Morgunblaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Marta María
mm@mbl.is
„Okkur fannst spennandi að taka
að okkur að stílisera sýningaríbúð-
ina í Lerkidal. Þessi raðhús eru
einstaklega falleg með björtum og
opnum rýmum. Það var okkur
augljóst frá upphafi að húsin eru
afskaplega vönduð, bæði hvað efn-
isval og frágang varðar. Við þurft-
um því að vanda valið á hús-
gögnum og húsmunum með
fjölbreyttan hóp kaupenda í
huga,“ segir hún.
Húsin koma í tveimur stærðum
og eru ýmist þriggja eða fjögurra
herbergja. Minna húsið er á 39,9
milljónir en stærra á 44,9 millj-
ónir.
„Þrátt fyrir að hafa unnið í um
áratug sem arkitektar var þetta
verkefni eitt af þeim fyrstu þar
sem við tókum að okkur að stíl-
isera hús sérstaklega fyrir sölu.
Við sóttumst sérstaklega eftir því
að vinna með verslunum og hönn-
uðum sem eru að okkar mati
framúrskarandi á sínu sviði. Með
því að velja fjölbreyttar vörur
næst yfirbragð sem virkar per-
sónulegt og líflegt. Við áttum
mjög gott samstarf við NORR11
en vöruúrvalið þar rammar vel inn
skandinavískan stíl sem við vorum
að sækjast eftir. Ljósin í stofunni
og borðstofunni eru þaðan, ásamt
sófaborðum, og Mammoth-
hægindastólnum sem er algjört
stofustáss og einstaklega þægileg-
ur,“ segir hún.
Ástríður Birna segir að textíll,
flauelspúðar og vönduð gólfteppi
skapi hlýleika í rýminu.
„Við völdum gólfteppin frá Kara
Rugs, púða og teppi frá Ihanna
home og flauelspúða frá DIMM-
verslun. Rúmteppið og púðar í
svefnherberginu auk ýmissa
skrautmuna eru frá Lífi og list
þar sem er endalaust úrval af fal-
legum vörum. MUN stúdíó í
Reykjavík er ein af uppáhalds-
búðunum okkar en sú búð er rekin
af sjálfum hönnuðunum. Það var
frábært að vinna með þeim þar
sem þær eru með svo skemmtilegt
úrval af vandaðri íslenskri hönn-
un, bæði húsgögn, muni og textíl.
Til þess að ná fram upplifun í
sýningaríbúð sem höfðar til sem
flestra er mikilvægt að blanda
saman vandaðri hönnun og hag-
stæðum en smekklegum lausnum.
Það er því gott að geta leitað í
IKEA sem er nánast endalaus
uppspretta. Borðstofuborðið og
sófarnir eru úr Habitat / Tekk en
þar er gott úrval af fallegum hús-
gögnum sem eru bæði smekkleg
og vönduð. Borðstofustólar og hill-
urnar í barnaherberginu eru frá
Ilva.“
Ástríður Birna segir að til að
toppa rýmið hafi plöntum og
myndlist verið komið fyrir í rað-
húsinu.
„Við fengum góða ráðgjöf um
plöntur frá 4árstíðum og völdum
nokkrar fallegar plöntur fyrir
plöntustandana frá Stúdíó A
Reykjavík. Steypta klukkan er úr
smiðju Hildiberg sem er arkitekt
frá Reykjanesbæ. Einnig áttum
við fallegar myndir frá Reginu
Rourke og Korkimon sem setja
punktinn yfir i-ð.“
Draumahús fyrir litla peninga
Dreymir þig um að eignast sérbýli með fallegum garði þar sem þú gætir vaknað við fuglasöng á morgnana? Ef svo er þá voru að
koma í sölu splunkuný raðhús sem var verið að byggja. Þau eru í Lerkidal og eru ákaflega falleg. Ástríður Birna Árnadóttir sá um stíl-
iseringu og innanhússráðgjöf en hún starfar hjá KOT og ÓRAR arkitektúr.
Huggulegt Fallegar innrétt-
ingar prýða húsið en hér sést
hvernig viður og sprautulakk-
aðar innréttingar mætast.