Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar Öll þurfum við fatnað og textíl- afurðir eru í öllu okkar umhverfi og hinu daglega lífi og snerta því okkur öll. Neysla á fatnaði og öðrum text- ílafurðum hefur aukist jafnt og þétt og ljóst að auðlindir jarðar munu ekki nægja okkur öllum ef við ætl- um að fylgja hringiðu neyslunnar. Textílframleiðsla er flókin og marg- slungin enda spannar tísku- og text- íliðnaðurinn einn af stærstu at- vinnumörkuðum heims og fer sá iðnaður að mestu leyti fram í lág- launalöndum. Oft á tíðum er um að ræða heilsuspillandi kringumstæður vegna þess að litlar kröfur eru gerð- ar til umhverfismála. Þannig ber sá iðnaður mikla ábyrgð á þeirri loft- lags- og umhverfismengun sem við glímum við í dag. Grunnskólanemendur eru stór neytendahópur á fatnað og þess vegna þurfa þeir í auknum mæli að geta metið og tekið sjálfstæða af- stöðu og ákvörðun þegar kemur að vöruvali. Við val á fatnaði þarf að huga að mörgum þáttum eins og gæðum og meðferð fatnaðarins, en það á líka við um viðhald og endingu hans. Allir neytendur, þar með tald- ir grunnskólanemendur, þurfa í auknum mæli að rækta með sér ábyrga neyslu í tengingu við sjálf- bæra þróun, vistfræðilegt fótspor og framtíð okkar í loftslags- og um- hverfismálum. Mikilvægt er því að bæta neyt- endafræðslu í skólum og þjálfa hjá ungum neytendum gagnrýnið við- horf sem styrkir þá til að skoða eig- in neyslu og samfélagsins í heild. Við óformlega könnun meðal nokk- urra nemenda í 10. bekk á fataeign sinni kom í ljós að meðaltalið á hvern nemanda er 10 buxur, 13 peysur, 12 stuttermabolir, 7 pör af skóm og 7 jakkar/úlpur og sumir áttu 40 peysur á meðan aðrir áttu fimm. Hlutverk textílkennara í grunn- skólum hefur aukist í þá veru að bæta þekkingu og meðvitund nem- enda og virkja þá til sjálfbærrar hugsunar og gjörða. Aukin þörf er á því að við öll kunnum til verka og sameinum hug og hönd í verki. Það er ekki nóg að ræða málin og gagn- rýna eða hafa álit og tilfinningu fyrir, mun áhrifaríkara er að fram- kvæma hlutina. Nauðsynlegt er að setja fatnað í nýtt samhengi, breyta eða bæta á einhvern hátt og þannig lengja líftíma fatnaðarins og um leið minnka „sporin“. Sam- kvæmt Aðalnámskrá grunnskóla er í textílmennt frá 1. bekk og upp í 10. bekk, unnið með sjálfbærni út frá ýmsum þáttum og mikilvægt að byrja strax á yngsta skólastiginu til að þroska nemendur í þá veru. Textílkennarar grunnskólanna eru sérfræðingarnir sem halda utan um slíka þekkingu enda er í menntun þeirra við menntavísindasvið Há- skóla Íslands lögð áhersla á sjálf- bærni og endurnýtingu sem studd er meðal annars með fjölbreyttum textílaðferðum, textíl- og neyt- endafræði, fata- og textílsögu og hugmynda- og hönnunarvinnu þannig að neysla, nýting og ný- sköpun haldist í hendur. Neytendalæsi og sjálfbærni í verki – textíll í grunnskólum Eftir Kristínu Garðarsdóttur, Sigríði Hjartardóttur og Ásdísi Jóelsdóttur »Meðaltalið á hvern nemanda er 10 bux- ur, 13 peysur, 12 stutt- ermabolir, 7 pör af skóm og 7 jakkar/úlpur og sumir áttu 40 peysur á meðan aðrir áttu fimm. Kristín Garðarsdóttir Kristín er textílkennari við Víði- staðaskóla, Sigríður er textílkennari við Vatnsendaskóla og Ásdís er lektor í textíl við Menntavísindasvið Há- skóla Íslands. aoj@hi.is Sigríður Hjartardóttir Ásdís Jóelsdóttir Fyrir síðustu helgina í maí sátum við Logi Bergmann, lands- kunnur sjónvarpsþulur og skemmtikraftur, báðir við skriftir í Morgunblaðið. Hann mun vera orðinn starfs- maður blaðsins og skrifar pistla. Mín grein birtist mánudag- inn 27. maí og innihélt ábendingu um lausn ágreiningsins um orkupakkann. Hún fól í sér með- alveg sem gerir okkur kleift að vera áfram í EES, en um leið tryggja al- mennum kaupendum raforku á því hagstæða verði sem við höfum sjálf búið okkur í haginn með. Orð eru til alls fyrst, hugmynd getur batnað við umræðu eða vakið nýja betri. Hans pistill birtist degi fyrr og var um mig. Fyrirsögninni var beint að mér per- sónulega og var klúrt fúkyrði. Lág- menningin varð augljós, en Morg- unblaðið hefur reynt að forðast hana. Hann var að mínum dómi að misnota aðstöðu sína sem starfsmaður til að reyna að þagga niður í mér. Logi Bergmann er ekki tekinn mjög