Morgunblaðið - 27.05.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 27.05.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 6. UMFERÐ Bjarni Helgason Björn Már Ólafsson Arnar Þór Ingólfsson Sindri Sverrisson Einar Sigtryggsson Jóhann Ólafsson Andri Rafn Yeoman skaut Breiða- bliki upp í annað sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max- deildinni, þegar hann skoraði sig- urmark leiksins í 1:0-sigri Blika gegn Val í 6. umferð deildarinnar á Origo-vellinum á Hlíðarenda í gær. Blikar voru miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og áttu með réttu að vera yfir í hálfleik en Hannes Þór Halldórsson átti stórleik í marki Valsmanna og varði hvert dauðafær- ið á fætur öðru. Það var ekki fyrr en á 76. mínútu sem Blikar komust yfir með marki frá Andra Rafni sem tryggði Blikum dýrmæt þrjú stig. Blikar mættu mjög ákveðnir til leiks og það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að þeir ætluðu sér þrjú stig á Hlíðarenda. Þeir pressuðu Vals- menn hátt á vellinum og unnu bolt- ann trekk í trekk af Íslandsmeist- urunum. Þórir Guðjónsson fékk tvö sannkölluð dauðafæri til þess að skora og framherjinn hefði sofið illa í nótt ef Blikar hefðu ekki farið með sigur af hólmi. Kolbeinn Þórðarson var mjög öflugur á miðsvæðinu hjá Blikum og stýrði sóknarleiknum af mikilli yfirvegun og þá voru sókn- armenn liðsins afar duglegir í vörn jafnt sem sókn. Valsmenn fóru langleiðina með að kasta Íslandsmeistaratitlinum frá sér í gær. Þeir mættu einfaldlega ekki til leiks og Blikar yfirspiluðu þá frá fyrstu mínútu. Uppspil Valsliðs- ins var hægt og þá nýttu þeir kant- ana hjá sér illa. Ólafur Karl Finsen var eini miðjumaður liðsins sem horfði fram á völlinn og var að reyna að búa eitthvað til. Framherjar liðs- ins áttu erfitt uppdráttar en Krist- inn Ingi Halldórsson var í engum takt við leikinn í fyrri hálfleik og Garðar Bergmann Gunnlaugsson var lítið í boltanum í seinni hálfleik. Þegar Blikar sækja til sigurs eru þeir erfiðir viðureignar og allt annað en sigur Blika í gær hefði verið skandall. Valsmenn eru í vandræð- um, að því er virðist í öllum leik- stöðum á vellinum, og það er ekkert sem bendir til þess að þeir séu að fara að grafa sig upp úr þeirri holu sem liðið er komið í. Hraði og spennan tók sinn toll Það vantaði ekki hraðann og fjörið í leik Fylkis og FH í Árbænum í gær. Fylkismenn hafa spilað ágæt- lega á tímabilinu en stigasöfnunin hefur verið undir væntingum. Ofan á það glímir liðið við mikil meiðsla- vandræði. En þrátt fyrir það lét Helgi Sigurðsson liðið sitt pressa sterkt byrjunarlið FH hátt uppi á vellinum og gekk sú leikaðferð ágætlega upp á köflum. Tvisvar komust Fylkismenn yfir en FH-liðið býr yfir gæðum og bæði jöfn- unarmörk þess voru verðskulduð heilt á litið. Hraðinn í leiknum tók sinn toll af leikmönnum. Síðasta hálftímann opnaðist leikurinn alveg upp á gátt og bæði lið fengu fín færi til að stela stigunum þremur en markmennirnir tveir stigu þá upp. Vignir og Aron Snær áttu báðir glæsilegar vörslur sem björguðu liðum þeirra. Hraðinn og baráttan tók einnig toll að öðru leyti því FH-ingar þurftu að nýta allar skiptingar sínar í að skipta meiddum leikmönnum af velli og Ólafur Ingi fór einnig af velli hjá Fylkismönnum vegna meiðsla. Leikjaálag til trafala? Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, sagði eftir leikinn að leikjaálagið hefði verið gríðarlegt í upphafi móts og sagði raunar að það þyrfti að end- urhugsa leikjaplanið svona snemma tímabils. Ólafur hefur kannski eitt- hvað til síns máls ef marka má meiðslin sem þessi tvö lið eru nú að glíma við. Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, þurfti til að mynda að grípa til þess örþrifaráðs að hringja í leik- mann sem var hættur í knattspyrnu fyrir leikinn í gær og bjóða honum sæti í hópnum. En Oddur Ingi Guð- mundsson stóð sig með prýði og var ekkert ryð að sjá á leik hans. Enn einn sigur Skagamanna Leikur ÍA og Stjörnunnar á Norð- urálsvellinum í gær var algjörlega í járnum í fyrri hálfleik og hvorugt liðið náði að skapa sér nein teljandi marktækifæri. ÍA beitti löngum sendingum fram völlinn, en golan á Enn tapa meistarar Valsara  Skagamenn áfram á sigurbraut Morgunblaðið/Árni Sæberg Sókn Stefán Teitur Þórðarson, leikmaður ÍA, hefur snúið Baldur Sigurðsson Stjörnu- mann af sér í leiknum. Pepsi Max-deild karla HK – Grindavík .........................................0:0 KA – ÍBV................................................... 2:0 Víkingur R. – KR...................................... 0:1 ÍA – Stjarnan ............................................ 