Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
ið gefið út á pappír í handhægu
broti.
Eykur gildi Heiðmerkur
„Að vísa veginn með þessum
hætti eykur gildi Heiðmerkur sem
útivistarsvæðis og skapar meira
öryggi hér á svæðinu,“ segir
Helgi. Gerð og uppsetning veg-
vísanna, fræðsluskilta og annars í
þessu verkefni kostaði samtals
22,5 milljónir króna. Þann kostnað
greiddu Orkuveita Reykjavíkur og
Reykjavíkurborg 8,5 milljónir
króna hvor og svo Garðabær 6,5
milljónir króna en Heiðmörkin er í
landi þessara tveggja sveitarfé-
laga.
sjálfir farnir að villast í skóginum
sáum við að gera þyrfti úrbætur,“
segir Helgi Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur, í samtali við
Morgunblaðið.
Félagið réði Kimmo Virtanen,
finnskan hagleiksmann, til þess að
yfirfara stígakerfið og gera af því
kort sem nú hefur verið gefið út.
Með kortið til hliðsjónar ákvað
Kimmo hvar setja ætti niður skilti
með merkingum sem greyptar eru
í góðvið úr Heiðmerkurskógi.
Byrjað var að setja merkingar
þessar upp síðasta haust og verk-
inu lokið nú á vordögum. Jafn-
framt þessu hefur kortið góða ver-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ný merkt gönguleið í Heiðmörk,
svonefndur Hlíðarhringur sem er
10 kílómetra langur, var opnuð nú
fyrr í vikunni. Leið þessi er ofan
við Vífilsstaðahlíð, sem er syðst í
skógræktarsvæðinu og í landi
Garðabæjar. Með þessu verður
göngustíganetið í Heiðmörk alls
um 60 kílómetrar; þar af eru
margar leiðir um fjölbreytt og víð-
feðmt skóglendi.
100 vegvísar
með nöfnum staða
Opnun Hlíðarhringsins í gær
var lokaáfanginn í stóru verkefni
sem fólst í því að setja upp skilti
og skýrar merkingar á
Heiðmerkursvæðinu. Settir voru
út alls 100 vegvísar með nöfnum
staða og 43 fræðsluskilti gerð um
gróður og fugla. Jafnframt voru
útbúin 60 skilti með nýjum kortum
af allri Heiðmörk og mismunandi
hlutum af henni svo og 111 skilti
með hnitum eða táknum sem aftur
eru í gagnagrunni Neyðarlínunnar.
Getur fólk sem er á ferðinni um
skógarstígana og þarf jafnframt á
aðstoð að halda gefið upp táknin á
skiltinu – sem auðveldar sjúkra-
flutningafólki, lögreglu og öðrum
að finna viðkomandi, svo sem á
Norðanmannahring, í Strípis-
hrauni eða Hjalladal svo nokkrir
staðir séu nefndir.
„Þegar var svo komið að skóg-
ræktarmenn sem hér starfa voru
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skógarmenn Frá vinstri talið: Kimmo Virtanen skiltagerðarmaður, Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur, og Jóhannes Benediktsson formaður, þegar nýja skiltakerfið í Heiðmörk var kynnt.
Heiðmörkin á kortið
Ný leið við Vífilsstaðahlíðina opnuð 60 kílómetra langt
stígakerfi um fallegt svæði Skilti og skýrar merkingar
Vorkvöld Náttúran á Heiðmerkursvæðinu er fjölbreytt og möguleikar til
útivistar eru margir. Að renna fyrir fisk í Helluvatni heillar marga.
Tveir íslenskir karlmenn hafa verið
dæmdir til fangelsisvistar í Melbo-
urne í Ástralíu fyrir stórfellt fíkni-
efnasmygl.
Brynjar Guðmundsson, 26 ára,
var dæmdur í átta ára og þriggja
mánaða fangelsi og Helgi Steinars-
son, 31 árs, var dæmdur í sex ára
og þriggja mánaða fangelsi. Báðir
játuðu sök en þeir hafa setið í fang-
elsi frá því þeir voru handteknir í
nóvember sl.
