Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Áhersla verður lögð á stofnendur og undirstöður í ár á Startup Iceland- ráðstefnunni sem haldin verður í átt- unda sinn 3. og 4. júní í Hörpu. „Stofnendurnir eru þeir sem stofna fyrirtæki og undirstöðurnar eru þær undirstöður sem þeir byggja fyrir- tæki á, hvort sem það er tækni, þekking, kunnátta, tengslanet, eða markaðsaðgangur,“ segir Bala Ka- mallakharan, stofnandi Startup Ice- land, og framkvæmdastjóri íslenska fjárfestingarfélagsins, Iceland Vent- ure Studio. Nýsköpun í ferðaþjónustu Einn af aðalfyrirlesurum ráð- stefnunnar er Terry Jones, stofn- andi Travelocity og Kayka, sem bæði eru metin á meira en milljarð banda- ríkjadala. „Hann hefur verið að ein- blína að miklu leyti á nýsköpun og hvernig hún er að breyta ferða- mannageiranum. Það finnst mér vera mjög viðeigandi að ræða um hér á Íslandi í dag,“ segir Bala. Þá mun Kaidi Rusllepp, stofnandi og framkvæmdastjóri Funderbeam taka til máls og ræða um þær breyt- ingar sem sprotafyrirtæki standa frammi fyrir hvað varðar fjármögn- un og þær hindranir sem hún sem kona hefur þurft að yfirstíga þegar kemur að stofnun tæknifyrirtækis. „Hún er ein af 50 valdamestu konum hvað varðar fjármagnanir fyrir sprotafyrirtæki í Evrópu í dag,“ seg- ir Bala. Einnig verða fulltrúar frá Y- combinator viðskiptahraðlinum fræga á svæðinu. Bala nefnir að allir þeir sem sæki ráðstefnuna geti daginn eftir fyrir- lestrana sótt ráðgjöf til flestra þeirra sem eru á mælendaskrá, en samtals eru 15 manns sem halda erindi. „Þetta verður svokölluð mentor- stund sem við höldum í Háskólanum í Reykjavík.“ Saga Skúla á vel við Skúli Mogensen, stofnandi flug- félagsins WOW air, mun einnig tala í fyrsta skipti opinberlega eftir fall fé- lagsins í lok mars. Spurður um það hvers vegna Skúli hafi orðið fyrir valinu segir Bala: „Að mínu mati er mjög erfitt að byggja upp ný fyrir- tæki. Ég hef hjálpað frumkvöðlum að gera það í áratug. En eins og gengur og gerist þá gerir fólk mis- tök. Í slíkum aðstæðum er mikilvægt að standa upp, dusta af sér rykið og reyna aftur. Þannig náum við ár- angri og tökum framförum. Ég held að það sé enginn sem getur komið fram og sagt slíka sögu sem á jafn vel við og Skúli,“ segir Bala í samtali við Morgunblaðið. Vísar Bala að auki í það afrek Skúla að endurreisa tölvufyrirtækið OZ á sínum tíma. „Hvað WOW varðar þá veit enginn. En þetta er áhugaverð reynsla og ég vildi fá hann til þess að deila með okkur því hugrekki sem þurfti til þess að koma til baka og veita þannig ungum frumkvöðlum innblástur,“ segir Bala. Veita frumkvöðlum fram- tíðar innblástur í Hörpu Morgunblaðið/Eggert Sprotafyrirtæki Fjárfestirinn Bala Kamallakharan heldur ráðstefnuna Startup Iceland í áttunda sinn í næstu viku. Startup Iceland » Ráðstefnan er haldin í anda Ted-fyrirlestranna frægu. Fólk hvaðaæva úr heiminum sem vinnur í sprotageiranum heldur erindi og segir frá persónulegri reynslu sinni og miðlar til ann- arra frumkvöðla og veitir þeim innblástur. » Um 250-300 manns sækja viðburðinn sem er haldinn í Silfurbergi í Hörpu. Aðeins eru rúmlega þrjátíu miðar eftir.  Skúli Mogensen talar í fyrsta skipti opinberlega eftir fall WOW air 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 1. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.02 124.62 124.32 Sterlingspund 156.84 157.6 157.22 Kanadadalur 91.78 92.32 92.05 Dönsk króna 18.518 18.626 18.572 Norsk króna 14.172 14.256 14.214 Sænsk króna 12.919 12.995 12.957 Svissn. franki 123.22 123.9 123.56 Japanskt jen 1.1335 1.1401 1.1368 SDR 170.89 171.91 171.4 Evra 138.31 139.09 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.731 Hrávöruverð Gull 1276.45 ($/únsa) Ál 1768.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.68 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Klappir grænar lausnir hf. hafa gengið frá kaupum á Stika ehf. Leiðir það til samruna fyrirtækjanna. Fé- lögin hafa hingað til átt farsælt sam- starf og segir í til- kynningu um kaup- in að þau sjái mikinn ávinning af frekara samstarfi. Verða starfsmenn sameinaðs fyrirtækis 30 talsins. Í viðskiptunum er Stiki metinn á 122,5 milljónir króna. Eigendur Stika fá greitt með hlutabréfum í B-flokki í Klöppum sem gefin verða út í tengslum við söluna.Forstjóri sameinaðs fyrir- tækis verður Jón Ágúst Þorsteinsson, en Svana Helen Björnsdóttir, stofnandi Stika og framkvæmdastjóri mun starfa hjá sameinuðu félagi. Klappir grænar lausnir hf. er skráð á markað á First North markaði Kauphallar Íslands. Klappir hafa yfirtekið Stika með samruna Jón Ágúst Þorsteinsson STUTT „Það er gaman að fá þennan flotta hóp til liðs við okkur,“ segir Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota af því tilefni að fyrirtækið hefur ráðið 26 starfsmenn fyrir sumarvertíðina. Segir hann að ekki sé ástæða til að örvænta þótt ekki sé útlit fyrir jafn mikla bílasölu í ár og í fyrra. Á fimmtudag var greint frá því að bíla- sala hefði dregist saman um 40% frá sama tíma í fyrra og það sett í sam- hengi við fréttir af uppsögnum starfsfólks hjá bílaumboðum. Þar sagði Jón Trausti Ólafsson, formað- ur Bílgreinasambandsins, að vetur- inn og vorið hefðu reynst þung fyrir umboðin. Það hefur ekki áhrif á bjartsýni Úlfars sem segir allt benda til að sumarið verði hagfellt. „Við sjáum fram á gott sumar þó dregið hafi úr sölu nýrra bíla að und- anförnu eins og búast mátti við. Hljóðið í viðskiptavinum okkar er gott og við sjáum fram á ágætt bíla- ár,“ segir Úlfar. Morgunblaðið/RAX Gleði Það var kátur hópur nýráðinna sumarstarfsmanna sem kom saman fyrir framan höfuðstöðvar Toyota í Kauptúni í Garðabæ í gærdag. Toyota telur sumar- ið framundan gott  26 sumarstarfsmenn að þessu sinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.