alvar- lega og læt ég þetta því nægja um pistil hans, sem innifelur samt nokkr- ar marklausar aðdróttanir. Útlitsdýrkunin Logi vildi hjálpa vinkonum konu sinnar, þeim stjórnmálamönnum sem mest hafa um orkupakkann vélað. Ég hef gagnrýnt það að sú venja virðist komin á í Sjálfstæðisflokknum, að til- teknir hópar séu friðaðir með því að fela fulltrúum þeirra forystu- hlutverk, í stað þeirrar reglu að sterkasta stjórnmálamanninum sé falin formennskan og þeim sem þykir standa honum næst að burðum varaformennskan, óháð kyni. Nú þykir sjálfsagt að með því að karl gegni formennskunni sé kona valin í sæti varaformanns. Vafa- samt er að það sé jafn- réttishugsjónum til stuðnings að fara svona að og undarlegt að konur skuli vilja það. Búið var til þriðja embættið, rit- ari, og það er ætlað ungliðunum. Þá þykir það góð pólitík í dag að for- ystufólk hafi svonefnt „sjónvarps- útlit“. Einhverjir munu álykta að ég sé öfundsjúkur, hafandi sjálfur útlit sem hæfir fremur útsendingu í út- varpi, en íhugum málið nánar. Áður en sjónvarpið kom til sögunnar þurftu stjórnmálamenn að vera vel undirbúnir, þeir fluttu framsögu- og útvarpserindi og skrifuðu greinar í blöð. Nú skorar sá flest stig sem kemur vel út á skjánum og talar mest allra óundirbúinn í sjónvarpi. Það er einhver óhollusta fólgin í útlitsdýrk- uninni, hún kyndir undir hégóma- skap og beinir athyglinni frá því sem skiptir meira máli. Að forystufólk stjórnmálaflokks skuli verða henni að bráð er umhugsunarefni, ekki síst fyrir það sjálft. Afleiðingin er sú að formaðurinn hefur ekki stuðning og aðhald öflugs varaformanns. Já- menn eru lítil stoð þegar á móti blæs. Varaformaðurinn veit að allir vita að hann hefur ekki endilega burði til að verða formaður. Gamla fyr- irkomulagið var betra segi ég, þó ég sé grunaður um að sjá fortíðina í hill- ingum. Tengslin við fólkið Enginn getur náð árangri í pólitík nema vera í miklum tengslum við baklandið. Í mikilvægustu málum þarf hann að skynja hug og hjörtu flokksmanna og kjósenda. Embætt- ismennirnir í ráðuneytunum hafa ekki þetta hlutverk, en ef þeir skynja tómarúm hjá ráðherra sínum fylla þeir óðar í það og styrkja valdastöðu sína um leið. Ekki fer milli mála að í orkupakkamálinu hafa stjórn- málamenn okkar orðið viðskila við kjósendur. Þeir hafa sennilega gerst meðhjálparar embættismanna, sem komnir voru í mikil vandræði með samskipti sín við önnur EES-ríki. Ráðherrann sem fer með orkumál hafði málið lengi á sínu borði án þess að skynja vilja fólks og finna ásætt- anlega málamiðlun. Formaður utan- ríkismálanefndar Alþingis, sem fékk málið til meðferðar, náði að koma því í einn allsherjar rembihnút, en slíka hnúta hnýta einkum þeir sem ekki kunna til verka og ekki leiða hugann að því að leysa þurfi hnútinn. Reynsluleysi ungu stjórnmálamann- anna er þeim fjötur um fót, þó sjálfs- traustið vanti ekki. Fylgi flokksins og forysta Í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum fékk Sjálfstæðisflokkurinn nær þriðjung atkvæða á landsvísu, sem er við neðri mörk þess fylgis sem hann hafði áratugum saman. Þetta sýnir að flokksmenn hafa enn sterkar taugar til síns gamla flokks. Fylgi flokksins í alþingiskosningum hefur verið mun minna, eða um fjórð- ungur og virðist enn á niðurleið, ef marka má skoðanakannanir. Flokk- urinn fagnar nú 90 ára afmæli. Ég vona að horfið verði frá því að úthluta æðstu embættum flokksins til að friða tiltekna hópa, það hefur ekki reynst vel. Ég hef áður lagt flokkn- um mínum og þjóð minni lið í erfiðum málum. Þingmenn og ráðherrar flokksins hafa ekki enn séð ástæðu til að þakka það og sjálfsagt mætir ábending mín mánudaginn 27. maí líka tómlæti. „List hins hégómlega“, pólitíkin, snýst orðið mest um ásýnd og yfirborðsmennsku. Ég þakka Loga fyrir að gefa mér tilefni til þess- ara skrifa. Um dvínandi fylgi Sjálfstæð- isflokksins og orkupakkann Eftir Ragnar Önundarson » Fyrirsögninni var beint að mér per- sónulega og var klúrt fúkyrði. Lágmenningin varð augljós, en Morg- unblaðið hefur reynt að forðast hana Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur, fv. bankastjóri og flokksbundinn sjálf- stæðismaður í nær hálfa öld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.