Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 14

Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is Ársalir fasteignamiðlun 533 4200 159.000.000 kr. - 725,2 m² Vandað og gott atvinnuhúsnæði sem skiptist í 515 m² á jarðhæð með tvennum innkeyrsluhurðum og hárri lofthæð, og 210 m² á efri hæð, sem henta vel fyrir skrifstofur og þh. Góð aðkoma og bílastæði á lóð. 99.500.000 kr. - 374,9 m² Gott 375 m² atvinnuhúsnæði við Skútuvog í Reykjavík. Húsnæðið á jarðhæð sem er 256 m² með hárri og góðri innkeyrsluhurð, lofthæð ca. 4,3m Skrifstofur, kaffistofa og snyrting á efri hæð, eru 119 m² allt í mjög góðu ástandi. 59.000.000 kr. - 148,3 m² Falleg og mikið endurnýjuð efri sérhæð í tvíbýlishúsi, með bílskúr. Nánari lýsing: Eldhús með vandaðri sérsmíðaðri innrét- tingu og góðum tækjum. Uppþvottavél í innréttingu fylgir. Tvö bílastæði fylgja eign- inni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð síðustu ár. Ný gólfefni og loftaklæðning í allri íbúðinni. 74.000.000 kr. - 154,2 m² Til sölu einstaklega vandað sumarhús neðan við 11. brautina á einum fallegasta golfvelli landsins, Kiðjabergi. Húsið er á skjólsælum og fallegum útsýnisstað. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi með sturtu. Sér geymsla. Hiti er í öllum gólfum. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og vandaðar. Lóðin er 11.000. m² eignarlóð. Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Dragháls 10, 110 Reykjavík Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík Þinghólsbraut 28, 200 Kóp. Kiðjaberg lóð 9, 801 Selfoss Gera sýklalyf gagn við eyrna-bólgum, hálsbólgum og kvefi?Öll þekkjum við kvef og aðrar sýkingar í efri loftvegum. Hálssær- indi og hálsbólga getur verið hvimleið og langvinn, iðulega samtímis kvefi og nefrennsli. Hósti dag- og næt- urhósti fylgir oft í kjölfarið og jafnvel eyrnaverkur. Hvað er til ráða? Er ekki hægt að lækna þetta með sýkla- lyfjum, er algeng spurning og skilj- anleg þegar veikindin hafa staðið um lengri tíma. Hvenær er rétt eða þörf á að meðhöndla þessi einkenni með sýklalyfjum. Sjaldan eða aldrei í raun. Sturta eða hækkað undir höfðalagi Hvað er þá þessi eyrnabólga? Eyrnabólga er sýking í miðeyra, bak við hljóðhimnuna, iðulega í tengslum við kvef þegar vökvi hefur safnast í miðeyranu og veldur undirþrýsting eða jafnvel bólgu. Við mikinn þrýst- ing getur hljóðhimnan rofnað – þá tæmist sýkingin út og verkurinn minnkar. Sýkingin er langoftast veirusýking, hvort sem er eyrna- bólga, hálsbólga eða kvef og þá eru sýklalyf jú gagnslaus. Í daglegu starfi hafa læknar klín- iskar leiðbeiningar, bæði íslenskar og erlendar til að styðjast við, hvort sem vandamálið er kvef, eyrnabólgur eða annað. Nýjustu leiðbeiningar leggja áherslu á ýmis úrræði, önnur en sýklalyf. Oft duga einföld verkjalyf, til að slá á eyrnaverk. Að hækka und- ir höfðalaginu og nota raka, gott bað eða sturta getur bætt líðan. Leikskólabarn sem er kvefað með hor en hitalaust og hresst þarf ekki sýklalyf, jafnvel þó sjáist útbungun á hljóðhimnu eða vökvi í miðeyra. Lyf eða ástunga Við endurteknar eyrnabólgur, hvort sem þarf sýklalyf eða ekki, eða langvinnan vökva í miðeyra, er skoð- að hvort þörf sé á öðrum úrræðum til dæmis ástungu eða rörum og börnum þá vísað á háls-, nef- og eyrnalækna til mats. Barn undir eins árs aldri með eyrnabólgu þarf yfirleitt sýklalyf, einnig ef barnið er mikið veikt með háan hita eða mikil einkenni. Við svona veikindi er sjálfsagt að leita læknis. Á öllum heilsugæslustöðvum er op- in dagvakt þar sem hjúkrunarfræð- ingur tekur á móti erindum, hvort sem er í síma eða viðtal á stofu, og ef þörf krefur kemur læknir og skoðar. Þannig er hægt að komast að sam- dægurs, fá ráð og eftir þörfum skoð- un, góður valkostur fyrir foreldra veikra barna. Jafnvel stutt innlit næsta dag til meta gang veikindanna, er bólgan að hjaðna eða versna, er þörf á annarri meðferð eða