Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Eyrún Ingadóttir
Suður-Kórea býður gestum sínum upp á framúrskarandi
úrval upplifana! Blanda af ævagamalli menningu og
nútímavæddu hátæknisamfélagi, stórbrotinni náttúru og
einstakri gestrisni þjóðar sem á sér 5000 ára sögu. Við
heimsækjum Seúl þar sem við skoðum Gyeongbokgung
höllina og kóreska þorpið Bukchon Hanok sem á sér um
600 ára sögu. Þá verður farið til borgarinnar Gyeongju á
suðausturströndinni sem oft er nefnd safnið án veggja.
6. - 19. október
Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Allir velkomnir á kynningarfund 3. júní kl. 18:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Suður-Kórea
„Keppnisbrautin lítur út fyrir að
verða nokkuð krefjandi. Eigi að
síður er tilhlökkunarefni að taka
þátt í mótinu þar sem við Íslend-
ingarnir keppum við þá bestu í
greininni,“ segir Melkorka Árný
Kvaran. Hún er í hópi átta Íslend-
inga sem nú í vikunni fara til
Portúgals og taka þátt í heims-
meistaramótinu í utanvegahlaupum
sem fram fer 8. júní í Miranda do
Corvo í Portúgal. Mótið er haldið
af samtökum utanvegahlaupara
(ITRA) samtökum ofurhlaupara
(IAU) og alþjóðlega frjálsíþrótta-
sambandinu (IAAF).
Iðkendum fjölgar
Utanvegahlaup eru hvarvetna í
mikilli sókn og iðkendum fjölgar,
ekki síst á Íslandi. „Árangur und-
anfarin ár sýnir að Íslendingar
hafa á að skipa mjög öflugum
hlaupurum sem geta veitt þeim
allra bestu í heimi verðuga keppni.
Þetta er íþrótt sem hentar mér af-
ar vel. Mér finnst frábært að vera
úti í náttúrunni, ekki síst á fal-
legum vordögum eins og núna.
Svona hlaup eru frábær hugleiðsla
og núvitund,“ segir Melkorka.
Keppnin í Portúgal er bæði ein-
staklings- og landsliðskeppni; þátt-
takendur verða um 450 og frá 55
þjóðum. Keppendur Íslands eru
Ingvar Hjartarson, Sigurjón Ernir
Sturluson, Þorbergur Ingi Jónsson,
Örvar Steingrímsson og í kvenna-
flokki Anna Berglind Pálmadóttir,
Melkorka Árný Kvaran, Rannveig
Oddsdóttir og Þórdís Jóna Hrafn-
kelsdóttir. Liðsstjóri verður Frið-
leifur Friðleifsson. Hlauparar í
landsliðið eru valdir út frá al-
þjóðlegu stigakerfi ITRA en árang-
ur þeirra í hinum ýmsu ut-
anvegahlaupum á undanförnum
árum ákvarðar stigafjölda hvers og
eins. Þeir hlauparar sem hafa flest
stigin mynda landsliðið hverju
sinni. Hlaupið í Portúgal er 44 kíló-
metra langt með 2.200 metra
hækkun.
Á Hvannadalshnúk
„Þetta er eins og að hlaupa af
jafnsléttu á Hvannadalshnúk, en
það eru um 2.100 metrar. Við þess-
ar brekkur bætist að leiðin er
tæknilega erfið. Þá má reikna með
að hitastigið verði að minnsta kosti
tuttugu gráður en íslensku hlaup-
ararnir eru tilbúnir og við mörg
vön krefjandi aðstæðum,“ segir
Melkora sem hefur æft fyrir
keppni þessa síðan í janúar sl. Hún
telur að konur ættu að komast í
gegnum keppnisbrautina á fimm til
sex klukkustundum en karlarnir
þurfi væntanlega klukkutímanum
minna. sbs@mbl.is
Krefjandi keppnisbraut
Hlauparar Sigurjón Ernir Sturluson, Friðleifur Friðleifsson liðsstjóri, Mel-
korka Árný Kvaran, Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir og Örvar Steingrímsson.
Stefna á heims-
meistaramót í ut-
anvegahlaupum
Vestmannaeyjar hafa stundum verið
nefndar „Kaprí norðursins“ með vís-
an í sjávarhellana þar sem vinsælt er
að heimsækja í skoðunarferðum.
Náttúrufegurð er mikil í Vest-
mannaeyjum og þegar Einar Bene-
diktsson, skáld og sýslumaður,
horfði út í Eyjar orti hann:
Sem safírar greyptir í silfurhring
um suðurátt hálfa ná Eyjarnar kring.
Gervitungl átti leið yfir landið í
heiðríkjunni í fyrradag og tók með-
fylgjandi mynd af Vestmannaeyjum
og suðurströndinni. Greinilega sést
hvar Markarfljót streymir út í Atl-
antshafið og leggur framburðinn úr
fljótinu vestur með landinu þar sem
Landeyjahöfn er. Eins og áður hefur
komið fram hafa ýmsir talið að fram-
burður fljótsins eigi að hluta sök á
sandburði í höfnina.
