Morgunblaðið - 27.05.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 27.05.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR alnabaer.is Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar. Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga. Við erum sérhæfð í gluggatjöldum Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Sjáum til þess að allar yfirhafnir komi hreinar undan vetri STOFNAÐ 1953 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslensk fyrirtæki gerðu það gott á Sjávarútvegssýningunni í Brussel fyrr í mánuðinum. Sýningin skiptist í tvo hluta: annan sem einblínir á mat- væli og hinn helgaðan tækjum og tækni, og segir Berglind Steindórs- dóttir að þátttaka Íslendinga hafi verið með besta móti: „Á íslenska þjóðarabásnum voru sýnendur með um 400 manns að störf- um, en til viðbót- ar voru fyrirtæki á borð við Marel, Iceland Seafood og fleiri með sína eigin bása og því má áætla að um 5- 600 manns hafi verið að vinna á ís- lenskum sýningarbásum á meðan viðburðurinn stóð yfir. Er þá eftir að telja íslenska gesti og hugsa ég að í heildina hafi um og yfir þúsund Ís- lendingar verið staddir í Brussel vegna sýningarinnar.“ Berglind er verkefnisstjóri hjá Ís- landsstofu og hefur verið viðriðin sýninguna í Brussl í um það bil tvo áratugi. Hún segir viðburðinn stækka ár frá ári og fylla alla Bruss- els Expo-sýningarhöllina, en vegna mikillar aðsóknar og takmarkaðs pláss geti stundum verið erfitt fyrir ný íslensk fyrirtæki að komast að, og hvað þá á góðum reit. „Það er meðal annars þess vegna að fyrirtæki gæta þess að taka alltaf þátt, ár eftir ár, því ef þau láta frá sér plássið sitt eitt árið er alls ekki víst að þau komist að næst. Veit ég að nokkur íslensk fyrirtæki hafa áhuga á að stækka bása sína en rekið sig á að ekki er hægt að fá meira rými. Þá er íslenski básinn því miður sprunginn, og vegna plássleysis þurftum við að vísa frá fyrirtækjum sem vildu vera hjá okkur,“ segir Berglind en henni telst til að 34 íslensk fyrirtæki hafi kynnt vörur sínar og þjónustu í Brussel. Mikið líf er í sýningarhöllinni á meðan viðburðurinn stendur yfir og líkir Berglind andrúmsloftinu við þjóðhátíð. „Til Brussel koma allir sem vettlingi geta valdið og gefst þar tækifæri bæði til að kynnast nýju fólki úr ýmsum áttum og rækta sam- bandið við einstaklinga sem annars gefast fá tækifæri til að hitta. Að vanda mátti greina gott hljóð og mikla jákvæðni í íslenska hópnum enda eru þau að kynna lausnir og vörur á heimsmælikvarða.“ Berglind segir mörgum þykja gaman að nota tækifærið til að ganga frá samningum. „Það á ekki lengur við að kaupendur beinlínis dragi fram ávísanaheftið í fyrstu heimsókn á sýningarbás og nú til dags eiga sölusamningar sér langan aðdrag- anda, en sýningin í Brussel er notuð sem tilefni til undirritunar, og til að stofna til tengsla sem munu leiða til viðskipta seinna meir.“ Ómissandi að vera með Triton ehf. er í hópi þeirra ís- lensku fyrirtækja sem sótt hafa sýn- inguna í Brussel um árabil og segir Ormur Arnarson, forstjóri félagsins, að Triton hafi verið með nánast frá því sýningin hóf fyrst göngu sína. Var sýningin í ár sú 27. frá upphafi. Triton sérhæfir sig í framleiðslu og útflutningi á hrognum úr loðnu og grásleppu, niðursoðinni þorsklifur, og frystri loðnu og grásleppu. Var Triton m.a. fyrst íslenskra fyrir- tækja til að selja frysta grásleppu til Kína og er í dag nokkuð umsvifamik- ið í austurhluta Asíu. Má finna vörur Triton til sölu í öllum heimsálfum, að Suðurskautslandinu undanskildu. Ormur segir ómissandi fyrir Tri- ton að vera hluti af viðburðinum í Brussel. „Við verjum stórum hluta af markaðsfjármagni okkar í það að taka þátt í sýningunni enda gefst þar tækifæri til að hitta flesta af við- skiptavinum okkar, rækta sam- bandið