Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Héðinn Steingrímssonstendur með pálmann íhöndunum þegar loka-umferð Opna Íslands- mótsins fer fram í dag í Hofi á Ak- ureyri. Héðinn hefur ½ vinnings forskot á helstu keppinauta sína sem eru Hannes Hlífar Stefánsson, Guð- mundur Kjartansson og Jón Viktor Gunnarsson. Staðan fyrir lokaumferðina er þessi: 1.-2. Ivan Sokolov og Héðinn Steingrímsson 6 ½ v. ( af 9 ) 3.- 6. Hannes Hlífar Stefánsson, Guð- mundur Kjartansson, Jón Viktor Gunnarsson og Tiger Hillarp Pers- son 6 v. 7. – 10. Bragi Þorfinnsson, Mikhael Jóhann Karlsson, Stefán Bergsson og Justin Sarkar 5 ½ v. Í lokaumferðinni hefur Héðinn hvítt gegn Svíanum Tiger Hillarp Persson, Guðmundur hefur hvítt gegn Ivan Sokolov, og Hannes Hlíf- ar hefur hvítt gegn Jóni Viktor Gunnarsson. Héðinn getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Ef ekki, þá standa líkur til þess að stigaútreikningur muni ráða því hver verður Skákmeistari Íslands 2019. Stigaútreikningur hefur aldrei haft slíkt vægi í meira en 100 ára sögu Íslandsmótsins. Opna Íslandsmótið er haldið nyrðra í tilefni 100 ára afmælis Skákfélags Akureyrar og hefur framkvæmdin öll tekist með miklum ágætum og aðstæður góðar í Hofi. Mótið er haldið með því óvenjulega sniði að það er öllum opið, líka er- lendum skákmönnum. Þeir fremstu eru gamlir vinir okkar, Ivan Sokolov og Tiger Hillarp Persson. Ivan Sokolov hóf mótið með því að vinna sex fyrstu skákir sínar en tefldi síðan ótrúlega illa gegn Héðni í 7. umferð og tapaði. Hann gerði stutt jafntefli við Hannes Hlífar í gær. Guðmundur Kjartansson og Héðinn tefldu langa og magnaða baráttuskák í gær sem lauk með jafntefli eftir 79 leiki. Það hallaði á Héðin um tíma en undir lokin þurfti Guðmundur að tefla nákvæma vörn til að halda jöfnu. Keppendur eru 59 talsins og margir hafa verið að ná góðum ár- angri og mikið um óvænt úrslit. Guðmundur Gíslason hefur t.a.m. unnið bæði Héðin og Helga Áss. Akureyringarnir Mikhael Jóhann Karlsson og Stefán Bergsson hafa staðið sig vel, einkum sá fyrrnefndi sem hefur lítið teflt undanfarið. Benedikt Briem hefur hækkað mest allra, um 82 elo-stig. Íslandsmeistarinn, Helgi Áss Grétarsson, hefur ekki náð sér á strik að þessu sinni en í 3. umferð fékk hann stöðu sem sjaldan kemur upp, en þar var hann með kóng og tvo riddara gegn kóngi og peði. Það er ein af duttlungum skákgyðj- unnar að sé peðinu ekki til að dreifa, þá er staðan fræðilegt jafn- tefli, en með því að skorða peðið og setja kónginn í pattstöðu má hleypa peðinu af stað. Ef ég man rétt er hægt að vinna ef t.d. svart peð á a4, b6, c5, d4, e4, f5, g6 eða h4 er skorð- að með riddara. Vegna 50 leikja reglunnar, sem ógnar alltaf þeim sem reynir að vinna, virtist Helgi ekki ætla að klára dæmið t.d. þegar hann upp úr þurru skákaði með riddaranum sem skorðaði e5-peðið. Jóhann hefði getað þvælst betur fyrir en átti aðeins 19 leiki eftir til að geta krafist jafnteflis. Þá kom þessi staða upp: Opna Íslandsmótið 2019; 3. um- ferð: Helgi Áss Grétarsson – Jóhann Ragnarsson 84. Ke8! Kg6 Ekki 84. ... Kg8 85. Rf5 Kh7 86. Kf7 o.s.frv. 85. Kf8 Kh5 86. Kg7 Rekið í réttirnar! 86. ... Kh4 87. Kg6 Kh3 88. Kg5 Kh2 89. Kg4 Kh1 90. Kh3 Kg1 91.Kg3 Kh1 92. Rf2+ Kg1 93. Rh3+ Kh1 94. Rg4 – og svartur gafst upp. Héðinn efstur á Íslandsmótinu – æsispennandi lokaumferð í dag Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Sigurður Arnarson Hörkubarátta Guðmundur Kjartansson og Héðinn Steingrímsson gerðu jafntefli í gær eftir 79 leiki . Nú, þegar sólin er komin hátt á loft og næturnar orðnar bjart- ar, fara flestir að huga að sumarfríi og ferða- lögum. Á ferðalögum leitast margir við að kanna nýjar og oft framandi slóðir. Það er mikilvægt að fólk hugi vel að verðmætum sín- um á slíkum ferðalög- um. Sumir ferðast eingöngu með far- símana en aðrir taka með sér fartölvur og spjaldtölvur. Á ferðalögum skiptir máli að hafa alla öryggisvalmöguleika tækjanna virkjaða. Þeir sem eiga Apple-tæki ættu að virkja „Find my“-þjónustu Apple sem virkar á bæði macOS- og iOS-tækjum. Þá geta eigendur tækj- anna farið inn á iCloud-síðu Apple og séð staðsetningu