Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 SÉRBLAÐ Grillblað • Grillmatur • Bestu og áhugaverðustu grillin • Áhugaverðir aukahlutirnir • Safaríkustu steikurnar • Áhugaverðasta meðlætið • Svölustu drykkirnir • Ásamt fullt af öðru spennandi efni fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. júní PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. júní. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Jón Kristinn Jónsson Sími 569 1180, jonkr@mbl.is Mjólkurbikar kvenna ÍBV – Valur............................................... 1:7 Cloé Lacasse 90. – Fanndís Friðriksdóttir 21., Margrét Lára Viðarsdóttir 32., 45., Guðrún Karítas Sigurðardóttir 65., 74., Bergdís Fanney Einarsdóttir 79., Hallbera Guðný Gísladóttir 90. ÍA – Þróttur R .......................................... 3:2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 25., Fríða Hall- dórsdóttir 55., Eva María Jónsdóttir 74. – Lauren Wade 2., 16. Þór/KA – Völsungur............................... 7:0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 19., 38., Andrea Mist Pálsdóttir 22., Hulda Ósk Jónsdóttir 48., Heiða Ragney Viðarsdóttir 54., Iris Achterhof 56., Hulda Björg Hannesdóttir 84. Inkasso-deild karla Leiknir R. – Víkingur Ó .......................... 2:0 Sólon Breki Leifsson 60., Ígnacio Heras 70. Fram – Afturelding ................................. 3:1 Helgi Guðjónsson 11. (víti), Frederico Bello 29., Már Ægisson 61. – Alexander Aron Da- vorsson 62. Keflavík – Grótta ..................................... 1:2 Elton Livramento 45. – Sigurvin Reynisson 19., Alex Freyr Harðarson 80. Rautt spjald: Ingimundur Aron Guðnason (Keflavík) 90. Staðan: Keflavík 5 3 1 1 11:4 10 Víkingur Ó. 5 3 1 1 6:3 10 Fjölnir 4 3 0 1 11:6 9 Leiknir R. 5 3 0 2 11:7 9 Fram 5 2 2 1 9:7 8 Njarðvík 4 2 1 1 5:5 7 Grótta 5 2 1 2 9:10 7 Þór 4 2 0 2 7:6 6 Þróttur R. 4 1 1 2 9:9 4 Haukar 5 0 3 2 5:8 3 Afturelding 5 1 0 4 5:15 3 Magni 5 0 2 3 5:13 2 2. deild karla ÍR – Kári.................................................... 1:1 Ágúst Freyr Hallsson 50. – Stefán Ómar Magnússon 17. Staðan: Selfoss 5 3 1 1 12:4 10 Völsungur 4 3 0 1 6:5 9 Víðir 4 2 1 1 8:8 7 Leiknir F. 4 1 3 0 9:5 6 Fjarðabyggð 4 2 0 2 7:5 6 Dalvík/Reynir 5 1 3 1 6:6 6 Vestri 4 2 0 2 6:7 6 KFG 4 2 0 2 5:6 6 Kári 5 1 2 2 8:9 5 Þróttur V. 4 1 2 1 5:6 5 ÍR 5 1 2 2 5:7 5 Tindastóll 4 0 0 4 1:10 0 Danmörk Úrslitaleikur um Evrópusæti: Bröndby – Randers.................................. 4:2  Hjörtur Hermannsson spilaði allan leik- inn með Bröndby og lagði upp eitt mark. Vináttulandsleikir kvenna Svíþjóð – Suður-Kórea............................ 1:0 Janogy 90. Frakkland – Kína..................................... 2:1 Gauvin 30., Diani 58. – Shanshan 52. KNATTSPYRNA Íslenskt frjálsíþróttafólk vann alls til 26 verðlauna á Smáþjóðaleikunum sem standa nú yfir í Svartfjallalandi. Á leikunum í San Marínó fyrir tveimur árum vann Ísland 24 verð- laun. Íslensku keppendurnir áttu áfram góðu gengi að fagna í gær og höfnuðu á verðlaunapalli í 12 af þeim 14 greinum sem Ísland tók þátt í á lokakeppnisdeginum í frjálsum. Þar af voru þrenn gullverðlaun, en ís- lenskt frjálsíþróttafólk vann alls til níu slíkra á leikunum í ár. Aðeins Kýpur var með betri árangur, tíu gull og 28 verðlaun alls. Dagbjartur Daði Jónsson vann sigur í spjótkasti þegar hann kastaði 77,58 metra og bætti um leið sinn besta árangur í greininni. Ísland vann svo tvöfalt í 200 metra hlaupi þar sem Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fékk gull á tímanum 24,26 sekúndum og Tiana Ósk Whitworth fékk silfur á 24,52 sekúndum. Þá fékk kvenna- sveit Íslands í 4x400 metra hlaupi gullverðlaun, en tími sveitarinnar var 3:49,42 mínútur. Ísak Óli Traustason fékk silfur í 110 metra grindahlaupi þegar hann hljóp á 14,85 sekúndum og þá fékk Ívar Kristinn Jasonarson silfur í 200 metra hlaupi á 21,90 sekúndum. Kvennasveit Íslands í 4x100 metra hlaupi fékk svo silfur á tímanum 45,96 sekúndum. Irma Gunnarsdóttir fékk brons í þrístökki, en hún stökk 12,09 metra. Þá fékk María Rún Gunnlaugsdóttir brons í 100 metra grindahlaupi á tímanum 14,65 sekúndum. Fjóla Signý Hannesdóttir var fjórða á 14,82 sekúndum. Kristín Karlsdóttir fékk brons í kringlukasti þegar hún kastaði 49,77 metra og Arnar Pét- ursson fékk brons í 10.000 metra hlaupi þegar hann hljóp á 31:01,54 mínútum. Báðar boðshlaupssveitir Íslands í karlaflokki fengu svo brons. Í 4x100 metra hlaupi á tím- anum 