og tengja andlit við nöfnin í tölvupóstunum. Þetta er löngu orðið ómissandi þáttur í starfseminni og eitthvað sem við vildum ekki vera án,“ segir hann og bætir við að árleg þátttaka í þessu ættarmóti sjávarút- vegsgeirans þýði að smátt og smátt skapist góð persónuleg sambönd við viðskiptavini, og endrum og oftast að ný viðskiptatækifæri koma í ljós. Triton er með sinn eigin bás og fara þrír af fjórum starfsmönnum fyrirtækisins til Brussel. Ormur gantast með að einn verði að vera eftir uppi á Íslandi svo einhver sé til að svara í símann, en þeir þrír sem fara úr landi þurfa að bretta upp ermarnar enda hörkuvinna að taka þátt. Stöðugur straumur gesta er á básnum og þarf að kynna þeim vör- una og skrá niður upplýsingar svo hafa megi samband síðar og fylgja heimsókninni eftir. Ormur segir taka aðeins klukkustund að setja sýning- arbásinn upp og hefur Triton nokkur sýnishorn af vörum sínum uppi við en býður fólki ekki að smakka. „Við lærðum það af reynslunni að lítið er að græða á því að gefa fólki að smakka. Það dregur bara að fólk sem er ekki endilega með það í huga að hefja viðskipti við okkur og skap- ar örtröð í kringum básinn.“ Fleiri vilja komast að Tækifæri Frá íslenska sýningarsvæðinu. Gestir virða fyrir sér tækin á bás Skagans 3X. Á fjórða tug íslenskra fyrirtækja sýndu í Brussel í ár.  Reikna má með að í kringum þúsund Íslendingar hafi verið á Sjávarútvegssýn- ingunni í Brussel  Vísa þurfti íslenskum fyrirtækjum frá vegna plássleysis Berglind Steinsdórsdóttir 27. maí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.32 123.9 123.61 Sterlingspund 156.48 157.24 156.86 Kanadadalur 91.62 92.16 91.89 Dönsk króna 18.465 18.573 18.519 Norsk króna 14.129 14.213 14.171 Sænsk króna 12.872 12.948 12.91 Svissn. franki 122.92 123.6 123.26 Japanskt jen 1.1236 1.1302 1.1269 SDR 170.1 171.12 170.61 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8744 Hrávöruverð Gull 1281.5 ($/únsa) Ál 1739.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.99 ($/fatið) Brent ● Tekist hefur að fullnægja öllum skil- yrðum fyrir kaupum Íslenskra verðbréfa á Viðskiptahúsinu og því verið gengið frá viðskiptunum í samræmi við kaup- samning sem gerður var í desember. Viðskiptahúsið hefur, frá árinu 2001, sérhæft sig í miðlun fyrirtækja, skipa, fasteigna og aflaheimilda og skiptist starfsemi félagsins í þrjú meginsvið: fyr- irtækjaráðgjöf, sjávarútveg og fjár- mögnun. Þar starfa í dag fimm manns. Íslensk verðbréf hófu starfsemi 1987 og býður félagið upp á ráðgjöf, miðlun, sérhæfðar fjárfestingar og eignastýringu. Samtals er 21 starfsmaður hjá Íslenskum verðbréfum, bæði á Akureyri og í Kópa- vogi, og er félagið með um 125 milljarða króna í virkri stýringu fyrir viðskiptavini. Nýtt skipurit hefur verið gert fyrir hið sameinaða félag og verður Jóhann M. Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskipta- hússins, gerður að forstjóra Íslenskra verðbréfa. Tekur hann við af Jóni Helga Péturssyni sem sest í stól aðstoðarfor- stjóra. ai@mbl.is Íslensk verðbréf kaupa Viðskiptahúsið STUTT ● Matsfyrirtækið Fitch hefur ákveðið að hækka skammtímaeinkunnir ríkis- sjóðs úr F1 í F1+ vegna breyttrar aðferðafræði. Að auki hefur landsþak (e. country ceiling) Íslands verið hækkað úr A í A+ þar eð fjármagnshöftum hef- ur verið nærri því að fullu aflétt. Lánamál ríkisins greindu frá þessu á föstu- dagskvöld. Langtímaeinkunnir haldast óbreyttar í A með stöðugum horfum. Fitch bendir á að gjaldþrot WOW og loðnubrestur hafi haft neikvæð áhrif á efnahagshorfur en gengi hafi haldist tiltölulega stöðugt þrátt fyrir gjaldþrot flugfélagsins og afnám fjármagnshafta. Spáir Fitch 2,5% hagvexti á landinu á næsta ári. ai@mbl.is Fitch hækkar einkunnir ríkissjóðs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.