Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hvort sem litið er til íbúaþróunar
eða viðgangs atvinnulífsins er stíg-
andin á Akureyri hæg en jöfn. Á
fyrstu þremur
mánuðum líðandi
árs fjölgaði lands-
mönnum um 0,7%
en á Akureyri um
0,2%; 30 manns,
og eru íbúar
sveitarfélagsins
nú 18.950. Í at-
vinnulífinu er
sömuleiðis ágæt-
ur gangur; næg
vinna hjá fyrir-
tækjum og verkefnastaðan fram
undan ágæt. Raunar er áberandi á
Akureyri að þar eru tiltölulega fá
stórfyrirtæki en mörg minni með
kannski 10-30 starfsmenn. Hvert
fyrirtæki nýtur í raun annars svo úr
verður samfélag sem Ásthildur
Sturludóttir bæjarstjóri segir
standa vel.
Tvöföld búseta algeng
„Á Akureyri er stöðugur vöxtur;
hægur en öruggur, sem er mjög
ákjósanlegt. Hér er mikið byggt, svo
sem í Hagahverfi, sem er syðst á
Brekkunni. Þar er verið að reisa ein-
býlishús, fjölbýli og fleira og áður en
langt um líður þarf undirbúningur
uppbyggingar í Holtahverfi að hefj-
ast,“ segir Ásthildur. „Hvað viðvíkur
húsnæðismálum á Akureyri þá segir
íbúatalan ekki allt. Hér er tvöföld
búseta mjög algeng; það er að fólk
með lögheimili á Reykjavíkursvæð-
inu eigi hér íbúðir og dvelji hér í frí-
tímanum. Orlofsíbúðir í eigu fyrir-
tækja og félagasamtaka eru
sömuleiðis margar. Í flestu tilliti er
þetta ágætt. Í þessum íbúðum dvelst
fólk sem nýtir sér þjónustu sem skil-
ar peningum inn í bæjarfélagið, þótt
útsvarsféð renni annað en til Akur-
eyrarbæjar. Þá er hér í bænum yfir
vetrartímann mikill fjöldi nema í
framhaldssskólum og háskólanum
sem leigja hér húsnæði og eru virkir
þátttakendur í samfélaginu. Þetta
hefur allt sitt að segja.“
Þjónustustigið hátt
Um þessar mundir er á vegum Ak-
ureyrarstofu verið að hleypa af
stokkunum átaki sem miðar að því að
styrkja stöðu og ímynd bæjarins í
vitund fólks með tilliti til búsetuvals.
Sama verkefni á einnig að gera Ak-
ureyri að ákjósanlegum kosti þegar
velja á nýrri atvinnustarfsemi stað.
„Já, við viljum laða fólk til búsetu
hér en einnig kynna gæði bæjarins
fyrir íbúunum sjálfum. Sjálf hef ég
búið hér í níu mánuði og skil ekkert í
því hvers vegna íbúarnir eru ekki
orðnir 50 þúsund. Veðráttan hér er
einstök og þjónustustigið hátt svo
við í raun mætum flestu því sem fólk
í nútímasamfélgi gerir kröfur um.
Hér eru góðir skólar, fín íþrótta-
aðstaða og öflugt menningarlíf.
Vissulega skiptir máli að hafa góða
og trygga atvinnu en í dag gerir fólk
bara kröfu um svo margt annað sem
ekki var fyrir kannski 20 árum.
Þarna get ég nefnt góðar verslanir,
kaffihús, menningarlíf, íþrótta-
aðstöðu og fleira. Auðvitað er þetta
ekki allt á hendi sveitarfélagsins þótt
þess sé að skapa skilyrði.“
Erfið samskipi við ríkið
Ásthildur Sturludóttir var ráðin
bæjarstjóri á Akureyri síðasta sum-
ar af meirihluta Framsóknarflokks,
Samfylkingar og L-ista. Hún var áð-
ur um sjö ára skeið bæjarstjóri í
Vesturbyggð. Hún segir viðfangs-
efnin í bæjarstjórastarfinu lík, sama
hver staðurinn sé; það að tryggja að
kerfið virki og fólkið fái þjónustuna
sem vænst er. Verkefnin séu því fjöl-
breytt og áskoranirnar margar. Sér
líki vel á Akureyri, en þangað hafði
hún ekki komið nema sem ferðamað-
ur áður en hún tók við bæjarstjóra-
starfinu.
