Morgunblaðið - 01.06.2019, Side 23

Morgunblaðið - 01.06.2019, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is Einstaklega vel hannaðar íbúðir með yfirbyggðum þaksvölum sem eykur notagildi og nýtur sólar frá morgni til sólarlags að kvöldi. Tvö baðherbergi eru í öllum íbúðum og allar þriggja herbergja með mismunandi skipulagi. Sérstæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð. GRANDAVEGUR 42 A, B OG C F A S T E I G N A S A L A N MIKLABORG Segir báða tapa á tollum  Forseti Mexíkó mótmælir fyrirhugaðri tollahækkun Bandaríkjastjórnar framt á að ríki sitt væri um þessar mundir helsta viðskiptaþjóð Banda- ríkjanna, og að því myndu tollarnir einnig hafa neikvæð áhrif á banda- rískt efnahagslíf. Sagðist hann jafn- framt ætla að krefjast þess að við- ræður yrðu hafnar á milli ríkjanna vegna málsins, en utanríkisráðherra Mexíkó hélt þegar í stað til Wash- ington ásamt sendinefnd til þess að bregðast við tollunum. Snýst einnig um vímuefni Trump svaraði Obrador fullum hálsi á Twitter. Í máli hans kom fram að hann teldi tollunum einnig beint að flæði vímuefna yfir landamærin, og sagði Trump að um 90% af þeim fíkniefnum sem flutt væru til Banda- ríkjanna kæmu að sunnan. Viðbrögð á Bandaríkjaþingi við yf- irlýsingum forsetans voru blendin. Repúblikaninn Chuck Grassly, sem er formaður fjárlaganefndar öld- ungadeildarinnar, varaði við því að tollarnir gætu stefnt nýjum fríversl- unarsamningi milli Mexíkó, Banda- ríkjanna og Kanada í hættu. Obra- dor sagði þó að land sitt hygðist staðfesta samkomulagið. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Andres Manuel Lopez Obrador, for- seti Mexíkó, gagnrýndi Donald Trump Bandaríkjaforseta og ríkis- stjórn hans harðlega í gær, eftir að Trump hafði tilkynnt á fimmtudags- kvöld að hann hygðist leggja á tolla, sem næmu allt að 25% á allar vörur frá Mexíkó. Sagði Trump meðal ann- ars á samfélagsmiðlinum Twitter að Mexíkóar hefðu haft of mikinn ávinning af viðskiptum sínum við Bandaríkin um áratugaskeið og að tollarnir myndu vera í gildi þar til búið væri að laga það vandamál sem fælist í straumi ólöglegra innflytj- enda yfir landamæri ríkjanna. Þá gerði Trump ráð fyrir að toll- arnir tækju gildi 10. júní næstkom- andi, og vera þá 5% á allar vörur frá Mexíkó. Svo færu þeir stighækkandi um 5% á mánuði alveg fram til októ- bermánaðar þegar tollarnir væru orðnir 25%. Lopez Obrador tók illa í þau áform, enda fer um 80% af öllum út- flutningi Mexíkóríkis norður til Bandaríkjanna. Benti hann jafn- Þúsundir Írana tóku þátt í fjölda- göngum víðsvegar um Íran í gær gegn friðartillögum Bandaríkja- stjórnar í átökunum fyrir botni Mið- jarðarhafs, en þá var síðasti föstudag- urinn í ramadan, helgimánuði múslima. Héldu mótmælendur á skiltum þar sem Jerúsalem var sögð höfuðborg Palestínu um aldur og ævi, auk þess sem fánar Ísraelsríkis og Bandaríkjanna voru brenndir. Sú hefð að tileinka síðasta föstudag ramadan-mánaðar Palestínumönnum og Jerúsalemborg hófst í tíð Kho- meinis erkiklerks, og hefur verið haldið áfram af valdhöfum í Íran síð- an. Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði í ræðu sinni í höfuðborginni Te- heran að friðartillögur Bandaríkj- anna, sem Donald Trump hefur kallað „samning aldarinnar“ yrði áreiðan- lega „gjaldþrot aldarinnar“. Tillögunum hafnað óséðum Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Trumps, er sagður eiga heið- urinn af tillögunum, en hann er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd til þess að kynna þær nokkrum þjóðarleið- togum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að tillögurnar verði opinberaðar í heild sinni á sérstakri ráðstefnu í Bahrain sem haldin verður dagana 25.-26. júní næstkomandi. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti í gær að staðið yrði við þá dagsetningu, þrátt fyrir að Benjamín Netanyahu, for- sætisráðherra Ísraels, hefði boðað til þingkosninga í fyrradag. Palestínumenn hafa þegar hafnað tillögunum, þar sem þeir segja fram- göngu Trumps á forsetastóli hafa sýnt að hann dragi taum Ísraela um of, en palestínska heimastjórnin sleit öllum samskiptum við Bandaríkin eft- ir að Trump viðurkenndi Jerúsalem sem höfuðborg Ísraelsríkis. Mótmæltu tillög- unum á götum úti  Kosningar hafi engin áhrif á ferlið AFP Mótmæli Íranskir mótmælendur tröðkuðu á fánum vestrænna ríkja. Suðurkóreska dagblaðið Chosun Ilbo hélt því fram í gær að Kim Jong-un, einræð- isherra Norður- Kóreu hefði látið taka Kim Hyok Chol, aðalsamn- ingamann sinn í kjarnorkudeil- unni við Banda- ríkin, af lífi ásamt fjórum öðrum samningamönnum eftir að leiðtoga- fundurinn með Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem haldinn var í Hanoi í febrúar síðastliðnum, fór út um þúfur Sagði í frásögn blaðsins, sem byggðist á nafnlausum heimildar- manni, að Kim Hyok Chol hefði ver- ið tekinn af lífi af aftökusveit fyrir að hafa „svikið leiðtoga sinn“ í aðdrag- anda fundarins. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Banda- ríkjastjórn væri að reyna að stað- festa að frásögn blaðsins væri rétt, en að ekkert meira væri vitað um málið að svo stöddu. Stjórnvöld í Suður-Kóreu neituðu að tjá sig um frétt blaðsins. Send í fangabúðir Þá var þýðandi Kim Jong-un, Shin Hye Yong, sögð hafa verið send í fangabúðir fyrir að hafa gert mistök á fundinum með Trump, sem hafi orðið til þess að Bandaríkjaforseti ákvað að slíta fundinum án sam- komulags. Sérfræðingar í málefnum Norður- Kóreu bentu hins vegar á að suð- urkóreska pressan hefur áður greint frá því þegar háttsettir embætt- ismenn í Norður-Kóreu hafi verið teknir af lífi fyrir misgjörðir sínar, en þær frásagnir hafa ekki alltaf reynst réttar. Það þykir þó grun- samlegt að Chol hefur ekki sést á al- mannafæri frá því að leiðtogafund- inum lauk. Sagðir hafa verið tekn- ir af lífi Kim Jong-un  Samningamenn hafa ekki sést Mótmælendur gengu um götur Algeirsborgar í gær með stóra fána og kröfðust þess að forseta- kosningum landsins, sem eiga að vera í júlí, yrði frestað þar til núverandi ráðamenn hefðu farið frá. Tveir mánuðir eru liðnir síðan Abdelaziz Bouteflika, hinn aldurhnigni forseti landsins, sagði af sér vegna mótmæla, en aðstandendur mótmælanna segja að helstu samverkamenn for- setans verði einnig að víkja. Halda uppi þrýstingi á alsírsk stjórnvöld AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.