Morgunblaðið - 06.06.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.06.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Par skógarþrasta hefur búið sér til hreiður á fánastöng í húsgarði í Að- algötu á Hauganesi. Anna Lilja Stef- ánsdóttir, eigandi garðsins, segir að húnninn, efst á fánastönginni, hafi farið af í slæmu veðri í vetur og þrest- irnir hafi komið sér fyrir í skálinni sem eftir varð efst á fánastönginni. Hún segir þrestina hafa verið mik- ið á ferðinni síðustu daga og telur að þeir hafi verið að gefa ungunum. Anna Lilja segist þó ekki geta séð í hreiðrið enda stöngin há. Segir hún mikið fuglalíf í kringum húsið, mikið sé um skógarþresti en í vetur hafi hún séð starra í fyrsta sinn á svæð- inu. Næði á fánastönginni Anna Lilja kveðst hafa nokkrar áhyggjur af því þegar ungarnir komi niður úr hreiðrinu þar sem mikið sé um ketti í bænum. Telur hún þrestina hafa séð sér leik á borði að fá næði á fánastönginni enda hafi þeir valið hana fram yfir þrjár stórar aspir sem einnig séu rétt við húsið. „Maður vonar bara það besta en það er gaman að fylgjast með þessu,“ segir Anna Lilja sem kveðst ekki ætla að flagga á næstunni. „Ég gat ekki flaggað á sjómannadaginn. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti síðan við fengum stöngina. Maðurinn minn var sjómaður og það var náttúrulega alltaf flaggað á sjómannadaginn. Nema núna,“ segir Anna Lilja og hlær. „Fuglinn fékk bara að hafa sinn frið.“ Ljósmynd/Sigurður Ægisson Næði Þrösturinn gæti hafa valið hreiðurstað á fánastönginni í von um að fá frið fyrir heimilisköttum bæjarins. Ala unga sína á fánastöng  Vildi ekki raska ró fugla og flaggaði ekki á sjómannadag Forsvarsmenn fjölda sveitarfélaga þar sem meirihluti landsmanna býr, telja þau illa í stakk búin til þess að innrita börn við 12 mánaða aldur á leikskóla. 32 sveitarfélög með um 20% íbúa landsins eru aftur á móti vel í stakk búin til þessa. Þetta er meðal þess sem fram kemur við kortlagningu Valgerðar Freyju Ágústsdóttur, sérfræðings á hag- og upplýsingasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga, á aldri leik- skólabarna við innritun á seinasta ári í sveitarfélögum landsins. Nið- urstöðurnar voru kynntar á stjórn- arfundi sambandsins. Í fjármála- áætlun ríkisstjórnarinnar er stefnt að lengingu fæðingarorlofs í 12 mánuði og viðræðum við sveitar- félög um að þau tryggi börnum dag- vistun á leikskóla frá 12 mánaða aldri. Meðal þess sem fram kemur er að 33 sveitarfélög í athuguninni segjast hafa sett sér stefnu eða viðmið um að innrita börn á leikskóla við 12 mánaða aldur eða yngri. Þar búa 17% landsmanna. ,,Fimm sveitar- félög hafa sett sér viðmið á milli 14- 17 mánaða innritunaraldurs og þar búa um 24% þjóðarinnar. Sex sveit- arfélög, þar á meðal Reykjavíkur- borg, hafa sett sér viðmið um 18 mánaða aldur en þar búa 45% lands- manna. Greinileg tengsl eru á milli stærðar sveitarfélaga og viðmiðun- araldurs. Þau sem eru fámennari eru líklegri til þess að hafa lægra aldursviðmið en þau sem fjölmenn- ari eru,“ segir á minnisblaðinu. Þegar spurt var svo hvernig þess- um málum er háttað í reynd kom fram að mikil dreifing er á aldri barna sem innritast í leikskóla eftir sveitarfélögum. Flest eru á aldrin- um 19 til 24 mánaða gömul eða í þriðjungi tilvika en rúmlega fjórð- ungur barna innritast 13 til 18 mán- aða gömul á leikskóla. Þegar spurt var hversu mörg börn væru á bið- lista í leikskólum fengust svör frá 50 sveitarfélögum. Fram kemur að um 47% barna á biðlistum voru 12 til 18 mánaða gömul en ríflega þriðjungur barna á biðlistum voru yngri en 12 mánaða. Sveitarfélög voru beðin að svara hversu vel eða illa þau væru í stakk búið til þess að innrita börn við 12 mánaða aldur. Komu fram greinileg tengsl á milli stærðar sveitarfélaga og þess hve vel eða illa þau telja sig í stakk búin til þess að innrita börn við 12 mánaða aldur á hefðbundnum innritunartíma (júní – september). ,,Alls telja 32 sveitarfélög sig vel eða mjög vel í stakk búin til þess að inn- rita 12 mánaða gömul börn á þessu tímabili, en í þeim sveitarfélögum búa 20% landsmanna. Á hinn bóginn telja 14 sveitarfélög sig illa eða mjög illa í stakk búin til þess að innrita börn á þessum aldri á hefðbundnum innritunartíma, en þar búa 75% þjóðarinnar.