Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 44

Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 ✝ Hallbjörn Eð-varð Þórsson fæddist í Reykja- vík 15. júní 1970. Hann lést 15. maí 2019 á Heilbrigð- isstofnun Norður- lands á Húsavík. Foreldrar hans eru Helga Hall- björnsdóttir, f. 20. febrúar 1951, gift Eyjólfi Magnússyni Scheving, f. 1. mars 1942, og Þór Ottesen Pétursson, f. 26. júlí 1950. Albróðir Hallbjörns er Ágúst Þór, f. 9. desember 1972, d. 1. október 2000. Systkini hans samfeðra eru: Anna Lovísa, f. 28. október mæðra er Fjóla Helgadóttir, f. 22. apríl 1983, maki Kristinn Viðar Jónasson, f. 15. ágúst 1984, börn þeirra eru Kristín Helga, f. 29. janúar 2010, og Karen Heiða, f. 5. október 2013. Hallbjörn var í sambúð með Önnu Maríu Magnúsdóttur, f. 29. júní 1976, og eignuðust þau tvær dætur, Eydísi Öglu, f. 28. mars 2002, d. 12. janúar 2015, og Heru Karín, f. 3. október 2003. Þau slitu sam- vistum. Eiginkona Hallbjörns er Helena Eydís Ingólfsdóttir, f. 15. júlí 1976. Dóttir þeirra er Arna Júlía, f. 10. apríl 2013. Hallbjörn ólst upp í Reykja- vík og bjó bæði þar og í Fær- eyjum en fluttist til Húsavíkur árið 2012 og bjó þar síðustu æviár sín. Hallbjörn verður jarðsung- inn frá Húsavíkurkirkju í dag, 30. maí 2019, klukkan 14. 1977, maki Gareth John O’Sullivan, f. 29. nóvember 1969, börn þeirra eru Liam Óli, f. 14. júlí 2007, og Tóm- as Gene, f. 29. mars 2011; Áslaug, f. 20. júní 1981, maki Viktor Örn Guðlaugsson f. 20. nóvember 1987, barn þeirra er Arnar Þór, f. 26. mars 2014; Brynja, f. 11. júní 1987; Bjarki, f. 3. desember 1991, maki Hildur Valdís Gísladóttir, f. 15. október 1991, barn þeirra er Brynhildur Erla, f. 28. október 2018. Systir Hallbjörns sam- Hinsta kveðja frá mömmu. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Hvíl í friði elsku sonur minn. Þín mamma, Helga Hallbjörnsdóttir. Elsku Bjössi okkar. Það er ótrúlega skrítið að sitja hérna og reyna að setja einhver orð á blað enda er þetta allt svo óraunverulegt. Það er erfitt að trúa því að þú sért far- inn frá okkur en þetta gerðist allt svo hratt og eftir sitjum við með brotið hjarta. Við áttum kannski ekki hefð- bundið systkinasamband enda ólumst við ekki upp saman og eru árin á milli okkar þónokkur. Þegar við hugsum til baka erum við svo þakklátar fyrir hvað þetta samband jókst með árun- um og þá kannski sérstaklega eftir fráfall Gústa bróður og þegar yndislegu stelpurnar þín- ar komu í heiminn. Þegar við rifjum upp æskuár- in og hvernig þú hafðir áhrif á okkur þá er það fyrsta sem kemur upp í huga hversu ótrú- lega töff okkur fannst að eiga svona stóran bróður. Við gátum montað okkur af því að eiga bróður sem væri fullorðinn enda voru 11 ár á milli þín og Áslaug- ar og 17 ár á milli þín og Brynju. Þó að umgangurinn á þessum árum hafi ekki verið mikill vor- um við samt alltaf afar stoltar af því að geta sagt frá því að við ættum stóran bróður sem við litum mikið upp til þótt við kannski hittum þig alltof sjald- an. En sem betur fer þá jókst sambandið með árunum og er- um við svo þakklátar fyrir að það yndislega samband sem við áttum og að við náðum að kynn- ast upp á nýtt á seinni árum og búa þannig til nýjar minningar sem lifa áfram. Á þessum síðustu árum hefur þú svo sannarlega sýnt það og sannað hversu sterkur þú varst og það gerir okkur svo ótrúlega stoltar. Í dag getum við ennþá mont- að okkur yfir duglega stóra bróður okkar sem barðist svo hetjulega gegn þessum sjúk- dómi ávallt með von í hjarta allt fram á síðasta dag. Á þessum erfiða tíma yljum við