Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Qupperneq 6
HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Arndís Jóhannsdóttir Helga Ragnhildur Mogensen Kristin Sigfríður GarðarsdóttirObergljót ásta créative clothes Chantal van den Broek Ólöf Erla Bjarnadóttir Guðrún Borghildur Margrét Guðnadóttir Valdís Harrysdóttir Fjaðrafok Valkyrja Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Hulda B. Ágústsdóttir Fæðing getur verið eitt af þvísársaukafyllsta sem konurupplifa um ævina og sú upp- lifun getur haft langvarandi áhrif á líf þeirra. Þó virðast sálrænu áhrifin sem margar konur finna fyrir eftir barnsburð enn ekki hafa fengið al- mennilega viðurkenningu í heim- inum. Í rannsókn frá Napier- háskólanum í Edinborg kemur fram að allt að 45% kvenna verða fyrir sálrænu áfalli við barnsburð og 4% fá einkenni áfallastreituröskunar. Áfallastreituröskun er geðröskun sem lýsir sér þannig að einstak- lingur endurupplifir á einhvern hátt skelfilegan atburð eða atvik sem hann hefur orðið fyrir. Þrátt fyrir að margar konur finni fyrir ein- kennum áfallastreituröskunar eftir fæðingarreynslu sína er röskunin sjaldan tengd við barnsburð. Í umfjöllun BBC um málið er tal- að um að áfallastreituröskun, sem áður var þekkt sem sprengjulost, hafi fyrst verið viðurkennd eftir að hermenn sneru heim eftir fyrri heimsstyrjöldina. Þar segir að enn í dag, meira en hundrað árum eftir að stríðinu lauk, sé áfallastreituröskun yfirleitt tengd við stríð og annað sem aðallega karlmenn upplifa. Bandarísku geðlæknasamtökin (American Psychiatry Association) viðurkenndu tilvist áfallastreitu- röskunar hjá konum eftir fæðingu fyrst árið 1990 þegar lýsingu á rösk- uninni var breytt og hætt að tala um orsök áfallastreituröskunar sem „óvenjulega mannlega reynslu“. Sú lýsing fellur illa að lýsingu á barns- burði sem er eitthvað sem stór hluti kvenna upplifir einhvern tímann um ævina. Finna fyrir skorti á samúð Í frétt BBC kemur fram að upplifun kvenna á fæðingunni ráði því hvort þær þrói með sér áfallastreitu- röskun. Emma Svanberg, sálfræð- ingur sem lagt hefur áherslu á að betrumbæta fæðingarupplifanir, segir í viðtali við BBC að algengt sé að konur upplifi skort á samúð frá heilbrigðisstarfsfólki. Í fyrrnefndri rannsókn frá Napier-háskólanum kemur fram að ljósmæður finni fyrir því að þær nái ekki að styðja nægi- lega vel við konur vegna anna. Þá finna þær sérstaklega fyrir því að skortur sé á stuðningi og upplýs- ingagjöf til kvenna í áhættuhópi, þ.e. þeirra sem þegar hafa þegar orðið fyrir áföllum svo sem kynferð- islegri misnotkun eða glíma við þunglyndi eða kvíða. Eru þessar konur fimm sinnum líklegri til að þróa með sér áfallastreituröskun eftir barnsburð. Emma Svanberg segir fæðingar- áföll vera mikilvægt femínískt mál- efni. Hún talar um að rannsóknir sýni að sársauki kvenna sé oft huns- aður og sé ekki gert jafnhátt undir höfði og sársauka karla og bendir á skort á upplýsingagjöf til kvenna fyrir fæðingu. Í umfjöllun BBC er bent á að margar konur séu tregar til að tala opinberlega um fæðingar- áföll vegna hræðslu við að vera álitnar misheppnaðar mæður eða vanþakklátar fyrir börn sín. Svan- berg segir þó að tiltölulega auðvelt sé að meðhöndla konur sem hafa orðið fyrir fæðingaráfalli. Segir hún að erfiðleikarnir felist helst í að fá réttu meðferðina og bendir á að oft séu konur ranglega greindar með fæðingarþunglyndi. Geðlæknirinn Rebecca Moore segir vandamálið þó liggja í heil- brigðiskerfinu. Segir hún álag á heilbrigðisstarfsfólki ýta undir líkur á sálrænum vandamálum kvenna eftir fæðingu. „Það [starfsfólkið] sinnir vinnunni sinni en ekki af nægilegri samúð vegna þess að það er útbrunnið,“ segir Moore. Áfall í fæðingu algengt Þrátt fyrir að hátt í helmingur kvenna verði fyrir sálrænu áfalli við barnsburð og fjöldi kvenna fái einkenni áfallastreituröskunar eftir fæðingu virð- ist lítil umræða vera um vandamálið. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com 45% kvenna verða fyrir sálrænu áfalli við að koma barni í heiminn og 4% þróa með sér áfallastreituröskun eftir fæðingu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.