Morgunblaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 20
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
Ársalir
fasteignamiðlun
533 4200
159.000.000 kr. - 725,2 m²
Vandað og gott atvinnuhúsnæði sem
skiptist í 515 m² á jarðhæð með tvennum
innkeyrsluhurðum og hárri lofthæð, og
210 m² á efri hæð, sem henta vel fyrir
skrifstofur og þh. Góð aðkoma og bílastæði
á lóð.
99.500.000 kr. - 374,9 m²
Gott 375 m² atvinnuhúsnæði við Skútuvog
í Reykjavík. Húsnæðið á jarðhæð sem er
256 m² með hárri og góðri innkeyrsluhurð,
lofthæð ca. 4,3m Skrifstofur, kaffistofa og
snyrting á efri hæð, eru 119 m² allt í mjög
góðu ástandi.
59.000.000 kr. - 148,3 m²
Falleg og mikið endurnýjuð efri sérhæð
í tvíbýlishúsi, með bílskúr. Nánari lýsing:
Eldhús með vandaðri sérsmíðaðri innrét-
tingu og góðum tækjum. Uppþvottavél í
innréttingu fylgir. Tvö bílastæði fylgja eign-
inni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð
síðustu ár. Ný gólfefni og loftaklæðning í
allri íbúðinni.
74.000.000 kr. - 154,2 m²
Til sölu einstaklega vandað sumarhús
neðan við 11. brautina á einum fallegasta
golfvelli landsins, Kiðjabergi. Húsið er á
skjólsælum og fallegum útsýnisstað. Fjögur
rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi
með sturtu. Sér geymsla. Hiti er í öllum
gólfum. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar
og vandaðar. Lóðin er 11.000. m² eignarlóð.
Björgvin
Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Dragháls 10, 110 Reykjavík Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík Þinghólsbraut 28, 200 Kóp. Kiðjaberg lóð 9, 801 Selfoss
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
prófuðu Vaðlaheiðargöng, eða
„gatið“ eins og þeir kalla það,
síðastliðinn mánudag og voru
þeir hæstánægðir með göngin.
„Við vorum nokkuð sammála
um að okkur leist ljómandi vel á
gatið en okkur fannst það að
vísu svolítið langt,“ segir Hurða-
skellir.
Í mynd og á myndbandi sem
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
birtu á fésbókarsíðu sinni virtust
þeir hafa ætlað sér að ganga í
gegnum göngin en sú varð að
vísu ekki raunin.
„Við fáum stundum far með
bílum. Við erum ekki þjófóttir en
fáum stundum lánað svo við
fengum lánaðan bíl í þetta ferða-
lag á flugvöllinn á Akureyri.“
Jólasveinarnir voru á leið-
inni til Reykjavíkur.
„Það var ferðalag á okkur,
við fengum far með flugvél til
Reykjavíkur,“ segir Hurðaskellir.
Undarlegt verður að teljast
að jólasveinar séu á faraldsfæti
svo snemma árs en tilefnið var
alveg sérstakt.
„Við vorum að hitta hóp af
börnum. Það var starfsmanna-
ferð hjá stóru fyrirtæki frá
Bandaríkjunum til Íslands og
starfsmennirnir tóku fjölskyld-
una sína með.
Við vorum reyndar ekki
nema fjórir saman á ferð í göng-
unum en það voru allir þrettán
bræðurnir sem hittu krakkana
þarna á mánudagskvöld á Grand
Hotel,“ segir Hurðaskellir sem
bætir því við að jólaþema hafi
verið á þessu fjölskyldukvöldi.
„Ég veit ekki hvernig það
kom til svona í sumarbyrjun en
við sögðum svona af sjálfum okk-
ur og svo sungum við svolítið
fyrir þau og enduðum á því að
dansa í kringum jólatré.“
Aðspurður segir Hurðaskell-
ir að bræðurnir þrettán séu ekki
allir sammála um uppátæki sem
þessi.