okkur við yndislegar minn- ingar, stundirnar sem við áttum saman fjölskyldan og stoltið sem býr í hjarta okkar. Við vitum að þú ert nú kominn á betri stað, laus við alla verki og ert í góðum höndum með Eydísi þinni, mömmu Brynhildi og hon- um Gústa okkar. Ástvinir munu þér aldrei gleyma, meðan ævisól þeirra skín. Þú horfin ert burt til betri heima. Blessuð sé minning þín. (Theodór Einarsson) Þar til við hittum þig aftur. Þínar systur, Brynja Þórsdóttir, Áslaug Þórsdóttir. Í dag kveðjum við Bjössa bróður með sorg í hjarta. Milli okkar bræðranna voru rúmlega 21 ár og hann hefði því auðveld- lega getað verið pabbi minn, en alltaf hefur bróðir minn komið fram við mig sem jafningja og af gagnkvæmri virðingu og sam- band okkar verið gott. Fyrstu ár ævi minnar var umgengni milli okkar ekki mikil, en það breyttist í kjölfar sviplegs fráfalls bróður okkar árið 2000. Ég á fallega minningu í hjarta mér frá þeim tíma. Í eitthvert sinn vorum við samankomin nánasta fjölskyldan hjá móðursystur Bjössa, ég stend úti á pallinum hjá henni og er að virða fyrir mér útsýnið, Bjössi kemur út og tekur um axl- irnar á litla bróður og við eigum gott spjall. Við ákváðum þar og þá að við ætluðum að styrkja samband okkar og standa saman og það stóð frá þeim degi. Upp frá þessu jukust samskipti okkar bræðra og þá sérstaklega eftir að Eydís Agla og Hera Karín fædd- ust, en þær voru báðar mikið hjá okkur í Kögurselinu. Sumarið 2006 styrktust svo bræðraböndin enn frekar þegar Bjössi bauð mér að koma og vinna og búa hjá sér í Færeyjum, sem ég og þáði og var í Færeyjum tvö sumur. Þetta var frábær tími og einn af hápunktum unglingsára minna, ekki bara vegna þess að ég fékk að vinna alvöruvinnu fyr- ir alvörulaun, lærði að taka ábyrgð og standa undir trausti, heldur líka það einstaka tækifæri að fá að búa með stóra bróður og kynnast honum almennilega. Við brölluðum ýmislegt saman, ferð- uðumst um eyjarnar, borðuðum góðan mat, horfðum á óteljandi kvikmyndir og þáttaraðir og nut- um selskapar hvor annars. Ég verð Bjössa ævinlega þakklátur fyrir þetta tækifæri sem hann gaf mér og þátt hans í því að ég þroskaðist frá barni til manns. Lífið hefur ekki alltaf farið um bróður minn mjúkum höndum og þau spil sem honum voru gefin verða seint talin sanngjörn. Bróðir minn hefur gengið í gegn- um áföll sem myndu brjóta hina sterkustu menn, en hann gekk keikur í gegnum þessi áföll og reis upp á afturlappirnar í hvert sinn. Ég er og verð stoltur af bróður mínum. Ég er stoltur af pabbanum sem var vakinn og sofinn yfir velferð langveikrar dóttur, bisnessmanninum sem rak fyrirtæki sitt af krafti, manninum sem eltist við ástina á norðurhjara, manninum sem flaug milli landa aðra hverja helgi til að sinna dætrum sínum, naglanum sem barðist við krabb- ann af reisn, manninum sem átti drauma og þrár og bróðurnum sem gaf litla bróður tækifæri til að þroskast undir sínum vernd- arvæng. Að lokum sendi ég bróður minn út í eilífðina með söngnum sem sameinar „Poolara“ og á svo vel við á þessari kveðjustund: Meðan veðrið er stætt, berðu höfuð hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans ljóð upp um ljóshvolfin björt og heið. Þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð, þá stattu fast og vit fyrir víst, þú ert aldrei einn á ferð. (Þýð. Óskar Ingimarsson) Bjarki Þórsson. Það er sorgmædd lítil systir sem skrifar hér fátækleg orð um besta stóra bróður í heimi. Því ég á ekki nógu stór orð til að lýsa bróður mínum og okkar góða sambandi. Hann var 13 árum eldri en ég og þurfti oftar en ekki að hafa