Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 01.06.2019, Síða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum Í klípu „VIÐ VORUM RÆND.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HALTU VINSTRI HANDLEGGNUM BEINUM OG MUNDU AÐ VANDA SVEIFLUNA.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem heldur þér gangandi. VARIST EINMANA HUNDINN VARIST EINMANA HUNDINN VARIST EINMANA HUNDINN AMLÓÐI MUN VEKJA JAFNMIKINN UGG OG ÉG ÞEGAR HANN VEX ÚR GRASI! SVO ÞÚ ÆTLAR AÐ VERÐA VÍKINGUR EINS OG PABBI ÞINN … NEI, HANN ÆTLAR AÐ VERÐA TANNLÆKNIR! FRÍMERKI ÖRYGGISKERFI Sölvi Davíðsson, f. 17.10. 1984, lög- maður og eiga þau synina Pétur, f. 10.11. 2013 og Birki, f. 13.3. 2016. 2) Sólveig Ásta f. 29.8.1994, meistara- nemi í rafmagnsverkfræði. Barnabörn Ernu Fríðu eru fimm. Börn Sigurrósar og Sigurjóns eru Sverrir Örn Sveinsson, Marta Sig- urjónsdóttir og Ingibjörg Sigurjóns- dóttir. Barnabörn þeirra eru fimm: Baldvin Ingi, Birkir, Heimir Freyr, Eygló Rós og Sigurrós. Börn Björns og fyrrverandi maka, Elísabetar K. Benónýsdóttur f. 16.4. 1971, eru Arndís Erna og Arnar Bjarki. Dótt- ir Arndísar Ernu er Birna Svein- björnsdóttir sem er sjötta barna- barnabarn Ernu Fríðu. Systkini Ingólfs eru Anna Guðrún Steinsdóttir, f. 4.1. 1905 í Reykjavík, d. 3.12. 1933; Margrét Steinsdóttir, f. 31.7. 1906 á Akureyri, d. 27.9. 1920; Friðrik Steinsson, f. 11.11. 1907 á Akureyri, d. 25.7. 1975; Ás- mundur Benedikt Steinsson, f. 17.12. 1909 á Skjaldbreið, d. 4.7. 1981; Anna Sigríður Steinsdóttir, f. 4.1. 1911 á Skjaldbreið, d. 28.5. 1970; Jóhannes Steinsson, f. 2.5. 1913 á Ingólfshvoli, d. 11.6. 1913; Jóhannes Kristinn Steinsson, f. 19.12. 1914 á Ingólfshvoli, d. 24.12. 1989; Sig- urður Steinsson, f. 23.1. 1916, d. 21.3. 2002; Auður Steinunn Kristín Steinsdóttir, f. 11.3. 1917 á Ingólfs- hvoli, d. 15.2. 1984. Foreldrar Ingólfs voru hjónin Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir, f. 4.2.1878, d. 4.6. 1968, kennari og húsfreyja í Vestmannaeyjum og Reykjavík, og Steinn Sigurðsson, f. 6.4. 1873, d. 9.11. 1947, klæðskera- meistari í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Ingólfur Páll Steinsson Einar Guðmundsson bóndi í Vesturkoti Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja í Vesturkoti á Skeiðum Sigurður Einarsson bóndi í Vestra-Fróðholti Anna Guðmundsdóttir húsfreyja í Vestra-Fróðholti á Rangárvöllum Steinn Sigurðsson klæðskerameistari í Vestmannaeyjum og Reykjavík Guðmundur Pétursson bókbindari í Minna-Hofi Guðrún Sæmundsdóttir húsfreyja í Minna-Hofi á Rangárvöllum Séra Friðrik Friðriksson æskulýðs- og íþróttafrömuður Pétur Þorláksson bóndi í Traðarkoti Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Traðarkoti á Hólum í Hjaltadal Friðrik Pétursson bóndi, smiður og skipstjóri á Hálsi í Svarfaðardal, síðar á Syðri- Reistará Guðrún Pálsdóttir húsfreyja á Syðri-Reistará á Galmaströnd, síðar Rvík Páll Þórðarson bóndi í Efstalandskoti, síðar á Þorljótsstöðum í Lýtingsstaðahreppi, S-Þing., sonur Þórðar Pálssonar, ættföður Kjarnaættar Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja í Efstalandskoti í Öxnadal Úr frændgarði Ingólfs P. Steinssonar Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir kennari og húsfreyja í Vestmannaeyjum og Rvík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Í andliti má einatt sjá. Öldukast í gljúfraþröng. Lítill spölur landi frá. Líður vofa um bæjargöng. Svona lítur lausnin út í dag hjá Hörpu á Hjarðarfelli Margur hefur sett upp svip svipinn straumar gera. Rétt áðan ég sá í svip þar svipur muni vera. Eysteinn Pétursson leysir gát- una þannig: Andlitum skyldra einatt svipar saman. Svip frá landi að róa oft er gaman. Fiskar ei í svipum fljóta sofa. Svipur er það sem líka kallast vofa. Baldur Hafstað svarar: Vísnagáta Guðmundar er góð sem fyrr og lipur; lausnarorðið um spurt þar ég álít vera: „svipur“. Helgi Seljan á þessa lausn: Greina á svipnum mann oft má, man ég svip í gili heima. Spölkorn lítið landi frá, læðast svipir vítt um geima. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Ráðningu mér sýnist sjá, sem að niður hripa, hún e.t.v. er af og frá samt allt bendir til svipa. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Í andliti má svipinn sjá. Svipur er hreyfing vatni á. Lítill spölur er svipur sá. Svipur um göngin líður hjá. Þá er limra: Hjá vífinu var hann Jón, sá velkýldi amors þjón, er þaðan kom út, var hann allur í hnút og varla svipur hjá sjón. Og að lokum ný gáta eftir Guðmund: Nú er úti regn og rok, réttast er í vikulok innan húss að halda sig og hér er gáta fyrir þig: Í höggleik þykir happafengur. Harla vel oft syngja má. Karl með hann í klofi gengur. Kyndugur er fýrinn sá. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Flest er svipur hjá sjón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.