Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 emmessis.is 60 ára Valdís ólst upp í Vesturbænum í Reykja- vík en býr í Kópavogi, og er nýflutt heim eftir níu ára búsetu erlend- is. Hún er hjúkrunar- fræðingur að mennt og starfar á Eir – endur- hæfingardeild. Maki: Hafliði Nielsen Skúlason, f. 1958, félagsfræðingur. Börn: Ásdís Rósa, f. 1991, og Mímir, f. 1993.Barnabörn: Hjörtur Benjamín, f. 2015, og Mímir Hrafn, f. 2018, Hjartar- synir. Foreldrar: Kristján Jónasson, f. 1937, d. 2011, gjaldkeri í Stálsmiðjunni, og Rósa Þorsteinsdóttir, f. 1939, d. 1971, hús- móðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Valdís Kristjánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur tilhneigingu til þess að hafa of miklar áhyggjur. Að sjálfsögðu átt þú ekki að taka vinnuna með þér heim. Komdu yfirmönnum þínum í skilning um það. 20. apríl - 20. maí  Naut Allt hefur sinn stað og stund og nú þarftu ekki annað en grípa tækifærið þeg- ar það gefst. Vertu á varðbergi því ekki eru allir viðhlæjendur vinir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ekki bregðast illa við, þótt sam- starfsmenn þínir hafi uppi efasemdir um verklag þitt. Láttu stundargróða ekki villa þér sýn, heldur leitaðu ráða þar sem þau eru gefin á faglegum grunni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Haft er á orði að kossar út í loftið séu sóun, en það er ekki rétt því þeir lenda alltaf einhvers staðar. Ástalífið blómstrar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fólk er jákvætt gagnvart þér og þú sýnir því vináttu á móti. Reyndu að standa meira á eigin fótum en þú hefur gert hing- að til. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst einhvern veginn eins og þú náir ekki til fólks og ættir því að endur- skoða með hvaða hætti þú talar til þess. Sýndu ástvinum hvers þú ert megnug/ur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Leggðu sérstaklega mikið á þig í verk- efnum sem tengjast heimilinu í dag. Ham- ingjan eltir þig á röndum og þú færð lík- lega einhvern vinning fljótlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Veltu því vandlega fyrir þér hvort nú sé rétti tíminn til að skipta um starfsvettvang. Vinur er sá er til vamms segir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Peningavandræði og ágrein- ingur við ástvin koma hugsanlega upp í dag. Reyndu að ferðast og eiga samskipti við fólk frá öðrum heimshlutum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú nærð hæfileika þínum upp á æðra svið. Einhver sendir þér skilaboð sem þú veist ekki hvernig þú átt að svara. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þegar þú getur ekki gert allt og verður að velja, verður það ekki erfitt.. Fjármál þín standa vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Í hönd fer tímabil mannfagnaða. Gakktu samt hægt um gleðinnar dyr, sem þér hættir til að gleyma í öllu fjörinu. Fjölskylda Eiginkona Ingólfs er Erna Fríða Berg, f. 2.9. 1938, fyrrverandi skrif- stofustjóri á Sólvangi í Hafnarfirði. Foreldrar hennar voru Sigurrós Sveinsdóttir, f. 13.9. 1897, d. 13.5. 1991, formaður Verkakvennafélags- ins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, og meistarabréf fyrir Sýslumanninn og Lögreglustjórann í Reykjavík, eða þar til hann varð 88 ára. Ingólfur hefur fylgst vel með tækniþróun og er í daglegum tölvu- samskiptum við vini og ættingja víða um heim, auk þess sem hann hannar og prentar tækifæriskort fyrir vini og fjölskyldu. I ngólfur Páll Steinsson fædd- ist 1. júní 1924 í Vest- mannaeyjum en ólst upp í Reykjavík frá 5 ára aldri. Hann var yngstur tíu systkina. Ingólfur lauk prófi frá Iðnskól- anum í Reykjavík og sveinsprófi í prentiðn við Félagsprentsmiðjuna 1944 þar sem hann lærði meðal ann- ars setningu í blý. Hann stundaði framhaldsnám í prentiðn við Uni- versity of Kansas 1947 og vann þar við útgáfu skólablaðsins. Ingólfur öðlaðist meistararéttindi í prent- setningu 1953. Á yngri árum keppti Ingólfur í frjálsum íþróttum, knattspyrnu, handbolta og körfubolta. Hann sat í stjórn ÍR um skeið og var formaður frjálsíþróttadeildar ÍR. Ingólfur var fréttaritari Vísis á EM 1946. Hann var stofnandi Körfuboltadeildar ÍR 1949 og fyrsti formaður. Ingólfur sat í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands og Íþróttaráðs