Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Side 14
HEILBRIGÐISMÁL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019 Þ riggja ára biðlistaátaki ríkisstjórn- arinnar sem hófst í mars 2016 er lokið og þótt ljóst sé að það hafi skilað nokkrum árangri eru enn langir biðlistar í bæði lið- skiptaaðgerðir og augasteinaaðgerðir. Heil- brigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, gaf ný- lega út tilkynningu þess efnis að forgangsraðað yrði til að stytta bið sjúklinga eftir tilteknum að- gerðum, þ.á m. í augasteinaaðgerðir. Segir ráð- herra að augasteinaaðgerðir verði þá 1.300 fleiri en ella. Fjölgun þessara aðgerða er fyrst og fremst hjá Landspítalanum sem mun sinna 2.000 aðgerðum. Árleg þörf er 3.300-3.400 aðgerðir og dugar þessi ráðstöfun því skammt og munar þar um allt að 1.300 augasteinaaðgerðum á ári. Enn verða því langir biðlistar og þeir munu lengjast ár frá ári. Nú í lok samnings er biðtíminn eftir slíkri aðgerð hjá Sjónlagi fimmtán mánuðir. Jónmundur Gunnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sjónlags, segir hlutfall þeirra sem sækja sér þjónustu tengda augnlækn- ingum utan ríkisrekinna eininga vera um 90% og segir hann að óskandi væri að stefna ríkisins væri í takt við þann veruleika. Grunnsamningur runninn út Sjónlag er augnlæknastofa sem rekin er af læknum og hefur gert augasteinaaðgerðir síðan 2008. Vegna vaxandi biðlista eftir slíkum að- gerðum gerðu Sjúkratryggingar Íslands samn- ing við stofuna tímabundið um að auka aðgerð- ir. Einnig var hjá Sjónlagi fyrir grunnsamningur við SÍ sem féll úr gildi um mánaðamótin síðustu. „Það var kominn mikill þrýstingur á biðlist- ana og þurfti að bregðast við. Það var gerður samningur í mars 2016 og við komum að því átaki og tókum 1.000 aukaaðgerðir fyrsta árið, ofan á þær 400 sem voru í grunnsamningi. Þetta átti að vera þriggja ára verkefni. Við kláruðum okkar 1.000 aðgerðir og árið eftir var samið um 400 aukaaðgerðir ofan á grunnsamning. Þriðja árið var ekkert samið, þrátt fyrir að lagt hafi verið af stað með það í upphafi,“ segir Jón- mundur. „Ef stefnan er að færa meira af þjónustunni inn á sjúkrahús þýðir það afturhvarf til fortíðar. Ættum við t.d. að fara með alla tannlækna inn á Landspítala? Það er dæmi sem gengur ekki upp. Alveg eins með allan þennan fjölda sem þarf þjónustu; það gengur ekki að moka honum öllum inn á opinberar stofnanir. Það er jafna sem gengur ekki upp,“ segir hann. „Landspítalinn er með fangið fullt af verk- efnum, s.s. kennslu og rannsóknum ofan á göngu- deildarþjónustu og skurðaðgerðir. Staðreyndin er hins vegar sú að þörfin á innlögnum vegna augnvandamála hefur nánast þurrkast út. Fram- tíðin á að bjóða upp á nánari samvinnu sjúkra- húss og utanspítalaþjónustu þar sem sjúkling- urinn er í forgangi, þarf ekki að flengjast á milli staða, fær bæði greiningu og meðferð á sama stað hjá sama lækni. Ríkið sér svo til þess með samningum að greiðsluþátttaka sjúklings sé sú sama, óháð því hvert er leitað,“ segir hann. Fjölbreytileiki nauðsynlegur „Fjárfesting Sjónlags í tækjabúnaði nálgast milljarð. Við erum með öflugar skurðstofur þar sem við gerum augasteinaaðgerðir, linsu- ígræðslur og leysiaðgerðir bæði við sjónlags- galla og sem meðferð við sjúkdómum. Þær eru í langflestum tilvikum greiddar af viðkomandi sjúklingi. Það sem okkar vantar sárlega til að geta boðið upp á heildarþjónustu er leyfi til að gera lyfjainndælingu, en þá er lyfi dælt inn í augað. Þetta höfum við ekki fengið samning um að gera sem veldur því að hér er verið að ákveða meðferð en við þurfum svo að senda viðkomandi sjúkling niður á Landspítala,“ segir Jónmundur og bendir á að hann hafi heyrt óánægjuraddir frá sjúklingum vegna þessa fyrirkomulags, en þeir vilja fá sína þjónustu á einum stað. „Það er ekki góð þjónusta að senda fólk fram og til baka,“ segir hann. „Við verðum alltaf með Landspítalann sem hornstein í íslenskri heilbrigðisþjónustu, það er alveg klárt. En til að tryggja einhvers konar framþróun er fjölbreytileikinn nauðsynlegur. Í því felst engin gagnrýni á Landspítalann eða stjórnendur þar. Ef við horfum til landanna í kringum okkur í Skandinavíu og annars staðar í Evrópu er það svona sem málin hafa þróast; og þar sem menn hafa farið þá leið að setja allt í ríkisrekstur hafa menn gefist upp á því. Til dæmis í Svíþjóð. Við erum að hjakka í sama farinu, aftur og aftur.