Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 38

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 38
38 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019  Pascal Siakam frá Kamerún átti stórleik með Toronto Raptors í fyrri- nótt þegar Kanadaliðið vann meistara Golden State Warriors, 118:109, á heimavelli í fyrsta úrslitaleik liðanna um NBA-meistaratitilinn í körfuknatt- leik. Siakam skoraði 32 stig og skyggði á stjörnur meistaranna en hjá þeim var Stephen Curry atkvæða- mestur með 34 stig. Liðin mætast aft- ur í Toronto annað kvöld, á miðnætti að íslenskum tíma.  Ítalinn Antonio Conte hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Inter Mílanó í stað Luciano Spalletti sem var rekinn í vor. Conte stýrði síðast Chelsea í tvö ár en var sagt upp þar fyrir ári. Hann var áður með ítalska landsliðið í tvö ár og með Juventus í þrjú ár þar á undan.  Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvins- dóttir er í 7.-13. sæti fyrir lokahring- inn á Lavaux Ladies-mótinu á LET Ac- cess-mótaröðinni í golfi sem leikinn er í Sviss í dag. Guðrún Brá, sem er Ís- landsmeistari í golfi, lék þriðja hringinn á pari í gær og var nokkuð stöðug, fékk þrjá skolla og þrjá fugla en ann- ars pör og er sam- anlagt á einu höggi und- ir pari. Hún er fimm höggum frá hinni spænsku Mar- iu Beautell sem er ein í toppsætinu á sex högg- um undir pari. Eitt ogannað vildum þetta greinilega miklu meira. Við vorum vel undirbúnir og með hjartað á réttum stað.“ Ágúst Elí varð fyrir meiðslum seint í fjórða leiknum en þau reynd- ust þó ekki alvarleg. „Ég var að hlaupa inn á völlinn til að komast í markið. Hornamaður í þeirra liði stoppaði til að hindra leið mína í markið. Ég tók ekki eftir því og hljóp því blint á hann og fékk olnbogann á honum í rifbeinið. Ég missti því af síðustu mínútunum í venjulegum leiktíma,“ sagði Ágúst en fjórða leik- inn vann Sävehof eftir framlengingu. Ágúst sagði rifbeinið hafa sloppið og hann fann einungis fyrir eymslum í oddaleiknum. 7. sæti í deildakeppninni Sigur Sävehof kom mörgum á óvart þar sem liðið hafnaði í 7. sæti í deildakeppninni. Sú niðurstaða gaf þó ekki heilsteypta mynd af getu liðs- ins sem ekki fann taktinn vegna ým- issa skakkafalla. „Við vorum í rauninni að glíma við meiðsli alla deildakeppnina og spil- uðum þar af leiðandi ekki eins vel og við áttum að geta gert. Deildin er mjög jöfn og getumunurinn ekki mjög mikill á milli liðanna. Við fund- um ekki taktinn og í lok deildakeppn- innar voru erfiðir leikir gegn góðum liðum sem unnu okkur sanngjarnt. Í úrslitakeppninni byrjar hins vegar ný keppni og þá voru fá forföll hjá okkur. Þá kviknaði glóð í mönnum og liðið spilaði betri og harðari vörn. Þá kom markvarslan með og auðveldu mörkin. Við vorum góðir að læra inn á andstæðingana og það hjálpaði mér mikið. Í svona rimmum skiptir miklu máli að lesa andstæðinginn,“ sagði Ágúst Elí Björgvinsson við Morg- unblaðið. Geðshræring í klukkutíma í klefanum  Ágúst Elí og samherjar hans í Sävehof hrukku í gang á réttum tíma Ljósmynd/Sävehof Meistarinn Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson með bikarinn eftir sigur Sävehof á Alingsås í oddaleik liðanna í fyrradag. SVÍÞJÓÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is Hafnfirðingurinn Ágúst Elí Björg- vinsson varð á fimmtudagskvöldið sænskur meistari í handknattleik með Sävehof á sínu fyrsta tímabili sem atvinnumaður. Sävehof tók á móti bikarnum eftir fimm leikja úr- slitarimmu við Alingsås sem hafði komið geysilega á óvart með því að slá út fráfarandi meistara í Kristians- tad 3:0. „Stemningin var sjúk í gærkvöldi og æðislegt að upplifa þetta. Ég var í geðshræringu í búningsklefanum í klukkutíma á eftir,“ sagði Ágúst