Reykjavíkur, í undirbúningsnefnd fyrstu lands- keppni í frjálsum íþróttum hér á landi 1948 gegn Noregi, og var fararstjóri frjálsíþróttamanna til Skotlands og Írlands 1949, til Brussel og Óslóar 1950 og til Berlínar og Kaupmannahafnar 1951. Ingólfur var fulltrúi Íslands á þingi Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandsins í Brussel 1950. Ingólf- ur er í dag í Félagi íþróttavina á Íslandi. Hann sat í fyrstu stjórn Íslendingafélagsins í Washington DC og í stjórn Íslensk-ameríska félagsins. Ingólfur starfaði í Bandaríkj- unum á árunum 1961-1974. Hann var verkstjóri í prentsetningu við dagblaðið Washington Post og síðar yfirmaður grafík- og prenthönn- unardeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins (IMF) í Washington D.C. Meðan á dvölinni í Bandaríkjunum stóð sótti hann fjölda námskeiða í prent- iðn, auglýsingagerð og stjórnun. Eftir heimkomu til Íslands var Ingólfur framkvæmdastjóri Alþýðu- blaðsins til 1976, auglýsingastjóri hjá DB til 1981 og auglýsingastjóri hjá DV til 1994. Ingólfur lærði skrautskrift og útbjó lengi vel Björn Jóhannesson f. 28.3. 1895, d. 22.11. 1964, hafnargjaldkeri í Hafn- arfirði og forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Fyrri eiginkona Ingólfs er Sólveig Pálmadóttir, f. 25.2. 1929, fyrrverandi skrifstofu- stjóri á geðdeild Landspítala. Börn Ingólfs: 1) Dóttir Ingólfs og Jóhönnu Magnúsdóttur, f. 20.7. 1927, d. 7.2. 2013, er Þórunn, f. 27.8. 1947, framkvæmdastjóri Íslands- funda ehf. Börn Ingólfs með Sól- veigu eru tvö: 2) Kristín, f. 14.2.1954, lyfjafræðingur og fyrr- verandi rektor HÍ, gift Einari Sig- urðssyni f. 30.6. 1955, fram- kvæmdastjóra. 3) Pálmi f. 28.10. 1958, fyrrverandi deildarstjóri Upp- lýsingatækni- og samskiptadeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), búsettur í Prag. Börn Ernu Fríðu frá fyrra hjóna- bandi með Sverri Bjarnasyni, f. 15.1. 1933, d. 13.9. 2013 eru 1) Sig- urrós, f. 15.11. 1957, fyrirtækja- fulltrúi hjá Íslandsbanka, gift Sig- urjóni Inga Ingólfssyni, f. 7.6. 1956, skrifstofu- og innheimtustjóra hjá HS Veitum, búsett í Vestmanna- eyjum. 2) Lillý Halldóra, f. 28.2. 1960, iðjuþjálfi á Grensásdeild Landspítalans, búsett í Hafnarfirði. 3) Björn Bragi, f. 22.4. 1967, starfs- maður Ísal, búsettur í Hafnarfirði. Barnabörn Ingólfs eru fjögur. Börn Þórunnar og Stefáns Bergs- sonar, f. 8.3. 1947, löggilts endur- skoðanda eru: 1) Stefán Þór, f. 24.3. 1969, framkvæmdastjóri Central Pay ehf. Maki hans er Jenný Guð- mundsdóttir, f. 27.9. 1973, bókari og eiga þau dótturina Karenu Lind, f. 25.12. 2006. Sonur Stefáns Þórs og Þórunnar Marínósdóttur, f. 13.11. 1972 er Gabríel Þór, f. 4.1. 2000 og dóttir Jennýjar og Ragnars H. Guð- mundssonar, f. 28.10. 1969 er Anna Lára, f. 17.9. 2000. 2) Margrét f. 16.3. 1973, markaðs- og vefstjóri. Börn Margrétar og Úlfars Haralds- sonar, f. 22.11. 1969 eru Þórunn Birna, f. 29.3. 1999, Berglind Hrönn, f. 4.8. 2005 og Fanney, f. 9.2. 2007. Dætur Kristínar og Einars eru: 1) Hildur, f. 20.11. 1982, rafmagns- verkfræðingur og framkvæmda- stjóri hjá Össuri hf. Maki hennar er Ingólfur P. Steinsson, prentari og fyrrverandi auglýsingastjóri – 95 ára Hjónin Erna Fríða Berg og Ingólfur P. Steinsson um jól fyrir um tíu árum. Fylgist vel með og er enn að prenta Morgunblaðið/RAX Vel tengdur Ingólfur er í daglegum tölvupóstsamskiptum við vini og ættingja. 50 ára Kristófer er úr Breiðholtinu en býr í Kópavogi. Hann er Cand.oecon í við- skiptafræði frá Há- skóla Íslands og er löggiltur endurskoð- andi. Hann vinnur hjá KPMG sem endurskoðandi. Maki: Erla Kristín Helgadóttir, f. 1974, Cand.oecon. í viðskiptafræði frá HÍ. Börn: Sindri Snær, f. 2003, Anna Sigríður, f. 2007, og Kristófer Máni, f. 2014. Foreldrar: Ómar Arason, f. 1944, fyrr- verandi flugstjóri hjá Icelandair, og Anna Sigríður Kristófersdóttir, f. 1946, fyrrver- andi bankastarfsmaður hjá Íslands- banka. Þau eru búsett í Reykjavík. Kristófer Ómarsson Til hamingju með daginn Reykjavík Gunnbjörn Ernir Atlas Arnarson fæddist föstu- daginn 1. júní 2018 í Reykjavík og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 3.774 grömm og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Eva Guðrún Gunnbjörnsdóttir og Örn Elvar Arnarson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.