“ Fimmtán mánaða bið Í Sjónlagi hafa verið framkvæmdar aðgerðir þar sem skipt er um augasteina frá árinu 2008. Flestir sem þurfa á slíkri aðgerð að halda eru með ský á augasteini og sjá afar illa fyrir vikið. Jónmundur útskýrir að ríkið borgi augasteina- aðgerðir ef viðkomandi uppfylli ákveðin skilyrði en einnig eru aðrir sem kjósa að fara í slíka að- gerð á eigin kostnað til þess að auka lífsgæði sín, t.d. að losna við gleraugu. Fyrir þá sem aug- ljóslega þurfa á slíkri aðgerð að halda þarf sjúk- lingur fyrst að fara á biðlista. „Í dag er biðlistinn hjá okkur fimmtán mán- uðir frá því að þú færð samþykki til að fara í að- gerð sem er styrkt af ríkinu,“ segir hann og nefnir að Sjónlag sé vel í stakk búið til að gera mun fleiri aðgerðir en gerðar eru í dag. Hvað er langur biðtími í viðtal áður en maður kemst á biðlista til að fara í augasteinaaðgerð? „Það er annað sem við stöndum okkur ekki nógu vel í. Í dag er um þriggja mánaða bið að komast til sérfræðings en oft lengri. Í lok apríl var ég farinn að bóka fólk í nóvember, bara til að komast í viðtal. Þá er send inn umsókn til þess að komast í augasteinaaðgerð og þegar umsóknin er samþykkt ertu komin/n á biðlista.“ Nú gerðuð þið á þessum tveimur árum 1.400 aukaaðgerðir, ofan á þær 400 aðgerðir árlega sem voru í grunnsamningi. Létti það ekki á bið- listunum? „Þörfin er tæplega 1% af mannfjölda, talið í fjölda augna. Þá sjáum við að hún er í kringum 3.400 augu á ári. Landspítalinn var með á föst- um samningi 800 aðgerðir og tveir aðilar sinn með hvorar 400 aðgerðir. Þá er gatið samt 1.400 manns, sem skapar þrýsting inn í kerfið. Biðlist- aátakið dugar svo stutt, sérstaklega líka þegar við fengum bara samninginn í tvö ár, en ekki þrjú. Þá eykst bara þrýstingurinn aftur,“ segir hann og segist vita að gerður hafi verið samn- ingur við Landspítala um auka 1.200 aðgerðir ofan á þær 800 sem eru gerðar þar fyrir. „En þá „Okkur er ekki svarað“ Sjónlag hefur sinnt fjölmörgum augasteinaaðgerðum sem hjálp- að hafa til með að stytta biðlista en nú er framhaldið óljóst þar sem samningur Sjónlags rann út um síðastliðin mánaðamót. Jón- mundur Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjónlags, vonar að framhald verði á þessu samstarfi sem eykur fjölbreytni í kerfinu og skapar svigrúm fyrir opinberar stofnanir. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is greiðsluþátttöku SÍ en þurfa líka sér- stakan forúrskurð SÍ um greiðsluþátttök- una. Hjá mörgum þeirra liggur þetta fyrir í dag en alger óvissa um fram- kvæmdina. Sú spurning hlýtur að vakna hvort sjúklingarnir í þessu til- viki eigi ekki rétt á greiðsluþátttöku SÍ þótt enginn samningur sé í gildi. Málið er óvenju skýrt þar sem sjúklingurinn þarf bæði að vera kominn með sjúkdóm á ákveðið stig og fá fyrirfram samþykki SÍ fyrir þörfinni á aðgerð,“ segir Krist- ján. „Það er engin leið að byggja upp þjón- ustu þar sem allt er í óvissu fram á síð- ustu stundu. Til þess að geta framkvæmt augasteinsaðgerðir þarf skurðstofu, tækjabúnað, sérþjálfað starfsfólk og lag- er af gerviaugasteinum, efnum og áhöld- um. Það tekur sinn tíma að byggja að- stöðuna upp og illt ef heilbrigðisyfirvöld geta hvorki sagt af né á um áframhald- ið,“ segir hann. „Það er vitað mál að það er þörf á þessari þjónustu og ef ríkið ætlar ekki að kaupa hana þá ber því a.m.k. að til- kynna það. Mér finnst þetta skelfileg umgengni við almenning; að halda öllum í óvissu eins og það sé ekki búið að taka ákvörðun. Hvar stendur sjúklingurinn þá? Það er ekki hægt að semja af því að ráðuneytið er ekki búið að móta stefnu. Það versta er að stjórnvöld greina eng- um frá fyrirætlunum sínum og skilja alla eftir í óvissu.