tutte, líka eftir Mozart, og syngur aríuna „In uomini“. Svo flytjum við Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Eitt af markmiðum tónleikaraðar- innar er að gefa ungum söngvurum sem búa og starfa erlendis tækifæri á að koma fram hér heima. Sam- tímis finnst mér mikilvægt að gefa Hafnfirðingum tækifæri á að spreyta sig í heimabæ sínum,“ segir Antonía Hevesi, píanóleikari og list- rænn stjórnandi hádegistónleika- raðarinnar í Hafnarborg, sem í hádeginu í dag kemur fram á tón- leikum í Hafnarborg ásamt Björk Níelsdóttur sópran. Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina „Skvísur og skvettur“ flytja þær fjórar aríur eftir Mozart, Puccini og Gounod. Björk uppfyllir bæði framan- greind skilyrði, því hún er Hafnfirð- ingur sem býr og starfar í Amster- dam í Hollandi. Að sögn Antoníu stundaði Björk nám í klassískum söng við Tónlistarskólann í Hafnar- firði og við Tónlistarháskólann í Amsterdam þaðan sem hún lauk meistaranámi 2015 með hæstu ein- kunn auk þess sem hún fékk sér- staka viðurkenningu fyrir list- sköpun. Fær sífellt fleiri fyrirspurnir „Björk hefur komið fram í frum- flutningi á fjöldamörgum óperum, leikuppfærslum og tónverkum. Einnig hefur hún tekið þátt í tón- leikaferðalögum með Björk og Flor- ence and the Machine, sem söng- kona og trompetleikari. Í júní síðastliðnum söng Björk eitt aðal- hlutverkið í frumflutningi á óperunni Aarappelvreters eftir David Dramm og Romain Bischoff. Framundan hjá Björk er tónleika- hald á hinum ýmsu djasshátíðum um Evrópu í sumar með Kaja Draksler Oktett og í haust upp- færsla á nýrri óperu með Holland Opera og Het Houten Huis sem mun bera nafnið Ruimtevluchte. Björk var valin bjartasta vonin á Ís- lensku tónlistarverðlaununum 2018. Björk er fastur meðlimur í Kaja Draksler Oktett, Dúplum dúó, Ga- dus Morhua og Stirni Ensemble,“ segir í tilkynningu frá Hafnarborg. „Hún hringdi í mig og ég tók henni fagnandi,“ segir Antonía þeg- ar hún er innt eftir samstarfi þeirra Bjarkar. Á þeim 15 árum sem Ant- onía hefur stýrt hádegistónleikaröð- inni hefur hún gætt þess að bjóða til samstarfs við sig ýmist ungum og efnilegum söngvurum eða reynsluboltum sem þegar hafa gert það gott á tónlistarsviðinu til að gefa áheyrendum færi á að heyra í stórstjörnum. „Engin undantekning var gerð í ár þar sem ýmsir af frægustu söngvurum landsins komu fram í bland við yngri flytjendur,“ segir Antonía, en tónleikar dagsins eru þeir síðustu þetta starfsárið. „Ég fæ sífellt fleiri fyrirspurnir frá ungum söngvurum sem er mikið gleðiefni,“ segir Antonía og við- urkennir fúslega að oft sé vanda- samt að velja úr þeim mikla fjölda „Quando Men Vo“, sem er aría Mu- settu í La Boheme eftir Puccini. Sú ópera er auðvitað mjög dramatísk þar sem Mímí deyr, en hlutverk Musettu er ætlað að létta stemn- inguna,“ segir Antonía, en síðasta aría dagsins er „Ah, je ris de me vo- ir“ eða svonefnd skartgripaaría Marguerite úr Faust eftir Gounod. „Faust er auðvitað mjög drama- tísk saga, en titilpersónan nýtur að- stoðar djöfulsins við að draga Marguerite á tálar með hörmuleg- um afleiðingum fyrir hana. Þegar Marguerite syngur skartgripa- aríuna er hún enn hamingjusöm og veit ekki hvaða hörmungar bíða hennar,“ segir Antonía og rifjar upp að skartgripirnir séu liður í því að draga Marguerite á tálar. Tónleik- arnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11.30 og er aðgangur ókeypis. