Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 1
F I M M T U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 132. tölublað 107. árgangur
*Afsláttur gildir ekki um harðar gardínulausnir, glös og smávöru í vefnað örudeild
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Vantar þig dýnu í hjónarúmið, bústaðinn,
fellihýsið, ferðabílinn, hjólhýsið eða
barnarúmið? þá er hún til hjá okkur.
ÆVINTÝRA-
HEIMUR OG
BAOBABTRÉ
ENGIN REGLA
OG ENGIR
TVEIR ERU EINS
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
TRANSBÖRN 28 FINNA VINNU 8 SÍÐURFÓR TIL MADAGASKAR 26
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Þegar Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöldi og 96,8% atkvæða höfðu
verið talin í dönsku þingkosning-
unum stefndi í að vinstriblokkin
fengi 91 þingsæti og hægriblokkin
75 sæti, en 90 sæti þarf til að fá
meirihluta í danska þinginu þar
sem alls eru 179 sæti. Meirihluti
Lars Løkke Rasmussen forsætis-
ráðherra er samkvæmt þessu fall-
inn.
Jafnaðarmenn fengu mest fylgi,
26% atkvæða, samanborið við
26,3% í fyrra, en þessi niðurstaða
er verri en búist var við fyrir Mette
Fredriksen, formann flokksins,
þrátt fyrir að vinstriblokkin hafi
meirihluta. Kannanir höfðu sýnt
meira fylgi við flokkinn. Líkur
standa til þess að Fredriksen verði
næsti forsætisráðherra Danmerk-
ur.
Venstre bætti við sig
Flokkur forsætisráðherrans,
Venstre, hafði fengið 23,4% at-
kvæða, samanborið við 19,5% í
fyrra. Samkvæmt því fjölgar þing-
mönnum flokksins um níu og verða
alls 43 talsins.
Útlit var fyrir að Danski þjóð-
arflokkurinn fengi skell í kosning-
unum, en þegar 96,8% höfðu verið
talin hafði flokkurinn fengið 8,8%
atkvæða, um 12,3 prósentustigum
minna en í síðustu kosningum.
Fækkar þingmönnum flokksins um
21, úr 37 í 16. Frjálslynda banda-
lagið fékk 2,3% sem er 4,5 pró-
sentustigum minna en í síðustu
kosningum á meðan Íhaldsflokkur-
inn fékk 5,9% sem er 2,5 prósentu-
stigum meira en síðast. Þrír flokkar
fengu minna en 2% fylgi í kosning-
unum og ná ekki manni inn á þing.
Það eru Kristilegi lýðræðisflokkur-
inn, flokkurinn Hörð lína og Risker
Pedersen sem bauð sig einn fram.
Vinstriblokkin vann sigur
Allt útlit fyrir nýja ríkisstjórn í Danmörku Venstre bætti við sig fylgi
Fredriksen að líkindum næsti forsætisráðherra Þjóðarflokkurinn fékk skell
Kosið í Danmörku
» Jafnaðarmenn með 25,3%
atkvæða.
» Vinstriblokkin fær að öllum
líkindum meirihluta.
» Mette Fredriksen verður lík-
lega næsti forsætisráðherra.
» Venstre fékk 23,4% atkvæða
og bætti við sig níu mönnum.
» Þingmönnum Danska þjóð-
arflokksins fækkar um meira en
helming.
Flutningur björgunarsveita upp á
Vatnajökul gæti tafist um marga
klukkutíma, jafnvel hálfan eða heilan
sólarhring, eftir að önnur aðalleiðin á
jökulinn er orðin ófær farartækjum
vegna aurbleytu sem orsakast af
loftslagsbreytingum. Jónas Guð-
mundsson, verkefnastjóri hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg segir að
leiðin að vestan um Jökulheima og
Tungnaárjökul sé önnur algengasta
leiðin sem sveitirnar fara. »6
Morgunblaðið/RAX
Vatnajökull Grímsvötn og Grímsfjall
Getur tafið leit og
björgun á Vatnajökli
Talsverð fjölgun hefur verið í hópi þeirra sem leita á Landspít-
ala með gat á lunga sem virðist mega rekja til rafrettu-
reykinga. Það sem af er þessu ári hafa fimm manns, allt ungir
karlmenn, leitað á spítalann vegna þessa. Tómas Guðbjartsson,
prófessor og læknir á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala,
hefur meðhöndlað þessa sjúklinga og telur að þessa þróun megi
rekja til aukningar á rafrettureykingum.
Í grein eftir Tómas og Úlf Thoroddsen lækni í nýjasta tölu-
blaði Læknablaðsins segir frá ungum og hraustum karlmanni
sem leitaði á bráðamóttöku LSH vegna brjóstverkja, en hann
hafði skömmu áður reykt rafrettu. Honum fannst sem eitthvað
hefði brostið innra með sér og í ljós kom gat á lunga. »16
Morgunblaðið/Hari
„Eins og
eitthvað
brysti innra“
Fimm hafa leitað á spítala
með gat á lunga eftir rafrettu-
reykingar það sem af er þessu ári