„Sumir eru alltaf til í allt og
það örlar á dálítilli athyglissýki
hjá þeim. Aðrir eru feimnir en
láta glepjast að fylgja með í ým-
islegt.“
Jólasveinarnir í Dimmuborgum fóru í smáferðalag og eru ljómandi glaðir með „gatið“
Sveinar könnuðu
Vaðlaheiðargöng
Ljósmynd/Hurðaskellir
Ferðalag Jólasveinarnir í Dimmuborgum brugðu sér af bæ og eru hér komnir í Vaðlaheiðargöng.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Fimmaurabrandarafjelagið, 20.000
manna hópur á Facebook, sendi ný-
verið frá sér bók sem inniheldur
vandlega valda fimmaurabrandara
sem birtir hafa verið í hópnum.
„Þetta er fyrst og fremst til gam-
ans gert, til að hlæja að einhverju
sem er ekkert fyndið,“ segir Krist-
ján B. Heiðarsson, forseti félagsins.
Hann hefur sagt fimmaurabrand-
ara alla tíð. „Það hefur stundum ver-
ið þannig með mig að ég hef lagt mig
fram við að segja svo slæma brand-
ara að ég gæti frekar hlegið að við-
brögðum þeirra sem heyra þá en
bröndurunum sjálfum,“ segir Krist-
ján sem er þungarokkari með meiru
og vill meina að fimmaurabrandarar
séu jafnvel fyrir hörðustu rokkara.
„Þetta passar dásamlega saman.
Þungarokkarar eru engin skrímsli
eins og stereótýpan var oft, þetta
eru allt saman brandarakarlar.“
Spurður um skilgreiningu á fimm-
aurabrandara segir Kristján: „Þeg-
ar stórt er smurt verður …“ og
blaðamaður botnar: „fátt um smjör.“
Fimmaurabrandarafjelagið mun
styrkja Krabbameinsfélagið um
tvær milljónir vegna útgáfunnar.
„Maður veit aldrei hvar fimm-
aurabrandari byrjar svo það er í
raun enginn einn höfundur.“
Af þeim sökum rennur ágóðinn til
Krabbameinsfélagsins í stað eigin-
legs höfundar.
Morgunblaðið/Hari
Styrkur Gunnar Kr. Sigurjónsson og Kristján B. Heiðarsson frá Fimmaura-
brandarafjelaginu afhentu Kolbrúnu Silju Ásgeirsdóttur styrkinn góða.
Gefa út úrval brandara úr Fimmaurabrandarafjelaginu Styrkja Krabbameinsfélagið um tvær
milljónir vegna útgáfunnar Forseti félagsins er þungarokkari sem segir rokkara brandarakarla
Að hlæja að því sem er ekkert fyndið
Fólk með bótox segir varir sín-
ar ekki sléttar.
Hver í ósköpunum er þessi
Anna Eftirspurn sem alltaf er
verið að tala um í útvarpinu?
Ef þú límir dauða vespu í lóf-
ann á þér, þá geturðu slegið yf-
irmann þinn eins fast í hnakk-
ann og þú vilt … og þóst hafa
bjargað honum.
Á bráðavaktinni:
„Hvar er þessi sem þarf að
sauma saman?“
„Hann fór heim. Sárið var gró-
ið.“
Hvað heitir litla borgin við
hliðina á Varsjá? Smásjá.
Eru streptókokkar ekki bestir í
að búa til spítalamat?
Ég bý nærri kirkjugarði. Það er
rólegt nábýli.
Ég er með ellefu konur sem
heita Anna í vinahópnum mínum
á Facebook Það lítur út fyrir að
ég sé frekar Önnum kafin.
Hvernig er það með sjósunds-
fólkið? Fær það ekki sæstrengi?
Hafiði heyrt um verðtryggðu
lánin? Þau eru alveg óborganleg.
Ég fór í mjög skemmtilega
ferð til Gdansk í fyrra. Nú er ég
að velta fyrir mér hvort það
gæti ekki verið gaman að
skreppa til Gnorsk eða Gsvensk
í ár.
Menn sem ganga mikið á
staðnum geta orðið stað-
göngumóðir.
Frumlegir fimmaurar
NOKKUR SÝNISHORN ÚR BÓKINNI