“ Skilja alla eftir í óvissu Kristján Guðmundsson Kristján Guðmundsson læknir telur klúður hjá Sjúkratrygg- ingum Íslands og heilbrigðisráðuneytinu koma niður á sjúklingum sem bíða eftir augasteinsaðgerðum. Kristján fer fyrir samninganefndlækna. Blaðamaður sló á þráðinntil hans til að fá hans álit á þeirri stöðu sem sjúklingar og þeir augnlæknar sem framkvæma augasteinaaðgerðir eru nú í eftir að sérsamningar um þær að- gerðir runnu út á þriðjuudaginn. „Augasteinaaðgerðirnar hafa lengi verið á sérsamningum skv. útboði og þeir runnu út 30. apríl. Sjúkratrygg- ingar Íslands sendu tölvupóst í loks þess dags þar sem þær tilkynna að frá og með 1. maí falli greiðsluþátttaka SÍ nið- ur en segjast vera að undirbúa nýtt inn- kaupaferli og muni hraða því sem kostur er svo nýir samningar komist á sem allra fyrst. Þeir tveir aðilar sem hafa gert þessar aðgerðir skv. útboði hafa leitað lengi eftir svörum um framhaldið frá SÍ en engin ákveðin svör fengið fyrr en á lokadegi samningsins,“ segir Krist- ján. „SÍ hefðu átt að upplýsa læknana, og ekki síst sjúklingana, um fyrirætlun sína, en hafa ekki gert. Það eru margir sjúk- lingar þegar búnir eru að fara í for- skoðun, búnir að uppfylla skilyrði fyrir aðgerðinni (30% sjónskerðing eða meira) og SÍ búnar að samþykkja greiðsluþátt- töku í aðgerðinni en nú eru engir samn- ingar í gildi lengur til að framkvæma aðgerðina. SÍ hafa ekkert gert til þess að upplýsa þessa sjúklinga. SÍ hafa klúðrað útboðinu, eða samningum, þann- ig að nú tekur við óvissutímabil. Á með- an er ekki hægt að gera aðgerðir, nema sjúklingur greiði að fullu,“ segir hann. „Þessir sjúklingar eru í nokkuð sér- stakri stöðu. Þeir þurfa að vera með til- tekna sjónskerðingu til að öðlast rétt til Brynja D. Runólfsdóttir er ein af þeimsem fengu þær fréttir 2. maí að ekk-ert yrði af augasteinaaðgerð sem SÍ höfðu samþykkt að greiða, þar sem grunn- samningar hjá einkastofunni sem hún skipti við runnu út um mánaðamótin. „Þetta er orðið mjög brýnt. Það er ský á báðum augum og sjónin er um 30-40%. Þetta háir mér alveg gífurlega en sjóninni hefur hrakað mjög hratt. Í október var ég ekki orðin gjaldgeng í þessa aðgerð en er það núna,“ segir Brynja, sem er rúmlega sjötug. „Ég rek lítið fyrirtæki og skerta sjónin háir mér rosalega þegar ég er í vinnu og að keyra bíl. Oft þarf ég að leggja bílnum og taka leigubíla, með tilheyrandi kostn- aði,“ segir hún. „Lífsgæði mín eru verulega skert. Ég fékk tíma hjá Eiríki hjá Lasersjón í skoðun en komst ekki vegna veikinda. Svo hringdi ég í morgun (fimmtu- dag) og fékk þessar fréttir og var sagt að ég fengi ekki nýja augasteina. Ég veit ekki hvað ég á að gera,“ segir hún. „Vonbrigðin eru svo mikil! Það var búið að samþykkja allt. Ég hef ekki hugmynd um hvað verður. Á ég að fara á biðlista hjá Landspítalanum og fer ég þá aftast á hann?“ spyr hún. „Ég hef auðvitað þann valkost að borga sjálf, en ég er búin að borga skatta og skyldur frá því ég var unglingur. Mér finnst gengið á minn rétt sem einstaklings með skerta sjón. Ég skil ekki þessi vinnu- brögð.“ Brynja D. Runólfsdóttir Vonbrigðin eru svo mikil! Brynja D. Runólfsdóttir er ein þeirra sem biðu eftir auga- steinaaðgerð sem SÍ voru búnar að samþykkja að greiða. Hún er afar ósátt að fá ekki þá þjónustu sem henni var lof- að en hún er verulega sjónskert vegna skýja á augum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.