“ omfr@mbl.is Mörg illa í stakk búin að innrita 12 mánaða börn 20 12 6 2% 9 5 Biðlistar á leikskólum og svigrúm sveitarfélaga Börn á biðlista 1. nóv. 2018 eftir aldri* Áætlað svigrúm sveitarfélaga til að innrita börn við 12 mánaða aldur** Fjöldi sveitarfélaga Sem hlutfall íbúa Yngri en 12 mánaða 12-18 mánaða 19-24 mánaða 25-30 mánaða Mjög vel Vel Hvorki né Illa Mjög illa 10% 10% 63% 12% 9 sveitar- félög, þar sem 63% þjóðarinnar búa, telja sig vera illa í stakk búin**Spurning: Hversu vel eða illa er sveitarfélagið í stakk búið m.t.t. húsnæðis, starfsfólks og aðbúnaðar til að innrita börn við 12 mánaða aldur á hefðbundnum innritunartíma? Alls svöruðu 52 sveitarfélög hvar búa 96% þjóðarinnar. Alls 1.914 börn á biðlista* *50 sveitarfélög svöruðu. Fjögur fámenn sveitarfélög svöruðu ekki en voru að líkindum ekki með börn á biðlista. 37% 47% 13% 2% Heimild: Hag- og upplýsingasvið Sambands ísl. sveitarfélaga Ríkissjóður hefur keypt húseignina Jónstótt ásamt lóð og er miðað við að eignin verði afhent í maí. Ríkis- eignir taka við umráðum eignar- innar með sambærilegu fyrirkomu- lagi og er gagnvart Gljúfrasteini. Áætlaður kostnaður vegna kaupa og lágmarksendurgerðar á fast- eigninni liggur á bilinu 120–145 milljónum króna. Komið er að miklu viðhaldi á eigninni og verður ákvörðun um framkvæmdir tekin svo fljótt sem verða má. Kemur þetta fram í svari mennta- og menningarmálaráð- herra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um Laxnesssetur. Svörin eru birt á síðu Alþingis. „Kaupin eru mikilvæg fyrir upp- byggingu Laxnessseturs við Gljúfrastein í Mosfellsbæ. Þar er m.a. litið til þess að samkvæmt deiliskipulagi fyrir Þingvallaveg er gert ráð fyrir breytingum á legu vegarins sem myndi gera núver- andi bílastæði við Gljúfrastein ónot- hæft, en bílastæði í landi Jónstóttar lægi mjög vel við safninu,“ segir þar en skipaður verður starfshópur í tengslum við verkefnið. Um 150 milljónir í Jónstótt við Gljúfrastein Guðrún Erlingsdóttir Snorri Másson Hælisleitandinn sem var staðinn að því að safna sýru á brúsa í búsetuúr- ræði Útlendingastofnunar á Ásbrú gaf við yfirheyrslu þá skýringu að hann ætlaði að losa um stíflu í vaski. Hefur Morgunblaðið það samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlög- regluþjónn á Suðurnesjum, telur að hælisleitandinn hafi í örvæntingu sinni verið að berjast fyrir til- verurétti sínum. Það sé hægt að ímynda sér að um sjálfsbjargar- viðleitni hafi verið að ræða til þess að fá að vera áfram í landinu, en hæl- isleitandinn mun hafa vitað af yf- irvofandi brottvísun. Var honum vís- að úr landi í kringum 22. maí sl. þegar endanleg niðurstaða um hæl- isumsókn hans lá fyrir. Bjarney telur ólíklegt að söfnun geymasýru hafi verið til þess ætluð að skaða aðra. Að sögn hennar var lögreglan á Suðurnesjum aldrei köll- uð með beinum hætti að málinu. Ör- yggisvörður í Ásbrú, sem er staðsett í umdæmi lögreglunar á Suður- nesjum, gerði Útlendingastofnun viðvart um að brúsi með rafgeyma- sýru hefði fundist. Starfsmaður Út- lendingastofnunar hafði samband við lögreglumann á höfuðborgar- svæðinu. Sá lögreglumaður lét Bjarneyju óformlega vita af geyma- sýrufundinum sama kvöld. Ekki hefði komið fram hver hefði átt í hlut en upplýst var að sýran hefði verið tekin af manninum og fjarlægð. Að sögn Bjarneyjar stóð til að hafa frumkvæði að því að kanna mál- ið á vettvangi morguninn eftir en ekki hafi gefist svigrúm til þess vegna anna, en þann dag kom upp fíkniefnamál og þurfti lögreglan þá meðal annars að sinna fangaflutn- ingum. Sýrumálið var ekki kannað vegna anna  Sagðist ætla að losa stíflu í vaski Morgunblaðið/Árni Sæberg Barátta Hælisleitendur leita ýmissa leiða til þess að vekja athygli á mál- stað sínum og koma í veg fyrir að þeim sé vísað úr landi. Í rafgeymum bifreiða er að finna vatnsblandaða brennisteinssýru. Samkvæmt upplýsingum frá Eitrunarmiðstöð Landspítala er helsta eiturverkun sýru æting sem veldur bruna. Sýrur sem komast í snertingu við húð valda mestu skemmdum á ystu lögum húðarinnar. Margir þættir hafa áhrif á það hversu miklum skaða sýrurnar valda, s.s. styrkur sýr- unnar, pH-gildi, snertitími, milli- verkanir við önnur efni og fleira. Bein snerting við sýrur getur valdið miklum sársauka, sárum og drepi og inntaka bruna í munni, vélinda og maga. Sár og drep af sýru RAFGEYMASÝRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.