Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 8

Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Dómsmálaráðuneytið hefurákveðið að rannsaka skuli kosningasvindl fyrir síðustu borg- arstjórnarkosningar. Með því er ákvörðun sýslumanns snúið við en ákvörðunin er í samræmi við álit Persónuverndar sem komst að þeirri niðurstöðu að brotin hefðu verið lög í tengslum við fram- kvæmd sveit- arstjórnarkosninga í Reykjavík.    Brotin snúastum að send voru skilaboð til ákveðinna hópa fyrir kosningar. Svo heppilega vildi til fyrir þáver- andi meirihluta í borginni, sem reyndar féll engu að síður og hef- ur síðan stuðst við hækju Við- reisnar, að hóparnir sem fengu sérstaka hvatningu eru einmitt hópar sem líklegri voru en aðrir til að styðja þáverandi meiri- hlutaflokka.    Vigdís Hauksdóttir borg-arfulltrúi hefur þrýst á um að tekið verði á þessum brotum meiri- hlutans og í samtali við mbl.is í gær segir hún að hinn fallni meiri- hluti eigi „ekki að komast upp með kosningasvindl“.    Kosningar verða að vera yfirvafa hafnar og ríkjandi stjórnvöld eiga ekki að komast upp með að nýta aðstöðu sína til að hanga á völdum umfram það sem eðlilegt getur talist í kosningum þar sem rétt er gefið.    Furðu vekur að núverandimeirihluti í borginni, ekki síst sá hluti hans sem kom inn eftir kosningar, skuli ekki taka þessu af alvöru og keppast við að þvo af sér þennan ljóta blett í stað þess að streitast á móti. Vigdís Hauksdóttir Kosningasvindlið verður rannsakað STAKSTEINAR Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sigþrúður Erla Arnardóttir hafnaði í gær í þriðja sæti á heimsmeistara- móti Alþjóðakraftlyftingasambands- ins í klassískum kraftlyftingum í flokki 50-60 ára, en hún fékk brons í hnébeygju og brons fyrir saman- lagðan árangur. „Ég varð Evrópu- meistari í fyrra í Helsingborg og núna jafnaði ég hnébeygjuna mína, bætti mig í bekk[pressu] og bætti mig í samanlögðu,“ segir Sigþrúður, en hún hafnaði í fjórða sæti í bekk- pressu og réttstöðulyftu. Dagmar Agnarsdóttir keppti einnig á mótinu í flokki 60-70 ára og fékk brons í réttstöðulyftu. Hröð uppleið í lyftingunum Ekki er ýkja langt síðan Sig- þrúður Erla hóf að stunda kraftlyft- ingar, en hún æfir á Seltjarnarnesi með Kraftlyftingafélagi Reykjavík- ur undir handleiðslu Ingimundar Björgvinssonar. „Ég byrjaði haustið 2014. Þetta hefur verið hröð uppleið, það má segja það,“ segir hún og fer fögrum orðum um félagana á Sel- tjarnarnesi. Hún segir kraftlyfting- arnar henta fyrir hvern sem er og alla aldurshópa. „Allir í kraftlyft- ingar. Þetta er íþrótt fyrir alla ald- urhópa og flottur og góður hópur sem stundar hana,“ segir hún. Fékk brons á heimsmeistaramótinu  Jafnaði í beygju, bætti sig í bekk og samanlögðu  „Allir í kraftlyftingar“ Hópurinn Gleði með árangurinn. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við förum nú í að þróa hugmyndir og klárum að vinna þetta í lok ársins. Hugmyndin er að brunnlokin verði frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík sumarið 2020,“ segir listakonan Elsa Jónsdóttir. Á dögunum fékk Elsa ásamt Birni Loka Björnssyni, en saman kalla þau sig Krot og krass, tveggja millj- ón króna styrk úr Miðborgarsjóði til að framleiða mynstur á brunnlok í miðborg Reykjavíkur. „Verkefnið snýst um að framleiða nýtt útlit á járnlok þar sem unnið er með sögufræga staði, ljóð og sögur, flóru Íslands, listaverk, frímerki og leiðarvísa svo eitthvað sé nefnt. Verkefnið á sér fyrirmynd m.a. í Japan en unnið verður með íslenska sögu. Með verkefninu er ætlað að vekja athygli á áhugaverðum stöð- um í miðborginni á jákvæða og skap- andi vegu, bæði í borgarlandinu og einnig sem myndbirting á al- þjóðavettvangi,“ segir í umfjöllun um styrkveitinguna. Elsa segir í samtali við Morg- unblaðið að þau hafi unnið vegg- listaverk í almannarými og hug- myndin um brunnlokin spretti út frá sömu hugmyndafræði. „Að taka hversdagslegan hlut og gera hann sérstakan. Við erum sjúklega ánægð að borgin skuli vera til í að taka þátt í svona verkefni.“ Hún segir að gerð verði tíu brunn- lok sem komið verði fyrir í miðborg Reykjavíkur. Hluti af ferlinu sem nú fer í gang er að ákveða staðsetn- ingar fyrir lokin. „Við höfum mikið verið að vinna með íslenskt mál; málshætti, orðtök og áhugaverða hluti úr íslenskunni. Við höfum líka verið að spá í að færa okkur yfir í myndrænni útfærslur og leita á nýj- ar slóðir,“ segir Elsa um mögulegt útlit brunnlokanna. Hanna útlit á brunn- lok í miðbænum  Fengu tveggja milljóna króna styrk Ljósmynd/Rafael Pinho Krot og krass Listamennirnir Elsa Jónsdóttir og Björn Loki Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.