Morgunblaðið - 27.05.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
0:1 Óskar Örn Hauksson 5.
I Gul spjöldSölvi Geir Ottesen, Guð-
mundur Andri Tryggvason og Ágúst
Eðvald Hlynsson (Víkingi), Finnur
Orri Margeirsson (KR)
I Rauð spjöldSölvi Geir Ottesen (Víkingi)
77. (beint rautt fyrir högg).
VÍKINGUR R. – KR 0:1
M
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Logi Tómasson (Víkingi)
Viktor Andrason (Víkingi)
Kennie Chopart (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Dómari: Pétur Guðmundsson, 6.
Áhorfendur: 680.
Rússland
Akhmat Grosní – Rostov......................... 1:0
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn fyrir
Rostov, Björn Bergmann Sigurðarson var
hinsvegar varamaður og kom ekki við sögu.
CSKA Moskva – Krilia Sovetov ............. 6:0
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór
Sigurðsson léku allan leikinn fyrir CSKA
og skoruðu sitt markið hvor.
Krasnodar – Rubin Kazan...................... 1:0
Jón Guðni Fjóluson sat á varamanna-
bekknum hjá Krasnodar.
Lokastaða efstu liða: Zenit Pétursborg
64 stig, Lokomotiv Moskva 56, Krasnodar
56, CSKA Moskva 51, Spartak Moskva 49,
Arsenal Tula 46, C Orenburg 43, FC Ak-
hmat Grozny 42, Rostov 41.
Ítalía
Cagliari – Udinese................................... 1:2
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir
Udinese og skoraði fyrra mark liðsins sem
endaði í 12. sæti af 20 liðum.
Spánn
Bikarúrslitaleikur:
Barcelona – Valencia................................ 1:2
B-deild:
Tenerife – Real Oviedo............................1:2
Diego Jóhannesson lék allan leikinn fyr-
ir Real Oviedo.
Tyrkland
Umspil, undanúrslit, seinni leikur:
Osmanlispor – Gazisehir ........................ 2:0
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn fyrir Gazisehir.
Gazisehir í úrslit eftir 9:8 sigur í vítak.
Sviss
Lugano – Grasshoppers.......................... 3:3
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Grasshoppers sem varð neðst
og féll.
Danmörk
OB – Bröndby........................................... 0:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
fyrir Bröndby sem endaði í 4. sæti og
komst í umspil um Evrópusæti.
Svíþjóð
Malmö – Eskilstuna ................................. 5:0
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 68
mínútur leiksins fyrir Malmö.
Helsingborg – Falkenberg ..................... 1:1
Andri Rúnar Bjarnason lék allan leikinn
fyrir Helsingborg og skoraði mark liðsins.
Noregur
Mjöndalen – Haugesund ......................... 1:4
Dagur Dan Þórhallsson sat á meðal
varamanna Mjöndalen allan leikinn.
Vålerenga – Lilleström........................... 0:3
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
fyrir Vålerenga.
Arnór Smárason lék fyrstu 73 mínútur
leiksins fyrir Lilleström.
Þýskaland
Bikarúrslitaleikur karla:
RB Leipzig – Bayern München .............. 0:3
KNATTSPYRNA
Akranesi var helst til sterk, sem
varð til þess að fjölmargar send-
ingar þeirra fóru beint aftur fyrir
endamörk. Skagamenn lágu til baka
og Stjörnumenn, sem voru ívið
meira með boltann, fundu engar
glufur á vel skipulagðri vörn þeirra.
En eftir fyrra mark heimamanna
snemma í síðari hálfleik, sem kom
eftir að Stjörnumenn sofnuðu eilítið
á verðinum í innkasti, varð ljóst að
róðurinn yrði þungur fyrir gestina
úr Garðabæ. Skagamönnum óx ás-
megin og voru þeir mun líflegri en
Stjörnumenn, sem virtust aldrei lík-
legir til þess að skora í þessum leik.
Stefán Teitur Þórðarson stýrði
leik Skagamanna af mikilli yfirveg-
un á miðjunni og var að öðrum ólöst-
uðum besti leikmaður vallarins, en
senuþjófur kvöldsins var þó tví-
mælalaust Steinar Þorsteinsson,
sem kom inn á sem varamaður eftir
tæplega hálftíma leik. Hann lagði
upp fyrra markið með hnitmiðaðri
fyrirgjöf og skoraði það síðara sjálf-
ur í uppbótartíma.
Það er enginn nýliðabragur á liði
Skagamanna í ár, þeir eru gríðar-
lega vel skipulagðir til baka, grimm-
ir og áræðnir þegar þeir sækja.
Stuðningsmaður liðsins sagði blaða-
manni að á Akranesi hugsuðu þeir
sem eldri eru nú til ársins 1992 og
létu sig dreyma um endurtekningu
þess magnaða afreks, er nýliðar ÍA
urðu meistarar. Hvort það fari svo
skal látið ósagt, en Skagamenn geta
borið höfuðið hátt eftir frábæra
byrjun í deild þeirra bestu.
Síðasti hjá Björgvini fram í
júlí?