„Að frátöldum starfsmannamálum
eru samskiptin við ríkið það erfið-
asta í starfi bæjarstjóra. Að koma
erindum í gegnum opinbera kerfið
tekur oft ótrúlega langan tíma og
sum mál ná aldrei í gegn. Því miður,
hvað sem veldur,“ segir Ásthildur,
sem byrjar vinnudaginn jafnan
klukkan átta á morgnana. Stundar-
fjórðungi síðar hefjast fundir dags-
Hægur vöxtur er ákjósanlegur
Akureyringar eru orðnir 18.950 Fjölgunin er undir landsmeðaltali Mætum kröfum íbúa í
nútímasamfélagi Landsbyggðarhagkerfið snýst hægt Samskipti við ríkið erfið, segir bæjarstjórinn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Syðst á Brekkunni á Akureyri er svonefnt Hagahverfi nú í uppbyggingu, en þar eru göturnar nefndar eftir
rithöfundum og góðskáldum Íslendinga sem hafa tengingar við Akureyri eða Norðurland. Þarna er fjölbreytnin
ráðandi, það er blokkir, raðhús og einbýli og mannlífið mun blómstra þarna, eins og annars staðar í bænum.
Ásthildur
Sturludóttir
Gagnlegar upplýsingar:
Lyngonia fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir og ætlað konum eldri en 18 ára. Notkun er 2 töflur
2-4 sinnum á dag og ekki skal nota lyfið lengur en í eina viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal
hafa samband við lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef truflun er á nýrnastarfsemi. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil
fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is og á www.florealis.is/lyngonia
Einstök lausn án sýklalyfja
Florealis býður upp á jurtalyfið Lyngonia sem er eina viðurkennda meðferðin við
endurteknum vægum þvagfærasýkingum hjá konum sem ekki er hefðbundið
sýklalyf. „Sýklalyfjaónæmi hefur aukist gífurlega á undanförnum árum og er orðin
ein stærsta ógnin við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Núna
í maí hafa komið upp allavega þrjú tilfelli á Íslandi um smit af völdum ónæmra
baktería,” segir Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, doktor í líf- og læknavísindum og
vörustjóri Florealis. „Það er nauðsynlegt að draga úr notkun sýklalyfja eins og
hægt er til að stemma stigu við fjölgun ónæmra stofna baktería. Best er að reyna
að fyrirbyggja sýkingar eða nota aðrar leiðir til að meðhöndla vægar sýkingar
áður en þær komast á það stig að sýklalyfja gerist þörf,” segir Sandra.
Jurtalyf eru mikilvægur valkostur. Þau innihalda blöndu virkra efnasambanda
sem eru unnin beint úr jurtum, og gera bakteríum erfitt fyrir að mynda ónæmi.
„Okkur er mjög umhugað um þetta málefni en til að geta dregið úr notkun
sýklalyfja þurfa aðrir öruggir valmöguleikar að vera í boði.”
Lyngonia er ætlað konum sem fá endurteknar þvagfærasýkingar þegar læknir er búinn að útiloka önnur alvarleg veikindi.
Lyfið vinnur gegn einkennum þvagfærasýkinga svo sem brunatilfinningu og auknum þvaglátum. Lyfið fæst án lyfseðils í
öllum apótekum og best er að byrja að taka það um leið og einkenna verður vart. Það á ekki að nota Lyngonia sem
fyrirbyggjandi meðferð. „Þetta er frábær valkostur fyrir þær konur sem eru endurtekið með slíkar sýkingar og geta þá
jafnvel komist hjá notkun sýklalyfja,“ segir Sandra að lokum.
Lyngonia
Lyngonia™ (sortulyngslaufsútdráttur) er valkostur
án sýklalyfja fyrir konur með væga þvagfærasýkingu.
www.florealis.is/lyngonia