42,54 sekúndum og í 4x400 metra hlaupi á 3:18,45 sekúndum. Verðlaun í körfu kvenna Ljóst er að kvennalandsliðið í körfuknattleik fer heim með verð- laun eftir stórsigur á Mónakó í gær, 91:59. Allir leikmenn Íslands komust á blað í leiknum, en Embla Krist- ínardóttir var stigahæst með 14 stig. Ísland er í öðru sæti keppninnar og hefur aðeins tapað fyrir toppliði Svartfjallalands. Ísland mætir botn- liði Kýpur í lokaleiknum í dag og sig- ur tryggir liðinu silfurverðlaun. Lúx- emborg og Malta eigast við en Ísland hefur unnið báðar þær þjóðir og getur því ekki endað neðar en í þriðja sæti sama hvernig fer gegn Kýpur. Misjafnt gengi í blaki Kvennalandsliðið í blaki vann sinn þriðja sigur í röð þegar liðið hafði betur gegn Liechtenstein, 3:0. Hulda Elma Eysteinsdóttir var stigahæst með ellefu stig, en eftir tap fyrir Kýpur í fyrsta leik er íslenska liðið búið að vinna San Marínó, Lúx- emborg og nú Liechtenstein. Liðið mætir heimakonum í dag og er þeg- ar öruggt með bronsverðlaun. Verr hefur hins vegar gengið hjá karlalandsliðinu í blaki, sem hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum til þessa. Í gær tapaði liðið fyrir Móna- kó, 3:1, þar sem Alexander Arnar Þórisson var stigahæstur með 13 stig. Ísland mætir Kýpur í dag en þegar er ljóst að liðið endar neðst. yrkill@mbl.is Frjálsíþróttafólk áfram sigursælt  Fleiri verðlaun en á síðustu leikum Morgunblaðið/Hari Gull Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var sigursæl á Smáþjóðaleikunum. Þór/KA og Valur áttu ekki í nein- um vandræðum með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum bik- arkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, en bæði lið skor- uðu sjö mörk í leikjum sínum í gær. Valur vann ÍBV í úrvalsdeildarslag í Eyjum 7:1 en Þór/KA vann 2. deildarlið Völsungs 7:0. Þá komst ÍA einnig áfram í keppninni eftir 3:2-sigur á Þrótti R. í 1. deildarslag. Valskonur voru 3:0 yfir í hálfleik í Eyjum þar sem Margrét Lára Við- arsdóttir skoraði tvö, eins og Guð- rún Karítas Sigurðardóttir gerði eftir að hafa komið af bekknum eft- ir hlé. Það var ekki fyrr en í upp- bótartíma sem Cloé Lacasse minnk- aði muninn fyrir ÍBV en það voru þó litlar sárabætur. Á Akureyri opnaði Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir markareikning sinn fyrir Þór/KA með tveimur mörkum gegn Völsungi, en áhyggjuefni er fyrir liðið að Stephany Mayor fór meidd af velli í fyrri hálfleik. Á Skaganum kom Lauren Wade Þrótti í 2:0, en ÍA svaraði með þremur mörkum og fór áfram í næstu umferð. yrkill@mbl.is Skoruðu bæði sjö mörk Morgunblaðið/Hari Bikar Margrét Lára Viðarsdóttir og Valur skoruðu sjö eins og Þór/KA. Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í gær kynntur sem nýr leikmaður KV Oostende í Belgíu þar sem hann skrifaði undir tveggja ára samning. Ari Freyr kemur frá Lokeren sem féll úr efstu deild þar í landi í vor. KV Oostende hafnaði í 14. sæti í deildinni á síðasta tímabili og var sjö stigum fyrir ofan Lokeren. Ari Freyr var hjá Lokeren í þrjú tímabil, en lék áður í Svíþjóð og í Danmörku. Hann á að baki 64 lands- leiki fyrir Ísland og er í hópnum sem mætir Albaníu og Tyrklandi síðar í mánuðinum. Ari Freyr á nýjar slóðir í Belgíu Toppliðin í 1. deild karla í knatt- spyrnu, Inkasso-deildinni, töpuðu bæði leikjum sínum nokkuð óvænt í 5. umferð deildarinnar sem hófst í gærkvöld. Keflavík tapaði þá á heimavelli fyrir Gróttu, 2:1, á með- an Víkingur Ó. tapaði á útivelli fyr- ir Leikni R., 2:0. Þau voru bæði tap- laus fyrir umferðina en halda engu að síður toppsætunum, bæði með 10 stig, en Fjölnir getur skotist á topp- inn með sigri á Njarðvík í dag. Grótta komst yfir í Keflavík með marki Sigurvins Reynissonar, en Elton Livramento jafnaði fyrir hlé. Það var svo Alex Freyr Harðarson sem skoraði sigurmark Gróttu, 2:1, en Ingimundur Aron Guðnason í liði Keflavíkur fékk rautt spjald í uppbótartíma auk þess sem liðið klúðraði víti undir lokin. Á Leiknisvelli var markalaust í fyrri hálfleik áður en Sólon Breki Leifsson og Ígnacio Heras skoruðu tvö mörk gegn Ólafsvíkingum eftir hlé og skutu Leikni með því upp í fjórða sæti deildarinnar, aðeins stigi frá toppliðunum. Í þriðja leik gærkvöldsins vann Fram svo 3:1-sigur á Aftureldingu og eru Framarar með átta stig en Mosfellingar þrjú í fallsæti. Morgunblaðið/Hari Heimasigur Leiknismenn og Ólafsvíkingar berjast í Breiðholti í gærkvöld. Toppliðin tvö töpuðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.