þessa litlu systur með sér í eftirdragi, sækja mig á leikskólann eða passa mig eftir skóla og ef ég var mjög heppin kom fyrir að ég fékk að fara með á völlinn. Ekki það að ég hafi haft hundsvit á fótbolta þá, en það var bara ekkert sem ég gat hugsað mér betra í heiminum en að fá að vera með stóru bræðr- unum. Ég get auðvitað ekki minnst á æsku mína án þess að nefna Ágúst bróður okkar, sem lést í bílslysi fyrir tæpum 19 árum. Mér fannst þeir stundum vera litlu pabbarnir mínir enda höfðu þeir alveg sínar skoðanir þegar kom að uppeldi litlu systur, hvort sem það voru litlar eða stórar ákvarðanir sem þurfti að taka. Þeir voru til dæmis ekki al- veg tilbúnir til þess að taka hjálpardekkin af hjólinu mínu þegar ég kom hlaupandi eftir leikskóla og sagðist sko vera bú- in að læra að hjóla! Ætli þeir hafi ekki frekar verið til í að bæta fleiri hjálpardekkjum á hjólið. Það vafðist heldur ekki fyrir þeim að útskýra fyrir mér melt- ingarkerfið, skattaumhverfið á Íslandi og sitthvað fleira þegar sá gállinn var á þeim. Mér finnst ég hafa verið heppnust allra að hafa átt bestu stóru bræður í heiminum, og þótt mér sé fyrir- munað að skilja af hverju þeir eru báðir farnir frá mér er ég óendanlega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum saman, þótt alltof stuttur hafi verið. Bjössi var einstaklega skemmtilegur og fyndinn strákur. Hann var með svartasta húmor sem ég hef kynnst, kald- hæðinn fyrir allan peninginn og algjör frasakóngur. Ég vil meina að það sé honum að þakka, nú eða kenna, að ég er eins og ég er, það er eins og kaldhæðnin sé okkur í blóð borin. Ég hef staðið mig að því undanfarna daga að hugsa eitthvað fyndið eða kald- hæðið og í sekúndubrot ætlað að segja Bjössa frá því áður en hug- urinn stoppar mig af. Við Bjössi vorum perluvinir og í stóra bróður átti ég minn helsta stuðningsmann. Hann var óspar á hrósið til mín og sagði mér oft hvað hann væri stoltur af litlu sys. Þau orð geymi ég hjá mér og reyni eftir megni að halda áfram að gera stóra bróður stoltan. Þótt aðdragandinn að þeirri stund sem óumflýjanlega rann upp á sjúkrahúsinu á Húsavík hafi verið langur er ekkert sem býr mann undir það þegar að því kemur að kveðja stóra bróður sinn. Jafnvel þótt maður hafi staðið í þeim sporum áður. Heimsmynd mín verður aldrei sú sama. Elsku besti Bjössinn minn í öllum heiminum, takk fyrir að gæta mín, kenna mér á lífið og gefa mér af tíma þínum. Ég elska þig og mun alltaf sakna þín. Ég verð að trúa því í hjarta mínu að Eydís Agla taki hlaupandi á móti pabba sínum og þeir bræður séu loks sameinaðir þarna hinum megin. Við hittumst öll aftur. Lokaorðin hér finnst mér jafn viðeigandi og þegar Bjössi skrif- aði þau í minningarorðum til Ágústar árið 2000. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þín litla systir, Fjóla. Frændi minn Bjössi er fallinn frá og verður hans sárt saknað. Við Bjössi vorum eins og bræður á yngri árum. Við frændurnir Bjössi, Ágúst Þór og bróðir minn Pétur lékum okkur saman þegar við vorum yngri og hélst vinátta okkar til æviloka. Ég á góðar minningar m.a. frá því við vorum hjá Ágústu ömmu á Neshaga og Hagamel. Þegar við vorum eldri fluttum við báðir utan en gættum þess að rækta frændgarðinn þeg- ar tækifæri gafst. