Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 16

Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 AROUNDTHEWORLD.IS S. 564 2272 Faldar perlur Ítalíu 14. – 30. september 2019 Innifalið flug, gisting í 13 nætur með morgunmat, 7 kvöldverðir, sigling til Capri, matreiðslunámskeið, allar skoðunarferðir, íslensk fararstjórn. Verð í tvíbýli kr. 459.500 á mann. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Það sem af er þessu ári hafa fimm einstaklingar leitað á Landspítala með gat á lunga sem virðist mega rekja til rafrettureykinga. Þetta er talsverð fjölgun á slíkum tilfellum frá fyrri árum og má líklega rekja til aukningar á rafrettureykingum eða veipi að mati Tómasar Guðbjarts- sonar, prófessors og læknis á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala sem hefur meðhöndlað þessa sjúk- linga. „Þetta er í flestum tilfellum ekki lífshættulegt ástand, en getur verið býsna alvarlegt og er óþægilegt fyr- ir þann sem fyrir þessu verður,“ seg- ir Tómas. Í fjórum tilvikum féll annað lung- að saman, sem kallast loftbrjóst og hjá einum sjúklingi myndaðist svo- kallað loftmiðmæti. „Þá klýfur loftið sig inn miðmætið, sem liggur á milli lungnanna og umlykur hjartað, barkann og vélindað,“ segir Tómas sem ritar grein um þessi tilvik í nýj- asta tölublað Læknablaðsins ásamt Úlfi Thoroddsen lækni á hjarta- og lungnaskurðdeildinni. Hann segir að í öllum þessum tilvikum hafi verið um að ræða unga karla þar sem inn- öndun ertandi veipgufu virðist koma við sögu. „Veipgufan er ertandi, hún veldur hóstakasti og yfirþrýstingi í lungum og getur rofið gat á þau. Svipuðum tilfellum hefur verið lýst erlendis eftir kannabis- og krakk- reykingar, enda er reynt að halda reyknum eins lengi í lungunum og hægt er til að fá sem mest áhrif af því efni sem verið er að reykja,“ seg- ir Tómas. Brjóstverkir og rám rödd Í greininni í Læknablaðinu segir frá ungum og hraustum karlmanni sem leitaði á bráðamóttöku Land- spítala vegna skyndilegra brjóst- verkja. Skömmu áður hafði hann reykt rafrettu sem olli öflugu hósta- kasti, verkurinn versnaði við djúpa innöndun og við hreyfingu og kyng- ingu og rödd unga mannsins varð rámari. Eftir myndrannsóknir kom í ljós að um var að ræða loftmiðmæti og var maðurinn lagður inn á spít- alann þar sem hann fékk viðeigandi meðferð. Yfirleitt ekki lífshættulegt Tómas segir að ungi maðurinn hafi greint frá því að eftir að hann hefði haldið reyknum lengi niðri í sér hefði honum skyndilega fundist eins og eitthvað brysti inni í sér. „Þó að loftmiðmæti sé að öllu jöfnu ekki lífshættulegt nema í einstaka til- fellum, t.d. þegar fólk er statt þar sem loftþrýstingur er lágur, þá er þetta klárlega alvarlegur atburður; sárt og heldur dramatískri upplifun fyrir fólk. Þegar lungað fellur saman verður síðan að koma fyrir slöngu og hífa lungað upp,“ segir Tómas. Að sögn Tómasar hafa lang- tímaáhrif rafrettna á lungu lítið ver- ið rannsökuð. „Það er þó talsvert af rannsóknum í gangi á þessu núna þar sem m.a. er verið að skoða astma og áhrif á lungnaþembu,“ segir hann. „Það er þó alveg ljóst að raf- rettur geta engan veginn talist heilsusamlegar, hvað þá fyrir þá sem eru með viðkvæm lungu.