tækja sinna. Það sem er þó mikilvægara er að ekki er hægt að setja upp nýjan notanda á tækin. Það gerir tækin verðlaus fyrir þjófa sem ætla að reyna að nota þau eða selja. Þannig má vonandi minnka lík- urnar á þjófnaði. Sömu þjónustu má líka finna hjá Go- ogle, en Android-stýrikerfið er eign Google og ætti því að virka á öllum Android-tækjum. Í báðum þjónustum er hægt að fá tækin til að gefa frá sér hljóð, ef leita þarf að þeim og þau finn- ast ekki. Þetta hefur gefist vel, t.d. ef tæki er falið í sófa eða hirslu. Einnig er hægt að læsa tækjunum og birta á skjánum skilaboð frá eigandanum um hvert eigi að skila tækinu. Ef í hart fer er í boði að eyða öllu út af tækjunum og þannig koma í veg fyrir að þjóf- urinn komist í gögnin inni á tækinu. Í vetur birtist grein eftir Svönu Hel- en Björnsdóttur, vinnufélaga minn, um hættur sem tengjast „fríu“ int- erneti. Þetta á við enn í dag og með nú- verandi lögum um reikifarsíma hvet ég eindregið til þess að lesendur noti frekar nettengingu símans til þess að tengjast netinu heldur en að tengjast þráðlausu og óöruggu neti sem kaffi- hús og veitingastaðir bjóða upp á. Óör- uggar tengingar eru það sem nafnið segir og því fara öll gögn um þau ódulkóðuð og getur óprúttinn aðili auðveldlega komið sér á milli notanda og net- tengingar og hlustað á öll samskipti sem eru þar send á milli ódul- kóðuð. Svo er umgengni um samfélagsmiðla einnig mikilvæg. Margir deila myndum frá sólar- strönd með svellkaldan og svalandi drykk um hönd. Miðað við sumarið á síðasta ári þá var það mjög skiljanlegt. En fólk verður að hafa varann á og velja þann hóp sem það deilir myndunum sínum með. Óprúttnir aðilar geta auðveld- lega séð að enginn er heima og því greið leið til þess að hreinsa út af heimilinu verðmæta hluti í ró og næði. Á Facebook má velja hver sér póstana sem settir eru þar inn og einnig má læsa síðum eins og In- stagram og takmarka þannig aðgang að aðeins útvaldir vinir sjái myndir og skilaboð. Auðvitað má svo alltaf henda inn myndunum þegar komið er heim og vekja smá öfund hjá vinum og vandamönnum. Að lokum hvet ég lesendur til að fara varlega í sumarfríinu, skilja ekki við verðmæt tækin á almannafæri og tengjast ekki óöruggum þráðlausum netum. Nota frekar símann sem net- beini en einnig að njóta frísins án þess að vera með nefið stöðugt í tækj- unum. Þessi pistill er sá síðasti í röð pistla sem ég hef skrifað hér í vetur. Ég óska lesendum gleðilegs sumars. Förum varlega í sumarfríinu Eftir Aron Friðrik Georgsson » Óprúttnir aðilar geta auðveldlega séð að enginn er heima og því greið leið til þess að hreinsa út af heimilinu verðmæta hluti í ró og næði. Aron Friðrik Georgsson Höfundur er viðskiptafræðingur og ráðgjafi í upplýsingaöryggismálum hjá Stika ehf. aron@stiki.eu Upplýsingaöryggi Kristleifur Jónsson fæddist 2. júní 1919 á Varmalæk í Andakíl í Borgarfirði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru hjónin Jón Jakobsson og Kristín Jónatans- dóttir. Kristleifur lauk prófi í Sam- vinnuskólanum 1940, en auk þess lauk hann prófi frá Bar- Lock Institutet í Stokkhólmi 1947, og lagði stund á ensku- nám, nám í verslunarfræðum og bókhaldi í London sumarið 1947. Kristleifur var gjaldkeri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga 1940- 45 en hóf störf hjá SÍS um ára- mótin 1947-48 þegar hann kom heim úr námi. Hann var for- stöðumaður kaupfélagseftirlits SÍS 1948-52, gerðist aðalféhirðir SÍS 1953-67 og jafnframt kenn- ari í bókhaldi við framhaldsdeild Samvinnuskólans um nokkurra ára skeið. Hann var bankastjóri Samvinnubankans frá 1968 til 1984. Hafði hann þá starfað óslitið fyrir samvinnuhreyf- inguna í 44 ár. Eiginkona Kristleifs er Auð- ur Jónsdóttir, f. 1926. Þau bjuggu á Flötunum í Garðabæ og eitt helsta tómstundastarf Kristleifs var ræktun blóma og vinna í garðinum Auður er núna bús. í Borgarnesi, en þau eign- uðust þrjú börn. Kristleifur lést 2.2. 1986. Merkir Íslendingar Kristleifur Jónsson Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI bragðgott – hollt – næringarríkt – fyrir dýrin þín Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.