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt góða stund með Bjössa á fallegu heimili hans og Helenu á Húsavík í febrúar. Bjössi eldaði mat handa mér og var hann góð- ur að elda og hafði hann gaman af því. Þetta var síðasta máltíðin okkar sem hann eldaði. Bjössi hefur orðið fyrir stórum höggum í lífinu og missti dóttur og bróður. Hann fann hamingjuna þegar hann kynntist Helenu Ey- dísi og sagði hann við mig að hann hefði aldrei getað verið án hennar í baráttunni við veikind- in. Hugur minn er hjá þér Hel- ena mín á þessum erfiðu tímum og dætrunum Heru og Örnu. When I think of angels I think of you My heart’s full of sorrow I won’t let it show I’ll see you again when it’s my time to go (KK) Kjartan Hauksson. Bjössi var elsta barn elstu systur minnar hennar Helgu og fyrsta barnabarn foreldra minna. Hann var skírður Hallbjörn Eð- varð alveg eins og pabbi. Auga- steinn allra frá upphafi – eða svona, mér fannst hann taka óþarflega mikla athygli frá mér enda ég bara fjögurra ára þegar hann fæddist. Ég spurði mömmu reglulega hvort hann þyrfti nú ekki að fara að drífa sig heim til sín, ætlaði hann bara að vera allt- af? Í minningunni var þetta nú ekki langur tími sem ég hafði áhyggjur af stöðu minni innan fjölskyldunnar. Ég sá að það væri gott að þykja svolítið vænt um þennan fallega frænda. Í fjölskylduboðum átti hann sviðið. Eftirhermur og þá Laddi aðallega flugu um stofuna á Lynghaganum, nokkuð viss um að einhverjir brosi núna. Text- arnir sem hann gat farið með, þeir bókstaflega runnu upp úr honum. Í minningunni var líka alltaf gott veður og aldrei rok í Vest- urbænum. Minningar eru dýr- mætar. Nú þegar ég hugsa til baka og minnist Bjössa og okkar samskipta var ég „mother sis- ter“. Þegar við kvöddumst á Húsavík í vor sagði hann: „Við grillum svo í sumar mother sist- er.“ „Já“, sagði ég, „mikið væri ég til í það.“ Minning um góðan strák lifir. Öllum sem þekktu og þótti vænt um Bjössa votta ég samúð. Lilja Hallbjörnsdóttir. Þegar Bjössi fæddist varð ég móðursystir sem var gríðarlega stórt hlutverk að mínu mati, auk þess var hann fyrsti strákurinn sem fæddist í fjölskyldunni okk- ar. Þetta var ótrúlega spennandi allt saman, fyrsta barnabarnið og ekki skemmdi fyrir að Bjössi var sérstaklega fallegt barn, þessi stóru augu og þessi líka löngu augnhár. Ég man eftir því að hafa montin farið með hann til að hitta vinkonur og hvað þær dáð- ust að þessum fallega frænda mínum, ég var afar montin. Bjössi óx og dafnaði og var skemmtilegur gutti sem elskaði fótfolta. Ágúst fæddist tveimur árum á eftir Bjössa og urðu þeir fljótt óaðskiljanlegir, góðir vinir þrátt fyrir að vera mjög ólíkir bæði í sér og í útliti. Í huga okkar í fjöl- skyldunni var „Bjössi og Ágúst“ nánast eins og eitt orð. Einstak- lega fallegt og náið samband á milli bræðranna. Svo fæddist Fjóla sem var augasteinn stóru bræðra sinna. Heilmargt brölluðum við sam- an fjölskyldurnar, fórum í útileg- ur, sumarbústaði og alltaf var fótbolti til staðar. Bjössi vann um tíma hjá Ás- geiri í Bókavirkinu og áttum við því talsverð samskipti bæði inn- an fyrirtækisins og utan. Bjössi bjó yfir mikilli kímnigáfu þrátt fyrir að dagsdaglega þætti hann e.t.v. vera fremur alvarlegur. Líklega myndu margir kalla þetta gálgahúmor. Hvað við gát- um hlegið oft á tíðum þegar hann var í essinu sínu. Lífið er stundum óskiljanlegt. Ágúst dó í bílslysi 1. október 2000 og þá fannst mér eins og hluti af Bjössa hefði dáið með honum. Hann stóð sig samt eins og hetja í öllu og var mömmu sinni og systur mikill styrkur og stoð. Lífið hélt áfram og Bjössi eignaðist frumburðinn sinn hana Eydísi Öglu, svo komu Hera Karín og Arna Júlía. Hann bjó um tíma í Færeyjum en síðustu árin á Húsavík. Krabbinn kom líka. Við von- uðum og trúðum að Bjössi myndi sigra hann eins og svo margt annað í lífinu en þrátt fyrir bar- áttu og lífsvilja tapaði