Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Aldrei kom til greina að ákæra Do-
nald Trump Bandaríkjaforseta fyrir
að hafa staðið í vegi réttvísinnar þar
sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna telur að það stríði gegn stjórn-
arskrá Bandaríkjanna að ákæra sitj-
andi forseta. Þetta kom fram í máli
Roberts Muellers, sérstaks saksókn-
ara, en hann las upp yfirlýsingu um
skýrslu sína í gær þar sem kannaðar
voru ásakanir um að framboð
Trumps hefði átt í ólöglegu samsæri
við rússnesk stjórnvöld til þess að
hafa áhrif á kosningarnar 2016.
Mueller benti á dómsmálaráðu-
neytið hefði lengi verið þeirrar skoð-
unar að stjórnarskráin kæmi í veg
fyrir ákærur á hendur sitjandi for-
seta. Því hefði hann og rannsóknar-
teymi hans ekki einu sinni velt þeim
möguleika fyrir sér. Tók Mueller þó
fram að stjórnarskráin kvæði á um
aðrar leiðir til þess að bera fram
ásakanir á hendur sitjandi forseta en
þar er þinginu falið eftirlit með fram-
kvæmdavaldinu.
Sagði Mueller jafnframt að hann
óskaði ekki eftir því að bera vitni fyr-
ir dómsmálanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings en demókratar
hafa krafist þess að Mueller verði
kallaður fyrir nefndina ásamt fleiri.
Sagði Mueller að hann myndi ekki
segja meira við slíka vitnaleiðslu en
það sem þegar kæmi fram í skýrsl-
unni.
Mueller ítrekaði að niðurstaða
skýrslu sinnar hreinsaði forsetann
ekki af þeim ásökunum að hann hefði
reynt að hafa áhrif á framgang rétt-
vísinnar, né heldur væri hann sak-
aður um þann glæp. Þá sagði Muell-
er að skýrsla sín hefði leitt í ljós að
margar kerfisbundnar tilraunir
hefðu verið gerðar til þess að hafa
áhrif á kosningarnar og að það krefð-
ist nánari skoðunar.
Hóta frekari aðgerðum
Yfirlýsing Muellers vakti mikla at-
hygli í Washington og vildu háttsett-
ir demókratar að Trump yrði ákærð-
ur til embættismissis. Jerry Nadler,
formaður dómsmálanefndar fulltrúa-
deildarinnar, lýsti því yfir á sam-
félagsmiðlum að Bandaríkjaþing
yrði að svara kallinu fyrst dómsmála-
ráðuneytið hefði ekki viljað ákæra
Trump. Hét Nadler því að þingið
myndi halda áfram að rannsaka
ávirðingarnar á hendur forsetanum.
Trump sagði hins vegar að ekkert
nýtt hefði verið að finna í yfirlýsingu
Muellers og að málinu væri lokið.
Sagði Trump að ónægar sannanir
væru fyrir þeim ásökunum sem sett-
ar hefðu verið fram og benti á að í
bandarísku réttarkerfi væru menn
saklausir uns sekt sannaðist.
Ákæra kom aldrei til greina
Mueller tjáir sig um skýrslu sína í fyrsta sinn Demókratar hóta áframhald-
andi aðgerðum gegn forsetanum Trump segir málinu vera endanlega lokið
AFP
Rannsókn Yfirlýsingu Muellers var sjónvarpað í beinni útsendingu.
Þessi hlaupagarpur er einn af 224 sem þreyttu í gær
maraþon-hlaup við rætur Everest-fjalls. Var tilgangur
maraþonsins, sem titlað var „hæsta maraþonhlaup
heimsins“, sá að minnast þess að 66 ár voru liðin frá því
að Tenzing Norgay og Edmund Hillary klifu fyrstir
upp á topp Everest-fjalls, sem sagt er hæsti fjallstindur
heims. Komu keppendur í maraþoninu frá þrjátíu mis-
munandi löndum en ekki fór sögum af úrslitum.
AFP
Afreksins minnst með maraþonhlaupi
Hlaupið í hlíðum Himalajafjalla
Breski þingmað-
urinn Boris
Johnson mun
þurfa að mæta til
skýrslutöku fyrir
rétti vegna ásak-
ana um að hann
hafi vísvitandi
logið til um út-
gjöld breska rík-
isins til Evrópu-
sambandsins í
aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar 2016. Segja kærendur að
með því hafi Johnson gerst sekur
um misferli í opinberu embætti.
Úrskurðaði dómarinn í málinu að
næg gögn væru fyrir hendi til að
rétt væri að halda áfram með for-
flutning þess og kanna hvort
ástæða væri til að fara með málið
alla leið í réttarhöld.
Lögfræðingur Johnsons mót-
mælti ásökununum og velti því fyr-
ir sér hvort málið hefði verið kært
eingöngu til þess að koma pólitísku
höggi á hann, og um leið reyna að
draga úr líkunum á að Bretar
gangi úr Evrópusambandinu. John-
son nýtur nú mests fylgis þeirra,
sem boðið hafa sig fram til að taka
við leiðtogaembætti Íhaldsflokks-
ins eftir að Theresa May sagði af
sér.