Brynjar var handtekinn á flug-
vellinum Melbourne eftir að toll-
gæslan fann 2,1 kg af kókaíni falið í
ferðatösku hans. Götuvirði fíkni-
efnanna er 1,68 milljónir ástralskra
dala, sem svarar til tæplega 145
milljóna íslenskra króna.
Rannsókn leiddi í ljós að Helgi
hafði komið til landsins nokkrum
dögum fyrr og voru ferðabókanir
þeirra nánast samhljóða. Helgi var
handtekinn á hóteli í borginni þar
sem fundust 1,5 kg af hreinu kók-
aíni sem er metið á 1,2 milljónir
ástralskra dala, sem svarar til um
103 milljóna króna.
Ástralskir fjölmiðlar segja að
mennirnir hafi ekki þekkst en báðir
samþykkt að vera burðardýr fyrir
sama glæpahóp gegn því að fíkni-
efnaskuldir þeirra yrðu þurrkaðar
út. Fram kom við réttarhöldin að
Helgi skuldaði fíkniefnasölum á
milli 9 og 10 þúsund dali og Brynjar
20 þúsund dali.
Þegar dómurinn var kveðinn upp
sagði dómarinn, að það hefði haft
áhrif til refsilækkunar að menn-
irnir eiga báðir við geðræn veikindi
að stríða sem gæti gert þeim erf-
iðara en annars væri að þola fang-
elsisvist.
Dæmdir
í fangelsi
í Ástralíu
BUXUR
Fylgið okkur á FB
Skipholti 29b • S. 551 4422
frá 9.900,-
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný sending
frá YOEK
Stærðir 38-52
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 4.990
Str. S-XXL
Fleiri litir
Toppar
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Stjórnarfrumvarpi Svandísar Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra um
breytingar á lögum um ávana- og
fíkniefni vegna fyrirhugaðra neyslu-
rýma fyrir fíkniefnaneytendur,
verður að öllum líkindum beint aft-
ur til heilbrigðisráðuneytisins.
Þetta segir Halldóra Mogensen,
formaður velferðarnefndar Alþing-
is. Hún segir nefndarálit ekki hafa
verið afgreitt en líklegasta niður-
staðan sé frávísunartillaga og frum-
varpinu þar með vísað aftur til heil-
brigðisráðuneytisins.
Í umsögn dómsmálaráðuneytisins
við frumvarpið kemur fram að ekki
hafi verið hlustað nægjanlega á
ábendingar lögreglu og ráðuneyt-
isins um að lögreglu sé ekki heimilt
að semja um refsilaus svæði og að
varhugavert væri að veita almennt
slíka heimild til samninga um refsi-
leysi. Í umsögn dómsmálaráðuneyt-
isins kemur einnig fram að æskilegt
sé að breyta ákvæðum laga um áv-
ana- og fíkniefni, um vörslu fíkni-
efna og það komi skýrt fram, sé
vilji til þess í lögum, að öllum
starfsmönnum neyslurýmis en ekki
einungis heilbrigðisstarfsmönnum
verði tryggt refsileysi í neyslurými.
Vilji fyrir neyslurýmum
,,Það er augljóst af minnisblaði
dómsmálaráðuneytisins að það er
vilji ráðuneytisins að neyslurými
verði að veruleika. Það er einnig
samstaða um það í velferðarnefnd.
Þess vegna er nauðsynlegt að ráðu-
neytin vinni vel saman að farsælli
lausn á málinu,“ segir Halldóra
sem segist þess fullviss að nýtt
frumvarp um neyslurými verði lagt
fram strax og þing kemur saman í
haust.
Líklegt að frumvarpi um
neyslurými verði vísað frá nefnd
Fíkn Lög um neyslurými í bígerð.