Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Flöskumóttaka Endurvinnslunnar greiddi tæplega tvo og hálfan milljarð í skilagjald vegna drykkjarumbúða til viðskiptavina sinna eða 2.317.000.000 krónur í fyrra. „Það er töluverð aukning á milli ára og ég tel að ein af ástæðunum sé sú að við á Íslandi erum að færa okk- ur úr stóru einingunum, tveggja lítra umbúðunum, yfir í minni umbúðir,“ segir Helgi Lárusson, fram- kvæmdastjóri Endurvinnslunnar. „Menn eru líka að færa sig töluvert yfir í áldósir,“ segir Helgi og sam- sinnir því að það geti verið tilkomið vegna aukinnar orkudrykkjaneyslu landsmanna. Helgi bendir einnig á að Íslend- ingar drekki greinilega meira af drykkjum í drykkjarumbúðum, gosi, víni og öðru en áður. „Bæði er aukning í drykkju og svo er stóru einingunum að fækka og þeim litlu að fjölga.“ 16 krónur eru greiddar fyrir hverj- ar drykkjarumbúðir, sama af hvaða stærð þær eru og hvort sem þær eru úr áli, gleri eða plasti. Auðveldara er að koma flokkuðu plasti, sem og plastflöskum, í endur- vinnslu en minna flokkuðu plasti. Lít- ið flokkað plast er gjarnan endur- unnið í Asíu en Kína bannaði innflutning á plasti fyrir ári síðan og umhverfisráðherra Malasíu hefur nú svipuð áform fyrir land sitt. „Allar okkar umbúðir eru endur- unnar vegna þess að þær eru flokk- aðar. Um leið og þú flokkar plast þá er það yfirleitt orðið verðmæti. Við sendum plastið á tvo aðila í Hollandi,“ segir Helgi. ragnhildur@mbl.is Tæplega tveir og hálfur milljarður í skilagjöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Drykkjarumbúðir Flöskur flokk- aðar á færibandi Endurvinnslunnar.  Fleiri umbúðir af minna tagi Tvö risastór skemmtiferðaskip lágu samtímis við Skarfabakka í Sundahöfn í gær. Þau heita MSC Preziosa og Norwegian Getaway og eru um 285 þúsund brúttótonn samtals. Farþegar og áhafnir eru nærri 10 þúsund talsins og má því segja að mannfjöldinn í Reykja- vík hafi aukist um allt að 8% með komu skipanna. Flestir farþeg- anna tóku þátt í margvíslegum ferðum sem þeim stóðu til boða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölgaði um nær 8% í borginni Landsréttur mildaði í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Þor- steini Halldórssyni, sem héraðs- dómur Reykjaness hafði dæmt í sjö ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferð- isbrot gegn ungum pilti. Lands- réttur mildaði þá refsingu hins veg- ar niður í fimm og hálft ár. Guðmundur St. Ragnarsson, verj- andi mannsins, staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Þorsteinn hefur setið í gæslu- varðhaldi frá því um miðjan janúar í fyrra. Hann var dæmdur fyrir þrjár nauðganir í héraðsdómi en Landsréttur taldi hins vegar að að- eins hefði tekist að sanna eina nauðgun. Fyrir héraðsdómi höfðu verið lagðar fram tvær ákærur gegn Þor- steini, en í þeirri fyrri var hann ákærður fyrir brot gegn hegning- arlögum og barnaverndarlögum og var sú ákæra í fimm liðum. Var Þorsteinn sagður hafa tælt dreng með fíkniefnum, lyfjum, gjöfum, peningum, tóbaki og farsíma frá því að drengurinn var 15 ára gam- all og þar til hann var 17 ára. Þá var Þorsteinn talinn hafa átt sam- ræði við drenginn og tekið af hon- um klámfengnar ljósmyndir og hreyfimyndir. Einnig braut Þor- steinn ítrekað gegn nálgunarbanni. Þorsteinn var einnig ákærður fyrir að hafa nauðgað drengnum í fyrra þegar hann var 18 ára, dög- um saman. Mildaði dóm fyrir kynferðisbrot  Aðeins ein nauðgun talin sönnuð Guðni Einarsson gudni@mbl.is Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi ráðgera að hittast um helgina til að ræða um framhald þingstarfa, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Fulltrúar þingflokkanna hafa reynt að kortleggja framhaldið og rætt sín á milli um hvaða mál eru líklegust til að verða umdeild og krefjast mikillar umræðu. Samkvæmt heimildum voru stjórnarandstöðuflokkarnir með hugmyndir um að fresta ýmsum málum sem ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að ljúka fyrir þinglok. Slík togstreita er ekki óalgeng þegar dregur nær því að alþingismenn fari í sumarfrí. Hlé var gert á umræðunni um þriðja orkupakkann í gær og voru mörg önnur þingmál rædd og af- greidd, án atkvæðagreiðslu (sjá fylgifrétt). Þingfundur hefst á mánudags- morgun kl. 9.30 og eru þá 46 mál á dagskrá sem birt var á vef Alþingis í gærkvöld. Fundurinn hefst á óund- irbúnum fyrirspurnartíma sam- kvæmt venju á mánudegi. Síðan verða atkvæðagreiðslur um málin 13 sem afgreidd voru í gær. Breyting á þingsályktun um fjár- málastefnu 2018-2022 er á dagskrá þingsins á mánudag og er stefnt að því að fyrri umræða um hana fari þá fram, verði það leyft eins og segir í auglýstri dagskrá. Heimildarmenn kunnugir þingstörfum voru sammála um að það mikilvæga mál þyrfti að fá umræðu og verða afgreitt til fjár- laganefndar sem fyrst svo hægt væri að afla um það umsagna, meðal ann- ars frá fjármálaráði. Þriðji orkupakkinn er einnig á dagskrá á mánudag auk margra ann- arra mála. Sem kunnugt er hafa Mið- flokksmenn rætt það mál í meira en 100 klukkustundir og meðal annars á löngum næturfundum. Stjórnarliðar segja að málþóf Miðflokksins seinki þingstörfum en Miðflokksmaður sem rætt var við mótmælti því og benti á að þingið gæti væntanlega ekki farið í frí fyrr en búið væri að af- greiða t.d. þingsályktunartillöguna um breytta fjármálastefnu sem lögð var fram í vikunni. Formenn flokka ræða þingstörfin  Formennirnir funda um helgina  Hlé á orkupakkaumræðu í gær  Mörg mál voru afgreidd  Endurskoðun fjármálastefnu er á dagskrá Alþingis á mánudag Morgunblaðið/Hari Alþingi Hlé var gert á orkupakkaumræðu í gær og voru 13 mál afgreidd. Annadagur var á Alþingi í gær. Þingfundur hófst klukkan 9.30 og lauk honum klukkan 19.37. Á dagskrá voru 35 mál, auk liða utan dagskrár, og lauk um- ræðu um 13 mál í gær. Þeirra á meðal var síðari umræða um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, framhald 2. umræðu um umferðarlög, síðari umræða um lögfestingu samnings Samein- uðu þjóðanna um réttindi fatl- aðs fólks, 2. umræða um rétt barna sem aðstandenda og 2. umræða um sjúkratryggingar. Atkvæðagreiðslum var frest- að og fara þær fram á mánudag samkvæmt dagskrá. Þrettán mál afgreidd ANNIR Á ALÞINGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.