Bjössi. Í miðri baráttunni þurfti Bjössi að kveðja frumburðinn sinn hana Eydísi Öglu sem hafði alla tíð háð harða baráttu fyrir lífi sínu. Það er margt sem ég ekki skil. Stóra systir mín hún Helga hefur þurft að sjá á bak tveimur sonum og barnabarni, það er mikið að takast á við. Sorgin er ólýsanleg en ég veit að Ágúst, Bjössi og Eydís eru þarna vak- andi yfir þér elsku Helga og veita þér styrk. Elsku Helga mín og Fjóla og fjölskyldur, Helena og Arna Júl- ía, Hera Karín og Þór og fjöl- skyldur og aðrir ástvinir, ég bið Guð að veita ykkur og okkur öll- um styrk í sorginni. Ég kveð þig elsku frændi með þessum orðum sem þér voru svo kær. „You’ll never walk alone.“ Sjáumst síðar, Erla Hallbjörnsdóttir. „Dáinn, horfinn“ – harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! (Jónas Hallgrímsson) Mér var hugsað til þessara orða skáldsins er ég frétti af and- láti þínu. Dauðinn er alltaf jafn sár, sérstaklega þegar maður kveður góðan vin. En þú Bjössi minn varst tilbúinn að berjast til hinstu stundar, frá því að þú greindist með krabbamein fyrir sjö árum. Þar sýndir þú úr hverju þú varst gerður. Þú barð- ist sannarlega fyrir lífi þínu. Lífsvilji þinn og þróttur var aðdáunarverður, þú lifðir með vonina að vopni vegna þíns og þinna. Þótt þú hafir gert þér grein fyrir hvert stefndi fyrir löngu. – Þú varst búinn að taka „höggið“ út sagðir þú mér. Það er margs að minnast en of langt er að telja upp í örstuttri minn- ingargrein. Ég minnist sérstak- lega þegar þú komst til okkar mín og móður þinnar í Engihjall- ann frá Færeyjum, en þar rakst þú fyrirtæki með Hödda vini þín- um. Þú komst á tveggja vikna fresti til þess að heimsækja og vera með dætrum þínum yndis- legu, Eydísi og Heru en Eydís var fjölfötluð. Þar birtist sann- arlega þín ræktarsemi, um- hyggja og hjálpsemi til þeirra og móður þinnar, er aldrei féll skuggi á. Fyrir mér voru þetta gleði- stundir, með þér, dætrum og stórfjölskyldu þinni. Við vorum báðir miklir frétta- fíklar. Skipt var um rásir á sjón- varpinu í tíma og ótíma, til þess að missa ekki af neinn frétt, en móður þinni var á stundum eigi skemmt. Bjössi minn, kallaði mig alltaf „Gamla“. – Hvernig hefur Gamli það var það fyrsta sem hann sagði eftir að hann hafði sagt sæl móðir. Þetta voru mikil heiðurs- orð fyrir okkur bæði. Þegar þú komst alkominn frá Færeyjum leigðir þú íbúð mína í Arahólum. Þá kom það tímabil í lífi þínu er þú varst mjög van- sæll, enda tilfinningamaður og viðkvæmur fyrir öllu er lífsand- ann dró. Ég kynntist líka æskuvinum þínum um þetta leyti. Þeir stóðu sannarlega þétt við bakið á þér og eiga þeir sannarlega þakkir skildar fyrir það góða verk sem og stórfjölskyldan þín. Bjössi fluttist til Húsavíkur árið 2012 eftir að hafa kynnst konu sinni Helenu Eydísi og eignuðust þau saman yndislega stúlku, Örnu Júlíu, sem nú er sex ára gömul. Á Húsavík átti hann að mörgu leyti mjög góð ár þrátt fyrir erfið veikindi. Helena tók dætrum Bjössa mjög vel en hann missti Eydísi Öglu árið 2015. Fjöl- skylda hennar reyndist honum vel í hvívetna. Bjössi kynntist mörgu góðu fólki gegnum vinnu sína og einn- ig frábæran félagsskap er hjálp- aði honum til nýs lífs. Hafi þeir þökk fyrir. Missir margra er mikill við fráfall hans, sérstaklega hjá móður sem nú sér á eftir öðrum syni sínum í gröfina. Eins er missir Helenu og dætra hans mjög þungbær, sem og Fjólu systur hans. Sá missir hlýtur að vera hverjum manni óbærilegur, sem og föðurfólki hans. Í Spámanninum segir: Hallbjörn Eðvarð Þórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.