Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 2

Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 a. 595 1000 Einn eftirsóttasti áfangastaðurinn Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a Króatía 13. júní í 11 nætur Verð frá kr. 129.995 Frá kr. 99.995 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson Gunnlaugur Snær Ólafsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Engir ráðherrar tóku þátt í eldhús- dagsumræðum á Alþingi í gærkvöld. Þar fluttu þingmenn 24 ræður. „Eftir þennan þingvetur er það því nokkuð sérstakt að ekki hafi verið komið til móts við sanngjarnar og eðlilegar kröfur lífeyrisþega um bætta afkomu,“ sagði Anna Kolbrún Árnadóttir, þingflokksformaður Mið- flokksins. Sagði hún það sæta furðu að enn væri verið að skerða krónu á móti krónu þrátt fyrir mikla sam- stöðu í þinginu um afnám skerðing- arinnar. „Vissulega er ekki sjálfgefið að samstarf, líkt og það sem við höfum nú í ríkisstjórn, gangi upp. Sam- starfið hefur gengið vel, jafnvel von- um framar. Þetta nefni ég hér, í því ljósi að þegar horft er yfir þennan sal er ekki hægt að sjá að annað mynst- ur væri mögulegt,“ sagði Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Skaut á forsætisráðherra Oddný G. Harðardóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, skaut fast á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Dró hún í efa heil- indi hennar sem vinstrimanns. Sagði Oddný holan hljóm í mál- flutningi Katrínar um að vinstri- flokkar í Evrópu ættu að sameinast um róttækar lausnir og að marka þyrfti djarfa, framsýna og samein- andi stefnu með áherslu á félagslegt réttlæti, kynjajafnrétti, grænt hag- kerfi og alþjóðlegar kerfisbreytingar. „Þegar þessi ríkisstjórn lagði af stað fyrir rúmu einu og hálfu ári voru óvissuteikn á lofti. Spennan í þjóðar- búskapnum dróst hraðar saman en spár gerðu ráð fyrir, óvissa ríkti á vinnumarkaði og svo raungerðist það sem margir höfðu spáð um langa hríð, að ein stærsta atvinnugreinin okkar, ferðaþjónustan, stendur nú frammi fyrir samdrætti,“ sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing- flokksformaður VG. Hún sagði Ís- land standa vel og enginn þyrfti að óttast að við ráðum ekki við skamm- tímaáföll. „Á undanförnum mánuðum hafa hneyksli og áfellisdómar dunið á Al- þingi hver á eftir öðrum. Aksturs- greiðslumálið, Klaustursmálið, óvið- eigandi hegðun þingmanna og óviðeigandi pólitísk afskipti af siða- reglumálum,“ sagði Halldóra Mogen- sen, varaformaður þingflokks Pírata. Þá ræddi hún sérstaklega traust til lýðræðislegra stofnana sem hefur verið fallandi og að traust á stjórn- málum hefði ekki aukist þrátt fyrir aukið gagnsæi og meira upplýs- ingaflæði. Óverðtryggð lán fyrir alla Willum Þór Þórsson, varafor- maður þingflokks Framsóknar, sagði lausnir á sviði húsnæðismála ofarlega á dagskrá ríkisstjórnarinnar og nefndi þar fyrstu kaup, nýtingu sér- eignarsparnaðar og endurskoðun verðtryggingar. Þá legði Framsókn- arflokkurinn sérstaka áherslu á að óverðtryggð lán yrðu valkostur fyrir alla. „Tilraunin með krónuna er full- reynd,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar. „Við munum aldrei búa íslenskum tækni- og hug- verkafyrirtækjum ásættanlegt rekstrarumhverfi með hana að vopni. Við munum heldur ekki skapa fram- tíðarkynslóðum þessa lands þau tækifæri sem þær eiga skilið, hag- nýtingu góðrar menntunar eða sam- keppnishæf lífskjör með svo kostn- aðarsaman gjaldmiðil.“ „Hvernig væri það nú að útrýma saman þjóðarskömminni fátækt og halda utan um auðlindir okkar,“ spurði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Sagðist hún fullviss um það að ef raunverulegur vilji væri fyrir hendi gætu allir þingflokkar tekið höndum saman og tekið á fá- tækt á Íslandi. Morgunblaðið/Hari Eldhúsdagsumræður Guðmundur Andri Thorsson brýndi menn í loftslagsmálum og sagði þau mikilvæg. Stjórnmálin krufin  Kröfur lífeyrisþega, stjórnarsamstarf og heilindi for- sætisráðherra sem vinstrimanns rædd á Alþingi Guðni Einarsson Freyr Bjarnason Sala á nýjum fólksbílum hefur dreg- ist saman um hátt í 40% frá sama tíma í fyrra, að sögn Jóns Trausta Ólafssonar, formanns Bílgreinasam- bandsins. Fyrirtækin þurfa að bregðast við og í gær sagði t.d. bíla- umboðið Hekla hf. upp tólf starfs- mönnum vegna hagræðingar. Hjá Heklu hf. starfa um 140 manns. Sala notaðra bíla hefur verið góð og svip- uð og hún var á sama tíma í fyrra. Veturinn var þungur „Þetta hefur verið ansi þungur vetur og vor,“ sagði Jón Trausti. Hann sagði að samdráttar í sölu nýrra bíla hefði strax farið að gæta á liðnu hausti þegar verkalýðsforingj- ar gáfu