Morgunblaðið - 27.05.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019
Dásamlegur þvottur
- einfalt, íslenskt
stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar fylgja.
Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn
í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Þvottavél 119.990 kr.
Þurrkari 149.990 kr.
Þýskaland
8-liða úrslit, þriðji leikur:
Alba Berlín – Ulm.............................. 100:83
Martin Hermannsson lék í 26 og hálfa
mínútu fyrir Alba, skoraði 14 stig, tók 2 frá-
köst og átti 5 stoðsendingar.
Alba vann, 3:0.
Frakkland
8-liða úrslit, annar leikur:
Elan Bernais – Nanterre ................... 76:64
Haukur Helgi Pálsson lék í 28 mínútur
fyrir Nanterre, skoraði 8 stig, tók 4 frá-
köstum og átti 2 stoðsendingar.
Staðan er jöfn, 1:1.
Spánn
Obradoiro – Barcelona ....................... 63:84
Tryggvi Snær Hlinason lék í 8 mínútur
fyrir Obradorio, skoraði 2 stig og átti 1
stoðsendingu. Obradorio sem endaði í 15.
sæti af 18 liðum leikur áfram í deildinni.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, sjötti leikur:
Toronto – Milwaukee ......................... 100:94
Toronto vann, 4:2, og leikur til úrslita um
NBA-titilinn í fyrsta sinn í sögu sinni.
KÖRFUBOLTI
Pepsi Max-deild kvenna
Keflavík – Þór/KA.................................... 1:2
Staðan:
Breiðablik 4 4 0 0 13:2 12
Valur 4 4 0 0 13:2 12
Stjarnan 4 3 0 1 5:2 9
Þór/KA 5 3 0 2 10:11 9
Fylkir 4 2 0 2 5:7 6
Selfoss 4 2 0 2 5:7 6
ÍBV 4 1 0 3 4:7 3
KR 4 1 0 3 3:7 3
HK/Víkingur 4 1 0 3 1:6 3
Keflavík 5 0 0 5 4:12 0
2. deild kvenna
Hamrarnir – Grótta ................................. 0:1
Staðan:
Grótta 2 2 0 0 8:1 6
Álftanes 1 1 0 0 4:1 3
Völsungur 1 1 0 0 3:1 3
Fjarð/Hött/Leikn. 2 1 0 1 3:2 3
Hamrarnir 3 1 0 2 3:6 3
Leiknir R. 1 0 0 1 1:3 0
Sindri 2 0 0 2 1:9 0
Bandaríkin
Utah Royals – Orlando Pride................. 2:0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn fyrir Utah Royals.
Sky Blue – Portland Thorns .................. 0:1
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
fyrir Portland Thorns.
Úkraína
Vorskla Poltava – Chornomorets...........1:2
Árni Vilhjálmsson lék fyrstu 65 mínútur
leiksins fyrir Chornomorets.
Í KEFLAVÍK
Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
Varla mátti merkja að neðsta lið
deildarinnar, Keflavík, væri að
mæta þrautreyndu liði Þórs/KA
suður með sjó í gærkvöldi en eftir
þungar sóknir Keflavíkurkvenna í
seinni hálfleik sluppu gestirnir með
skrekkinn og 2:1 sigur.
Keflavík byrjaði með látum en
Akureyringar stóðu það af sér og
Stephany Mayor kom Þór/KA í 0:1
úr víti. Keflvíkingum var brugðið
en sóttu svo í veðrið aftur og Na-
tasha Anasi, fyrirliði Keflavíkur,
jafnaði eftir langt innkast Sveind-
ísar Jane Jónsdóttur af hliðarlínu
inn að markstönginni. Gestirnir að
norðan ætluðu sér að taka völdin
eftir hlé og Stephany skoraði aftur
á en fljótlega fór sókn Keflvíkinga
að þyngjast verulega, mörg færi en
aðeins vantaði að hitta boltann að-
eins betur.
Keflvíkingar voru öruggir í vörn-
inni og gáfu fá færi að sleppa í
gegn auk þess að rjúka í alla bolta
sem voru að skapa hættu en þar
fóru Þóra Kristín Klemenzdóttir og
Katla María Þórðardóttir fremstar
í flokki. Svo náði Sveindís Jane að
skapa hættu í framlínunni, en hún
tók líka innköst af hliðarlínu inn í
miðjan markteig.
Hjá Þór/KA var Arnar Sif Ás-
grímsdóttir kletturinn í vörninni,
sem stóð sig vel þegar hún las sókn
mótherjanna. Gestirnir voru síðan
ráðandi á miðjunni og reyndu að
byggja upp sóknir en þótt Steph-
any og Hulda Ósk Jónsdóttir næðu
oft að hrella vörn Keflvíkinga gekk
þeim illa að koma sér í góð skot-
færi.
Við þurftum að leggja enn meira
á okkur því Keflavík er með gott
lið en við fengum samt mikilvæg
þrjú stig, sagði Stephany eftir leik-
inn. „Við mættum erfiðu liði með
þessi hættulegu innköst og horn-
spyrnur en stigin koma sér vel fyr-
ir liðið, gott að hafa náð þeim hér.