er allt á réttri leið. Reynslan sýnir að sjaldn- ast er þörf á meiri meðferð. Skynsamlegri notkun sýklalyfja Eins og hjá börnum er sjálfsagt fyrir fullorðna að nota ýmis úrræði til að bæta líðan, nefúði hvort sem er saltvatnslaus til skolunar, nefúði sem dregur úr þrota í nefslímhúð er í lagi að nota í stuttan tíma og einnig er til bólgueyðandi nefúði, sterar til stað- bundinnar notkunar. Allt þetta getur bætt líðan og hjálpað. Raki, gufa, drekka vel og önnur einkenna- meðferð skiptir einnig máli. Í dag er lögð mikil áhersla á að draga úr notkun sýklalyfja og hefur náðst mikill árangur en betur má ef duga skal. Með skynsamlegri notkun sýklalyfja er hægt að minnka sýkla- lyfjaónæmi. Við viljum tryggja að hafa góð lyf þegar á þarf að halda, að hafa aðgang að sýklalyfjum sem virka þegar þörf krefur. Endurteknar eyrna- bólgur og lækning Morgunblaðið/ÞÖK Læknisheimsókn Læknar hafa klíniskar leiðbeiningar, bæði íslenskar og erlendar, til að styðjast við, hvort sem vandamálið er kvef, eyrnabólgur eða annað. Sýklalyf reynast vel við þessum kvillum, en notkun þarf að vera í hófi. Heilsuráð Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Nú í vikunni var undirritað sam- komulag um að ferðaþjónustufyr- irtækið Arctic Adventures yrði einn af helstu bakhjörlum Fiskidagsins mikla á Dalvík. Jafnframt var tilkynnt um verkefni í hreinsun á fjörum við utanverðan Eyjafjörð í tengslum við hátíðina. Arctic Adventures mun út- vega báta og búnað til að fara upp í fjörur og hreinsa þar til. Áætlað er að fara í þessa hreinsun fimmtudaginn 8. ágúst í sumar. Ruslið og það sem finnst við strendurnar verður svo til sýnis á Fiskideginum mikla, laug- ardaginn 10. ágúst, til að vekja fólk til umhugsunar og til að sýna hvað það finnst í fjörum. „Mikil vakning hefur orðið fyrir mikilvægi þess að hreinsa hafið og strandlengjur lands- ins. Við utanverðan Eyjafjörð eru margar fjörur illfærar og þar mun verkefnið að mestu fara fram, segir í fréttatilkynningu. Haft er eftir Júlíusi Júlíusson, framkvæmdastjóra Fiskidagsins mikla, að stuðningur Arctic Advent- ures sé mikið fagnaðarefni. Hjá fyrir- tækinu og meðal starfsmanna þess sé sterk umhverfisvitund sem haldist í hendur við að á Fiskideginum mikla séu umhverfismál nú efst á baugi. Önnur umhverfisverkefni sem Arctic Adventures stendur fyrir ásamt starfsmönnum sínum eru minnkun úrgangs, aukin endurvinnsla og fræðsla til ferðamanna um mikilvægi umhverfisverndar, bæði fyrir komuna til landsins og í ferðum með Arctic Adventures. Fyrirtækið hefur einnig fjárfest í rafbílum og ætlar að fjölga þeim. Fiskidagurinn mikli á Dalvík fær nýjan bakhjarl Hreinsa fjörurnar við Eyjafjörð- inn í aðdraganda hátíðarinnar Stuðningur Freyr Antonsson frá Arctic Adventures og Júlíus Júlíusson Fiskidags- maður um borð í hvalaskoðunarbátnum Draumi þegar samningur var undirritaður. Ljósmynd/Atli Rúnar Sjávarfang Gert að fiski á hátíðinni miklu á Dalvík síðasta sumar. Á morgun, föstudaginn 7. júní, kl. 16, opnar Randa Mul- ford sýninguna Teppi á veggnum í Listasal Mosfellsbæjar. Randa er bandarísk en hefur sterk tengsl við Ísland og Mosfellsbæ. Hún er, segir í fréttatilkynningu, einstakur textíllistamaður og sérhæfir sig í bútasaumslist. Í verk- unum blandar Randa saman ýmsum aðferðum og þenur út þetta óvenjulega listform til hins ýtrasta. Niðurstaðan verður bæði ótrúlega nákvæm fígúratíf verk og flókin mynsturverk sem virðast iða á veggnum. Verk Röndu hafa hlotið víðtæka viðurkenningu á bútasaumssýningum víðsvegar um Bandaríkin og unnið til margra virtra verð- launa vestanhafs, þar sem mjög sterk hefð er fyrir búta- saumi. Sýningin í Mosfellsbænum er opin á virkum dögum kl. 12-18 og á laug- ardögum kl. 12-16. Síðasti sýningardagur er 5. júlí. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sýnir teppi í Mosfellsbænum Randa Mulford

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.