Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Side 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019 múrarnir voru felldir, Mandela varð forseti lands síns og hlaut friðar- verðlaun Nóbels ásamt forseta hvíta minnihlutans, Frederik Willem de Klerk, fyrir þátt þeirra í að afnema kynþáttastefnuna. Í framhaldinu er spurt um baráttu hryðjuverkamannsins. Hefði þetta gerst án hennar? Spyr sá sem ekki veit. En hitt er vitað að sigurinn var ekki í höfn fyrr en vopnin höfðu ver- ið kvödd. Annar maður sem einnig var fang- elsaður fyrir að leiða hryðjuverka- samtök er tyrkneski Kúrdinn Abdul- lah Öcalan. Hann hefur nú setið í einangrun, einnig á eyju eins og Mandela, Imrali-eyju, í 20 ár, síð- ustu ár í algerri einangrun. Fyrir fáeinum dögum fékk hann að hitta lögfræðinga sína í fyrsta skipti í átta ár. Þessi heimsókn hefur ekki orðið til þess að þær þúsundir, innan og utan fangelsismúra í Tyrklandi og víðar, hafi hætt langvinnu mótmæla- svelti sínu gegn einangrunarvist Öcalans. Þó hefur þessi heimsókn orðið til þess að spurt er hvort hugs- anlega sé að rofa til; og þá hvort vopnin verði kvödd. Samtök Öcalans, PKK, eru skil- greind hryðjuverkasamtök, eins og ANC á sínum tíma, og vissulega hafa þau stundað hernað en þá gegn hernaði ríkisins á hendur Kúrdum; hernaði sem staðið hefur í áratugi, með stórfelldum mannréttinda- brotum, fjöldamorðum, fangels- unum og pyntingum. Ég lít svo á að Kúrdar hafi háð varnarstríð gegn hryðjuverkaríki. Þar með er ekki sagt að Kúrdar hafi ekki stundað hryðjuverk. Málið fangelsaður, lengst af á Robin- eyju. Hann hafði hlotið lífstíðardóm en saksóknari hafði viljað dauðadóm. Lokaorð í varnarræðu Mandelas urðu fleyg: „Ég hef barist gegn yfir- ráðum hvítra og ég hef barist gegn yfirráðum svartra. Ég hef borið fyr- ir brjósti hugsjón um frjálst lýðræðisþjóðfélag þar sem allt fólk býr saman í sátt og hefur sömu tæki- færin í lífinu. Ég vona að ég eigi eftir að lifa þessa hugsjón verða að veru- leika. En að sama skapi er ég reiðubúinn að fórna lífi mínu til þess að hún rætist.“ Sú varð og raunin. Kynþátta- Ég er ekki talsmaður stríðs-átaka. Þó studdi ég AfricanNational Congress, ANC- samtökin í Suður-Afríku, sem lengi framan af andæfðu kynþáttastefn- unni, apartheid, friðsamlega en eft- ir fjöldamorðin í Sharpville 1960 hófu þau skæruhernað. Þá voru samtökin lýst hryðjuverkasamtök og leiðtoginn, Nelson Mandela, er ekki svo einfalt. Og þegar nógu margir hafa verið drepnir á báða bóga verða til fórnarlömb sem kalla á það eitt að ógnaröldinni linni. Árásír Tyrkjahers á Kúrda í Norð- ur-Sýrlandi, sem stigmagnast hafa síðustu daga, lofa ekki góðu. Sýr- lendingar vilja óbreytt landamæri, Tyrkir og handbendi þeirra vilja óbreytt landamæri, en viti menn, Abdullah Öcalan vill frið sem bygg- ist á mannréttindum og lýðræði. Eftirfarandi er yfirlýsing sem birt var í vikunni, fyrstu orð sem heyrast frá Öcalan eftir að gluggi hans var opnaður eina örskotsstund: „Atburðir líðandi stundar minna á hve mikil þörf er á að ná víðtækri og djúpri sátt í samfélaginu. Við þurf- um á að halda lýðræðislegri nálgun við samninga þar sem í stað átaka á milli gangstæðra póla er horft til þess vanda sem þarf að leysa. Við getum leyst úr vandamálum Tyrklands og jafnvel alls þessa heimshluta með mýktinni, það er að segja með vitsmunum okkar, sam- skiptum á milli stjórnmálafylkinga og menningarheima í stað valdbeitingar. Við teljum að sveitum sýrlenskra Kúrda beri að hafa í huga að átaka- hugmyndafræði leysir ekki vandamál Sýrlands; þær ættu að hafa augun á því markmiði að tryggja lýðræði í nærumhverfinu og jafnframt stjórn- arskrárvarða stöðu sína í sameinuðu Sýrlandi. Einnig þarf í þessu sam- hengi að horfa með skilningi til þess sem býr að baki afstöðu Tyrklands. Á sama tíma og við virðum bar- áttu vina okkar innan og utan fang- elsismúra leggjum við áherslu á að menn tefli ekki heilsu sinni og lífi í hættu. Í okkar huga er öllu ofar heilsa þeirra til líkama og sálar. Við teljum einnig að til að ná árangri þurfi einmitt að leggja rækt við hina andlegu vídd tilverunnar. Á Imrali-eyju stendur vilji okkar eindregið til þess að taka upp friðar- viðræðuþráðinn þar sem skilið var við hann … Frá okkar sjónarhóli skiptir öllu máli að koma á friði með mannlegri reisn og með lýðræðis- legum og friðsömum hætti. Við vottum öllum þeim virðingu okkar sem hafa látið sig þessi mál skipta og svarað kalli okkar frá Im- rali-eyju. Við stöndum í djúpri þakk- arskuld.“ Og nú spyr ég: þarf þessi rödd ekki að fá að hljóma? NATÓ segir ekki, þau komi frá hryðjuverka- manni sem þá væntanlega sé rétt að loka inni. Hve lengi? Þarf Öcalan að bíða enn í sjö ár? Þá mun rödd hans hafa verið kæfð eins lengi og rödd handhafa friðarverðlauna Nóbels, Nelsons Mandela. Hans fangavist varði í 27 ár. Þegar vopnin eru kvödd Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Annar maður sem einnig var fangelsaður fyrir að leiða hryðjuverka- samtök er tyrkneski Kúrd- inn Abdullah Öcalan. Hann hefur nú setið í ein- angrun, einnig á eyju eins og Mandela, Imrali-eyju, í 20 ár, síðustu ár í algerri einangrun. Fyrir fáeinum dögum fékk hann að hitta lögfræðinga sína í fyrsta skipti í átta ár. Til hamingju með daginn, mamma mín! Alþjóðlegi mæðradagurinn er í dag, annan sunnudag í maí. Hann er upprunninn í Banda- ríkjunum þar sem hann var lýstur opinber hátíðisdagur árið 1914. Mæðradagurinn var fyrst haldinn hér á landi árið 1934. Þennan dag tíðkast meðal annars að gefa mæðrum blóm til að sýna þeim væntumþykju og þakklæti. Þessi mynd er birt í tilefni dagsins og er af stoltri æðarkollu sem var með þrjá unga undir verndarvæng sínum í Grafarvogi í júnímán- uði til að halda í þeim hita. Einn þeirra sést hjúfra sig upp að henni. Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Er brúðkaup í vændum? Skráðu þig á brúðargjafalista hjá okkur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.