200.000 rúmmetrar af sandi
Björgun hefur fjarlægt tæplega
200.000 rúmmetra af sandi úr Land-
eyjahöfn og af rifinu þar fyrir fram-
an frá því að vordýpkun hófst í byrj-
un mars, að sögn Lárusar Dags
Pálssonar, framkvæmdastjóra. Það
samsvarar farmi rúmlega 13.000
malarflutningabíla sem flytja 15 m3 í
ferð.
Lárus sagði að dýpkunin væri nú
á lokametrunum. Gerð var dýpt-
armæling fyrir viku síðan og hefur
verið unnið eftir henni undanfarið.
Nánast eingöngu er eftir að dýpka
innan hafnarinnar. Dísa var við
dýpkun í gær en þurfti að hætta
vegna þess að veðrið versnaði svo
ekki var næði til að vinna. Áhöfnin
fær frí um sjómannadagshelgina
eins og aðrir sjómenn og því verður
gert hlé á dýpkunarstörfum.
Lárus sagði að sterkir straumar
lægju oft á tíðum með landinu við
hafnarmynnið og það gerði dýpk-
unina erfið. „Straumurinn getur ver-
ið gríðarlega öflugur. Þetta eru eng-
ar venjulegar aðstæður,“ sagði
Lárus. „Starfsmenn Björgunar hafa
staðið sig frábærlega, oft við mjög
erfiðar aðstæður nú í vor.“
Ófært var í Landeyjahöfn síðdegis
í gær og varð Herjólfur að snúa frá
höfninni. Ferð Herjólfs frá Vest-
mannaeyjum klukkan 19.30 var
frestað og síðan felld niður vegna
ölduhæðar. gudni@mbl.isGervihnattamynd/Eldfjallafræði
„Safírar greyptir
í silfurhring“
Tæplega 200.000 m3 dælt í vor
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Talsverð hreyfing hefur orðið á
starfsfólki fjármálastofnana síð-
ustu misserin. Fimm manns var
sagt upp hjá Borgun um síðustu
mánaðamót, að sögn Sæmundar
Sæmundssonar, forstjóra fyrir-
tækisins.
„Við erum að bregðast við
breyttum rekstrarforsendum. Við
fórum í aðgerðir í byrjun árs af
svipuðum toga og það er hækkandi
kostnaður og meiri samkeppni sem
skýrir þetta.“
Fólki var sagt upp þvert á mis-
munandi svið fyrirtækisins. Borg-
un, eins og fleiri fyrirtæki á fjár-
málamarkaði, hélt að sér höndum í
ráðningum fyrir sumarið þó ein-
hverjir sumarstarfsmenn hafi ver-
ið fengnir til starfa.
Stöðugildum fækkar um 76
Níu manns var sagt upp í Arion
banka í síðustu viku og 16 manns
hjá Íslandsbanka.
Í Landsbankanum hafa engar
stórar uppsagnir verið fram-
kvæmdar síðastliðinn mánuð, sam-
kvæmt upplýsingum frá bankan-
um. Þó hefur stöðugildum hjá
samstæðu Landsbankans fækkað
um 76 frá lokum marsmánaðar síð-
asta árs. Einnig þykir minni þörf á
að ráða inn fólk til sumarafleys-
inga nú en áður, samkvæmt upp-
lýsingum frá bankanum og er það í
samræmi við hagræðingu í banka-
kerfinu.
Í Kviku banka hafa engar stórar
uppsagnir verið á síðustu miss-
erum og segir forstjóri Kviku,
Marinó Örn Tryggvason, að bank-
inn finni ekki fyrir þrengingum.
„Eins og sést í uppgjörinu okkar
þá gengur reksturinn vel. Við skil-
uðum bestu afkomu sem við höfum
skilað í fyrsta ársfjórðungi.“
Krónutöluhækkun hjá SSF
Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja, SSF,
sagði í viðtali við mbl.is í vikunni
að fólk sem starfaði í fjármálageir-
anum óttaðist uppsagnir. „Fólk
hefur miklar áhyggjur og það er
ekkert leyndarmál að sumir okkar
félagsmanna segja að þeir taki
mjög vel til á borðinu sínu fyrir
hver mánaðamót vegna þess að
þeir vita ekki hver er næstur. Það
er hræðileg staða,“ sagði Friðbert.
SSF og Samtök atvinnulífsins
skrifuðu í gær undir nýjan kjara-
samning. Í þeim felst m.a. krónu-
töluhækkun launa, orlofs- og des-
emberuppbótar.
Tugir missa vinnuna á fjármálamarkaði
Borgun sagði fimm manns upp Þrjátíu uppsagnir í liðnum mánuði Fækkun hjá Landsbanka