Boris Johnson gert
að gefa skýrslu
Boris
Johnson
BRETLAND
Evrópusam-
bandið sendi í
gær viðvörun til
ríkisstjórnar
Ítalíu um að
skuldastaða rík-
isins bryti í bága
við fjárlaga-
reglur sam-
bandsins. Krafð-
ist fram-
kvæmdastjórn
sambandsins nánari skýringa frá
Ítölum innan tveggja daga. Opin-
berar skuldir Ítalíu nema um 132%
af þjóðarframleiðslu, en viðmið
Evrópusambandsins segja að þær
megi ekki vera hærri en 60%.
Matteo Salvini, aðstoðarforsæt-
isráðherra Ítalíu, lýsti því yfir á
þriðjudaginn að hann byggist við
því að Evrópusambandið myndi
leggja sekt á Ítalíu vegna skulda-
stöðu ríkisins sem næmi um þremur
milljörðum evra. Gaf Salvini jafn-
framt til kynna að hann teldi fjár-
lög ríkisstjórnar sinnar nauðsynleg
til þess að koma hagvexti aftur af
stað. Salvini hét því að hann myndi
berjast fyrir því að breyta reglum
sambandsins en flokkur hans,
Bandalagið, vann stórsigur í Evr-
ópuþingskosningunum um liðna
helgi.
Fá skammir fyrir
skuldir frá ESB
Matteo
Salvini
ÍTALÍA
Ríkisfjölmiðlar í Kína hótuðu í gær
að stjórnvöld þar myndu setja út-
flutningsbann á sjaldgæfa jarð-
málma til Bandaríkjanna, en þeir
eru meðal annars nýttir við fram-
leiðslu snjallsíma. Bentu fjölmiðlarn-
ir meðal annars á að Xi Jinping, for-
seti Kína, hefði fyrr í vikunni
heimsótt verksmiðju þar sem unnið
var með sjaldgæfa jarðmálma, en
Kínverjar sjá um meira en 95% af
framleiðslu þeirra á heimsvísu.
Yfirlýsingar ríkisfjölmiðlanna
komu í kjölfar þess að kínverski
tæknirisinn Huawei lagði fram kröfu
í Bandaríkjunum um að löggjöf sem
meinar bandarískum alríkisstofnun-
um að nota tæki frá Huawei yrði
felld úr gildi.
Mike Pompeo, utanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði um hót-
anirnar að Bandaríkjamenn hefðu
þegar beðið skaða af núverandi tolla-
reglum sem giltu um viðskipti milli
Kínverja og Bandaríkjamanna, og
sagði að markmið Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta væri að leiðrétta
þann halla sem þar hefði orðið á.
Þá varði Pompeo löggjöfina gegn
Huawei og sagði að mikil og djúp
tengsl væru á milli fyrirtækisins og
kínverskra stjórnvalda. „Ef raunin
væri sú að kínverski kommúnista-
flokkurinn vildi fá upplýsingar sem
kæmu frá tækni sem Huawei ætti,
væri nánast öruggt að Huawei
myndi veita þær,“ sagði Pompeo.
Fulltrúar Huawei segja löggjöfina
hins vegar ekki réttlætanlega, og að
Bandaríkjastjórn hafi ekki lagt fram
nein sönnunargögn um að Huawei
stofni öryggi landsins í hættu.
sgs@mbl.is
Útflutningsbanni hótað
Viðskiptaerjur Bandaríkjanna og Kína færast í aukana
Gæti komið niður á framleiðslu bandarískra hátæknivara
AFP
Verksmiðja Kína framleiðir 95% af
sjaldgæfum jarðmálmum heimsins.
Óháð nefnd sérfræðinga á vegum
mannréttindaráðs Sameinuðu þjóð-
anna kallaði eftir því í gær að þrem-
ur aðskilnaðarsinnum frá Katalóníu-
héraði yrði sleppt þegar í stað úr
haldi spænskra stjórnvalda. Komst
nefndin að þeirri niðurstöðu í
skýrslu sinni að fangelsun mann-
anna þriggja, Jordi Cuixart, Jordi
Sanchez og Oriol Junqueras, væri
byggð á geðþótta frekar en lögum.
Þá bryti fangavist mannanna gegn
mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna.
Mennirnir voru handteknir í októ-
ber og nóvember 2017 eftir að leið-
togar héraðsins gerðu tilraun til
þess að lýsa yfir sjálfstæði þess og
hafa þeir verið í haldi spænskra
stjórnvalda síðan þá. Sex aðrir leið-
togar katalónskra aðskilnaðarsinna
eru einnig í haldi en nefndin skoðaði
ekki mál þeirra. Réttarhöld eru haf-
in í málum aðskilnaðarsinnanna og
er gert ráð fyrir að dómur falli 11.
júní næstkomandi.
Vilja að
Katalónum
verði sleppt
Segja fangelsunina
byggða á geðþótta