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listrænar Antonía Hevesi píanóleikari og Björk Níelsdóttur sópran á æfingu í Hafnarborg í gær. Skvísurnar hafa orðið  Björk Níelsdóttur sópran og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram á síðustu hádegistónleikum starfsársins í Hafnarborg í dag  Lítil dramatík á dagskrá Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir hefur verið ráðin for- stöðumaður Gerðarsafns. „Jóna Hlíf hefur umfangsmikla reynslu af stjórn- un en hún var formaður Sam- bands íslenskra myndlistar- manna 2014-2018 og formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykja- vík 2011-2013. Hún hefur setið í stjórnum Skaftfells, Bandalags íslenskra listamanna og Listahátíð- ar í Reykjavík. Jóna Hlíf var rit- stjóri tímaritsins Stara sem hefur að markmiði að efla umræðu og þekkingu á myndlist. Jóna Hlíf hef- ur fest sig í sessi sem viðurkenndur listamaður með staðgóða þekkingu á myndlist, sýningarstjórnun og listkennslu. Hún er virk á sínum fagvettvangi á alþjóðavísu og hefur haldið fjölda einkasýninga og sam- sýninga á áhrifamiklum söfnum og sýningarstöðum hérlendis. Verk hennar eru í eigu helstu listasafna á Íslandi og hefur hún fimm sinnum hlotið starfslaun listamanna,“ segir í tilkynningu frá Gerðarsafni. Jóna Hlíf útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005, lauk MFA-gráðu frá Glasgow Scho- ol of Art í Skotlandi 2007 og MA í listkennslu frá LHÍ 2012. Nýr forstöðumað- ur Gerðarsafns Jóna Hlíf Halldórsdóttir Kvartett söngkonunnar Rebekku Blöndal kemur fram á Kex Hosteli í kvöld kl. 20.30. Með Rebekku leika Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar, Sig- mar Þór Matthíasson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. „Á efnisskránni eru swing, blús, be- bop og jafnvel scat ef söngkonan verður í stuði,“ segir í tilkynningu. Kvartett Rebekku Blöndal á Kex Hollenska kvikmyndin Vecht- meisje, eða Bardagastelpa, hlaut sérstök verðlaun ungra áhorfenda um helgina, verðlaun á vegum Evr- ópsku kvikmyndaakademíunnar. Heita þau á ensku Young Audience Award, skammstafað YAA. Bíógestir í 34 löndum á aldrinum 12 til 14 ára greiddu atkvæði og var kosið í 55 borgum Evrópu og þeirra á meðal Reykjavík. Þrjár kvik- myndir voru tilnefndar og greiddu 2.800 manns atkvæði. Kvikmyndin fjallar um 12 ára stúlku, Bo, sem þykir efnileg í sparkboxi. Foreldrar hennar eru að skilja og þarf Bo að læra að beisla reiði sína og sætta sig við að faðir hennar muni flytja að heiman. Leikstjóri myndarinnar er Johan Timmers og Aiko Beemsterboer fer með hlutverk Bo. Bardagastelpa hlaut YAA-verðlaunin Sparkbox Bo berst við ónefnda stúlku í kvikmyndinni Vechtmeisje. Fyrstu sviðsettu tónleikar Bjark- ar Guðmunds- dóttur og sam- starfsmanna hennar í hinu nýja og umtalaða menningarhúsi The Shed í New York voru í gær- kvöldi. Þessi tón- leikasýning Bjarkar nefnist Cornu- copia og verða sýningar alls átta, sú síðasta 1. júní næstkomandi. Með Björk koma fram flautusep- tettinn viibra og Hamrahlíðakór- inn, undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur, Katie Buckley á hörpu og Manu Delago á áslátt. Mikið er lagt í framsetninguna í The Shed, sem er stór fjölnota salur í splunkunýjum háhýsakjarna vest- ast á Manhattan þar sem settir verða upp fjölbreytilegir viðburðir. Hinn kunni argentíski leikstjóri Lucrecia Martel annast sviðsetnina á tónleikunum og er í sýningunni mikið lagt upp úr áhrifamikilli víd- eóvörpun og líflegri sviðsmynd en sýningin er um 100 mínútna löng. Tónleikar Bjarkar í The Shed hafnir Björk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.