“ Með gat á lunga vegna rafrettna  Fimm hafa leitað á LSH í ár með gat á lunga sem rakið er til rafrettureykinga  Allt ungir karl- menn  Áhrifin lítið rannsökuð segir Tómas Guðbjartsson læknir  „Eins og eitthvað brysti innra“ Ljósmynd/Úlfur Thoroddsen Tölvusneiðmynd Loftmiðmæti hjá unga manninum sem fjallað er um í greininni. Loftið sem er svart sést greinilega utan við vinstra lungað og teygir sig upp á háls og undir húð. Þar sem loftið þrýsti á raddböndin breyttist röddin. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Tómas Guðbjartsson Segir langtímaáhrif veips lítið hafa verið rannsökuð. Loftmiðmæti » Þetta ástand er oftast af óþekktum orsökum og kallast þá sjálfsprottið, en getur líka orðið af völdum inngripa lækna, eins og t.d. eftir vél- inda- eða berkjuspeglun. » Loftið klýfur sig inn í mið- mætið, sem er það svæði lík- amans sem liggur á milli lungnanna og umlykur hjartað, barkann og vélindað. » Að sögn Tómasar er loft- miðmæti að öllu jöfnu ekki lífshættulegt. » Þetta ástand getur þó haft veruleg óþægindi, jafnvel sársauka, í för með sér. » Til eru mörg tilfelli af loft- miðmæti eftir kannabisreyk- ingar og neyslu krakks/ kókaíns, en einungis einu til- felli hefur verið lýst eftir notkun rafsígarettu að því er fram kemur í grein Tómasar og Úlfs í Læknablaðinu. Rafrettur eða veipur innihalda ekki krabbameinsvaldandi efni líkt og hefðbundnar sígarettur, en nikótínvökvinn sem notaður er í þær getur innihaldið jafn mikið, jafnvel meira, nikótín en reyk- tóbak. Rannsókn rannsóknamið- stöðvarinnar Rannsóknir og grein- ing, sem gerð var í fyrra, sýndi að hátt í helmingur nemenda í 10. bekk grunnskóla hefur reykt raf- rettur og að tæpur fjórðungur reykti þær daglega. Hlutfall barna og unglinga sem veipa hefur auk- ist ár frá ári og hefur það m.a. verið rakið til þess að vökvinn hefur verið markaðssettur sem litríkt sælgæti. Í reglugerð um merkingar á um- búðum rafrettna og áfyllinga, sem tók gildi um nýliðin mánaðamót, segir meðal annars að merking- arnar skuli vera áberandi, þekja 30% af pakkningunni, umbúðir megi ekki gefa í skyn að innihald- ið dragi úr áhrifum skaðlegra efna eða hafi eiginleika sem geti aukið lífsþrótt eða lækningarmátt. Þá megi umbúðirnar hvorki líkjast matvælum né snyrtivörum. Tómas segir þessar reglur vissulega geta verið til bóta og að þær muni vonandi stuðla að því að veip höfði síður til barna og unglinga. „Við læknarnir verðum stundum varir við að fólk telur þetta vera algerlega skaðlaust,“ segir hann. „En nikótín, sem er eitt mest ávanabindandi efni sem til er, getur aldrei verið gott efni til að innbyrða sama í hvaða formi það er. Hvað þá þegar um er að ræða börn og unglinga, en þetta er orðinn sannkallaður far- aldur þar sem afleiðingarnar eru óljósar. Okkur læknum ber að vara við því sem er ekki heilsu- samlegt fyrir fólk og það er mik- ilvægt að foreldrar séu vakandi fyrir þessu. Að mínu mati og margra annarra lækna ætti ein- ungis að selja veip gegn lyfseðli til fullorðins fólks sem vill hætta að reykja tóbak.“ Segir marga telja rafrettur algerlega skaðlausar UMBÚÐIR UM RAFRETTUR OG VÖKVI Í ÞÆR MEGA HVORKI LÍKJAST MATVÆLUM NÉ SNYRTIVÖRUM Morgunblaðið/Hari Rafrettur Tómas Guðbjartsson læknir segir að læknum beri að vara við því sem sé ekki heilsusamlegt. Hann segist telja að einungis ætti að selja veip gegn lyfseðli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.