Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 10

Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 GRILLJÓN ástæður til að grilla Afgreiðslutímar á www.kronan.is ... því það er bongó Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fasteignamat hækkar mun meira á landsbyggðinni en á höfuðborgar- svæðinu þegar nýtt mat tekur gildi um næstu áramót. Heildarmatið hækkar um 6,1%. Heildarfasteigna- matið hækkar um 5,3% á höfuðborg- arsvæðinu en 10,2% á Vesturlandi. Allra mesta hækkunin verður á Akra- nesi, 19,1%, og íbúðamatið þar hækk- ar enn meira eða um 21,6%. Þjóðskrá Íslands kynnti í gær fast- eignamat fyrir árið 2020. Heildarmat- ið verður liðlega 9 þúsund milljarðar króna sem er 6,1% hækkun frá árinu í ár. Þetta er aðeins um helmingur af þeirri hækkun sem varð í ár og á síð- asta ári þegar heildarmat fasteigna hækkaði um 12-14%, hvort ár. Lóðaverð sumarhúsa lækkar Samanlagt mat íbúða á landinu öllu hækkar um 6% og er meiri hækkun á sérbýli en fjölbýli, eins og sést á með- fylgjandi töflu. Fasteignamat íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 5% en 9,1% á landsbyggðinni. Ef aðeins er litið til mats á íbúðum sést að mesta hækkunin verður á Akranesi, 21,6%, 17,7% í Suðurnesjabæ sem er sameinað sveitarfélag Sandgerðis og Garðs og um 16,6% í Vestmannaeyj- um. Hækkunin í þessum bæjum er því þre- til fjórföld miðað við höfuð- borgarsvæðið. Fasteignaverð sumarhúsa hækkar aðeins um 0,7% á milli ára. Sú skýring er gefin að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á aðferðafræði við út- reikning á fasteignaverði sumarhúsa. Matssvæðum er fjölgað og útreikn- ingi lóðaverðs breytt þannig að minni sumarhúsalóðir lækka í mati en þær stærri hækka. Þetta leiðir til þess að lóðaverð sumarhúsa lækkar að jafn- aði um 23% en húsamatið sjálft hækk- ar um 7,5%. Tilkynningar um nýtt fasteignamat verða sendar eigendum eignanna raf- rænt og geta þeir nálgast upplýsing- arnar frá 15. þessa mánaðar í póst- hólfi sínu á upplýsinga- og þjónustu- vefnum island.is. Fasteignaskattar til sveitarfélaga eru lagðir á fasteignamatsverð íbúða og hækka því á næsta ári eins og mat- ið nema álagningarprósentan verði lækkuð. Félag atvinnurekenda skor- ar á sveitarfélögin að lækka álagning- arprósentu fasteignaskatta á atvinnu- húsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár. Hækkun fasteignamats 2020 Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin Landið allt Heimild: Þjóðskrá Íslands Sérbýli Fjölbýli Atvinnuhúsnæði 9,1% 5,2% 9,1% 4,8% 9,3% 5,9% Hækkun fasteignamats eftir landshlutum Höfuðborgarsvæðið Suðurnes Vesturland Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland 5,3% 9,8% 10,2% 6,7% 7,4% 6,7% 8% Akranes 19,1%, Vestmannaeyjar 14,7%, Suðurnesjabær 14,2%6,1% er hækkun heildarmats allra fasteigna 2020 6,6% ▼ 5,3% ▼ 6,9% ▼ Mesta hækkun: Fasteignamat hækkar meira á landsbyggðinni  6,1% heildarhækkun  Mesta hækkunin á Vesturlandi „Við munum lækka álagningarprósentu fasteigna- skatta umtalsvert til þess að tryggja að staðið verði við yfirlýsingu sem gefin var út við gerð lífskjarasamn- inga um að gjöld íbúa muni hækka að hámarki um 2,5%,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Þar hækkar heildarmat fasteigna um 19,1% en íbúar og fyrirtæki verða ekki fyrir auknum álögum vegna áforma bæjaryfirvalda um áframhaldandi lækk- un álagningarprósentu. „Ég tel að þetta sé gott fyrir Akranes. Sýnir í raun þá þróun sem verið hefur síðustu ár,“ segir Sævar Freyr um hækkun fasteignamatsins sem endurspeglar þróun fasteignaverðs. Mikil upp- bygging er á Akranesi og ásókn í að kaupa fasteignir. Sævar segir að byggingafyrirtæki séu að fá gott verð fyrir eignirnar en þrátt fyrir það séu þær boðnar á 30-40% hagstæðara verði en víða á höfuðborg- arsvæðinu. Lækka álagningarprósentu AKRANESBÆR KEMUR TIL MÓTS VIÐ ÍBÚA OG FYRIRTÆKI Sævar Freyr Þráinsson Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Lífeyrisþegar sem búsettir eru erlend- is eða dvelja þar langdvölum og fá líf- eyri sinn greiddan inn á erlendan bankareikning gætu í sumum tilfellum verið með hærri greiðslur en ef greitt er inn á innlendan reikning. Þessi sömu lífeyrisþegar gætu allt eins feng- ið minna greitt inn á erlendan banka- reikning en íslenskan. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins á þriðjudag jukust greiðslur inn á er- lenda reikninga lífeyrisþega frá Tryggingastofnun, um 47% á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun eru almannatrygg- ingabætur greiddar í íslenskum krón- um enda réttindin og fjárhæð bóta til- tekin í íslenskum krónum í lögum og reglugerðum þar um. Bætur og greiðslur eru greiddar inn á reikning sem viðkomandi aðili óskar eftir og er í eigu hans. Ef lífeyrisþegi óskar eftir að lagt sé inn á erlendan reikning í eigu viðkom- andi þá verður Tryggingastofnun við þeirri beiðni. Slík millifærsla fer í gegnum þjónustubanka sem miðar þá við gengi þess dags þegar millifærsla á sér stað og getur endanleg greiðsla til viðkomandi breyst eftir gengisskrán- ingu hvers dags. Lífeyrisþegi ber sjálf- ur kostnað af millifærslunni enda ekki að finna heimild til greiðslu slíks kostnaðar í almannatryggingalögum. Samkvæmt upplýsingum frá Lands- bankanum kostar 3000 kr. að millifæra af íslenskum bankareikningi yfir á er- lendan ef þess er óskað símleiðis. Milli- færsla í gegnum heimabanka er 1.900 kr. Ef reiðufé er tekið út með íslensku kreditkorti erlendis er tekin 2,75% þóknun en lágmarksþóknun er 800 kr. Þóknun á úttekt af debetkorti í erlend- um hraðbanka eða banka er 2% og sé greitt með debetkorti hjá sölu- eða þjónustuaðila erlendis er þóknunin 1%. Mismunandi vextir á milli landa og breytilegt gengi og fjöldi lífeyrissjóða sem greiðslur koma frá er ein breyta sem lífeyrisþegar þurfa að skoða þeg- ar þeir ákveða hvers konar reikning þeir vilja fá lífeyri sinn lagðan inn á. Lífeyrir lagður í erlendan banka  Lífeyrisþegar greiða kostnaðinn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fyrirhyggja Að mörgu þarf að hyggja þegar dvalið er erlendis. Kostnaður » 1.900 til 3.000 króna kostn- aður við að leggja inn á erlend- an reikning. » Borgar sig að safna öllum lífeyri inn á einn reikning. » Mismunandi þjónustu- og vaxtagjöld milli banka og landa. » Gengi ræður upphæð líf- eyris sem lagður er í erlendan banka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.