Við vissum líka að þær væru að
vinna fyrir sínum fyrstu stigum og
gátu jafnað á síðustu mínútu.“
Sluppu norður
með þrjú stig
Botnliðið veitti Þór/KA harða keppni
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Öflug Mörk Stephany Mayor t.h. skiptu sköpum fyrir Þór/KA í Keflavík
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
Jónsdóttir endaði í 24.-29. sæti á
Jabra-mótinu í golfi sem fram fór í
Frakklandi og lauk um helgina.
Mótið er hluti atvinnumótaröð Evr-
ópu í kvennaflokki, LET-Evr-
ópumótaröðinni. Valdís lék loka-
hringinn á 72 höggum eða einu
höggi yfir pari vallarsins.
Valdís spilaði flott golf á loka-
hringnum og fékk þrjá fugla, tvo
skolla, einn skramba en samtals lék
Valdís á 220 höggum á mótinu.
Annabel Dimmock frá Englandi
fór með sigur af hólmi.
Fínn lokahringur
hjá Valdísi Þóru
Ljósmynd/LET
Golf Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel
á lokahringnum í Frakklandi.
Martin Hermannsson og félagar í
Alba Berlín eru komnir í undan-
úrslit þýsku 1. deildarinnar í körfu-
knattleik eftir 100:83-sigur á Ulm í
þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum í
gær. Martin var drjúgur í leiknum,
skoraði 14 stig, gaf fimm stoðsend-
ingar og tók tvö fráköst á þeim 26
mínútum sem hann spilaði en hann
var næstmarkahæstur í sínu liði.
Alba Berlín er þar með búið að
sópa liði Ulm úr leik með því að
vinna einvígi liðanna 3:0. Berlín
komst alla leið í úrslit í fyrra en
tapaði þar gegn Bayern München.
Martin kominn í
undanúrslit
Ljósmynd/FIBA
Sterkur Martin Hermannsson lék
vel þegar Alba komst í undanúrslit.
0:1 Stephany Mayor 12.
1:1 Natasha Anasi 38.
1:2 Stephany Mayor 56.
I Gul spjöldÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
(Þór/KA), (brot), Sophie Mc Mahon
Groff (Keflavík) 66. (brot).
I Rauð spjöldEkkert.
Keflavík – Þór/KA 1:2
M
Natasha Anasi (Keflavík)
Katla M. Þórðardóttir (Keflavík)
Sveindís J. Jónsdóttir (Keflavík)
Mairead Fulton (Keflavík)
Bryndís L. Hrafnkelsd. (Þór/KA)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Stephany Mayor (Þór/KA)
Dómari: Atli Haukur Arnarson – 8.
Áhorfendur: 115.
CSKA Moskva tryggði sér fjórða sætið í rússnesku úr-
valsdeildinni með því að rótbursta Krilla Sovetov 6:0 í
lokaumferðinni í gær. Þar með fer lið Mosvku beint í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð. Þá fer
Krasnodar beint í Meistaradeildina eftir að hafa tryggt
sér annað sæti deildarinnar með 1:0-sigri á Rubin Kaz-
an.
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon
voru báðir í byrjunarliði CSKA Moskvu í gær og reim-
uðu þeir báðir á sig skotskóna í tilefni dagsins. Hörður
kom heimamönnum í 2:0 snemma í síðari hálfleik en
Arnór skoraði fjórða markið á 56. mínútu. Báðir léku
þeir allan leikinn.
Jón Guðni Fjóluson var á varamannabekk Krasnodar sem tryggði sér
annað sætið með sigrinum á Rubin Kazan.
Ragnar Sigurðsson var í liði Rostov sem tapaði 1:0-gegn Akmat Grozní
en Björn Bergmann Sigurðarson var ónotaður varamaður. Rostov endar í
níunda sæti deildarinnar. sport@mbl.is
Íslendingar á skotskónum
Arnór
Sigurðsson
Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon eru
komnir í úrslit um danska meistaratitilinn í handbolta
með Aalborg eftir 34:32 útisigur á Bjerringbro-
Silkeborg í öðrum úrslitaleik í gær. Janus Daði fór á
kostum fyrir Aalborg og skoraði tíu mörk úr tólf skot-
um. Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk úr sjö
skotum og skoruðu Íslendingar því tæplega helming
marka Aalborgar. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
Álaborgarliðsins.
Aalborg mætir annaðhvort Skjern eða GOG í úrslit-
um, en þau mætast í oddaleik á fimmtudaginn á heima-
velli GOG. Skjern vann aðra viðureign liðanna í gær,
31:30, á heimavelli. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt marka GOG.
Tandri Már Konráðsson skoraði ekki mark fyrir Skjern og Björgvin Páll
Gústavsson átti náðugan dag. Hann reyndi að verja eitt vítakast, án ár-
angurs. iben@mbl.is
Janus Daði fór hamförum
Janus Daði
Smárason