Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Litríkt fiðrildi flögraði um í garði í Kópavogi í vikunni og stórir, svartir vængir með rauðleitum bryddingum vöktu strax athygli. Gesturinn flaug á milli trjáa og sett- ist síðan á trjábol sér til hvíldar, og garðeigandanum til yndisauka, áð- ur en lengra var haldið. Erling Ólafs- son, skordýra- fræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun, tel- ur líklegt að um aðmírálsfiðrildi hafi verið að ræða en nokkuð hafi verið um fréttir af aðmír- álum að undanförnu á sunnanverðu landinu. Erling segir að af og til berist hing- að góðir loftstraumar úr suðrinu. Í vor hafi töluvert af svölum borist hingað með hlýjum sunnanvindum. Aðmírálar berist gjarnan hingað við svipuð skilyrði. Á pödduvef Náttúrufræðistofn- unar segir að aðmírálsfiðrildi sé tíður og væntanlega árlegur gestur á Ís- landi og hafi fyrst verið skráð árið 1901. „Stundum berst hingað umtals- verður fjöldi og skrautleg, suðræn fiðrildin vekja þá verðskuldaða at- hygli á sólríkum sumardögum, ekki síst á sunnanverðu landinu. Þau fyrstu fara að sjást um miðjan maí en yfirleitt þó ekki fyrr en í fyrrihluta júní. Þau berast hingað hvenær sem er sumars eftir það og ræðst það ein- faldlega af því hvernig háttar til með loftstrauma frá Evrópu. Algengast er þó að þau komi með haustlægðum í september og byrjun október. Ekki er ljóst hvaðan úr álf- unni þessi haustkynslóð kemur. Eng- in dæmi eru þess að aðmírállinn hafi náð að fjölga sér hérlendis né heldur lifa af vetur,“ segir á pödduvefnum. Þar segir að aðmírállinn sé stórt og fagurt fiðrildi, mikið augnayndi. Vængir flauelssvartir á lit, fram- vængir með skærgulu, appelsínugulu skábelti yfir miðjuna og svarta enda með hvítum blettum þar utan við. Með jaðri afturvængja sé sömuleiðis appelsínugult belti með svörtum díl- um og fagurbláum augnblettum aft- ast. Á neðra borði flókið litmynstur sem erfitt sé að lýsa en það falli vel saman við visin, marglit laufblöð að haust- og vetrarlagi, en aðmíráls- fiðrildi koma sér fyrir á trjágreinum eða innan um visin laufblöð til vetr- arsvefns, með vængina fellda saman upp frá bolnum. Fjarkatorta nemur land Nýir liðsaukar bætast við smá- dýrafánuna jafnt og þétt, að því er segir á facebooksíðu Náttúru- fræðistofnunar. Flestir eru þess eðlis að grunur um landnám af mannavöld- um er sterkur þar sem nýliðar tengj- ast gjarnan garðagróðri og trjárækt. Fyrir tveim vikum eða svo kom fal- leg lítil bjalla í fiðrildagildru í trjá- rækt í Kollafirði. Tegundin reyndist vera af ætt tortubjallna (Nitidulidae) sem svo nefnast vegna þess að oftast stendur afturendi bjallnanna (tortan) út undan aðfelldum skjaldvængjum. Bjalla þessi hefur verið greind til teg- undar sem ber hið síður en svo þjála fræðiheiti Glischrochirus quadrip- unctatus. Hún er aðeins 6 mm löng, skínandi svört með fjóra kassalaga rauðgula flekki á baki (quadrip- unctatus) sem mynda fjarkamynstur. Fjarkatorta er heitið sem hún nú skartar. Fróðleikur um tegundina hefur verið birtur á pödduvef Nátt- úrufræðistofnunar. Litríkur aðmíráll á flögri Ljósmynd/Erling Ólafsson Fiðrildi Litríkur aðmíráll sést hér reglulega, með svarta vængi og rauðleitar bryddingar.  Loftstraumar úr suðri skila fljúgandi dýrum til landsins  Aðmíráll árlegur gestur frá 1901 Erling Ólafsson Kontakt hefur fengið til sölu mjög góða herrafataverslun miðsvæðis í Reykjavík Kontakt hefur fengið til sölumeðferðar eina af bestu herrafataverslunum landsins. Um er að ræða Herrafataverslun Birgis, Fákafeni 11. Verslunin hefur starfað í áratugi og reksturinn gengið afar vel. Mikil viðskiptavild fylgir versluninni og eru mörg sterk vörumerki innandyra. Veltan undanfarin ár hefur verið mjög góð og afkoman með eindæmum góð. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Svavarsson hjá Kontakt fyrirtækjaráðgjöf, sími 414 1200, gunnar@kontakt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.