Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Side 29
leikur mann á elliheimilinu sem
Judy starfar á sem ber hagsmuni
hennar fyrir brjósti. Hann verður
níræður í haust, kappinn. Af auka-
leikurum má nefna Steve Howey,
sem þekktur er fyrir túlkun sína á
Kevin í öðru spédrama, Shameless.
Þátturinn hefur gegnumsneitt
fengið góða dóma. „Dead to Me rís
ekki alltaf undir gálgahúmornum
sem þátturinn lofar en hið magnaða
tvíeyki Christina Applegate og
Linda Cardellini lyftir þáttunum.
Samband þeirra, sem byggist á
sameiginlegri sorg, hreyfir virki-
lega við manni,“ segir í umsögn
Rotten Tomatoes.
Netflix
Hjartaknúsarinn James Marsden leik-
ur Steve, fyrrverandi unnusta Judy.
12.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ROKK Hin fornfræga danska rokk-
hljómsveit D-A-D sendir í lok mán-
aðarins frá sér sína fyrstu breið-
skífu í heil átta ár, A Prayer For
The Loud. Rokkvefurinn Blab-
bermouth hefur eftir Stig Pedersen
bassaleikara að á plötunni hafi D-
A-D dottið niður á sjálfan kjarnann
eftir að hafa teygt sig í ýmsar áttir
gegnum tíðina. „Það var gaman að
prófa annað en núna erum við bara
við,“ segir hann og Jesper Binzer
söngvari bætir við: „Þetta kemur
beint frá hjartanu!“
Ný plata beint frá hjartanu
D-A-D-liðar hafa engu gleymt.
BÓKSALA Í APRÍL
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Barist í BarcelonaGunnar Helgason
2 GullbúriðCamilla Läckberg
3 KastaníumaðurinnSören Sveistrup
4 KetoGunnar Már Sigfússon
5 LasarusLars Kepler
6 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
7 Ísköld augnablikViveca Sten
8 Bíóráðgátan Martin Widmark
9 Emma öfugsnúnaGunilla Wolde
10
Emmu finnst gaman í
leikskólanum
Gunilla Wolde
11 Íslenskar þjóðsögur – úrval
12 Hin ósýnileguRoy Jacobsen
13 UppljóstrarinnJan-Erik Fjell
14 Stórar stelpur fá raflostGunnhildur Una Jónsdóttir
15 Tumi fer til læknisGunilla Wolde
16 Hvolpasveitin – litabók
17 MatthildurRoald Dahl
18 BláMaja Lunde
19
Handbók fyrir ofurhetjur 4:
Vargarnir koma
Elias Vahlund
20
Dans við dreka
– Game of Thrones
George R.R. Martin
Allar bækur
Gamlinginn sem hugsaði með sér að hann væri far-
inn að hugsa of mikið eftir Jonas Jonasson er sjálf-
stætt framhald af hinni geysivinsælu bók Gamlinginn
sem skreið út um gluggann og hvarf. Allan Karlsson
dvelur á Balí með Juliusi vini sínum sem býður hon-
um í skemmtiferð í loftbelg á hundrað og eins árs af-
mælisdaginn. Og það er bara byrjunin, áður en yfir
lýkur hefur hann haldið fundi bæði með Trump og Merkel og austur
í Rússlandi fylgist Pútín agndofa með afrekum hans! Nanna B. Þórs-
dóttir þýddi og JPV gefur út.
(Þjóðar)sálin hans Jóns míns eftir Birki Blæ Ing-
ólfsson fjallar um hugarheim og sjálfsmynd íslensku
þjóðarinnar, sem höfundur telur tákngerast í þjóð-
sagnapersónunni konunni hans Jóns míns „sem gekk
upp til himnaríkis með sál eiginmannsins í skjóðu til
þess að svindla honum sálugum inn í Paradís“. Part-
us gefur út.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Ég er nýbúinn með bókina Hinir út-
völdu eftir Gunnar Þór Bjarnason
sagnfræðing, fróðlega lesningu um
baráttu íslensku þjóðarinnar til
sjálfstæðis. Þar er áhugaverð inn-
sýn í stjórnmál og
mannlíf hér fyrir 100
árum og hægt að spá
í hvað sé líkt og ólíkt
með fólki við breytt-
ar aðstæður nú mið-
að við þá. Þetta
minnir á þungan róður við að öðl-
ast sjálfstæði sem kannski gæti svo
auðveldlega glatast.
Ég er að lesa
Hornauga eftir Ás-
dísi Höllu Bragadótt-
ur, sem er framhald
Tvísögu um flækjur í
ættum hennar. Ásdís
leitar og finnur svör við áleitnum
spurningum og sviptir hulu af fjöl-
skylduleyndarmálum. Þetta er skýr
og lærdómsrík frásögn af mann-
legum samskiptum þar sem höf-
undur hlífir hvorki sjálfri sér né
öðrum við sannleiksást sinni en
reynir samt að gæta sanngirni.
Svo er ég að stúdera klíníska dá-
leiðslu í bókunum Transwork; Tak-
ing Hypnosis to the Next Level; og
Treating Depression
with Hypnosis eftir
hinn meistarann og
Íslandsvininn dr.
Michael Yapko sál-
fræðing. Klínísk dá-
leiðsla heillar mig og
sérstaklega það hvernig hún virkar
á ýmsan vanda, t.d. þunglyndi,
áfallastreitu, svefnleysi og líkam-
lega verki. Þetta tæki hjálpar fólki
að ná sérstakri einbeitingu sem
gerir því kleift að breyta minn-
ingum sínum og líðan til hins betra.
Í þeim efnum getur ýmislegt kom-
ið á óvart.
GUNNAR HRAFN ER AÐ LESA
Barátta til sjálfstæðis
Dr. Gunnar
Hrafn Birgis-
son er sér-
fræðingur í
klínískri sál-
fræði.
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími 570 8600
Smyril Line Seyðisfjörður 470 2808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Heimsæktu Færeyjar eða
Danmörku með Norrænu
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
Innifalið: Sigling með Norrænu fram og til baka, flutningur á bíl og gisting í 2m klefa án glugga.
Verð miðast gengi DKK 9. maí 2019 og getur breyst.
DANMÖRK FÆREYJAR
Lágannatímabil verð á mann ISK 58.000
Miðannartímabil verð á mann ISK 77.000
Háannatímabil verð á mann ISK 150.000
Lágannatímabil verð á mann ISK37.250
Miðannartímabil verð á mann ISK57.900
Háannatímabil verð á mann ISK88.800
MÁLMUR Kirk Hammett, gítar-
leikari Metallica, var svo óheppinn
að hrasa og falla aftur fyrir sig á
sviði á miðjum tónleikum í Mílanó í
vikunni. Svo sást undir iljar honum.
Hann var þá að taka sóló í laginu
Moth Into Flame en rann til á
blautu fetlaborðinu með fyrr-
greindum afleiðingum. Sem betur
fer varð Hammett ekki meint af
fallinu og stóð jafnharðan á fætur.
Gerði kappinn hlæjandi gys að sein-
heppni sinni áður en hann kláraði
sólóið. Að tónleikum loknum skellti
hann sér beint á Instagram, birti
myndir af fallinu og bætti við að svo
blautt hefði verið í rigningunni í
Mílanó að honum hefði liðið eins og
hann væri að spila á hljóðfæri sitt í
steypibaðinu heima. Metallica er
ennþá á Worldwired-túrnum sem
standa mun fram á næsta ár.
Þegar Hammett varð fetlafól
Kirk gamli Hammett var í óvenjulegu
veseni á tónleikum í Mílanó í vikunni.