Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 13

Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 13
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:00 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 11:00-18:00 Bónus Smáratorgi og Skeifunni: Mánudaga-Laugardaga; 10:00-19:00 • Sunnudaga; 11:00-18:00 kolefnisjafnar 2018 Það er okkar sönn ánægja að tilkynna að Bónus hefur nú kolefnisjafnað rekstur verslana sinna fyrir 2018. Bónus og Kolviður undirrituðu samning þess efnis þann 21. maí 2019. Í upphafi árs (2019) hófst mikil vinna við að safna saman gögnum hvert kolefnisspor verslana Bónus er um land allt, árið 2018. Þessari reiknisvinnu er nú lokið með hjálp hugbúnaðarfyrirtækisins Klappir Grænar Lausnir hf. Umhverfisstjórnunarhugbúnaður þeirra hefur nú verið innleiddur inn í verklag Bónus sem mun vafalaust hjálpa fyrirtækinu að ná enn betri árangri í umhverfismálum. Bónus hefur því fjárfest í kolefnisbindingu hjá Kolviði til að jafna út áhrif rekstursins á umhverfið. Kolefnisfótspor Bó- nus 2018 var 667 CO2 tonn. Kolviður mun því planta 6.670 trjám á u.þ.b. tveggja hektara landsvæði til að jafna út kolefnisfótsporið. Umhverfisvernd er eitt af stærstu verkefnum samtímans og með þessu vill Bónus leggja sitt af mörkum og sýna um leið samfélagslega ábyrgð í verki. Bónus er fyrsta matvöruverslun á Íslandi til að kolefnisjafna sinn rekstur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.