2:0 Fylkir – FH............................................... 2:2 Valur – Breiðablik .................................... 0:1 Staðan: ÍA 6 5 1 0 12:4 16 Breiðablik 6 4 1 1 9:4 13 KR 6 3 2 1 10:6 11 FH 6 3 2 1 11:9 11 KA 6 3 0 3 8:7 9 Grindavík 6 2 3 1 6:6 9 Stjarnan 6 2 2 2 7:9 8 Fylkir 6 1 3 2 8:7 6 HK 6 1 2 3 6:8 5 Valur 6 1 1 4 7:10 4 Víkingur R. 6 0 3 3 9:13 3 ÍBV 6 0 2 4 3:13 2 Inkasso-deild karla Magni – Fram........................................... 1:1 Staðan: Keflavík 4 3 1 0 10:2 10 Víkingur Ó. 4 3 1 0 6:1 10 Fjölnir 4 3 0 1 11:6 9 Njarðvík 4 2 1 1 5:5 7 Leiknir R. 4 2 0 2 9:7 6 Þór 4 2 0 2 7:6 6 Fram 4 1 2 1 6:6 5 Þróttur R. 4 1 1 2 9:9 4 Grótta 4 1 1 2 7:9 4 Afturelding 4 1 0 3 4:12 3 Haukar 4 0 2 2 4:7 2 Magni 4 0 1 3 4:12 1 2. deild karla Kári – Fjarðabyggð.................................. 1:4 Vestri – Þróttur V .................................... 0:2 Völsungur – ÍR ......................................... 2:0 Leiknir F. – KFG ..................................... 4:0 Staðan: Selfoss 4 3 0 1 11:3 9 Völsungur 4 3 0 1 6:5 9 Víðir 4 2 1 1 8:8 7 Leiknir F. 4 1 3 0 9:5 6 Fjarðabyggð 4 2 0 2 7:5 6 Vestri 4 2 0 2 6:7 6 KFG 4 2 0 2 5:6 6 Dalvík/Reynir 4 1 2 1 5:5 5 Þróttur V. 4 1 2 1 5:6 5 Kári 4 1 1 2 7:8 4 ÍR 4 1 1 2 4:6 4 Tindastóll 4 0 0 4 1:10 0 3. deild karla Sindri – Augnablik ................................... 0:0 Skallagrímur – KF ................................... 0:1 Staðan: KF 4 3 1 0 10:3 10 Kórdrengir 4 3 1 0 9:3 10 KV 4 3 0 1 10:5 9 Álftanes 4 2 1 1 9:7 7 Vængir Júpiters 4 2 0 2 6:6 6 Augnablik 4 1 2 1 8:6 5 Reynir S. 4 1 2 1 5:4 5 Höttur/Huginn 4 1 1 2 5:5 4 Sindri 4 1 1 2 3:6 4 Einherji 4 1 0 3 4:8 3 Skallagrímur 4 1 0 3 3:11 3 KH 4 0 1 3 6:14 1 KNATTSPYRNA 1:0 Daníel Hafsteinsson 76. 2:0 Nökkvi Þeyr Þórisson 80. I Gul spjöldÓskar Elías Zoëga, Jonathan Franks, Priestley Griffiths, Gilson Correia (ÍBV). I Rauð spjöldEkkert KA – ÍBV 2:0 M Hallgrímur Jónasson (KA) Callum Williams (KA) Daníel Hafsteinsson (KA) Nökkvi Þeyr Þórisson (KA) Halldór Páll Geirsson (ÍBV) Diego Coelho (ÍBV) Dómarar: Vilhjálmur Alvar Þór- arinsson, Gylfi Már Sigurðsson og Sigurður Þorsteinsson, 9. Áhorfendur: 746. Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn í sumar 1:0 Kolbeinn B. Finnsson 11. 1:1 Hjörtur Logi Valgarðsson 22. 2:1 Helgi Valur Daníelsson 60. 2:2 Brandur Olsen 62. I Gul spjöldGuðmundur Kristjánsson (FH), Ásgeir Eyþórsson (Fylki). FYLKIR – FH 2:2 M Hákon Ingi Jónsson (Fylki) Helgi Valur Daníelsson (Fylki) Aron Snær Friðriksson (Fylki) Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki) Kolbeinn Birgir Finnsson (Fylki) Vignir Jóhannesson (FH) Jónatan Ingi Jónsson (FH) Brandur Olsen (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson, 6. Áhorfendur: 1.532. 0:1 Andri Rafn Yeoman 76. I Gul spjöldElfar Freyr Helgaso (Breiða- bliki), Bjarni Ólafur Eiríksson (Val), Arnar Sveinn Geirsson (Breiðabliki), Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðabliki). I Rauð spjöldKristinn F. Sigurðsson (Val) MM Hannes Þór Halldórsson (Val) Kolbeinn Þórðarson (Breiðabliki) VALUR – BREIÐABLIK 0:1 M Aron Bjarnason (Breiðabliki) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Guðjón P. Lýðsson (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Jonathan Hendrickx (Breiðabliki) Arnar Sveinn Geirsson (Breiðabl.) Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki) Ólafur Karl Finsen (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Birkir Már Sævarsson (Val) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson, 6. Áhorfendur: 1.528.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.