Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 24
Almar segir að markmið nýju sam-
takanna (INLUS) sé að reyna að
laða að fleiri Íslendingafélög í
Bandaríkjunum. Flest þeirra séu
byggð á aðild seinni tíma innflytj-
enda, sem ef til vill telja sig ekki
endilega eiga samleið með félags-
skap sem byggist á tengslum við
gamla tímann. „Þetta þýðir ekki að
INL liðist í sundur,“ segir Almar.
„Áfram verða sterk samtök í Kanada
og síðast en ekki síst er starf Þjóð-
ræknisfélagsins á Íslandi að eflast
mjög og á sinn hátt ætti félagið okk-
ar hér heima að vera límið í þríhliða
nánu samstarfi þjóðræknisfélaganna
þriggja. Þannig sé ég ný tækifæri en
ekki ógnanir í breyttu skipulagi.“
Fremsta verkefni samtakanna er,
að mati Almars, endurnýjun og að-
lögun að nýjum tímum. Þau eigi sína
merku 100 ára sögu sem byggð er á
áhuga fyrstu og annarrar kynslóðar
vesturfara að fylkja liði og efla
tengslin við Ísland. Afkomendurnir
hafi fylgt eftir á sömu braut, en fyrir
25 árum hafi staðan verið sú að lítil
nýliðun hafi verið í þjóðræknisdeild-
unum og meðalaldur félagsmanna
farið ört hækkandi. Unga fólkið hafi
ekki laðast að félögunum.
Bylting með Snorraverkefninu
„Þannig var staðan fyrir 21 ári
þegar ég kom fyrst á samkomur
vestra,“ rifjar Almar upp. „Þá var
kynnt ný hugmynd sem leiddi til
stofnunar Snorraverkefnisins, sem
enn er í blóma 20 árum síðar, og
fljótt urðu breytingar. Unga fólkið
sem tók þátt í því var upp til hópa
mjög snortið eftir sex vikna dvöl á Ís-
landi og fór að setja mark sitt á starf
félaganna og heildarsamtakanna
INL.“
Snorraverkefnin hafa notið vin-
sælda og segir Almar að þau nái mun
betur til fjöldans en þjóðræknisdeild-
irnar. „Við sem ýttum þeim úr vör
höfðum á fyrstu stigum samband við
sendiráð og kjörræðismenn og báð-
um um liðsinni við að kynna þetta til-
boð. Einnig voru heimsótttar af-
skekktari og fámennari byggðir til að
kynna starfið. Það skilaði árangri og
Ísland límið í þríhliða samstarfi
Ályktun um stofnun þjóðræknisfélags í Bandaríkjunum samþykkt Almar Grímsson fékk við-
urkenningu á hátíðarfundinum fyrir að styrkja tengsl Íslands við afkomendur Íslendinga vestra
INL 100 ára Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson voru heiðursgestir á afmælisfundinum í Winnipeg.
Með þeim á myndinni eru Mallory Swanson frá Minnesota, Brad Hirst frá Selkirk og Almar Grímsson til hægri.
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Á aðalfundi Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga í Vesturheimi (INLofNA) í
Winnipeg í Kanada á dögunum var
ályktun um stofnun INL í Banda-
ríkjunum (INLUS) samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta. Breytinga
er því að vænta á skipulagi samtak-
anna og segir Almar Grímsson, fyrr-
verandi formaður Þjóðræknisfélags
Íslendinga (ÞFÍ), að tímabært hafi
verið að endurskoða uppbyggingu
INL. „„Að öllu samanlögðu er það
Ísland sem sameinar okkur og er
grunnurinn að okkar starfi,“ sagði
glöggur maður vestra og ég tek und-
ir hans orð,“ segir Almar.
INL var stofnað í Kanada fyrir
rúmri öld og fór fyrsta ársþingið
fram í Winnipeg 1919. Almar leggur
áherslu á að samtökin hafi verið
kanadísk fyrstu árin en eftir að þjóð-
ræknisdeildir nyrst í Bandaríkjunum
og næst landamærum Kanada hafi
gengið til liðs við þau hafi INL Norð-
ur-Ameríku orðið til. „Ákveðin
tregða hefur verið til breytinga, en
ýmsar aðstæður, þar á meðal forms-
atriði í samskiptum Bandaríkjanna
og Kanada, krefjast þess að breyta
þarf uppbyggingunni,“ segir hann. Í
þessu sambandi bendir hann á að allt
fram til 2001 hafi verið auðveldara
fyrir Kanada- og Bandaríkjamenn að
fara milli landanna og lengi nægt að
sýna nafnskírteini eða ökuskírteini.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Uppblásin fortjöld og hjólhýsahreyfar (mover)
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449 og 778 2294, hjolhysi.com og á netfangið kriben@simnet.is
hjolhysi.com • Bæjarhraun 24, Hafnarfirði • Opið mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16
Við aðstoðum þig
við að flytja inn Hobby hjólhýsi
beint frá Þýskalandi
TRIGANO
Lima 410
Eftirfarandi aukahlutir fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
TRIGANO
Lima 300
Eftirfarandi aukahlutir fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
Hjólhýsa mover
- 3 stærðir
18501 Semi Aut Mover 2WD
TRIGANO
Bali XL
Getur staðið eitt og sér.
L 300 • d 310 • h 250-280
159.000
129.000
110.000
Frábært
verð
TILBOÐSVERÐ
frá 169.000