þeg- ar Morgunblaðið hafði uppi á honum í síma í gær. Hann var þá staddur fyr- ir utan hina þekktu dómkirkju í Köln. Þangað flaug Ágúst í gærmorgun til að horfa á úrslitahelgina í Meist- aradeildinni. Staða Sävehof var ekkert sérstök eftir þrjá leiki í rimmunni því þá var Alingsås 2:1 yfir en Sävehof tókst að vinna síðustu tvo leikina og oddaleik- inn á útivelli. Fínpússað á ögurstundu „Við vorum góðir í leikjunum í úr- slitunum og mér fannst við hafa yf- irhöndina. Í tapleikjunum tveimur gerðum við mistök sem reyndust dýr en hefðum vel getað unnið þá leiki að mínu mati. Við vorum því vissir um að við gætum unnið og tókst að fín- pússa okkar leik í síðustu tveimur leikjunum. Kannski urðu þeir einn- ig værukærir eftir að hafa komist í 2:1. Í oddaleiknum var eins og þeir væru búnir á því í síðari hálfleik. Þá fór allt á skrið hjá okkur og við spil- uðum frábærlega í seinni hálfleik. Við Ensku félögin Liverpool og Totten- ham mæta í úrslitaleik Meistara- deildar Evrópu í fótbolta í Madríd í kvöld með ólíka sögu að baki. Liv- erpool leikur til úrslita um Evrópu- meistaratitilinn í níunda sinn og freistar þess að verða þriðja sigur- sælasta félag keppninnar frá upp- hafi á meðan Tottenham þreytir frumraun sína á þessu stærsta sviði félagsliðafótboltans í Evrópu. Liverpool hefur fimm sinnum orðið Evrópumeistari, 1977, 1978, 1981, 1984 og 2005, og aðeins Real Madríd (13 sigrar) og AC Milan (sjö sigrar) hafa unnið keppnina oftar. Auk þess tapaði Liverpool úr- slitaleikjunum árin 1985, 2007 og 2018. Tottenham komst í undanúrslit árið 1962 og 8-liða úrslit 2011 en lengra hefur félagið ekki náð á þessum vettvangi. Hinsvegar hefur félagið unnið „minni“ Evrópumótin í þrígang, Evrópukeppni bikarhafa árið 1963 og UEFA-bikarinn árin 1972 og 1984. Óhætt er að segja að bæði ensku liðin séu komin í þennan úrslitaleik á ævintýralegan hátt. Liverpool eft- ir að hafa tapað fyrri leiknum gegn Barcelona 3:0 og Tottenham eftir að hafa lent samtals 3:0 undir um tíma í einvíginu við Ajax. Bæði lið koma með sína sterkustu sveit til leiks í Madrid. Harry Kane hjá Tottenham og Roberto Firmino hjá Liverpool eru klárir í slaginn á ný eftir meiðsli og verða líklega í byrjunarliðunum í kvöld. Leikurinn í kvöld er einvígi tveggja af áhugaverðustu stjór- unum í enska fótboltanum um þess- ar mundir. Jürgen Klopp hjá Liver- pool og Mauricio Pochettino hjá Tottenham hafa gert geysilega góða hluti með sín lið en eiga það sameiginlegt að hafa þrátt fyrir það ekki unnið stóran titil með sínu liði. Eyðimerkurgöngu annars þeirra mun ljúka í kvöld. vs@mbl.is Langþráður titill í sigti tveggja stjóra AFP Madríd Jürgen Klopp og Mauricio Pochettino mætast í kvöld. Valgarð Reinhardsson keppir til úrslita í gólfæfingum á heimsbikarmóti í áhaldafimleikum í Koper í Slóveníu í dag en litlu munaði að hann kæmist líka í úrslitin á tvíslá. Valgarð varð áttundi og síðastur inn í úrslit í gól- fæfingunum með 13.750 stig, jafnmörg stig og Breti og Ungverji sem enduðu í níunda og tíunda sæti. Valgarð er aðeins annar Íslendingurinn til að komast í úrslit á heimsbikarmóti en Rúnar Alexandersson var sá eini sem hafði áður afrekað slíkt. Á tvíslánni var baráttan líka tvísýn en þar varð Val- garð níundi með 13.100 stig. Rakesh Patra frá Indlandi náði áttunda sætinu með 13.250 stig. Valgarð keppti einnig í stökki þar sem hann varð í 13. sæti og á svifrá þar sem hann hafn- aði í 19. sæti. Martin Bjarni Guðmundsson, sem er nýkominn upp úr ung- lingaflokki, varð í 14. sæti á svifrá, 14. sæti í stökki og 30. sæti á gólfi og Arnþór Daði Jónasson varð í 30. sæti á bogahesti. vs@mbl.is Valgarð í úrslitum í Koper Valgarð Reinhardsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.