mjög harðar yfirlýsingar um væntanlegar kjaraviðræður. Í kjöl- farið fylgdu vandræði í flugrekstri sem ollu óvissu meðal almennings. Gjaldþrot WOW air vó þungt en einnig erfiðleikar Icelandair vegna Boeing 737 MAX8 flugvélanna sem voru kyrrsettar. Hvort tveggja hafði mikil áhrif á ferðaþjónustuna. Auk þess er krónan heldur veikari nú en á sama tíma í fyrra. „Það eru því samverkandi áhrif margra þátta sem ollu því að bílasala gekk fremur rólega í vetur og fram á vorið,“ sagði Jón Trausti. „Um leið hefur verið töluverð umræða um orkuskipti sem þýðir að fólk er farið að huga að nýjum valkostum. Bíla- umboðin reyna að bregðast við á ábyrgan hátt. Það er leitt ef kemur til uppsagna en það liggur rík skylda á stjórnendum fyrirtækjanna að bregðast við markaðnum og laga sig að aðstæðum. Ég tel að flestir í bíl- greininni horfi til þess að hagræða og stilla sinn rekstur í takt við það sem markaðurinn leyfir.“ Vond ráðstöfun stjórnvalda Jón Trausti segir að samdráttur í flugi og komu ferðamanna hafi áhrif á bílaleigurnar. Bókunarstaða þeirra er almennt nokkuð góð í sumar en verri þegar kemur fram á haustið. „Ofan á allt annað kemur sú vonda ráðstöfun stjórnvalda að hætta með niðurfellingu vörugjalds af bílaleigu- bílum,“ sagði Jón Trausti. „Þetta er mjög slæmt fyrir bílaleigurnar og bílamarkaðinn almennt. Einnig er þetta slæmt fyrir ferðaþjónustuna úti á landi sem nú á undir högg að sækja. Bílaleigubílar eru mikilvæg tæki til að dreifa ferðamönnum um landið.“ Hann sagði að stjórnvöld yrðu að bregðast við þessari nei- kvæðu þróun. „Þau verða að örva endurnýjun á íslenska bílaflotanum sem er orðinn mjög gamall. Það er hagkvæmt að endurnýja gamla bíla, kannski 12-18 ára, með nýrri bílum sem menga minna og eru öruggari. Stjórnvöld geta haft mikil áhrif á þennan mark- að nú. Til lengri tíma tel ég að menn séu almennt ágætlega bjartsýnir en það verður að bregðast við núver- andi aðstæðum.“ Erfiður markaður „Þessi markaður sem við störfum á hefur verið erfiður síðustu mán- uði,“ sagði Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, vegna uppsagnanna. „Því miður eru ekki aðrir kostir í stöðunni þó að það sé erfitt að sjá á eftir góðu starfsfólki, fólki með reynslu og getu til þess að sinna sín- um störfum, en því miður er þetta staðan.“ Þeir sem sagt var upp hafa starfað í ýmsum deildum Heklu hf. Bílasala hefur dregist mikið saman  Hátt í 40% samdráttur í sölu nýrra fólksbíla  Bílaumboðin hagræða  Hekla hf. sagði upp 12 starfs- mönnum í gær  Stjórnvöld verða að bregðast við ástandinu, segir formaður Bílgreinasambandsins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýir bílar Margir samverkandi þættir drógu úr bílasölunni. Ísland ætlar að vera í farabroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og stjórnvöld ætla að beita sér fyrir því að komið verði í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakterí- ur. Ríkisstjórnin boðaði til blaða- mannafundar í gær þar sem aðgerðir til að draga úr útbreiðslunni voru kynntar. Haft var eftir Katrínu Jakobsdótt- ur forsætisráðherra á mbl.is í gær að aðdragandi aðgerðanna væri sú mikla áhersla sem ríkisstjórnin hefði lagt á mótun matvælastefnu. „Við er- um að fá þau tíðindi að þetta sé ein sú stærsta vá sem heimurinn og al- þjóðasamfélagið stendur frammi fyr- ir. Hún snýst auðvitað ekki bara um matvæli. Hún snýst um fleiri þætti, til að mynda aukna ferðaþjónustu og för fólks landa á milli,“ sagði Katrín. Meðal helstu tillagna um aðgerðir sem ríkisstjórnin ætlar að beita sér fyrir er að myndað verði teymi fimm sérfræðinga þvert á stofnanir sem helgi sig vörnum gegn sýklalyfja- ónæmi. Setja á á fót „Sýklalyfja- ónæmissjóð“. Hlutverk hans verði m.a. að greiða fyrir skimun og vökt- un á sýklalyfjaónæmi í dýrum, mat- vælum, umhverfi og fóðri. Þá á að uppfæra gagnagrunninn Heilsu sem heldur utan um skráningar dýra- lækna á notkun sýklalyfja í búfé. Skipaðir verða tveir starfshópar sérfræðinga sem m.a. útbúa við- bragðsáætlanir er fylgja ber þegar sýklalyfjaónæmar bakteríur grein- ast í dýrum, sláturafurðum og mat- vælum og útbúa leiðbeiningar um skynsamlega notkun og val á sýkla- lyfjum fyrir dýr. Verkefni af stað á þessu ári Tryggja á samvinnu ráðuneyta í stefnumótun vegna aðgerða til að minnka áhættu á dreifingu sýkla- lyfjaónæmra baktería með ferða- mönnum. Fram kom í gær að sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra muni verja 45 milljónum kr. til að koma þessum verkefnum af stað strax á þessu ári. Sýklalyfjaváin er ein sú stærsta  Ríkisstjórnin boðar átaksaðgerðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.