Morgunblaðið - 27.05.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.05.2019, Qupperneq 32
Sími 555 3100 www.donna.is Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Honeywell fyrir heimilið Láttu gusta umþig! Viftur Hitarar Lofthreinsitæki Söngkonurnar Hlín Pétursdóttir Behrens og Magnea Tómasdóttir koma fram í tónleikum í Hann- esarholti annað kvöld, þriðjudag, klukkan 20. Gerrit Schuil verður við slaghörpuna. Munu þau á tónleik- unum leita í þýskar tónbókmenntir og flytja sönglög eftir Johannes Brahms, Ölmu Mahler, Peter Corne- lius og Richard Strauss. Hlín, Magnea og Gerrit í Hannesarholti MÁNUDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Ekkert fær stöðvað Skagamenn um þessar mundir í úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni. Liðið vann Stjörnuna, 2:0, og treysti stöðu sína í efsta sæti deild- arinnar. Raunir Íslandsmeistara Vals halda áfram. Valsmenn eru í þriðja neðsta sæti deildarinnar eft- ir tap, 1:0, á heimavelli fyrir Breiða- bliki. »26 Skagamenn vinna og Valsmenn tapa ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég hlakka til að leika í deild þeirra bestu á næsta vetri. Þar vil ég vera og var ástæðan fyrir því að ég yfirgaf Emsdetten á sínum tíma og samdi við Balingen, það er að leika í efstu deild,“ segir Oddur Gretarsson handknattleiks- maður sem ásamt fé- lögum sínum í Balingen tryggði sér um helgina sæti í þýsku 1. deildinni í handknatt- leik á næstu leiktíð. Oddur hefur leikið vel á keppnistímabilinu og er í hópi markahæstu manna 2. deildar með ríflega 200 mörk. »24 Oddur er á leið þangað sem hann vill vera bótafélag dönsku kaupstaðanna 1874“. Skápurinn er ekki einungis skrif- stofudjásn heldur notaður fyrir mikilvæg gögn og pappíra. Þegar spurnir bárust af því um miðjan nóvember 2008 að Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn, AGS, ætlaði að skerða allar innistæður á bankareikningum niður í tryggingafjárhæð að upp- hæð 20.887 evrur var haft á orði að skápurinn væri orðinn mun örugg- ari geymsla fyrir peninga Faxaflóa- hafna en bankinn. „Hafnasagan er merkileg og samtvinnuð vexti og þróun Reykja- víkurborgar og svo er enn í dag og verður um ókomin ár,“ segir Gísli. „Þó svo að peningaskápurinn geymi nú merka muni úr hafnasögunni í stað peninga þá eru meginverð- mæti Reykjavíkurborgar og sveit- arfélaganna, sem eiga Faxaflóa- hafnir, sem fyrr fólgin í sterkum hafnarsjóði og öflugum fyrirtækjum á hafnarsvæðunum. Það má því segja að arður eigendanna verði til í höfnum Faxaflóahafna og að pen- ingaskápurinn sé hornsteinn þeirra sanninda.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gamall, stór og voldugur pen- ingaskápur vekur athygli í húsa- kynnum Faxaflóahafna við Tryggvagötu í Reykjavík. „Hann á sér enda langa og merkilega sögu,“ segir Gísli Gíslason hafnarstjóri. Hafnarnefnd í Reykjavík kom fyrst saman snemma árs 1856, en erindisbréf hennar var tilbúið 15. maí sama ár. Verkefnin voru að- allega að innheimta hafnargjöld, hafa eftirlit með eigum hafnarinnar, koma með tillögur um úrbætur og annast framkvæmd þeirra, eins og fram kemur í bók Guðjóns Frið- rikssonar, Hér heilsast skipin, fyrra bindi, um sögu Faxaflóahafna. Mörg verkefni Hafnarsjóður gildnaði og í sam- antekt Guðjóns kemur fram að hann hafi í raun „verið peninga- uppspretta flestra framfaramála í Reykjavík fram undir 1910 auk þess sem margir einstaklingar í bænum fengu lán úr sjóðnum til húsbygginga“. Bæjarsjóður var líka drjúgur lántakandi hjá sjóðnum. Verkefni sem sjóðurinn stóð að öllu leyti eða að hluta undir að fjár- magna voru til dæmis slökkvilið, barnaskólabyggingar, leikfimishús, Skólavarðan, fyrsta götulýsingin, lagning nokkurra vega, eins og Skólavörðustígs, Laugavegar og Kaplaskjólsvegar, Sundlaugarnar, fyrsta holræsið og kaup á jörðum. Hornsteinn Ekki leið á löngu þar til ráðlegt þótti að kaupa eldfastan peninga- skáp undir hafnarsjóðinn og var það gert 1872. Fyrir valinu varð skápur frá enska fyrirtækinu Thomas Withers and Sons Ltd. Bæjarsjóður var einnig geymdur í skápnum „og brátt urðu fjármál hafnar og bæjar svo samtvinnuð að sami maður, Óli P. Möller, gegndi stöðu bæjargjaldkera og hafnar- gjaldkera auk þess sem hann var innheimtumaður brunabóta eftir að Reykjavík fékk inngöngu í Bruna- Peningaskápurinn notaður í nær 150 ár  Hafnarsjóður peningauppspretta framfaramála í Reykjavík Forngripur Jón Þorvaldsson aðstoðarhafnarstjóri og Gísli Gíslason hafn- arstjóri við skápinn sem hafnaryfirvöld tóku í gagnið 1872.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.