Björgvin Stefánsson gæti hafa
spilað sinn síðasta leik fyrir KR þar
til í júlí þegar hann lék í 1:0-sigri
liðsins á Víkingi R. í síðasta „heima-
leiknum“ sem Víkingar þurfa að
leika í Laugardal í deildinni í sumar.
Aganefnd KSÍ er komin með um-
mæli Björgvins, þar sem hann talaði
með fordómafullum hætti í lýsingu á
leik í 1. deild, inn á sitt borð og tekur
þau væntanlega fyrir á morgun. Fái
Björgvin leikbann verður það ef-
laust að lágmarki 5 leikir.
Björgvin var lítt áberandi gegn
Víkingum og miðað við þann leik
gæti KR alveg spjarað sig án þessa
duglega framherja, þó að auðvitað
væri slæmt fyrir KR-liðið að missa
leikman sem þegar hefur skorað 3
mörk í sumar. Fjarvera hans, verði
hún einhver, gæti verið vatn á myllu
Ægis Jarls Jónassonar sem býr yfir
hæfileikum til að blómstra í toppliði
í deildinni, eins og KR er. Þaul-
skipulagður varnarleikur var lykill-
inn að sigrinum á laugardag, þar
sem síungur Óskar Örn Hauksson
skapaði helstu hættuna fram á við.
Þrír dómarar í 85 mínútna leik
KA vann ÍBV á heimavelli sínum
á laugardag í merkilegum leik. Eftir
bragðdaufan leik settu KA-menn á
fullt stím. Með góðum spilköflum
sköpuðu þeir tvö mörk og víti sem
fór í súginn. Unnu þeir leikinn 2:0 en
mörkin og vítið komu á sjö mínútna
kafla skömmu fyrir leikslok.
Þrír dómarar dæmdu leikinn. Vil-
hjálmur Alvar Þórarinsson meiddist
snemma leiks og tafðist leikurinn
um níu mínútur við það. Aðstoðar-
dómarinn, Gylfi Már Sigurðsson, tók
við og stóð sig vel fram að hálfleik.
Uppbótartíminn í fyrri hálfleik var
bara fjórar mínútur og má því segja
að leikurinn hafi bara verið 85 mín-
útur. Eftir hlé var Sigurður Þrast-
arson kominn með flautuna.
KA liðið var bitlaust í leiknum
með Elfar Árna Aðalsteinsson fjar-
verandi. Skiptingar liðsins breyttu
miku og varamennirnir gerðu gæfu-
muninn hjá KA. Daníel Haf-
steinsson var bestur heimamanna án
þess þó að vera áberandi. Eyjamenn
voru þéttir og hefðu vel getað fengið
eitthvað út úr leiknum. Diogo Co-
elho var þeirra sprækastur og
spyrnur hans sköpuðu helstu hætt-
una upp við mark KA.
Lúnir leggir í Kórnum
Þeir 410 áhorfendur sem borguðu
sig inn á leik HK og Grindavíkur í
Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu
á laugardag urðu ekki vitni að leiftr-
andi sóknarleik. Ljóst var frá fyrstu
mínútu að bæði lið voru sátt með eitt
stig og spilaðist leikurinn eftir því.
Grindvíkingar hafa ekki tapað leik
síðan í fyrstu umferð og HK-ingar
höfðu fram að leiknum á laugardag
fengið öll fjögur stig sín á heima-
velli. Liðin geta því verið sátt að því
leytinu með frammistöðuna á laug-
ardag; Grindavík tapaði ekki og HK
hefur nú náð í fimm stig á heima-
velli.
Varnarmenn beggja liða léku
ágætlega og þá þótti mér Atli Arn-
arson leika mjög vel á miðjunni hjá
HK. Vladan Djogatovic í marki
Grindavíkur greip vel inn í þegar á
þurfti að halda. Sóknarmenn beggja
liða geta gert mun betur og kannski
er hægt að kenna álagi um að ekki
var mikið um tilþrif í Kórnum á
laugardag. Sjö leikir á fjórum vikum
er ef til vill of mikið fyrir áhuga-
menn á Íslandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurmark Andri Rafn
Yeoman, leikmaður
Breiðabliks, nýbúinn að
spyrna boltanum framhjá
Hannesi Þór Halldórssyni
markverði Val.
I Gul spjöldAndri Jónasson, Ásgeir Mar-
teinsson (HK). Gunnar Þorsteinsson
(Grindavík).
I Rauð spjöldEkkert
HK – GRINDAVÍK 0:0
M
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Björn Berg Bryde (HK)
Vladan Djogatovic (Grindavík)
Elias Tamburini (Grindavík)
René Joensen (Grindavík)
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson, 8.
Áhorfendur: 410.
1:0 Einar Logi Einarsson 54.
2:0 Steinar Þorsteinsson 90.
I Gul spjöldTryggvi Hrafn Haraldsson
(ÍA), Baldur Sigurðsson, Jóhann Lax-
dal, Jósef Kristinn Jósefsson
(Stjörnunni).
I Rauð spjöldEkkert.
ÍA – STJARNAN 2:0
M
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Gonzalo Zamorano (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Marcus Johansson (ÍA)
Martin Rauchenberg (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Hilmar Á. Halldórsson (Stjörnunni)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrast-
arson 9.
Áhorfendur: 1.726.